Morgunblaðið - 24.07.1996, Page 1
1996M MIÐVIKUDAGUR24. JULI
Heyns bætti
ólympíumeti
í safnið
Penelope Heyns gerir það ekki
endasleppt. Um helgina setti
hún heimsmet í 100 metra bringu-
sundi og fylgdi því eftir með sigri
í greininni. I gær krækti stúlkan
frá Suður-Afríku sér í ólympíumet
I riðlakeppni 200 metra bringu-
sundsins en úrslitakeppnin fór fram
eftir að blaðið fór í prentun.
Heyns synti á 2.26,63 en gat
greinilega gert betur. „Eg var ekki
á fullu en hélt góðum hraða og vildi
ekki hægja á mér á síðustu 50
metrunum þegar ég heyrði í áhorf-
endum,“ sagði hún. „Vonandi get
ég gert betur í úrslitunum."
Stúlkan vissi að hún gæti slegið
ólympíumetið en hún var varkár
varðandi úrslitasundið þar sem talið
var að baráttan yrði á milli hennar
og bandarísku stúlkunnar Amöndu
Beard, sem synti á 2.28,10 í riðla-
keppninni, og Samönthu Riley frá
Ástralíu, sem fór á 2.28,30. „Ég
er ekki sigurstranglegust," sagði
methafínn, og ég tala ekki um verð-
laun á þessari stundu. Vissulega
yrði frábært að hafna í verðlauna-
sæti en eftir það sem ég gerði í 100
metrunum er allt annað bónus.“
Kyoko Iwasaki, fyrrum methafi
sem var 14 ára þegar hún synti á
2.26,65 og varð Ólympíumeistari í
Barcelona 1992, komst ekki í úr-
slit, synti á 2.30,84 að þessu sinni
og varð í 11. sæti.
Reuter
PENELOPE Heyns gerir það ekki endasleppt - setti heimsmet í 100 metra
bringusundi um sl. helgi, í gær krækti hún sér í ólympíumet í riðlakeppni 200
metra bringusundsins.
Elsa Nielsen
mætir stúlku
fráTælandi
KEPPNI í einliðaleik kvenna i b'adminton hefst
í dag og Elsa Nielsen mætir thaílensku stúlk-
unni Somharuthai Jaroensiri í fyrstu umferð-
inni. Búist má að við ramman reip verði að draga
fyrir Elsu því ef allt er með felldu á mótherjinn
að vera talsvert betri. Elsa og Jaroensiri hefja
leik kl. 9 fyrir hádegi, kl. 13 að íslenskum tíma.
„Þetta er besta thaílenska stelpan í einliðaleik
og hún keppir líka í tvíliðaleik hérna. Hún var
sú fimmtánda inn í mótið en ég var númer 32,
hún er stór og er mjög sterk,“ sagði Elsa við
Morgunblaðið í gær.
Elsa sagðist hafa séð mótheija sinn á æfingu
i gær og hefði því nokkra hugmynd um hvemig
hún léki. „Svo hef ég fengið að spila við tvær
Asíustelpur á æfingum en fólk frá þessum lönd-
um leikur allt svipað. Er svolítið öðruvísi en
Evrópubúar, leikur hraðar og spilar meira en
við erum vön. Sækir ekki mikið.“ Elsa sagðist
viss um að leikurinn yrði þó nokkuð erfiður.
„Það er ekki alltaf hægt að vera heppinn í röðun-
inni. Eg hefði auðvitað frekar viljað mæta ein-
hverri sem er á svipuðu róli og ég, sem hefði
komið inn í mótið í kringum þrítugasta sætið
eða jafnvel áftar.“
Sigurður Einarsson
Sitjum ekki
við sama borð
SIGURÐUR Einarsson, spjótkastari, er óánægð-
ur með að hann og Pétur Guðmundsson fái ekki
að keppa á Ólympíuleikunum og segir að þeir
sitji ekki við sama borð og aðrir keppendur sem
hafi fengið sérstök þátttökuréttindi án þess að
ná lágmörkum. „Við stóðum alltaf í þeirri mein-
ingu að við værum inni á leikunum þvíJúIíus
[Hafstein, formaður Ólympíunefndar íslands]
var búinn að gefa til kynna að við værum inni,“
sagði hann við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ekki
var nefnt að við þyrftum að ná a-lágmarki aftur
fyrr en 3. júlí og það var of seint en við erum
i toppformi. Ólympíusamhjálpin styrkti okkur
með það í huga að við kepptum á leikunum. Við
teljum okkur eiga rétt á að vera þarna inni en
verði ekki af því viljum við að allur sannleikur-
inn komi í ljós. Það er eins og staðreyndirnar
hafí verið faldar fyrir nefndarmönnum Óí.“
Þrýst á að Péturog Sigurðurverði með á Ólympíuleikunum
„Málið er afgreitt“
Þjóðverjar
töpuðu á
hlutkesti
ÞÝSKA skylmingaliðið, sem á
titil að veija, mátti þola tap
gegn ítölum I undanúrslitum
með lagsverðum. Bardaginn
var æsispennandi, en ítalir
sigruðu á hlutkesti sem varp-
að var fyrir viðureignina.
