Morgunblaðið - 28.07.1996, Side 1
VITO - NÝR FJÖLNOTABÍLL FRÁ MERCEDES BENZ -
HÓPBÍLARKAUPA RENAULTRÚTU — NISSANALMERA „GÓГÍ
ÁREKSTRI - GRAND PRIX FYRIR BARNAFJÖLSKYLDUR
MEGANE
MEISTARAVERK
RENAULT
Aðeins kr. 849.000,
10Oi
fRAMTlDIN BYCCIST A HtfBMMI
Tryggðu þér nýjan
fjölskyldubíl núna.
Þýsk gæði á ótrúlega
lágu verði.
1 9 4 í - 1 9 9 4
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600
FORD Mustang GT
með 5,0 lítra, V-8 vél.
Bifreiðasala
f Evrópu
fyrri hluta
ársins Seldlr
1996 bílarí
Breyting
frá jan.-
jan.-júní ]úní 1995
Þýskaland 1.909.000 +6,4%
Frakkland 1.028.200 +1,8%
Bretland 1.000.600 +5,1%
Ítalía 993.100 -0,7%
Spánn 463.000 0,0%
Holland 288.700 +3,7%
Belgía 243.800 +15,4%
Austurríki 194.400 +17,0%
Sviss 161.600 +2,9%
Portúgal 116.000 +5,6%
Svíþjóö 89.200 -0,7%
írland 84.400 +34,4%
Danmörk 77.200 +0,9%
Grikkland 76.800 +15,5%
Noregur 65.600 +38,1%
Finnland 55.800 +17,7%
Lúxemborg 18.700 +9,4%
SftMTALS: 6.866.100 +4,8%
Söluaukning
íEvrópu
FÓLKSBÍLASALA í Evrópu jókst
um 4,8% fyrstu sex niánuði ársins.
í Þýskalandi nam aukningin 6,4%,
5,2% í Bretlandi, 1,8% í Frakk-
landi en á Ítalíu dróst bílasalan
saman um 0,6%_og 0,1% á Spáni.
Söluaukning á íslandi fyrstu sex
mánuði ársins nam um 21,4%. ■
Ford Mustang GT keyptur
ú bílauppboði í Virginíu
JÓN Árni Guðmundsson, sem rekur
Bílasprautun Selfoss, er einn þeirra
mörgu sem hafa flutt inn notaða
bíla frá Bandaríkjunum að undan-
förnu. Síðastliðinn vetur flutti hann
til landsins glæsilegan Ford Mustang
árgerð 1995, sem hann keypti á
uppboði í Virginíu fylki í Bandaríkj-
unum.
Bílnum hefur verið ekið um 6.500
mílur, um 11.700 km. Hann er með
fimm lítra vél, V-8 vél með beinni
innspýtingu, 220 hestöfl.
„Menn hafa sett keflablásara á
þessa bíla og þá fara þeir upp í um
350 hestöfl. Fyrirtækið Cobra, sem
kennt er við Shelby Cobra, hefur séð
um slíkar breytingar og þá heitir
hann Mustang Cobra. Bíllinn minn
er hins vegar Mustang GT með fimm
gíra beinskiptum kassa. Hann er
með ABS-hemlakerfi, rafmagni í
sætum, rúðum og speglum og loft-
gúðum báðum megin,“ sagði Jón
Árni.
Bíllinn er á 17 tommu álfelgum
og „low profile" dekkjum, sem Jón
Árni segir að kosti á við fjóra ganga
af venjulegum hjólbörðum.
„Eg flyt bílinn reyndar bara inn
til þess að selja hann. Hann selst á
því verði sem menn eru tilbúnir til
þess að greiða fyrir hann. Ég vissi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
BÍLLINN er hinn glæsilegasti að innan, sæti, speglar og rúður
rafdrifnar og tveir líknarbelgir.
reyndar af sams konar bíl, silfur-
gráum, sem seldist sl. vor á 2,8
milljónir kr. En síðan hafa tollamir
lækkað þannig að hugsanlegt verð
væri um 2,5 milljón," sagði Jón Árni.
Hann fór gagngert utan til þess
að kaupa bíl en hafði ekkert sérstak-
lega í huga að kaupa Mustang. Fjöldi
uppboða er á hverju ári í Bandaríkj-
unum á notuðum bílum en Jón Árni
segir að nauðsynlegt sé að hafa lið-
sinni heimamanns sem hefur versl-
unarleyfí til þess að bjóða í bíla.
Hann vildi ekki gefa uppi kaup-
verðið á bílnum. „Það er ekki fyrir
hvern sem er að kaupa sér flugmiða
og fara í þetta. Það þarf að þekkja
dálítið til.“
Margir þeirra bíla sem boðnir eru
upp eru í eigu fjármögnunarfyrir-
tækja og tryggingafélaga. Einnig
eru þar bílar frá bílaleigunum. „Það
er þarna þvílík mergð af bílum sem
standa á heljarstórum plönum. Það
koma bílar inn á plönin jafnóðum
og þeir fara út af þeim. Uppboðin
fara fram í allt að tíu sölum á þess-
um svæðum á sama tíma,“ sagði Jón
Árni.
Hann segir að sérstök uppboð séu
haldin á skemmdum bílum og þau
séu einkum ætluð fyrir varahluta-
sala. Jón Árni segir að lítið sé hægt
að aka bílunum áður en boðið er í
þá, þó sé hægt að setja þá í gang
og aka lítilsháttar inni á plönunum.
Sérstaka passa þarf til þess að kom-
ast inn á svæðin og eftirlit haft með
því hverjir fara inn á þau.
Jón Árni segir að 4 til 5 sams
konar bílar séu til hér á landi. Hann
segir að það sé hagnaðarvon í slík-
um innflutningi en þó geti brugðið
til beggja vona. „Maður hagnast
ekkert fyrr en bíllinn er seldur.
Amerískir bílar hafa verið dálítið
þungir í sölu en auðveldara að selja
japanska. Þeir eru hins vegar dýr-
ari þarna úti og betri endursala á
þeim alveg eins og hér. Þar finnst
mér skjóta skökku við því mér finnst
ekki jafn mikið varið í þá jap-
önsku,“ sagði Jón Árni. ■