Morgunblaðið - 25.07.1996, Qupperneq 8
8 B FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
í UPPHAFI þessa árs tók ís-
lenskt fyrirtæki í fyrsta sinn sjón-
fundatæknina í sína þágu. Var það
Sölumiðstöð hraðfrystihúsana sem
hóf tilraunir með að halda fundi á
milli Akureyrar-einingar og
Reykjavíkur-einingar fyrirtækisins
á þennan hátt. Reynslan af þessu
frumkvöðulsstarfi hefur að sögn
Sigurðar Inga Margeirssonar
deildarstjóra tölvudeildar verið
góð. Sjónfundakerfi er tækni sem
gerir fóiki kleift að hittast augliti
til auglitis, tala saman, deila og
vinna með ýmis gögn s.s. tölvu-
gögn án þess að vera á sama stað.
Hugmyndin er ekki ný, myndsími
var fyrst kynntur á heimssýning-
unni í Flushing Meadow, New
York 1964 og var það símafyrir-
tækið AT&T sem hannaði síma er
kallaður var Picturephone. Skjár-
inn var 13,5 x 12 cm byggður inn
í plastkassa og var myndavélinni
komið fyrir ofan við skjáinn. I
þessu tæki var komið fyrir tökkum
til að stjórna birtu, hljóði, móttöku
og aðdrætti myndavélarinnar í
senditækinu, auk þess sem hægt
var að stilla á „einkasamtal" en
þá var engin mynd, aðeins tal.
Þrátt fyrir vel hannað tæki náði
síminn aldrei útbreiðslu. Ástæður
þess voru einkum að í þá daga
voru ljósleiðarar ekki til staðar og
símakerfinu var ætlað að flytja
analog lágtíðni- boð. Niðurstaðan
var sú að myndin sem flutt var
varð óskýr og snjóug vegna lítillar
bandvíddar.
Raunhæft núna
Síðan þá hefur þessi tækni verið
í stöðugri þróun og mörg fyrirtæki
kynnt ný tæki og nýjar aðferðir.
Eftir að ljósleiðarar voru lagðir um
heimsbyggðina gjörvalla sköpuð-
ust forsendur fyrir flutningi staf-
rænna gagna fyrir milligöngu
símafyrirtækjanna. Og með auk-
inni útbreiðslu og notkun tölva til
samskipta milli landa hafa fram-
leiðendur séð sér þann leik á borði
að hanna sjónfundakerfi sem kom-
ið er fyrir í einkatölvunni (desktop
videoconferencing systems eða
tölvu-sjónfundakerfi). Þessi hug-
myndafræði hefur stökkbreytt
þessari tækni og gert hana að-
gengilega smærri fyrirtækjum og
jafnvel einstaklingum. Þ.e. erlend-
is, því hér á landi eru sjónfunda-
kerfi nánast óþekkt. Sjónfunda-
kei-fi eru tvennskonar, „room con-
ferencing“ og „desktop conferenc-
ing“. Munurinn er sá að „room
conferencing“ notar sérhæfðan
búnað og meiri bandvídd. „Room“-
sjónfundakerfi henta við þær að-
stæður þar sem t.d. kennari heldur
fyrirlestur fyrir hóp af nemendum
eða vinnuhópur þarf að vera í sam-
bandi við annan vinnuhóp eða
vinnuhópa. Tölvu-sjónfundakerfi
nota þann búnað sem einkatölvan
býr yfir ásamt aukahlutum þeim
sem nauðsynlegir eða æskilegir
eru. í dag eru enn framleiddir
myndsímar á borð við þann sem
AT&T kynnti 1964. Þá er hægt
að tengja við einkatölvur og þeir
geta líka talað við önnur kerfi.
Staðlar
Eins og við upphaf faxtækja-
byltingarinnar hafa sjónfundakerfi
lengi verið undirorpin því að tæki
frá einstökum framleiðendum
vinna ekki saman. Þessu var mætt
á sínum tíma með því að ITU setti
hinn svokallaða „group Three
Standard“ staðal sem samhæfði
tækin. Nú hefur ITU (Internati-
onal Telecommunions Union) búið
til staðla sem helstu framleiðendur
sjónfundakerfa hafa samþykkt,
s.s. Intel og PictureTel. Staðlar
þessir heita H.320 fyrir mynd og
T.120 fyrir hljóð. Báðir eru sam-
settir úr nokkrum öðrum en ekki
verður farið nánar í það.
