Morgunblaðið - 25.07.1996, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.07.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Bílasala íÞýzka- landi dalar aftur Frankfurt. Reuter. BÍLASALA í Þýzkalandi, stærsta markaði Evrópu, er farin að dala eftir furðumikla aukningu það sem af er árinu að sögn sérfræðinga. Framámenn í greininni og verð- bréfasalar hafa furðað sig á því að nýskráningar þýzkra bíla hafa aukizt mjög, eða um 6,5% á fyrri hluta þessa árs, sem er helmingi meiri aukning en búizt hafði verið við í janúar. Nýjar þýzkar tölur sýna hins veg- ar að eftirspurn virðist fara minnk- andi og flestir sérfræðingar telja að sú þróun muni halda áfram langt fram á næsta ár. „Styrkur sá sem markaðurinn hef- ur sýnt á þessu ári hafði vakið vonir um að salan 1996 yrði betri en búizt hafði verið við,“ sagði sérfræðingur Lehman Brothers í London. „En nú lítur úr fyrir að slíkar vonir hafi ekki átt við rök að styðjast." Hann telur eins og forystumenn í greininni að lítill hagvöxtur og til- tölulega góð afkoma á síðasta ári muni hamla gegn aukinni sölu í fyrir- sjáanlegri framtíð. Sérfræðingar telja að aukningin muni minnka í um 3% það sem eftir er ársins og í innan við 1% 1997. Síðustu tölur eru síðan í júní þeg- ar nýskráningar þýzkra bíla minnk- uðu um 3,1% miðað við sama tíma í fyrra, annan mánuðinn í röð. Deutsche villkaupa Chase-deild íJapan Frankfurt. Reuter, DEUTSCHE Bank AG í Þýzkalandi hefur staðfest að hann eigi í samningaviðræðum um að taka við rekstri verðbréfasjóðsins Chase Man- hattan Trust & Banking Co í Japan, þar sem Deutsche hefur ekki haft örugga fótfestu til þessa. Ekkert er því til fyrirstöðu að Chase Manhattan og Deutsche sæki um leyfi til japanska fjármálaráðu- neytisins að sögn Chase. „Ef samningar takast færist nú- verandi starfsemi Chase Manhattan Trust & Banking Co (Japan) í hend- ur Trust Bank, sem verður dótturfyr- irtæki Deutsche Bank,“ sagði Chase í yfirlýsingu. Hlutabréf í Deutsche hækkuðu við fréttina um 2,3% í 74,55 mörk. Deutsche, stærsti banki Þýzka- lands, hefur lagt áherzlu á að auka starfsemi sína á alþjóðamælikvarða, einkum starfsemi fjárfestingabanka, og til slíkrar starfsemi verður varið 700 millj. marka á þessu ári. Staða bankans á því sviði er talin sérstak- lega veik í Asíu. Aðalstarfsemi De- utsche í Asíu fer fram Singapore. Bankinn starfrækir einnig fjármagns- markaði í Hong Kong og Tókýó. FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996 B 11 MACROTEL MACROTEL Símakerfi og símsvörunarbúnaður Þar sem góðir kostir sameinast Macrotel MT-I6H er öflugt símkerfl fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Möguleikar á stækkun eru fyrir hendi og kerfíð getur stærst orðið fyrir 8 bæjarlínur og 16 símtæki, þar sem blanda má saman venjulegum og sérbyggðum símtækjum. Auðvelt er að tengja þráðlausa síma, höfuðheyrnartól, módem, o.fl. við símakerflð. Bandarískt hugvit og hönnun sem sameinar hagstætt verð, stækkunar- möguleika, aðlögunarhæfni og auðvelda notkun. Yfir 600 notendur á íslandi. Macrovoice MVX-200 símsvörunarkerflð býður upp á fjölda notkunarmöguleika. Kerfið getur verið símsvari fyrir alla aðila í fyrirtækinu, annast svörun þegar mikið álag er á skiptiborð, verið 2. þrepa innval og gefið þeim sem hringja inn í fyrirtækið valmöguleika t.d. deildic Kerfið er mjög sveigjanlegt og í raun er það aðeins hugmyndaflugið sem takmarkar notkunarmöguleikana.. X H tSr jw P S í öumú la 3 7 - 1 0 8 Reykjavík Sími 588 - 2800 - Fax 568 - 7447 EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI r V Á ferð og flugi um allan heim SÁS flýgur ásamt samstarfsaðilum sínum um Kaupmannahöfn til áfangastaða um heim allan. Kynntu þér þægilegan ferðamáta hjá SAS hvert sem ferðinni er heitið. Samstarfsaðilar SAS: Flugleiöir Lufthansa United Airlines Thai Airways Int. Air Baltic Air New Zealand British Midland Qantas Airways Spanair Varig Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína eða söluskrifstofu SAS. 4-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.