Morgunblaðið - 01.08.1996, Síða 1
BÍLASKODUN
Bitist um bílana/3
FANCAVINNA
Brotist úr hlekkjum
hugarfarsins/4
TORCIP
Rót á verö-
bréfamarkaöi/8
Spariskírteini
Engu tilboði var tekið í útboði á
verðtryggðum spariskírteinum tii
10 og 20 ára og 10 ára árgreiðslu-
skírteinum hjá Lánasýslu ríkisins
í gær. Alls bárust fimm gild tilboð
í spariskírteini að fjárhæð 228
milljónir króna að söluverðmæti,
en ekkert þeirra var nægilega
hagstætt.
Þýsk-íslenska
Kristín S. Hjálmtýsdóttir hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Þýsk-íslenska verslunarráðsins
frá 1. september. Kristín, sem er
hagfræðingur að mennt, mun
gegna fullu starfi frá og með þeim
tíma en undanfarna mánuði hefur
hún starfað fyrir ÞÍV í hálfu
starfi.
Heilsa og sport
Vörusýningin Heilsa og sport ’96
verður haldin í Kaplakrika frá 29.
ágúst - l.sept. Þar er ætlunin að
kynna ýmsar vörur tengdar heilsu
og íþróttaiðkun. Sigurjón Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri sýningar-
innar, segir að allir aðilar sem
komi að íþrótta- og heilsuræktar-
starfsemi geti leigt bása undir
starfsemi sína á sýningunni, en
um 90 sýningarbásar verða leigðir
út.
SÖLUGENGI DOLLARS
i Plastpient hf.
Milliuppgjör 1996 i, ...i, ., . _ ,.
__________ __________Jan.-jum Jan.-|um Breyting
fíekstur_____Milljónir króna 1996 1995 m. ára
Rekstrartekjur
Rekstrargjöld
Hlutdeild íhagnaði hlutdeildarfélags
Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta
Fjármagnsliðir
Hagnaður fyrir skatta
Reiknaðir skattar
Hagnaður tímabilsins
Eigið fé
490,0
418,1
4,2
76,1
(20,5)
55,6
8,0
47,6
466,3
394,1
0
+5%
+6%
72,2
(12,9) +58%
59,2
0
+5%
■6%
59,2 -20%
Sjóðstreymi
388,5 179,8 +116%
Hreint veltufé frá rekstri
Handbært fé frá rekstri
Kennitöiur
70.7
91.8
Hagnaður sem hlutfall af tekjum
Veltufjárhlutfall
Eiginfjárhlutfall
Langtímaskuldir / Heildareignir
9,7%
2,08
35%
40%
65,0
51,4
12,7%
1,59
19%
52%
+9%
+78%
Afkoma Plastprents hf. fram úr
áætlun á fyrri árshelmingi
Hagnaður nam
48 milljónum
PLASTPRENT hf. skilaði alls um
48 milljóna króna hagnaði fyrstu sex
mánuði ársins og er það töluvert
betri afkoma en áætlanir gerðu ráð
fyrir. Gert var ráð fyrir að hagnaður-
inn yrði um 36 milljónir í áætlunum
fyrir þetta tímabil.
Hins vegar er afkoman heldur
lakari en á sama tímabili í fyrra
þegar hagnaður nam um 59 milljón-
um. Lakari afkomu má rekja til þess
að skattar voru engir í fyrra en 8
milljónir á tímabilinu nú í ár, en auk
þess naut fyrirtækið gengishagnað-
ar af erlendum lánum í fyrra.
Afkoma af rekstri, þ.e. fyrir fjár-
magnsliði og skatta en að teknu til-
liti til hlutdeildarfélagsins, batnaði
um 5,5%. Nam rekstrarhagnaðurinn
76 milljónum samanborið við 72
milljónir í fyrra.
Mikið framboð SÍF-bréfa
FRAMBOÐ hlutabréfa í Sölusam-
baridi íslenskra fiskframleiðenda
(SÍF) á Opna tilboðsmarkaðnum
hefur farið vaxandi að undanförnu
á sama tíma og hlutafjárútboð
stendur fyrir dyrum hjá fyrirtæk-
inu. í gær var hlutafé að nafnvirði
um 30,5 milljónir til sölu á mark-
aðnum eða sem svarar til um 6,5%
af heildarhlutafé.
