Morgunblaðið - 28.07.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1996 B 21
AT VINNUA UGL YSINGAR
Tækniteiknun
Teiknistofa óskar eftir að ráða tækniteikn-
ara, með reynslu og þekkingu á tölvuteikn-
un. Umsóknir berist til afgreiðslu Mbl.,
merktar „808“, fyrir 1. ágúst nk.
Skóla- og menning-
arfulltrúi ísafjarðar-
bæjar
Bæjarstjórn ísafjarðarbæjar auglýsir hér með
laust til umsóknar starf skóla- og menningarfull-
trúa skv. nýju stjórnskipulagi bæjarfélagsins.
Þann 1. júní sl. tók formlega gildi sameining
sex sveitarfélaga á Vestfjörðum í sveitarfé-
lagið ísafjarðarbær. Þetta nýja sveitarfélag
er nú að stíga sín fyrstu skref og því gefur
auga leið að hér er um krefjandi og áhuga-
vert uppbyggingarstarf að ræða.
Skóla- og menningarfulltrúi verður forstöðu-
maður þeirrar starfsemi sem heyrir undir
fræðslunefnd og menningarnefnd. Helstu
verkefni þessa starfsmanns eru yfirumsjón
með þeim málaflokkum sem lúta að uppeld-
is- og menningarmálum í bæjarfélaginu, þ.e.
allt skólahald í ísafjarðarbæ, rekstur íþrótta-
mannvirkja, bóka-, skjala- og byggðasafna
ásamt ferða- og kynningarmálum.
Óskað er umsókna frá einstaklingum sem
hafa áhuga og metnað til þess að takast á
við ögrandi verkefni og hafa vilja til þess að
taka þátt í mótun nýs sveitarfélags. Starfið
bíður þess umsækjanda sem hefur til að
bera góða hæfileika í mannlegum samskipt-
um, reynslu af stjórnarstörfum og ekki síst
ef sú reynsla er af vettvangi sveitarstjórnar-
mála.
Upplýsingar um starfið gefur undirritaður í
síma 456 3722.
Umsóknir skulu hafa borist Bæjarskrifstofu
ísafjarðarbæjar í síðasta lagi 30. júlí nk.
ísafirði 5. júlí
Bæjarstjóri ísafjarðarbæjar,
Kristján ÞórJúlíusson.
Sérkennari -
grunnskólakennarar,
leikskólakennarar
Eftirtaldar stöður við grunnskólana í Reykja-
nesbæ eru lausar til umsóknar:
Njarðvfkurskóli
1. Staða sérkennara.
2. Almenn kennsla.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 421 4399
og 421 4380.
Myllubakkaskóli
1. Almenn kennsla 5. bekk og danska í 6.
bekk (1/1 staða).
2. Almenn kennsla í 1. bekk, 2 hlutastöður
(2/3).
3. Almenn kennsla í 2. bekk, tímabundin
ráðning í 2 hlutastöður v/fæðingarorlofs til
des.-janúarloka.
Upplýsingarveitirskólastjóri ísíma421 1450
og 421 1884.
Leikskólar
Leikskólakennarar óskast til starfa við leik-
skóla bæjarins. Upplýsignar veitir leikskóla-
fulltrúi í síma 421 6200.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst nk.
Skólamálastjóri Reykjanesbæjar.
Þórshafnarhreppur
Störf á Þórshöfn
Okkur vantar fólk til starfa sem vill takast á
við spennandi störf í jákvæðu umhverfi:
Skólastjóra við Grunnskólann á Þórshöfn
Grunnskólakennara. Meðal kennslugreina
almenn kennsla, íþróttir og handmennt.
íþróttakennara stendur einnig til boða starf
íþrótta- og tómstundafulltrúa, en öflugt
íþrótta- og æskulýðsstarf hefur verið á staðn-
um undanfarin ár.
í skólanum eru tæplega 100 nemendur og verður hann einset-
inn frá og með næsta hausti. unnið er að því að bæta allan
aðbúnað skólans og munu starfsmenn og stjórnendur fá tæki-
færi til að móta þá vinnu, en áhersla verður lögð á uppbyggingu
á sviði skóla-, íþrótta- og tómstundaskóla hjá sveitarfélaginu á
næstu árum.
Hjúkrunarforstjóra við hjúkrunar- og dvalar-
heimilið Naust.
Um er að ræða starf á blandaðri stofn-
un/heimili og er Naust miðstöð öldrunarþjón-
ustu sveitarfélaganna á svæðinu. Hjúkrunar-
forstjóri fer einnig með yfirstjórn öldrunar-
mála og vinnur því að stefnumörkun í mála-
flokkum með sveitárstjórnunum.
Byggðarlagið telur rúmlega 600 manns og hefur íbúum fjölgað
á undanförnum árum. Næg atvinna er á staðnum og eftirspurn
eftir fólki á vinnumarkaö. Samgöngur eru greiðar, m.a. flug fimm
sinnum í viku.
Væntanlegum starfsmönnum stendur til
boða flutningsstyrkur og húsnæði á sann-
gjörnu verði.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Þórshafnarhrepps í síma 4681220 eða
468 1275.
Umsóknum skal skila á skrifstofuna, Langa-
nesvegi 16a,
680 Þórshöfn.
Sveitarstjórinn á Þórshöfn.
Frá Háskóla íslands
Við félagsvísindadeild Háskóla íslands er
laust til umsóknar 50% starf lektors á sviði
klíniskrar félagsráðgjafar. Áhersla er á grein-
ingu og sérhæfða ráðgjöf í heilbrigðisþjón-
ustu, einkum fyrir foreldra og börn í sérstök-
um erfiðleikum, þar með eru talin barna-
verndarmál.