Hagnýt notkun
í okkar hraða tækniþjóðfélagi
þar sem tíminn er peningar og al-
þjóðaviðskipti verða sífelit stærri
þáttur í efnahagskefinu, má í fljótu
bragði sjá ýmsa pósta þar sem
Sjónfundakerfi og
Sölumiðstöðin
Upplýsingatækni
Sjónfundakerfi er
tækni sem gerir fólki
kleift að hittast og tala
saman augliti til auglitis
og vinna saman með
ýmis gögn s.s. tölvu-
gögn, án þess að vera á
sama stað. Valberg
Lárusson hefur kynnt
sér þessa tækni og
hvernig Sölumiðstöð
Hraðfrystihúsanna
hefur fært sér hana í nyt.
sjónfundarkefi ekki bara geta
dregið úr kostnaði eða aflað tekna
heldur líka aukið gæði, bætt þjón-
ustu og breytt skipulagi fyrir-
tækja, stofnana og félaga. Ef við
bytjum á fyrirtækjunum þá hafa
fyrirtæki með notkun sjónfunda-
kerfa getað dregið úr ferðalögum
milli staða vegna samninga, verk-
efnavinnu og annarra þátta í starf-
semi sinni sem krefjast
þess að starfsfólk á
mismunandi stöðum
hittist til að funda.
Fargjöld, hótel, bíla-
leigubílar, fæði og af-
þreying eru meðal
fastra útgjaldaliða
vegna þessara ferða-
laga og væru mörg
fyrirtæki fegin að
skera niður á þessu
sviði auk þess sem
starfsmenn væru
fegnir að losna við
amstrið. Almennt er
áætlað að fyrirtæki
geti lækkað ferða-
kostnað um 6 - 15%
með því að nota sjón-
fundakerfi, en til eru dæmi um
mikið meira, jafnvel allt að 40%.
Auk þessa beina sparnaðar á ferða-
kostnaði hagnast notendur sjón-
fundakerfa á því að geta komið á
fundum við samstarfsaðila með
skömmum fyrirvara sem stundum
getur gefíð nægjanlegt forskot á
samkeppnisaðila til að ráða úrslit-
um um að samningar náist. Mis-
munandi einingar innan fyrirtækis
eða milli fyrirtækja í samstarfi sem
vinna sameiginlega að verkefni
geta borið saman vinnu sína og
unnið úr vandamálum sameigin-
lega. Árangur þessa sést í auknum
liðsanda, færri mistökum vegna
meiri samhæfingar og styttri
vinnslutíma. Til dæmis var sjón-
fundatæknin ein helsta ástæða
þess að Boeing flugvélaframleið-
andanum tókst að stytta hönnun-
artíma á _ nýrri 767 vél sinni um
heilt ár. Árangurinn var að tekjur
komu fyrr inn og þeir náðu for-
skoti á aðra framleiðendur í nýrri
kynslóð farþegaþotna. Starfsviðtöl
þar sem umsækjandi er staðsettur
annarstaðar en fyrirtækið sparar
umsækjanda ferðalagið. Og getur
hjálpað fyrirtæki sem staðsett er
langt frá helstu markaðssvæðum
að velja úr hæfum einstaklingum
sem annars hefðu ekki lagt á sig
að ferðast. Fyrirtæki sem þarf á
aðstoð sérfræðings á sérstöku sviði
að halda, en sættir sig við innri
þekkingu vegna fjarlægðar frá
sérfræðingnum getur með lítilli
fyrirhöfn og litlum tilkostnaði
fengið álit hans á flóknum málum.
Tími starfsmanna sem án sjón-
fundakerfa þyrftu að ferðast lang-
ar leiðir til að sitja fund nýtist
fyrirtækinu og það eykur fram-
leiðni þess. Hér getur verið um
umtalsverðar upphæð-
ir að ræða ef til dæm-
is er litið á sölumann
sem þarf að selja fyrir
5.000.000 á mánuði til
að ná settum mark-
miðum. Ef vinnuvikan
er 22 dagar og við-
komandi sölumaður
þarf að fara í 3ja daga
utanlandsferð þá nem-
ur tap fyrirtækisins af
tapaðri vinnu hans um
700.000. Auk framan-
nefndrar hagkvæmni
taka sjónfundir 20-25
mín skemmri tíma að
meðaltali en hefð-
bundnir fundir. Vel
heppnað sjónfunda-
kerfi getur því dregið úr rekstrar-
kostnaði, stytt þróunartíma vara
eða hugmynda, aukið framleiðni,
aukið tekjur og dregið úr kostnaði
fyrirtækis. Stofnanir eins og skólar
og sjúkrahús í afskekktum lands-
hlutum geta einnig hagnast veru-
lega á því að nota sjónfundakerfi.