Eftir því sem næst verður komist
standa bæði saitfiskframleiðendur
og fjárfestar að þessum sölutilboð-
um, en margir þeirra keyptu bréfin
fyrir einu til einu og hálfu ári á
genginu 1-1,5. Þeir bjóða nú bréfin
á genginu 3,1-3,4. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins eru sumir
þeirra ánægðir með þá ávöxtun sem
bréfin hafa skilað og vilja selja bréf-
in af þeim ástæðum.
Óánægðir hluthafar
vilja selja
Hins vegar gætir einnig nokkurr-
ar óánægju meðal sumra þessara
aðila með gang mála hjá SÍF. Telja
þeir að upplýsingar skorti um til-
gang yfirstandandi hlutafjárútboðs,
sem er að nafnvirði 122 milljónir.
Þá hafi SÍF ekki viljað sækja um
skráningu á Verðbréfaþingi og upp-
fylla þannig ákveðnar skyldur um
upplýsingagjöf.
Loks er bent á að stjórnarformað-
ur félagsins eða aðili tengdur hon-
um hafi selt sín bréf á genginu 3,45
daginn áður en tilkynnt var um
hlutafjárútboðið. í útboðinu eigi
hins vegar að selja ný bréf á 3,1.
SÍF hafi síðan keypt hlutabréf í
félaginu sjálfu af Copesco Sefrisa
og selt þau að nýju áður en útboðið
hófst án þess að gera hluthöfum
grein fyrir því.
Heildarvelta fyrirtækisins nam
alls um 490 milljónum fyrstu sex
mánuðina og jökst um 5% frá sama
tíma í fyrra,_eins og sést á meðfylgj-
andi töflu. Útlit og horfur í rekstri
Plastprents eru góðar og bendir allt
til þess að áætlanir standist fylli-
lega. Eftirspurn eftir þjónustu fyrir-
tækisins hefur aukist til muna og
er nú unnið á vöktum allan sólar-
hringinn til að anna henni, að því
er segir í frétt.
Eysteinn Helgason, forstjóri
Plastprents hf., sagði í samtali við
Morgunblaðið að mikil gróska hafi
verið í framleiðslu fyrir sjávarútveg
og samkeppnisiðnað að undanförnu.
Þannig hefði t.d. orðið mikil aukning
á framleiðslu á umbúðum vegna
fullvinnslu á sjávarafurðum.
„Auk þess hefur útflutningurinn
gengið betur en við höfðum gert ráð
fyrir. Það eru framundan miklar
annir í framleiðslu vegna útflutn-
ings. Verkefnin í júlí og ágúst eru
að stórum hluta litgreind prentun
fyrir erlendan markað," sagði Ey-
steinn.
Gengi hlutabréfa hefur
hækkað um 85%
Fjárhagsstaða fyrirtækisins hefur
styrkst til muna á síðustu misserum.
Þannig var eiginfjárhlutfall 19% í lok
júní 1995, um síðustu áramót var
það 27%, en var komið í 35% í lok
júní sl.
Gengi hlutabréfa Plastprents var
3,25 10. apríl sl. þegar viðskipti með
bréfin hófust á Opna tilboðsmarkaðn-
um. Gengið hefur nú hækkað í 6,0
eða um tæplega 85% á þessu tíma-
bili. Hluthafar eru nú 375 talsins.
Til fyrirtœkja ojy rekstraraðila: |
Hajýfkvœ t til n lát 25 áva 1 i
• Vextir 6,75% til 8,25%
• Hagkvæm endurfjármögnun styttri og óhagkvæmari lána
• Lægri fjármagnskostnaður
• Lægri greiðslubyrði áhvílandi lána
• Auðveldari fjármögnun nýrra fjárfestinga
• Betri veltufjárstaða
Lán eru veitt gegn fasteignaveði á höfuðborgarsvæðinu. Veðsetningarhlutfall skal ekki fara yfir 55% af söluverði eignar.
Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum i öllum útibúum Landsbanka íslands.
8 REYKJAVÍK, SÍMI 588 9200,
0
y LANDSBREF HF.
—ht - ívtn
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
■
SUÐURLAIMDSBRAUT 24, 11
BREFASIMI 588 8598