Morgunblaðið - 28.07.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1996 B 17
ATVIMNUAUGÍVSINGAR
Garðabær
Umsjónarmaður unglingastarfs
Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf
umsjónarmanns unglingastarfs.
Um er að ræða starf við félagsmiðstöðina
Garðalund, en þar fer fram æskulýðsstarf
fyrir nemendur Garðaskóla og aðra unglinga
bæjarins.
Umsjónarmaður unglingastarfs er staðgeng-
ill forstöðumanns og tekur þátt í skipulagn-
ingu á dagskrá félagsmiðstöðvarinna og hef-
ur með höndum verkstjórn leiðbeinenda og
annars starfsfólks.
Nánari upplýsingar um starfið veita Gunnar
Richardsson, forstöðumaður Garðalundar, í
síma 565 7251 eða Gunnar Einarsson, for-
stöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, í
síma 565 8066.
Umsóknum um starfið skal skilað til ofan-
greindra aðila eða bæjarskrifstofur Garða-
bæjar, Sveinatungu við Vífilsstaðaveg, fyrir
10. ágúst nk.
Bæjarritari.
Starfsfólk óskast
Veitingadeild Scandic Hótel Loftleiða óskar
að ráða starfsfólk í eftirtalin framtíðarstörf
sem allra fyrst:
Þjónanemi
Óskað er eftir hressu og heilsuhraustu fólki
á aldrinum 19-25 ára (3ja ára nám).
Aðstoðarfólk í sal
Óskað er eftir vönu starfsfólki í aukavinnu á
kvöldin og um helgar.
Starfsmann í uppvask
Óskað er eftir duglegum leirtausvænum
starfsmanni á aldrinum 25 ára og eldri.
Vaktavinna.
Verðútreikningur og talningar á bar
Óskað er eftir töluglöggum starfsmanni með
góða þekkingu á tölvuforritum.
Vélfræðingur („alt muligt man“)
Óskað er eftir vélfræðingi í hlutastarf við
eftirlit og viðgerðir á kæli- og frystitækjum,
uppþvottavélum o.fl.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á
staðnum milli kl. 14 og 17.
G&G Veitingar.
Scandic Hótel Loftleiðir.
Skólaþjónusta
Eyþings
er ný stofnun sem þjóna mun grunnskólum
í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum frá 1. ágúst
1996. Frá og með 1. janúar 1997 mun þjón-
ustan einnig ná til leikskóla á sama svæði.
Höfuðstöðvar verða á Akureyri en útibú á
Húsavík.
Þegar hafa verið ráðnir til starfa nokkrir vel
menntaðir kennsluráðgjafar, en nú bráðvant-
ar okkur þrjá sálfræðinga til samstarfs um
uppbyggingu þjónustunnar. Af þeim yrði einn
staðsettur á Húsavík en hinir tveir á Akureyri.
Umsækjendur verða að hafa löggildingu til
starfa á íslandi og æskilegt er að þeir séu
með reynslu eða sérmenntun, sem nýtist í
starfi skólasálfræðings. Kröfur eru gerðar
um góða færni í mannlegum samskiptum,
enda verður stílað á samstarf sérfræðinga
skrifstofunnar við úrlausn fjölmargra mála.
Umsóknarfrestur er til 9. ágúst nk.
Umsóknir sendist til Skólaþjónustu Eyþings,
Glerárgötu 26, 600 Akureyri.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður,
Jón Baldvin Hannesson, vs. 460 1480.
Varnarliðið
- laust starf
Tölvumaður á vél- og hugbúnaðar-
sviði hjá Tómstundastofnun Flota-
stöðvar varnarliðsins
Tómstundastofnun varnariiðsins á Keflavík-
urflugvelli, óskar að ráða tölvunar- eða kerfis-
fræðing til starfa.
Starfið felur í sér að viðhalda og setja upp
nýjan vél- og hugbúnað ítölvukerfi stofnunar-
innar, en þar er um að ræða Novell nettengd
kerfi, sem tengjast afgreiðslukössum í hinum
ýmsu deildum stofnunarinnar. Starfið felur
einnig í sér að sjá um öryggismál kerfisins
samkvæmt stöðlum, meta áhættuþætti og
gera tillögur þar um ef þurfa þykir.
Starfið felur einnig í sér þjálfun starfsfólks
sem m.a. tengist nýjungum sem teknar eru
í notkun.
Kröfur:
Umsækjandi sé tölvunar- eða kerfisfræðing-
ur með sem víðtækasta reynslu á sviði vél-
búnaðar og hugbúnaðar, sérstaklega fyrir
netkerfi.
Þarf að geta unnið sjálfstætt og að eiga
gott með samskipti við annað fólk sem er
stór hluti starfsins.
Mjög góðrar enskukunnáttu er krafist, bæði
á talað mál og skrifað.
Skriflegar umsóknir á ensku berist til Varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytis, ráðning-
ardeild, Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ,
eigi síðar en 8. ágúst 1996.
Starfslýsing liggur frammi á sama stað og
er mjög nauðsynlegt að væntanlegir um-
sækjendur lesi hana áður en þeir sækja
um, þar sem að ofan greinir, er aðeins stikl-
að á stóru um eðli og ábyrgð starfsins.
