Morgunblaðið - 28.07.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1996 B 9
til að sjá að megrunarþátturinn
væri léttvægasti þátturinn í þeirri
ferð sem hún var að leggja upp í.
Það breyttist allt.
„Mér varð ljóst að margt af því
sem ég var að elstast við, var lítt
eftirsóknarvert. Þetta gerist hjá öll-
um sem bytja að stunda jóga af
alvöru. Það er kannski þess vegna
sem margir halda að jóga sé trúar-
brögð. Svo er þó ekki. En það felur
í sér öll trúarbrögð og ég fann að
þetta stangaðist ekki á við mína trú
frá því í æsku. Kerfi, sem snýst um
að hjálpa og gefa af sér, getur ekki
stangast á við kristna trú.
Fyrir mig var þetta hinn mikli
farvegur - og gæfubraut, sem ég
held mig við enn í dag. Ég hef fyrst
og fremst kynnst sjálfri mér. Jóga
er besta leiðin til þess, andlega og
líkamlega"
Hvernig finnst þér þú hafa
breyst?
„Ég lít öðruvísi á hlutina, en
áður. Mér finnst svo margt hafa
hrunið sem mér fannst ég ekki áður
geta verið án. Það sem mér fannst
svo sjálfsagt að hugsa um, varð
ekki svo mikils virði. Eins og að
sækjast eftir mannvirðingu, auði
og völdum - eins og samfélagið
skilgreinir þessi hugtök. Ég er eng-
in meinlætamanneskja. Mér þykir
vænt um það sem ég hef í kringum
mig og hef átt lengi, en ég sækist
ekki eftir meiru. Áður safnaði ég í
kringum mig, eins og aðrir - en
fékk aldrei nóg. Um leið og ég eign-
aðist eithvað sem mig hafði langað
í, langaði mig í eitthvað nýtt.
Ékki svo að skilja að mig sé
hætt að langa í nokkurn
skapaðan hlut...
Nei, þá er maður orðinn
að meinlætamanneskju og
verður ótrúverðugur. Ég er
alls ekki komin á það stig -
og vona að ég komist aldrei
þangað. Mig langar í ýmis-
legt, eins og annað fólk, en
ég gleðst þegar ég eignast
það - og langar ekki um-
svifalaust í eitthvað annað.
Ég nýt þess sem ég á, sem
er fyrst og fremst fjölskyld-
an; börnin mín og þeirra afkomend-
ur.“
Hvað kom í staðinn?
„Lífsorkan,“ segir Hulda og talar
um tólf grundvallarstöður jóga. Til
að skýra þær nánar,
segir hún: „Það er ein 4
æfing, sem heitir sólar-
hyllingin og felur það í
sér að teygja sig til sólar.
Þeir háþróuðu menn sem
hafa alltaf verið til í veröld-
inni, sáu að sólin héldi öllu
lífi við á jörðinni.
Þetta var fyrir daga vís-
indanna," bætir hún við eftir
andartaksþögn og heldur síð-
an áfram. „Sólarhyllingin er
keðja af mörgum æfingum,
sem eru sjálfstæðar og eru
ennþá í jóganu í dag. Þær
eru ákall til sólarinnar um
heilbrigði - og upphafið að
hatajóga.
Þeir sem
fundu sól-
arhyll-
inguna,
gerðu sér
grein fyrir
að mann-
eskjunni
væri eins nauð-
synlegt að teygja sig til
sólar og öllu öðru sem
lifir.
Öll orkan,sem við
fáum í gegnum æfing-
arnar er höfuðatriðið.
Með þeim erum við að
opna fyrir flæðið í lík- :
amanum. Líkaminn
liefur lækningar-
máttinn í sér og í
hatajóga erum við
að styðja við orku-
stöðvarnar, opna
fyrir orkuflæðið
(prana) um lík-
amann og
styrkja líf-
færin.
Við þetta öðlast maður mikið heil-
brigði og úthald.
Eg hafði góða undirstöðu; var
alltaf heilbrigð og hress og hafði
verið mikið á ferðalögum. Það vafð-
ist því ekki fyrir mér að byija á
jóga. Og ef ég hefði ekki farið þessa
leið, er ég viss um að ýmislegt
væri farið að hrjá mig.
En mér verður ekki misdægurt."
Að miðla öðrum
Huldu verður tíðrætt um að það
hafi verið henni mikils virði að fá
að hjálpa öðrum. „Það var orðið sem
greip mig strax. Jóga snýst um að
miðla, kenna það sem maður hefur.
Ekki bara að læra að þekkja sjálfan
sig og halda öllu fyrir sig,“ segir
mzl
hún. „En jóga er ekki eftirgefan-
legt. Maður vinnur ekkert, ef maður
leggur sig ekki fram - og það á
bæði við um leiðbeinandann og
þann sem tekur á móti.“
Geta allir farið í jóga?
