Morgunblaðið - 27.07.1996, Qupperneq 1
1
i
■ Fimleikar...C4.
Wrencher
til KR
BLAÐ
BANDARÍSKI
körfuknattleiks-
maðurinn Champ
Wrencher, sem lék
með Þór frá Þor-
lákshðfn í 1. deild-
inni siðasta keppn-
istíraabil, skrifaði á
miðvikudag undir
eins árs samning
við úrvalsdeildarfé-
lag KR. Wrencher
er um þessar mund-
ir staddur erlendis
en snýr aftur til ís-
lands eftir verslun-
armannaheigi og
mun hann verða
klár í slaginn með -
V esturbæjarliðinu
þegar það heldur
utan til Lúxem-
borgar í ágúst til
þess að taka þátt í
sterku fjögurra liða
móti þar í landi.
Miðasalan
fram úr
áætlunum
MIÐASALAá
keppni ÓL í Atlanta
er orðin meiri en
áætlað var. Búið að
selja um 95% miða,
sem fóru í umferð.
Kostnaðaráætlun
leikanna hljóðar
upp á 1,7 miHjarða
dollara og var gert
ráð fyrir að se\ja
miða fyrir 458 millj-
ónir dollara. Þvi
takmarki hefur ver-
ið náð, meira en 8,4
milpónir miða hafa
verið seldir fyrir
sem samsvarar um
27% kostnaðaráætl-
unar. 274.000 miðar
hefa verið seldir við
inngang keppnis-
staða, sem er met.
LILIA Podkopay-
eva, 17 árajgömul
stúlka frá Ukraínu,
bar sigur úr býtum
í fjölþraut kvenna í
fyrrakvöld, fékk
39,255 stig fyrir
þrautirnar fjórar.
Þar með vann Úkra-
ína sín fyrstu gull-
verðlaun í fimleikum
á Ólympíuleikum og
Podkopayeva hefur
möguleika á að bæta
í safnið er keppni fer
fram á einstökum
áhöldum á sunnu-
daginn.
Podkopayeva
tryggði sér sigurinn með lokaæf-
ingum sínum, en þær gerði hún
á gólfi. Þær voru framúrskar-
andi og nær hnökralausar og
einkunnin var 9,887 enda dugði
ekkert minna tii því þrjár rúm-
enskar stúlkur stóðu vel að vígi
þegar Úkraínustúlkan steig fram
á gólfið. Að keppni lokinni sagð-
ist hún hafa verið ánægð með
að hafa átt gólfæfingamar eftir,
þær séu hennar sterka hlið.
Reuter
ftloygtmWaÍ) í í>
■ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ
1996
V'-"'-""""-'""'"' " " """ "" ' " -•
Tilmæli Alþjóða ólympíunefndarinnar
Engar
dylgjur og
ásakanir
Alþjóða ólympíunefndin, IOC,
beindi þeim tilmælum til fjöl-
miðla og annarra að hætta ásökun-
um og dylgjum um meinta lyfja-
misnotkun og áréttaði að mann-
réttindi giltu um íþróttafólk eins
og annað fólk.
írska sundkonan Michelle Smith
hefur verið ásökuð um lyfjamis-
notkun í kjölfar ótrúlegra framfara
og þrennra gullverðlauna og orð-
rómurinn um að hún hafi óhreint
mjöl í pokahorninu hefur verið
hávær þrátt fyrir að gefin hafi
verið út opinber tilkynning um að
niðurstöður lyfjaprófs sem hún fór
í sl. laugardag hafi verið neikvæð-
ar. Stöðugt er spurt um niðurstöð-
ur úr seinni prófum en Michele
Verdier, blaðafulltrúi IOC, sagði
að nóg væri komið. „Notið ekki
nöfn íþróttamanna þegar vitnað
er í orðróm og ásakanir. Nafninu
fylgir manneskja og hún á sinn
rétt eins og aðrir.“
Þýska sundkonan Franziska van
Almsick gagnrýndi bandaríska
fjölmiðla fyrir óheiðarlega baráttu
gegn Michelle Smith. „Þetta er
viðbjóðslegt,“ sagði hún um ásak-
anirnar varðandi meinta lyfjami-
snotkun. „Allir sem tengjast íþrótt-
um vita hvernig henni líður og að
hún nýtur ekki verðlaunanna eins
og hún hefði gert ef hún hefði
verið látin í friði. Ég er á móti
fordómum og í Berlín segjum við
að ekkert eigi að segja ef sannan-
ir eru ekki fyrir hendi. Við vitum
ekkert um æfingar hennar eða
bakgrunn. Sannanir verða að
liggja fyrir.“
Bandaríska sundkonan Janet
Evans neitaði í gær að hafa bendl-
að Smith við lyfjamisnotkun. „Ég
hef heyrt orðróm og það hafa ver-
ið ásakanir en þetta er ekki frá
mér komið,“ sagði hún en bætti
við að spurningar vöknuðu þegar
26 ára kona næði slíkum árangri
sem raun ber vitni. „Enginn getur
verið með ásakanir en spurningar
vakna.“ Mark Schubert, þjálfari
hennar, tók í sama streng, sagði
að Smith hefði verið „meðalsund-
kona sem hefði allt í einu bætt sig
um 15 sekúndur. Það er ekki
óvenjulegt - það á sér ekki for-
dæmi. Það eru grunsemdir og þess
vegna er spurt,“ sagði hann.
Bandaríska blaðið USA Today
tók upp hanskann fyrir Smith.
„Bandaríkin eru græn af öfund.
Þetta er ekki fallegt. Hugarfar
okkar á Ólympíuleikum er and-
styggilegt. Ef við getum ekki sigr-
að þá - ásökum þá.“ Dálkahöfund-
ur Washington Post tók í sama
streng og beindi gagnrýni sinni að
NBC-sjónvarpsstöðinni. „í mínum
huga snúast Ólympíuleikarnir um
- við sigrum! Við sigrum! Húrra
Bandaríkin! Þeir sigra? Þeir hljóta
að vera á lyfjum.“
Skagamenn til Moskvu
„ÞETTA var í rauninni hræði-
legt áfall og mér líst mjög illa
á dráttinn," sagði Guðjón Þórð-
arson, þjálfari Skagamanna,
eftir að íslandsmeistararnir
drógust gegn rússneska liðinu
CSKA Moskva í Evrópukeppni
félagsliða. „Ég veit sama og
ekkert um þetta lið annað en
að það hefur innan sinna raða
eitthvað af landsliðmönnum og
því hefur gengið nokkuð vel á
alþjóðlegum vettvangi síðustu
ár. Það hefði verið mun
skemmtilegra að dragast gegn
liði frá t.d. Austurríki eða Sviss
en það þýðir þó ekkert að
leggja árar í bát fyrirfram og
við munum berjast af krafti.
Það er aldrei að vita hvað ger-
ist þó þetta verði allt annað en
auðvelt og eins og máltækið
segir „þeir fiska sem róa“,“
sagði Guðjón í samtali við
Morgunblaðið i gær.
■ Drátturinn.../C2
í
ÍSLENSKA FRJÁLSÍÞRÓTTAFÓLKINU LÍÐUR VEL í ATHENS / C6,C7
l