Til þessara svæða er gjarnan erfitt
að laða að reynda og sérmenntaða
kennara og lækna. Með fjar-
kennslu í gegnum sjónfundakerfi
geta þessir landshlutar fengið
kennslu hæfustu kennara og pró-
fessora án þess að þeir þurfi að
ferðast til eða setjast að á staðn-
um. Einnig geta sérfróðir læknar
aðstoðað héraðslækninn við sjúk-
dómsgreiningu eða við ákvörðun á
meðferð, lyfjagjöf, osfrv., þar sem
þeir geta ekki aðeins talað saman
augliti til auglitis heldur líka deilt
og unnið með sömu gögn.
Hugbúnaður, vélbúnaður og
tengingar
Samsetning sjónfundakerfa og
þarmeð kostnaðurinn við þau fer
mjög eftir því hverskonar kerfi
hentar starfseminni. Það sem hent-
ar einum hentar ekki endilega öðr-
um. Grunnsamsetning sjónfunda-
kerfis samanstendur af tölvu,
myndavél, hljóðnema, skjá, hátal-
ara, hugbúnaði, símalínu eða ann-
arri nettengingu og feijaldi eða
módemi. Tölvan getur verið einka-
tölva með 486 örgjörva eða stærri
og skjá. Venjulegt stafrænt sím-
tæki getur nýst sem hátalari og
hljóðnemi og raunverulega er með
réttum tengingum, kortum og hug-
búnaði hægt að nota hvaða mynd-
bandstökuvél sem er sem mynda-
vél, en eðlilegt og einfaldast er að
fá þennan vélbúnað ásamt ferjaldi
frá framleiðendum sjónfundakerfa.
Hugbúnaðarflóran á þessu sviði er
orðin mjög fjölbreytt og eru flestir
framleiðendur komnir með eigin
hugbúnað. CUSeeMee er mjög
þekkt sjónfunda- forrit enda fæst
það ókeypis á Internetinu og er
komið í hendurnar á flestum tölv-
ugrúskurum. Að lokum þarf að
tengja búnaðinn símstöð til að
hægt sé að koma á samskiptum.
Helstu möguleikarnir á því sviði
eru POTS, LAN, ISDN, T-l(aðeins
í Bandaríkjunum) og ATM(í fram-
tíðini). POTS stendur fyrir Plain
Old Telephone System, þ.e. venju-
leg símalína. Helsti kostur POTS
tengingar er sá að útbreiðsla henn-
ar er svo almenn að nánast er
hægt að segja að hún sé allstaðar.
Helsti gallinn er hinsvegar sá að
bandvíddin er ekki nægjanleg til
að hægt sé að koma á ótrufluðum
fundum. LAN eða Local Area
Network, er netkerfi fyrirtækisins
eða stofnunarinnar, í dag er það
orðið algengt að fyrirtæki nota
eigið netkerfi til að tengja tölvur
sínar hvort sem er innanhúss, úti
í bæ, milli landshluta eða jafnvel
landa og geta þau þá notað það
kerfi til að halda sjónfundi. Þetta
er sú tenging sem SH notar og
er þar um að ræða Ethelnet net-
kerfi sem gefur 10 Mbps flutnings-
getu. ISDN eða samnet eins og
Póstur og sími kallar það er þó sú
tenging sem helst er talað um þeg-
ar sjónfundakerfi eða tölvusam-
skipti eru annarsvegar. Símafyrir-
tæki um allan heim vinna nú að
útbreiðslu ISDN og er nú svo kom-
ið að hægt er að fá ISDN tengingu
í flestum löndum heims. ISDN er
samtenging tveggja símalína (B-
lína) og einnar stýrilínu (D-lína).
Hver venjuleg símalína hefur 64
kbps flutningsgetu og stýrilína
flytur 16 kbps (kílóbæti á sek-
úndu). ISDN2 hefur því 128 kbps
flutningsgetu og telst það nóg til
að koma á góðum sjónsamskiptum
(hljóð og mynd). Einnig bjóða Póst-
ur og sími uppá ISDN30 tengingu
eða einkasímstöð eins og það er
kallað. ISDN30 samanstendur af
Valberg
Lárusson
30 B-línum og einni D-línu og
getur flutt 2 Mbps. T-1 tenging
er 1,5 Mbps samskiptaform sem
aðeins er boðið uppá í Bandaríkjun-
um. ATM (Asynchronus Transfer
Mode) er flutningsaðferð sem býð-
ur uppá frá 45 Mbps til 622 Mbps
flutningsgetu en það er langt yfir
því sem þarf til að halda sjónfundi
og er auk þess rándýrt og ekki til
staðar á Islandi. ATM er enn í
þróun en gæti orðið raunhæft síð-
ar. Niðurstaðan er því sú að ISDN
tenging er grunnurinn að góðu
sjónfundakefri. Áður var lauslega
tæpt á muninum á „room“ og
“„desktop" sjónfundakerfum.