Umsækjendur skulu hafa sérhæfða fram-
haldsmenntun, trausta reynslu af meðferð
mála á sviðinu, kennslureynslu á hákskóla-
stigi og bein tengsl við vettvang. Þeir skulu
einnig hafa unnið að rannsóknar- og sér-
fræðistörfum á sínu sviði.
Gert er ráð fyrir að í starfið verði ráðið til
tveggja ára frá 1. janúar 1997 að telja.
Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um
náms- og starfsferil, stjórnunar- og kennslu-
reynslu og vísindastörf. Einnig eintök af
helstu fræðilegum ritsmíðum. Ennfremur er
óskað eftir greinargerð um þær rannsóknir,
sem umsækjendur hyggjast vinna að, og um
hugmyndir þeirra um áherslur í þeim náms-
þáttum, sem þeir munu stýra, verði þeim
veitt staðan.
Laun samkvæmt kjarasamningi Félags há-
skólakennara og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til 1. september 1996
og skal umsóknum skilað til satarfsmanna-
sviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu við
Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Júlíusdóttir
formaður námsnefndar í félagsráðgjöf, sími
525 4505; tölvufang sigjul@rhi.hi.is
Verðbréfaþing
íslands
Tvær stöður sérfræðinga
Verðbréfaþing íslands auglýsir lausar til
umsóknar tvær stöður sérfræðinga.
Verkefni sérfræðinganna verða einkum:
• Vöktun markaðar, beiting tölfræði og
tölvutækni til að fylgjast með sveiflum í verð-
myndun, framboði og eftirspurn, og eftirlit
með því að fylgt sé ákvæðum laga um verð-
bréfaviðskipti, s.s. um innherjaviðskipti,
sýndarviðskipti, upplýsingagjöf og sýnileika
markaðar.
• Uppbygging og þróun tölvu- og sam-
skiptakerfa til að gera viðskipti og upplýs-
ingagjöf hraðvirkari, svo og til að mæta nýj-
um þörfum og nýjum viðskiptaháttum.
Breytingar eru örar í tækni- og rekstrarum-
hverfi þingsins. Því verða gerðar miklar kröf-
urtil starfsmanna um frumkvæði og dugnað.
Háskólagráða ílögfræði, viðskiptafræði, hag-
fræði, tölvunarfræði eða verkfræði er æski-
leg. Önnur háskólamenntun kemur einnig til
greina.
Eftirtalin atriði verða metin umsækjendum
sérstaklega til framdráttar:
• Starfsreynsla á fjármálamarkaði.
• Víðtæk þekking á tölvu- og fjarskipta-
tækni.
• Gott vald á íslensku máli og tjáningu í
ræðu og riti.
• Góð tungumálakunnátta og reynsla í er-
lendum samskiptum.
Umsóknir, með ítarlegum upplýsingum um
menntun, starfsreynslu og aðra þætti, sem
umsækjendur vilja leggja áherslu á, sendist
skrifstofu Verðbréfaþings, Kalkofnsvegi 1,
150 Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn
6. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Halidórsson,
framkvæmdastjóri, í síma 569 9776.
Félagsráðgjafi
óskast
Við á Félagsmálastofnun Sauðárkróks bjóð-
um félagsráðgjafa eða starfsmann með
menntun á sviði félags-, uppeldis- eða sálar-
fræði og reynslu af meðferðarstörfum, vel-
kominn til starfa á afmælisári Sauðárkróks-
bæjar.
Um er að ræða heila stöðu og verða helstu
verkefnin á sviði barnaverndar, en stofnunin
annast framkvæmd barnaverndar fyrir allan
Skagafjörð og á sviði öldrunarþjónustu, en
fyrirhugað er í samvinnu við Sjúkrahús Skag-
firðinga að byggja upp öflugt félagsstarf í
þágu aldraðra.
Ef þú ert dugleg(ur) og drífandi og vilt taka
þátt í skapandi vinnu við uppbyggingu félags-
þjónustunnar á Sauðárkróki, þá heyrum við
gjarnan frá þér.
Nánari upplýsingar veitir Regína Ásvalds-
dóttir, félagsmálastjóri, í síma 453 6174.
Umsóknir, merktar „Félagsráðgjöf", sendist
í Stjórnsýsluhúsið, Skagfirðingabraut 21,550
Sauðárkróki. Umsóknarfrestur er til
10. ágúst nk.
Á Sauftárkróki búa tæplega 2.800 manns sem starfa m.a. vift iftnaft,
útgerð, fiskverkun, fiskeldi, þjónustu, verslun, stjórnsýslu og landbún-
aft. Áhugamál íbúanna eru margvísleg, hestamennska er í hávegum
höfft, fjölmargir syngja í kór, körfuboltinn er vinsæll og margir njóta
þess aft spila golf í kvöldkyrrftinni.
Helgina 20. til 21. júlf sl. hófst afmælisár Sauftárkróks sem mun
standa til 20. júli 1997.
Tilefnift er 140 ára verslunarleyfi, 125 ára búseta, 90 ára sveitar-
félag og 50 ára kaupstaftur. Margt verftur sér til gamans gert á afmæl-
isárinu, ráðstefnur um heilsuvernd, atvinnumál og sveitarstjórnar-
mál. Umhverfisátak er í gangi, aldargamall ræðuklúbbur hefur verift
endurvakinn og dönsk vika verftur haldin nú í haust.
Einkunnarorð ársins eru: Sækjum kraft og þor i fortfðina til aft
takast á við framtfðina.