Kennarar
Lausar stöður við grunnskólana
á Akranesi
Brekkubæjarskóli. Grunnskólakennara vant-
ar til starfa næsta skólaár. Æskilegar
kennslugreinar: Almenn bekkjarkennsla og
íþróttakennsla (11/2 stöðugildi).
Upplýsingar veita Ingi Steinar Gunnlaugs-
son, skólastjóri, vs. 431 1938, hs. 431 1193,
Ingvar Ingvarsson, aðstoðarskólastjóri,
vs. 431 1938, hs. 431 3090.
Grundaskóli. Grunnskólakennara vantar til
starfa næsta skólaár. Æskilegar kennslu-
greinar: Almenn bekkjarkennsla, tónlistar-
kennsla og smíðakennsla (2 stöðugildi).
Upplýsingar veita Guðbjartur Hannesson, vs.
431 2811, hs. 431 2723, Ólína Jónsdóttir,
aðstoðarskólastjóri, vs. 431 2811,
hs. 431 1408.
Laun skv. kjarasamningum HÍK og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 6. ágúst nk.
Nánari upplýsingar eru einnig veittar hjá
skólafulltrúa í síma 431 1211.
Skólafulltrúi Akraness.
Lagerstarf
hálfan daginn
Óskum eftir að ráða sem fyrst starfsmann
til almennra lagerstarfa.
Um hálfsdagsstarf er að ræða.
Upplýsingar veitir Pétur Hansson
í síma 568 9519.
Yfirvélstjóri
Yfirvélastjóra vantar strax á togarann
Rauðanúp ÞH-160 frá Raufarhöfn.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu Jökuls hf.,
Raufarhöfn, sími 456 1200.
Kennarar
í Vestmannaeyjum eru starfandi tveir vel útbún-
ir, heilstæðir grunnskólar með áhugasömum
kennurum. Ennþá er pláss fyrir nokkra kennara
í starfsliðið á komandi skólaári.
Við Barnaskóla Vestmannaeyja eru lausar
3 stöður grunnskólakennara.
Um er að ræða 1 stöðu við almenna kennslu
(æskileg kennslugrein danska), 1 staða við
tónlistarkennslu (tónmennt og skólakór) og
1 staða handmenntakennara (smíðar).
Við Hamarsskóla eru lausar 2 stöður grunn-
skólakennara.
Um er að ræða almenna kennarastöðu við
kennslu yngri barna eða sérkennarastöðu
og eina við kennslu í eldri deildum (æskileg-
ar kennslugreinar stærðfræði og eðlisfræði).
Upplýsingar um þessar stöður gefur Sigurð-
ur á Skólamálaskrifstofu Vestmannaeyja í
síma 481 1092 á skrifstofutíma eða
481 3471 eftir kl. 17.00.
Þá er ennfremur laus 1 staða kennara við
Tónlistarskólann í Vestmannaeyjum, þar
sem megin viðgfangsefnið er píanó- og söng-
kennsla.
Nánari upplýsingar um þessa stöðu gefur
Guðmundur, skólastjóri, í síma 481 2551.
Skólamálaráð Vestmannaeyja.
EJS óskar eftir
tíu til fimmtán
hugbúnaðar-
sérfræðingum
EJS er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki á íslandi.
Á erlendri grundu hefur EJS m.a. hannað, smíðaö, sett upp og þjónustað
vörustýringarkerfi fyrir stórar verslanakeðjur. Hundruð verslana í Danmörku
og í Hong Kong nýta sér nú lausn frá EJS. Á hugbúnaðarsviði fyrirtækisins
starfa á þriðja tug sérfræðinga en starfsfólk er alls um eitt hundrað.
Vegna stóraukinna verkefna innanlands sem
utan óskar EJS eftir að ráða öfluga og áhuga-
sama einstaklinga sem fyrst til starfa í hug-
búnaðargerð. Viðkomandi þurfa að vera til-
búnir að starfa erlendis um tíma. M.a. er um
að ræða verkefni við gerð upplýsingakerfa
fyrir íslensk fyrirtæki með notkun nýjustu
tóla frá Microsoft svo og uppbyggingu vöru-
stýringakerfis í ORACLE umhverfi fyrir versl-
anakeðjur í Asíu og Ástralíu.
EJS leggur metnað sinn í að bjóða starfsör-
yggi, jafnrétti, sanngjörn laun og jákvætt,
gefandi starfsumhverfi. Áhersla er lögð á
fræðslu og þjálfun starfsfólks, sjálfstæði og
hópvinnu.
Leitað er að kerfis-, tölvunar- eða verkfræð-
ingum með góða grunnþekkingu og reynslu
við hönnun hugbúnaðar. Þekking á uppbygg-
ingu gagnagrunna og reynsla við nýsmíði
með notkun myndrænna notendaskila er
æskileg.
Umsóknir berist til Snorra Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra hugbúnaðarsviðs, fyrir
9. ágúst nk., merktar:
Starfsumsókn - Hugbúnaðarsvið.
IVIál lM ogmenning
{)
FORLAGIÐ
EINAR J. SKULASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, s. 5633000.