Morgunblaðið - 23.07.1996, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
‘l
Dýraglens
TH05E STUPID 61RL-
FRIENP5 0F YOUR5
CALLED AöAIN.JHEW'
HATE THEIR CAMP..____,
THEY WAWT TO
6ET THEIR
MONET BACK
Ul/HY DO THEY CALL
ME7UJHAT CAN I PO?
Þessar heimsku stelpur - Þær vilja fá pen- Af hverju hringja þær í Það sem þær þurfa er
vinkonur þínar, hringdu aft- ingana sína aftur. mig? Hvað get ég gert? góður lögfræðingur.
ur ... þeim leiðast sumar-
búðirnar ...
BREF
ÍTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Hugleiðingar um ástand
rafmagnsöryggismála
Frá Sveinbirni Guðmundssyni:
HÆFNISKRÖFUR fyrir aðila sem
vilja öðlast A-löggildingu, sem er
löggilding til rafvirkjastarfa við
háspennuvirki, eru skilgreindar í
Reglugerð um
raforkuvirki -
RER (gr. 1.4.
4A-löggilding,
bls. 16). Ekki er
skilgreint hvern-
ig tveggja ára
reynslu, sem
krafist er, við
störf sem lúta að
rafvirkjun við
háspennuvirki,
Hér er um veigamikið verksvið
og spennusvið að ræða og þess
vegna nauðsynlegt að skilgreina
nánar hvert verksvið, þ.e. hönnun,
uppsetningu, rekstur, prófanir, við-
hald, eftirlit með slíkum virkjum,
spennusvið (að 11 kV, að
66 kV, að 220 kV) og svo
framvegis.
Til eru dæmi um starfs-
menn sem hafa öðlast
A-löggildingu eftir að
hafa einungis unnið við
lagningu og tengingu 11
kV-jarðstrengja og til-
heyrandi. Slíkur starfs-
maður hefur leyfi til að
starfa við hönnun, uppsetningu,
rekstur, prófanir, viðhald og eftirlit
með háspennuvirkja allt að 220 kV,
samkvæmt Reglugerð RER um
hæfniskröfur.
Slysahættan er augljós, ekki bara
fyrir starfsmanninn sjálfan heldur
einnig fyrir samstarfsmenn hans.
Hér er dæmi um innbyggða slysa-
hættu í Reglugerðinni RER eins og
10% slembiúrtaksskoðun raforku-
virkja býður upp á. Geta skoðanir
10% slembiúrtaks tryggt 100% ör-
yggi? Stjórnsýslufræðingurinn,
vélaverkfræðingurinn og jarðfræð-
ingurinn, sem sáu um samningu og
framkvæmd nýskipunar raforkuör-
yggismála á Islandi, svara þessari
spurningu vafalaust játandi!
Þriggja ára reynsla af „Nýskipun
raforkuöryggismála" sýnir síhækk-
andi brunatilvik í neysluveitum af
völdum rafmagns, aukin slys og
óhöpp í orkukerfinu, t.d. springur
háspenntur rafbúnaður (aflrofar,
spennar o.fl.), rafalar brenna, bú-
peningur drepst o.s.frv. Ástand
þessara mála hefur farið hríðversn-
andi síðan umrædd „Nýskipan raf-
orkuöryggismála" tók gildi, svo
hörmuleg er til þess að vita. Eins
og stjórnvöldum ætti nú orðið að
vera kunnugt, hefur þessari „ný-
skipun" eftirlitsmála verið harka-
lega mótmælt af ýmsum rekstra-
raðilum sem hafa faglega þekkingu
og reynslu.
Tilgangur reglugerðar
RER er að draga sem
mest úr hættu og tjóni af
öllum raforkuvirkjum og
truflunum á og af starf-
rækslu þeirra. Sá tilgang-
ur næst ekki með úrtaks-
skoðunum og ófullkomn-
um hæfniskröfum.
Nánari umíjöllun um
úrtaksskoðun má finna í grein um
þetta efni á bls. 36 í Morgunblaðinu
miðvikudaginn 23. nóvember 1994
- „Urtaksskoðun, nýjung í raf-
magnsöryggismálum".
SVEINBJÖRN GUÐMUNDSSON,
fv. umdæmiseftirlitsmaður á Austur-
landi og hefur um árabil unnið að
fræðslumálum er varða öryggi og for-
varnastarfsemi í skólum, á vinnustöð-
um og víðar.
Sveinbjörn
Guðmundsson
skuli aflað.
IHáspenna
. Lítshætta .
Upplýsingar um Alnets-
tengingu við Morgunblaðið
Tenging við heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heimasíðu
Morgunblaðsins, sláið inn slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar upp-
lýsingar um blaðið, s.s netföng
starfsmanna, upplýsingar um
hvernig skila á greinum til blaðs-
ins og helstu símanúmer.
Morgunblaðið
á Alnetinu
Hægt er að nálgast Morgun-
blaðið á Alnetinu á tvo vegu. Ann-
ars vegar með því að tengjast
heimasíðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða með
því að tengjast heimasíðu blaðsins
og velja Morgunblaðið þaðan.
Strengur hf. annast áskriftar-
sölu Morgunblaðsins á Alnetinu
og kostar hún 1.000 krónur.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um Alnetið noti
netfangið: mbl@centrum.is.
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem má
finna á heimasíðu blaðsins. Það
tryggir öruggar sendingar og
einnig að efnið rati rétta leið í
blaðið. Senda má greinar, fréttir
og myndir eins og fram kemur á
heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar
við Alnetið
Þeir sem hafa Netscape/Mos-
aic-tengingu eiga hægt um vik
að tengjast blaðinu. Einungis þarf
að slá inn þá slóð sem gefin er
upp hér að framan.
Þeir sem ekki hafa Netscape/
Mosaic-tengingu geta nálgast
þessar upplýsingar með Gopher-
forritinu. Slóðin er einfaldlega
slegin inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota a.m.k.
14.400 baud-mótald fyrir
Netscape/Mosaic tengingar.
Hægt er að nota afkastaminni
mótöld með Gopher-forritinu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.