Morgunblaðið - 27.07.1996, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
169. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Mestu vatnavextir í Kína í rúm 40 ár
Milljónir manna
taldar í hættu
Wuhan, Peking. Reuter.
Búrúndí
Heita efld-
um skæru-
hernaði
Bujumbura, Nairobi. Reuter.
PIERRE Buyoya, leiðtogi herfor-
ingjastjórnarinnar sem tók völdin í
Búrúndí í fyrradag, sagðist í gær
reiðubúinn að endurreisa iýðræði í
landinu, á sama tíma og þúsundir
ungra tútsa fylgdu kalli yfirvalda
hersins og flykktust til að skrá sig
til herþjónustu.
Buyoya sagði á fyrsta frétta-
mannafundinum eftir valdaránið að
hann væri tilbúinn til viðræðna við
uppreisnarmenn hútúa ef þeir særu
af sér ofbeldi.
Talsmenn uppreisnarhreyfingar
hútú-manna, sem dvelja í útlegð í
nágrannaríkinu Tanzaníu, höfnuðu
boði Buyoyas og hétu því að efla
skæruhernað. Innocent Nimpagar-
itse, formælandi helztu samtaka
hútúa, Þjóðarráðsins til varnar lýð-
ræðinu (CNDD), sagði í símaviðtali
frá Nairobi að barátta samtakanna
beindist gegn „her sem hefur tekið
lýðræðisþróun í Búrúndí í gísiingu
af eiginhagsmunaástæðum eins
þjóðarbrots".
Talsmenn alþjóðlegu mannrétt-
indasamtakanna Amnesty Internat-
ional spáðu því í Lundúnum í gær,
að hinum stríðandi fylkingum myndi
lenda saman um allt landið í víxl-
verkandi ofbeldi.
Viðbrögð alþjóðasamfélagsins
Að sögn heimildarmanna hikar
Oryggisráð Sameinuðu þjóðanna við
að fordæma valdaránið því slíkt
kynni að kynda undir frekara of-
beldi. Evrópusambandið tilkynnti að
öll þróunaraðstoð við Búrúndí yrði
fryst og Bandaríkjamenn segjast
ennþá viðurkenna Sylvestre Ntibant-
unganya sem réttmætan forseta
landsins.
Forsetar Úganda og Tanzaníu
hafa boðað til skyndifundar meðal
leiðtoga Afríkuríkja í Kampala í dag
til að samræma viðbrögð.
MILLJONIR hermanna og sjalfboða-
liða voru í gær á verði við flóðgarða
Yangtze-fljóts, lengsta fljóts Asíu,
vegna hættu á mannskæðum flóðum
af völdum mestu vatnavaxta í Kína
í rúm 40 ár. 1.500 manns hafa þeg-
ar látist af völdum flóða og óttast
er að fellibylurinn Gloria, sem spáð
er að gangi yfír Kína í dag, valdi enn
meira úrhelli og vatnavöxtum. Yfir-
völd gerðu ennfremur ráðstafanir til
'að afstýra farsóttum sem gætu
reynst enn mannskæðari en flóðin.
Sjálfboðaliðar, sem styrktu flóð-
garða Yangtze-fljóts, sögðust reiðu-
búnir að fórna lífi sínu til að afstýra
flóðum í Wuhan, einni af helstu iðn-
aðarborgum Kína. Yfirvöld gætu
þurft að láta breyta farvegi fljótsins
á sex stöðum, en slíkar aðgerðir eru
mjög áhættusamar og hafa ekki ver-
ið reyndar frá mestu flóðunum í
Yangtze-dal til þessa, árið 1954.
Vatnið náði þá 29,73 metra hæð en
var í gær 28,66 metrar.
„Við gerum allt til að afstýra flóð-
um í Wuhan því milljónir manna
gætu farist," sagði lögreglumaður
við flóðgarðana.
1.500 manns hafa drukknað í hér-
uðunum Hubei og Guangxi síðustu
vikur. í Hubei-héraði einu hafa 308
km langir flóðgarðar brostið og vatn
flætt yfir 2,7 milljónir hektara rækt-
aðs lands. Uppskera hefur eyðilagst
á 333.500 hekturum. Rúmlega
490.000 manns hafa veikst eða slas-
ast og 2,36 milljónir manna_ orðið
innlyksa af vöidum flóðanna. Áætlað
er að tjónið á öllum flóðasvæðunum
nemi sem svarar 746 milljörðum
króna.
Ekki var útlit fyrir að lát yrði á
vatnavöxtunum þar sem fellibylurinn
Gloria stefndi að suðausturströndinni
í gær og búist var við að honum
myndi fylgja úrhelli í dag. 20 manns
létust af völdum fellibylsins á Filipps-
eyjum og loka varð flugvöllum, höfn-
um, skólum og opinberum skrifstof-
um á Tævan þegar hann gekk yfir
eyjuna í gær.