„Room“ kerfi samanstanda af sér-
hæfðum og dýrum búnaði. Þessi
búnaður getur innihaldið einn til
tvo stóra sjónvarpsskjái, annar fyr-
ir fundinn og hinn fyrir gögn sem
fundarmenn deila og vinna með.
Myndavél þeirri sem staðsett er
hjá sendanda er stjórnað af mót-
takanda með fjarstýringu sem
einnig fylgir þessum kerfum. Mið-
stöð, sérhönnuð tölva, sér um að
pakka myndinni og hljóðinu og
afpakka og sýna það sem tekið er
við. Sértakt feijald sendir og tekur
við pökkunum. Önnur myndavél
er fyrir gögnin sem verið er að
miðla nema að um sé að ræða
tölvugögn, en þá er tölvan tengd
við miðstöðina með sérstökum
tengingum og hugbúnaði.
Kostnaðar- og ábatasjónarmið
Með tilkomu ISDN hafa sprottið
upp fyrirtæki sem bjóða upp á út-
leigu á sjónfundakerfum og að-
stöðu. T.d. Proximity í Bandaríkj-
unum (http://www.proximity.com)
og nú nýlega Póstur og sími á Is-
landi. Einnig eru framleiðendur og
þjónustuaðilar orðnir margir og
hafa nokkur íslensk fyrirtæki orðið
sér úti um umboð og flutt inn bún-
að til reynslu. Mér vitanlega er þó
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. SH
hefur um nokkurt skeið með mjög
jákvæðum árangri notað þessa
tækni. Samkvæmt mínum heimild-
um er sérhæfður búnaður Pósts og
Síma („room“ sjónfundakerfí) falur
á um 4 milljónir og er sambærileg-
ur búnaður erlendis verðlagður á
svipuðum nótum. Aukabúnaður fyr-
ir einkatölvur ásamt hugbúnaði
kostar hjá íslenskum umboðsaðilum
á bilinu 200 - 400 þúsund (220.000
m/vsk hjá Tæknivali) en verðlagn-
ing er þó ekki alveg á hreinu þar
sem innflutningur á þessum búnaði
er ekki hafinn af neinum krafti.
Kostnaður við tengingu ISDN2 og
notkun er samkvæmt upplýsingum
frá Pósti og síma um 26.000 kr
fyrir tenginguna og 6.900 kr árs-
fjórðungslega. Skref eru reiknuð
eins og fyrir venjulegt símtal skv.
gjaldskrá þangað til flutningur fer
yfir 64 kbps en eftir það og uppí
128 kbps er reiknuð tvöföld álagn-
ing á hveija mínútu. Samkvæmt
athugunum reynist vera að stofn-
kostnaður sjónfundakerfa ásamt
rekstrarkostnaði greiði sig upp á
u.þ.b. einu ári. Auk þess samkeppn-
isforskots sem fyrirtæki með þenn-
an búnað öðlast. Samkvæmt banda-
rískum rannsóknum mun markað-
urinn fyrir þessar vörur vaxa um
þriðjung á hveiju ári fram til alda-
móta. Með stigvaxandi alþjóðavæð-
ingu og aukinni þörf fyrir sam-
skipti við erlenda aðila tel _ég að
sjónfundakerfí muni reynast íslend-
ingum styrkur bandamaður í harðri
samkeppni á alþjóðlegum mörkuð-
um.
Að lokum eru hér nokkrar
vefsíður framleiðenda og þjónustu-
aðila sjónfundakerfa: Ancor Co-
munications (http://www.anc-
or.com), Intel Corp
(http://www.intel.com) Avistar
Systems (h ttp://www. n vist-
ar.com), Videoconferencing and
Communications Inc
(http://www. calypso. com/vcc).
Frekari fyrirspumum um sjón-
fundakerfi get ég líka svarað í
rhi.hi.is4valberg
(http://www.rhi.hi.is/ ývalberg).
Höfundur er viðskiptafræðinemi