Staðan var jöfn, 42:42, þegar
hefðbundnum einvígum lauk
og fór því fram bráðabani, en
hann stóð yfir i eina mínútu.
Ekkert stig var skorað í hon-
um og sigruðu ítalir því með
fyrrgreindum hætti. Áður
fyrr stóð bráðabaninn yfir þar
til að annar aðilinn skoraði
stig.
Síðustu daga hefur mjög verið
þrýst á forystu Ólympíu-
nefndar íslands að leyfa þeim Pétri
Guðmundssyni kúluvarpara og
Sigurði Einarssyni
Skapti spjótkastara að
Hallgrímsson keppa á Ólympíu-
skrifar frá Atianta ieikunum. Forysta
FRÍ og aðrir í frjálsíþróttahreyf-
ingunni hafa lagt að Ólympíunefnd
að breyta afstöðu sinni en Júlíus
Hafstein, formaður Óí, sagði við
Morgunblaðið í Atlanta í gær að
það yrði ekki gert.
Málið er afgreitt af hálfu Ólymp-
íunefndar og viðmiðunarnefndar
og verður ekki tekið upp aftur
hér. Lágmörk voru sett fyrir tveim-
ur árum og allir vissu að hveiju
þeir væru að ganga. Enginn hefði
viljað frekar en ég að Pétur, Sig-
urður, Martha Ernstsdóttir og
sundmennirnir Magnús Konráðs-
son og Arnar Freyr Ólafsson, svo
einhveijir séu nefndir, hefðu kom-
ist á leikana. En það verður ekki
gerð undanþága fyrir tvo íþrótta-
menn. Það þurfa allir að sitja við
sama borð,“ sagði Júlíus.
Hann sagði að ekki mætta rugla
saman * lágmörkum alþjóða
ólympíunefndarinnar og Ólympíu-
nefndar íslands. „Lágmörk ís-
lensku nefndarinnar eru þau sem
við fórum eftir í fullu samræmi við
Fijálsíþróttasambandið og Sund-
sambandið. Það er ekki hægt að
segja á síðasta degi: Við erum
búnir að ná lágmarki alþjóða
nefndarinnar — þá á ég við svoköll-
uðum B-lágmörkum. Það er rétt
að Pétur og Sigurður náðu íslensku
lágmörkunum fyrir tíu mánuðum
en allir eru sammála um að sá
árangur getur ekki fleytt þeim inn
á leikana. Þá væri alveg eins hægt
að miða við árangur fyrir tveimur
árum eða jafnvel fjórum árum.
íþróttamennirnir verða að vera í
góðu formi núna — menn verða
að skilja það.“
Júlíus ítrekaði að hann hefði
gjarnan vilja sjá allt umrætt fólk
hér. „Það er slæmt fyrir mig sem
formann Ólympíunefndar íslands,
fyrir Fijálsíþróttasambandið og þá
sjálfa að þeir verði ekki með en
það þýðir ekki að skella skuldinni
á aðra. Pétur og Sigurður ættu
að bregðast við eins og Martha.
Þegar ljóst var að hún næði ekki
lágmarkinu sagði hún eitthvað á
þessa leið: Jæja, þetta tókst ekki
en nú fer maður að búa sig undir
Sydney. Það er íþróttamennska
sem ég kann að meta. Ég held,
þó ég segi sjálfur frá, að enginn
hafi stutt jafn vel við bakið á Sig-
urði og Pétri síðustu tvö ár en for-
maður Ólympíunefndar íslands.
Þeir hafa fengið meiri stuðning en
nokkur annar frá nefndinni en því
miður tókst þeim ekki ætlunar- !
verkið. Ég hef verið í góðu sam-
bandi við þessa stráka og vil vera
það áfram, ég hef lagt mig frarn
um að hjálpa þeim og get gert það
á þennan hátt. En ég get ekki far-
ið inn á völlinn og kastað fyrir
þá,“ sagði Júlíus Hafstein.
SUND: EYDIS KOIMRAÐSDOTTIR DREYMDIFORELDRA SllMA / D7