„Já, og það er ekki spurt um
aldur í jóga, heldur ástand. Það eru
til æfingar fyrir rúmliggjandi fólk
og fólk sem er svo vel á sig komið
að það keppir á Ólympíuleikum...
og allt þar á milli. Það eru til æfíng-
ar fyrir hvaða ástand sem er.
Sjáið þið líkamlegt ástand fólks,
þegar það kemur til ykkar í fyrsta
tíma?
„Já. Besta leiðin til að taka eftir
ástandi manneskjunnar, er að at-
huga hvernig hún andar. Þess
vegna er mikil áhersla á öndun.“
Er hægt að laga líkamann með
öndun? ,
„Já, en ekki einni og sér, heldur
með öndun og æfingum saman.
Sumt fólk andar alltaf í gegnum
munninn. Það er ekki fullkomin
öndun, vegna þess að rásin er í
gegnum nefið. Þar hitnar loftið á
leiðinni niður í lungun og líkaminn
byrjar að hreinsa það og vinna úr
því. Hins vegar eru til æfingar, þar
sem andað er í gegnum munninn,
eftir vissum aðferðum, til að kæla
líkamann."
Leitin að innra friði
Jóga snýst um að halda við lífinu
og heilbrigðum líkama. Það snýst
um að læra um sjálfan sig og að
miðla öðrum. Hulda hefur stundað
jóga í meira en þijátíu ár
og er enn að læra um sjálfa
sig. Hún kom til starfa hjá
Heimsljósi fyrir fáum árum
og margir myndu halda að
hún hefði strax orðið skóla-
stjóri, ef hann væri þá til í
jóga. „Mér finnst yndislegt
að vera í Heimsljósi,“ segir
hún og það gætir mikillar
hlýju í röddinni. „Fólkið sem
setti þessa stöð af stað er
svo jákvætt og ég hef lært
mjög mikið af því - þótt
ég hafi verið búin að stunda
jóga i mörg ár. I jóga er
maður alltaf að bæta við sig; maður
fer hægt. Unga fólkið hjá Heims-
ljósi er svo opið og gefur svo mikið
af sér og ég er þakklát fyrir að
hafa kynnst því.“
Hvað áttu við með endalaust?
„Við lifum á tímum ofsahraða
og mikillar spennu - og erum öll
að leita að innra friði. En við leitum
oft langt yfir skammt; leitum til
dæmis friðarins í öðru fólki. En við
eigum fyrst og fremst að leita hans
í okkur sjálfum.
Þegar ég var að byrja að læra
jóga, var ekki svo mikið talað um
að við gætum öðlast innri frið með
þessari ástundun, en löngu seinna
uppgötvuðum við að það var ein-
mitt það sem hafði gerst. Það var
ekki eins mikið talað um þessi innri
áhrif, ekki eins mikið talað um ,til-
finningar og nú er gert - en þetta
hefur allt síast inn í mann. Ungt
fólk í dag getur talað um vandamál
og tilfinningar og það er gott. En
maður verður að þekkja tilfinningar
sínar. Ef maður leggur þær til
hliðar, verða þær að vandmálum
innvortis og þá verður fólk
kreppt. Það er mikils virði að
geta rætt vandamál sín og
hreinsað þau út. Margir reyna
að loka tilfinningar sínar inni,
en vandamálið er bara að þær
láta ekki loka sig inni. Þær
bijótast út og taka stjórnina;
bijóstast út á stundum sem
geta verið óþægilegar og
óviðeigandi.
Þess vegna er svo
mikils virði að þekkja
sjálfan sig og tilfinn-
ingar sínar. Þá getur
maður unnið með
þær, sér til gæfu.“
Kjólar - kápur - dragtir - pils - blússur
-f'gSewAu—
Laugavegi 84, sími 551 0756.
. ’arnev&gne
Hovedgíden - 77Í2 Sntóstw! - Dtnmartt
XI_F. 97 93 44 oo
Fax. 97 93 44 77
/"'L ......
Hringið eða skrifið
og fáið nýja pöntunar-
listann fyrir 1996
sem er með allt
fyrir barnið þitt.
Við sendum
skattfrjálst
til íslands
GoldStar GT-9500
Þráðlaus sími fyrir heimili og fyrirtœki,
með innbyggt símtœki í móðurstöð og
innanhústalkerfi milli allt að þriggja
þráðlausra síma og móðurstöðvar.
Grunnpakki:
Innifalið er aðalsími með einum
þráðlausum síma og öllum
fylgihlutum, s.s. síma- og
rafmagnssnúrum, hleðslutœkl,
rafhlöðu og leiðbeiningarbók á
íslensku.
Verð kr. 25.900,-
Auka þráölaus sími:
Innifalið er þráðlaus sími með
hleöslutceki, rafhlöðu og
leiðbeiningum á íslensku.
Verð kr. 11.900,-
x
ísiel
Síðumúla 37 • 108 Reykjavík
Sími 588 2800 • Fax 568 7447