Morgunblaðið - 28.07.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
J
i
<
u
I
€
4
i
4
í
i
í
i
i
i
3
(
(
(
(
(
(
(
i
(
(
(
(
(
♦
værðin söm við sig og undi hún
vel hag sínum meðal góðra sam-
starfsmanna og félaga sem reynd-
ust henni fyrr og síðar sannir vin-
ir á erfiðum stundum og þá ekki
síst Asgeir Jóhannesson, þáverandi
forstjóri Innkaupastofnunarinnar.
I baráttunni við liðagigtina naut
Sissa umhyggju lækna og hjúkrun-
arfólks sem hún mat afar mikils.
Teljum við ekki á neinn hallað
þótt sérstaklega sé getið Jóns Þor-
steinssonar, þáverandi vfirlæknis
á Landspítala, í því sambandi.
Ingimundur, sonur Sissu, ber
nafn afa síns, formannsins frá
Strönd, með miklum sóma. Hann
kom sem sólargeisli inn í líf þeirra
allra og var mikið eftirlæti afa síns
og ömmu. Ingimundur er góðum
kostum búinn og nýtur trausts og
virðingar hvort heldur er í starfi
sem bæjarstjóri Garðabæjar eða
meðal vina og vandamanna. Ingi-
mundur er kvæntur Hallveigu
Hilmarsdóttur frá Neskaupstað og
eiga þau þijá syni, Jóhann Steinar
sem stundar nám í viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Islands,
Hilmar sem er nemandi í Verzlun-
arskóla íslands og Sigurbjörn sem
er í 5. bekk grunnskóla. Vottum
við þeim og eftirlifandi systkinum
Sissu okkar dýpstu samúð.
Gengin er góð og hugdjörf kona
sem með glaðværð sinni og þraut-
seigju skipar sérstakan sess í hug
okkar beggja.
Leonhard I. Haraldsson,
Haukur Haraldsson.
Stundum fá orð ekki lýst hugsun-
um manns. Þannig líður okkur
núna. Við stöndum eftir orðlaus,
minnug þess hve stutt er síðan við
sáumst síðast í útskriftarveislum
frænknanna og hve þú samgladdist
ungafólkinu í kringum þig. Þú lékst
á als oddi í hrókasamræðum við
okkur hin þó að langt væri frá að
þú gengir heil til skógar. Aldrei
heyrðist þú kvarta og alltaf var
stutt í brosið. Við vitum að þar sem
þú ert nú, eru miklir fagnaðarfund-
ir og getum við huggað okkur við
það.
Við kveðjum þig í bili, kæra
frænka, og geymum í huga okkar
minnunguna um þig. Pjölskyldu
þinni í Garðabænum sendum við
hugheilar samúðarkveðjur.
Asta, Halla, Ingunn
og Haraldur.
+ Elín Jónsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 28. nóvember
1902. Hún lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 24. júlí síðastlið-
inn. Foreldrar Elín-
ar voru hjónin Jón
Guðmundsson og
Guðrún Jakobsdótt-
ir, þau bjuggu á Ósi
í Skilmannahreppi
og á Narfeyri við
Skógarströnd. Elín
var næstelst sjö
barna þeirra hjóna.
Elín var ekkja eft-
ir Jón Bjarnason, látinn 1948.
Þau voru barnlaus.
Elín lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla íslands 1925 og
rak smábarnaskóla á Ránar-
götu 12 frá 1949 og síðar á
Langholtsvegi 112.
Útför Elínar fer fram frá
Áskirkju mánudaginn 29. júlí
og hefst athöfnin klukkan
10.30.
Ég ætla að kveðja, elsku Ella
mín, og þakka þér samfylgdina
með fáeinum orðum. Ég man ekki
eftir mér öðruvísi en að þú værir
mér til halds og trausts við flest
af því sem ég þurfti að læra og
hvettir mig til dáða með hlýju og
væntumþykju.
Þú kenndir mér að lesa, skrifa
og reikna fýrirhafnarlaust. Ég sat
á litlum kolli í hominu á kennslu-
stofunni þinni á Ránargötunni og
fylgdist með þér kenna krakkaskar-
anum við stóru borðin. Þú gafst
mér sögur H.C. Andersens og allt
í einu gat ég lesið þær. Þú varðst
ekkert hissa, klappaðir mér á koll-
inn og hrósaðir mér fyrir lesturinn.
Oft fórum við saman til Gunnu
frænku í Englandi og þá kenndir
þú mér ensku. Þegar ég barðist
við að hekla blúndur í Miðbæjar-
skólanum, með tárin í augunum,
settist þú við hlið mér og við hekl-
uðum utan um allan koddann.