Kínverska stjómin fyrirskipaði
embættismönnum að láta grafa svín
og önnur dýr sem hafa drakknað í
flóðunum og sprauta klóri á tún og
götur til að afstýra því að kólera og
blóðkreppusótt breiðist út. „Ef far-
sóttir blossa upp verða þær enn
mannskæðari en flóðin,“ sagði emb-
ættismaður í Guangxi-héraði. „Dauð
dýr liggja eins og hráviði út um allt
— kýr, geitur, svín og endur.“
Reuter
Atta fangar látnir
í Tyrklandi
Stjórn-
völd boða
aðgerðir
Ankara. Reuter.
GREINT var frá því í gær að tveir
fangar til viðbótar, af þeim rúmlega
300 er hafa verið í hungurverkfalli
í tyrkneskum fangeisum síðastliðna
tvo mánuði, hefðu látist. Alls hafa
því átta fangar látist.
Dómsmálaráðherra Tyrklands
sagði leiðtoga öfgahópa neyða fanga
til að halda hungurverkfallinu áfram
og hvatti fanga til að hætta aðgerð-
um. „Ef þeir gefast ekki upp munum
við neyðast til að grípa til aðgerða,“
sagði dómsmálaráðherrann. Fang-
arnir krefjast úrbóta í tyrkneskum
fangelsum.
Hungurverkföllin hafa vakið hörð
viðbrögð meðal vestrænna banda-
manna Tyrkja og hafa Evrópusam-
bandið og einstök aðildarríki þess
sagt að snurða kunni að hlaupa á
þráðinn í samskiptum ákveði tyrkn-
esk stjórnvöld ekki umbætur í mann-
réttindamálum.
Rænt á leið
til Kúbu
FARÞEGAR yfirgefa DC-10
þotu frá spænska flugfélaginu
Iberia á flugvellinum í Miami í
Bandaríkjunum í gær. Maður
frá Líbanon rændi vélinni í áætl-
unarflugi frá Spáni til Kúbu og
sneri henni til Miami þar sem
hún lenti um klukkan sjö í gær-
kvöldi að íslenskum tíma. Um
borð voru 232 farþegar og flug-
liðar. Hálfri klukkustund síðar
gafst ræninginn upp og farþeg-
ar fengu að fara frá borði. Eng-
an sakaði.
Reuter
PIERRE Buyoya, leiðtogi herforingjaráðsins, sem tók völdin í
Búrúndi í fyrradag, talar til fréttamanna í Bujumbura í gær.
Tveir hreyflar TWA
þotunnar fundnir
East Moriches, New York. Reuter.
LEITARMENN fundu í gær tvo
þotuhreyfla Boeing 747-vélarinnar,
sem fórst fyrir rúmri viku með 230
manns um borð. Í gærkvöldi var
sagt að hljóðið, sem greindist á upp-
tökum hljóðrita vélarinnar, hefði
verið hátt og skyndilegt.
„Upptakan endar með háu,
skyndilegu hljóði á öllum fjórum
rásum," sagði Robert Francis, vara-
formaður bandarísku öryggis- og
samgöngunefndarinnar. „Eg hef
ekki heyrt það [hljóðið], en vissulega
myndi heyrast mikill hávaði ef vél
spryngi.“
Sérfræðingar segja að hljóðið sýni
að það sem gerðist um borð í vél-
inni hafi borið að fyrirvaralaust. Lík-
legast sé að sprengja hafi sprungið
í vélinni, en bandaríska alríkislög-
reglan, FBI, hafi ekki útilokað flug-
skeyti, eða bilun í vélinni.
Louis Freeh, yfirmaður FBI, fór
Yfirmaður FBI
heldur óvænt
til New York
í gær til New York til að fá greinar-
gerð um gang rannsóknarinnar á
málinu.
Haft var eftir heimildarmönnum
innan FBI að för Freehs, sem var
ákveðin í skyndingu, bæri því ekki
vitni að alríkislögreglan væri reiðu-
búin að lýsa því yfir að vélinni hefði
verið grandað, til dæmis með
sprengju.
Hreyflar enn ekki rannsakaðir
Francis kvaðst í gær hvorki vita
í hvaða ástandi hreyflarnir væru né
hvort af þeim mætti sjá hvort
sprengja, flugskeyti eða vélarbilun
hefði leitt til þess að vélin fórst.
Francis sagði að hér væri um að
ræða stærstu hlutina, sem leitar-
menn mundu lyfta af hafsbotni.
Hreyflarnir væru á milli þriggja og
fjögurra tonna að þyngd.
Edward Kristensen, yfirmaður úr
bandaríska sjóhernum, kvaðst ekki
vænta þess að það tækist að ná
hreyflunum upp í gær. Reynt yrði
að skoða þá í kafi.
Hreyflarnir gætu skorið úr um
það hvers vegna flug 800 frá New
York til Parísar fórst skömmu eftir
flugtak 17. júlí.
Verði niðurstaðan sú að vélin
hafi sprungið af mannavöldum mun
FBI taka við yfirstjórn rannsóknar-
innar af öryggis- og samgöngu-
nefndinni.
■ Vísbendinga leitað/17