Morgunblaðið - 28.07.1996, Blaðsíða 1
Ferðamönnum
hefur fækkað
á tjaldstæðum
VINSÆLDIR gistiheimila sem
bjóða ódýrt svefnpláss hafa aukist
á kostnað gistingar í tjaldi á skipu-
lögðum tjaldstæðum. Slíkum gisti-
heimilum hefur fjölgað hér á landi
undanfarin ár og verð á gistingu
lækkað. Samdráttur hefur hins
vegar orðið í sölu á skipulögð tjald-
stæði auk þess sem verð er ekki
eins hagstætt og áður. Á Hagstofu
íslands fengust þær upplýsingar
að gistinóttum átjaldstæðum hefði
fækkað um 10,9% á milli sumr-
anna 1994 og 1995. Á sama tíma
fjölgaði ferðum erlendra ferða-
manna til landsins.
Að sögn Magnúsar Oddssonar
ferðamálastjóra var aukning á
gistirými um 40% á tímabilinu
1989 til 1995 og hlutfallslega
meiri á ódýrari tegund innigisting-
ar. Hann segir ennfremur að gisti-
verð hafi almennt farið lækkandi
en aftur á móti hafi orðið hækkan-
ir á verði á skipulögðum tjaldstæð-
um.
Meira af tjaldvögnum og
hjólhýsum
Þannig kostar gisting í svefn-
pokaplássi á farfuglaheimili frá
1.000 krónum en gisting á skipu-
lögðum tjaldstæðum kostar 250-
500 krónur á manninn.
„Ef tiltölulega litlu munar á
verði á gistirými í húsi og gistingu
á tjaldstæði þá velja menn fyrri
kostinn. Ferðamenn sækja stöðugt
í frekari þægindi þótt það kosti
ef til vill meira og því kemur ekki
á óvart þó að tilfærsla verði frá
tjaldstæðum yfir í aðra tegund
BORG OG STRÖND
►í HAUST bjóða Samvinnuferð-
ir/Landsýn ferðir þar sem hægt
er að njóta bæði strandlífs og
borgarlífs. Farið verður til Beni-
dorm og Barcelona 2. og 9. sept-
ember. Dvalið verður á Benidorm
í 9 daga, síðan er flogið til Barcel-
ona og gist í tvær nætur. Ferðin
kostar 50.850 kr. á mann, ef tveir
eru í íbúð með einu svefnherbergi \
á Benidorm, og er þá gisting í
Barcelona o.fl. innifalið.
VÍNSMÖKKUN
►LAGT verður upp í tíu daga
vínsmökkunar- og sælkeraferð
Samvinnuferða/Landsýnar um
París, Cognac, Bordeaux og fleiri
vínhéruð 17. september. Farar-
stjórar verða Sigurður L. Hall og
Þorfinnur Ómarsson. Stað-
greiðsluverð er 128,920 kr. á
mann í tvíbýli og er þá m.a. innifal-
ið gisting, skoðunarferðir, vínsm-
ökkun og sælkeramáltíðir.
GOLF Á SPÁNI
► ÚRVAL/ÚTSÝN býður upp á
vikugolfferð 2. október til Islant-
illa á Spáni. Dvalið verður á Conf-
ortel hótelinu, sem er 1 km frá
Islantilla Golf Club.Verð á mann
í tvíbýli er 64.400 kr. Innifalið er
m.a. flug, gisting með morgun-
verðarhlaðborði, og ótakmarkað
golf og golffararsljórn. ■
SÍÐDEGISKAFFI í Vigur og víðor á
Vestfjörðum g
Mun meira framboð og lægra verð en áður hefur tíðkast á gistiheimilum
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ1996 BLAÐC
KksWin^sa'at C
Me/ó,
'our
».
prkg.
WINNIPEG
„ÁÆTLUNARFLUG Flugleiða til Halifax í Kanada
breytir stöðunni og opnar nýja möguleika," segir Ruth
Wiebe, sem rekið hefur ferðaskrifstofuna Bonaventure
Travel í Winnipeg í tuttugu ár og átt góð samskipti
við Islendinga. I sama streng tekur Edda Ólafsdóttir
Kristjánsson, sem opnað hefur heimili sitt ferðamönn-
um og er einkar ljúft að bjóða íslendingum gist-
íviuigunuiauiu/vjuiii
FERÐAMENN sækja í aukin þægindi ef þeir eiga þeirra kost.
gistingar. Á tjaldstæðum víða um
land er einnig áberandi meira af
tjaldvögnum og hjólhýsum en áður
sem sýnir einnig sókn fólks í meiri
þægindi,“ segir Magnús.
Á tjaldstæðum á Akureyri,
Húsavik og Egilsstöðum hefur þó
orðið nokkur aukning á gistinótt-
um í ár miðað við sama tíma í
fyrra, en í Laugardalnum i
Reykjavík stendur fjöldinn í stað
og hefur jafnvel eitthvað dregist
saman.
Tjaldverðir telja gott árferði
ráða miklu um hve ásókn í tjald-
stæði er mikil, sérstaklega hjá ís-
lendingum. Erlendir ferðamenn
gista yfirleitt mun skemur en ís-
lendingar og láta veðrið ekki aftra
sér. ■