Morgunblaðið - 26.07.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.07.1996, Qupperneq 1
fM ^Fb.' | Jr ■ ■■ . ■ # o '* ' i ; f Ú V , í « tfjf ' § ■ J FOSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1996 BLAÐ B ■ DÖMUBIIMDAAUGLÝSINGAR KARLA OG KVENNA/2 ■ SVIÐSSKREKK- UR/3 ■ ÍSLENSKUR LEIR/4 ■ DÚKKUR MEÐ DOWN’S SYNDROM/6 ■ FÓRNARLÖMB KYNJAMISRÉTTIS7/7 ■ BLÓMASKREYTINGAR/8 Línuskautar fyrir krakka og jakkafatamenn ÞAÐ er fljótlegur ferðamáti og góð líkams- æfing að ferðast um á iínuskautum. íþrótt- in nýtur vaxandi vinsælda hérlendis en í stórborgum Evrópu og í Bandaríkjunum er vart þverfótað fyrir skautafólki á harða- spretti milli staða með vasadiskó í eyrun- um. Meira að segja hafa margir póstburð- armenn keypt línuskauta til að flýta fyrir sér. í New York skauta jakka- fataklæddir verðbréfasalar á Wall • Street á milli kauphalla til að missa örugglega ekki af bestu kjörunum. Ekki hefur þó enn sem komið er sést til íslenskra viðskipta- jöfra eða kaupsýslumanna á þessum nýju farartækjum, en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Línuskautar njóta mikillar hylli hjá börnum og unglingum hér á landi en sí- fellt færist í vöxt að eldra fólk bregði sér á slíka skauta. Léttir og meðfærilegir Fyrir byrjendur er betra að fara varlega og æfa sig á opnum útivistarsvæðum svo sem í Elliðaárdalnum, á göngubrautinni á Ægisíðu eða á skautasvellinu í Laugardal því umferðin á götunum getur reynst hættuleg. Skautarnir eru léttir og meðfærilegir og því er auðvelt að vippa þeim á axlirnar á milli skautatúra. Á þeim eru annað hvort fjögur eða fimm hjól. Til að byrja með er best að kaupa sér skauta með fjórum hjól- um en þeir sem eru lengra komnir notast við fimm hjól því á þeim er hægt að ná mun meiri hraða. Byijendur lenda oft í því að fljúga á höfuðið, en einungis er bremsa aftan á hægri skautanum. Þeir bera þá gjarnan hendurnar fyrir sig og því eru úlnliðsbrot algeng. Það er nauðsynlegt að vera vel varinn, setja hjálm á höfuðið og nota hlífar á hnén, olnbogana og úlnliðina. Að sögn þeirra sem til þekkja tekur það um viku að ná tökum á línu- skautunum ef æft er i einn klukktíma á dag. Ekki skaðar ef þekking á hjóla eða ísskautum er fyrir hendi. Til þess að teljast góð- ur í faginu er lengri æfing þó nauð- synleg. Þeir sem eru bestir gera alls kyns hunda- kúnstir á skautunum, svo sem að hoppa og snúa sér við í loftinu eða skauta upp og niður stigahandr- ið og gangstéttarbrúnir. Erlendis er íþróttin keppnisgrein en skautafélög hér á landi hafa nýlega hafið keppni í línuskautahokkí. Víða í Reykjavík má einnig sjá börn í götu- hokkí á línuskautum. Skautarnir fást í leikfangabúðum og íþróttavöruversiunum og kosta allt frá 3.500 krónum upp í um 20.000 krónur. Þeir eru seldir í alls konar litum með reim- um eða smellum. Hjálmar kosta yfirleitt um 2.000 krónur og hlífarnar saman í pakka eru á svipuðu verði. Einnig er hægt að kaupa varahluti í skautana svo sem leg- ur og ný hjól. Ekki fylgir þó línuskaut- unum sérstök fatatíska eins og hjólabrettunum. ■ Morgunblaðið/Asdís Þad er nauðsyn- legt að vera vel varinn með hjólma og hlífar. f

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.