Morgunblaðið - 28.07.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 28.07.1996, Síða 1
Ferðamönnum hefur fækkað á tjaldstæðum VINSÆLDIR gistiheimila sem bjóða ódýrt svefnpláss hafa aukist á kostnað gistingar í tjaldi á skipu- lögðum tjaldstæðum. Slíkum gisti- heimilum hefur fjölgað hér á landi undanfarin ár og verð á gistingu lækkað. Samdráttur hefur hins vegar orðið í sölu á skipulögð tjald- stæði auk þess sem verð er ekki eins hagstætt og áður. Á Hagstofu íslands fengust þær upplýsingar að gistinóttum átjaldstæðum hefði fækkað um 10,9% á milli sumr- anna 1994 og 1995. Á sama tíma fjölgaði ferðum erlendra ferða- manna til landsins. Að sögn Magnúsar Oddssonar ferðamálastjóra var aukning á gistirými um 40% á tímabilinu 1989 til 1995 og hlutfallslega meiri á ódýrari tegund innigisting- ar. Hann segir ennfremur að gisti- verð hafi almennt farið lækkandi en aftur á móti hafi orðið hækkan- ir á verði á skipulögðum tjaldstæð- um. Meira af tjaldvögnum og hjólhýsum Þannig kostar gisting í svefn- pokaplássi á farfuglaheimili frá 1.000 krónum en gisting á skipu- lögðum tjaldstæðum kostar 250- 500 krónur á manninn. „Ef tiltölulega litlu munar á verði á gistirými í húsi og gistingu á tjaldstæði þá velja menn fyrri kostinn. Ferðamenn sækja stöðugt í frekari þægindi þótt það kosti ef til vill meira og því kemur ekki á óvart þó að tilfærsla verði frá tjaldstæðum yfir í aðra tegund BORG OG STRÖND ►í HAUST bjóða Samvinnuferð- ir/Landsýn ferðir þar sem hægt er að njóta bæði strandlífs og borgarlífs. Farið verður til Beni- dorm og Barcelona 2. og 9. sept- ember. Dvalið verður á Benidorm í 9 daga, síðan er flogið til Barcel- ona og gist í tvær nætur. Ferðin kostar 50.850 kr. á mann, ef tveir eru í íbúð með einu svefnherbergi \ á Benidorm, og er þá gisting í Barcelona o.fl. innifalið. VÍNSMÖKKUN ►LAGT verður upp í tíu daga vínsmökkunar- og sælkeraferð Samvinnuferða/Landsýnar um París, Cognac, Bordeaux og fleiri vínhéruð 17. september. Farar- stjórar verða Sigurður L. Hall og Þorfinnur Ómarsson. Stað- greiðsluverð er 128,920 kr. á mann í tvíbýli og er þá m.a. innifal- ið gisting, skoðunarferðir, vínsm- ökkun og sælkeramáltíðir. GOLF Á SPÁNI ► ÚRVAL/ÚTSÝN býður upp á vikugolfferð 2. október til Islant- illa á Spáni. Dvalið verður á Conf- ortel hótelinu, sem er 1 km frá Islantilla Golf Club.Verð á mann í tvíbýli er 64.400 kr. Innifalið er m.a. flug, gisting með morgun- verðarhlaðborði, og ótakmarkað golf og golffararsljórn. ■ SÍÐDEGISKAFFI í Vigur og víðor á Vestfjörðum g Mun meira framboð og lægra verð en áður hefur tíðkast á gistiheimilum SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ1996 BLAÐC KksWin^sa'at C Me/ó, 'our ». prkg. WINNIPEG „ÁÆTLUNARFLUG Flugleiða til Halifax í Kanada breytir stöðunni og opnar nýja möguleika," segir Ruth Wiebe, sem rekið hefur ferðaskrifstofuna Bonaventure Travel í Winnipeg í tuttugu ár og átt góð samskipti við Islendinga. I sama streng tekur Edda Ólafsdóttir Kristjánsson, sem opnað hefur heimili sitt ferðamönn- um og er einkar ljúft að bjóða íslendingum gist- íviuigunuiauiu/vjuiii FERÐAMENN sækja í aukin þægindi ef þeir eiga þeirra kost. gistingar. Á tjaldstæðum víða um land er einnig áberandi meira af tjaldvögnum og hjólhýsum en áður sem sýnir einnig sókn fólks í meiri þægindi,“ segir Magnús. Á tjaldstæðum á Akureyri, Húsavik og Egilsstöðum hefur þó orðið nokkur aukning á gistinótt- um í ár miðað við sama tíma í fyrra, en í Laugardalnum i Reykjavík stendur fjöldinn í stað og hefur jafnvel eitthvað dregist saman. Tjaldverðir telja gott árferði ráða miklu um hve ásókn í tjald- stæði er mikil, sérstaklega hjá ís- lendingum. Erlendir ferðamenn gista yfirleitt mun skemur en ís- lendingar og láta veðrið ekki aftra sér. ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.