Stundum fýllti ég húsið á Ránar-
götunni af vinum mínum og þá
gafst þú okkur súkkulaðiköku og
pönnukökur, þó við
væram hávaðasöm
og mörg. Þú tókst
mannsefninu mínu
tveim höndum og
bauðst honum hlý-
legt viðmót og
veisluborð. Þegar
börnin komu þá
varstu boðin og búin
að passa þau og
kenna þeim að spila
og varaðir þau sterk-
lega við að brenna
ekki inni með „djoll-
ann“ í könustunni,
auk þess að kynna
þeim stafrófið, lesa fyrir þau og
kyssa þau upp til agna. Rifsbeija-
hlaupið er enn gert eftir þinni upp-
skrift og svo er um ótalmargt ann-
að. Elsku Ella mín, það er erfitt
að kveðja þig en þú varst södd líf-
daga og vildir sofna í rólegheitum
og þér varð að ósk þinni. Við geym-
um minninguna um þig og óskum
þér góðrar ferðar. Megi Guð varð-
veita þig og styrkja okkur.
Guðrún Helga.
Nú þegar kveðjustundin er runn-
in upp og kominn tími til að þakka
fyrir sig vefst okkur ósjálfrátt
tunga um tönn. Ekki er lengur
hægt að hlaupa upp um hálsinn á
þér og kyssa: „Takk og bless,
sjáumst aftur fljótlega.“
Öll viljum við þakka það lán að
leiðir okkar lágu saman og þér vilj-
um við þakka áhrifin á þroska okk-
ar og mótun og síðast en ekki síst
allar gleðistundimar sem við áttum
saman. Minningarnar hlaðast upp
og það er alltaf sólskin og eitthvað
gott á bragðið, sumar þeirra eigum
við öll saman, aðrar era meira milli
einhvers okkar og þín. Allar eiga
þær það þó sameiginlegt að laða
fram bros og ljúfa tilfinningu.
Við söknum þín sárt, Ella, en
samverustundirnar sem við áttum
verða aldrei frá okkur teknar. Eitt
er víst að við gleymum þér aldrei.
Takk og bless.
Valtýr, Svanhildur, Vignir,
Agnar, Kolbrún og Gauti.
MIWMINGAR_____
ELÍN
JÓNSDÓTTIR
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar
um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
- hH ^ Krossar á leiði
I viSarlit og málaSir. Mismunandi mynsnjr, vönduð vinna. Siml S5S 5929 og SS3 S73S
SOL og SUMAR
Með NAPS sólarrafhlöðu og TUDOR rafgeymi hefur þú alltaf
rafmagn fyrir Ijós, sjónvarp, síma o.fl. í þínum sumarbústað.
ókeypis orka -
rafJL'dreÍ ne'nir
afma9nsreikni„gar
BfLDSHÖFÐA 12*112 REYKJAVlK
SÍMI 577 1515 • FAX577 1517
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ1996 29
Jóga gegn kvíða \
1 .-22. ágúst, þri. & fim. kl. 20.00-22.15 (7 skipti).
Námskeiö fyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að striða
og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu.
Kenndar verða leiðir til að slaka á og öðlast aukið frelsi
og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
Leiðbeinandi Ásmundur Gunnlaugsson jógakennari.
Jóganámskeið
Grunnnáinskeið 1- 28. ágúst, mán. & mið. kl. 20.00-21.30
(7 skipti). Kenndar verða m.a. jógastöður, öndunaræfingar,
ÁKmundur Gunnlaugsson hugleiðsla Og slökun.
Leðursófasett og leðurhornsófar
frá NATUZZI, Ítalíu.
Frábært verð - Margir litir.
Nýkomin sófasett og hornsófar
í áklæði og aicantara
ÁRMÚLA 8, SÍMAR 581 2275, 568 5375
Beint flug til
Þýskalands
DÚSSELDORF / HAMBORG*
22.700
MÚNCHEN
24.700
Flugvallagjöld innifalinn í verði.
Upphæðir sýna lægsta verð á fargjaldi báðar leiðir
fyrir fulloröinn í áætlunarflugi LTU milli Keflavíkur-
flugvallar og Þýskalands sumarið 1996.
50% afsl. fyrir 2ja -12 ára og 25% afsl. fyrir 12-21 árs.
* Síðasta áætlunarflug til Hamborgar verður
6. ágúst, og 17. sept. til Dússeldorf og Múnchen.
Bókunarfyrirvari er 7 dagar.
Upplýsingar um ferðir LTU
eru veittar á næstu ferðaskrifstofu.
LTU á ÍSLANDI Stangarhyl 3a -110 Reykjavík
Sími 567 8545
U\J
INTERNATIONAL AIRWAYS