Morgunblaðið - 01.08.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.08.1996, Qupperneq 1
BÍLASKODUN Bitist um bílana/3 FANCAVINNA Brotist úr hlekkjum hugarfarsins/4 TORCIP Rót á verö- bréfamarkaöi/8 Spariskírteini Engu tilboði var tekið í útboði á verðtryggðum spariskírteinum tii 10 og 20 ára og 10 ára árgreiðslu- skírteinum hjá Lánasýslu ríkisins í gær. Alls bárust fimm gild tilboð í spariskírteini að fjárhæð 228 milljónir króna að söluverðmæti, en ekkert þeirra var nægilega hagstætt. Þýsk-íslenska Kristín S. Hjálmtýsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þýsk-íslenska verslunarráðsins frá 1. september. Kristín, sem er hagfræðingur að mennt, mun gegna fullu starfi frá og með þeim tíma en undanfarna mánuði hefur hún starfað fyrir ÞÍV í hálfu starfi. Heilsa og sport Vörusýningin Heilsa og sport ’96 verður haldin í Kaplakrika frá 29. ágúst - l.sept. Þar er ætlunin að kynna ýmsar vörur tengdar heilsu og íþróttaiðkun. Sigurjón Sigurðs- son, framkvæmdastjóri sýningar- innar, segir að allir aðilar sem komi að íþrótta- og heilsuræktar- starfsemi geti leigt bása undir starfsemi sína á sýningunni, en um 90 sýningarbásar verða leigðir út. SÖLUGENGI DOLLARS i Plastpient hf. Milliuppgjör 1996 i, ...i, ., . _ ,. __________ __________Jan.-jum Jan.-|um Breyting fíekstur_____Milljónir króna 1996 1995 m. ára Rekstrartekjur Rekstrargjöld Hlutdeild íhagnaði hlutdeildarfélags Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta Fjármagnsliðir Hagnaður fyrir skatta Reiknaðir skattar Hagnaður tímabilsins Eigið fé 490,0 418,1 4,2 76,1 (20,5) 55,6 8,0 47,6 466,3 394,1 0 +5% +6% 72,2 (12,9) +58% 59,2 0 +5% ■6% 59,2 -20% Sjóðstreymi 388,5 179,8 +116% Hreint veltufé frá rekstri Handbært fé frá rekstri Kennitöiur 70.7 91.8 Hagnaður sem hlutfall af tekjum Veltufjárhlutfall Eiginfjárhlutfall Langtímaskuldir / Heildareignir 9,7% 2,08 35% 40% 65,0 51,4 12,7% 1,59 19% 52% +9% +78% Afkoma Plastprents hf. fram úr áætlun á fyrri árshelmingi Hagnaður nam 48 milljónum PLASTPRENT hf. skilaði alls um 48 milljóna króna hagnaði fyrstu sex mánuði ársins og er það töluvert betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir. Gert var ráð fyrir að hagnaður- inn yrði um 36 milljónir í áætlunum fyrir þetta tímabil. Hins vegar er afkoman heldur lakari en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaður nam um 59 milljón- um. Lakari afkomu má rekja til þess að skattar voru engir í fyrra en 8 milljónir á tímabilinu nú í ár, en auk þess naut fyrirtækið gengishagnað- ar af erlendum lánum í fyrra. Afkoma af rekstri, þ.e. fyrir fjár- magnsliði og skatta en að teknu til- liti til hlutdeildarfélagsins, batnaði um 5,5%. Nam rekstrarhagnaðurinn 76 milljónum samanborið við 72 milljónir í fyrra. Mikið framboð SÍF-bréfa FRAMBOÐ hlutabréfa í Sölusam- baridi íslenskra fiskframleiðenda (SÍF) á Opna tilboðsmarkaðnum hefur farið vaxandi að undanförnu á sama tíma og hlutafjárútboð stendur fyrir dyrum hjá fyrirtæk- inu. í gær var hlutafé að nafnvirði um 30,5 milljónir til sölu á mark- aðnum eða sem svarar til um 6,5% af heildarhlutafé. Eftir því sem næst verður komist standa bæði saitfiskframleiðendur og fjárfestar að þessum sölutilboð- um, en margir þeirra keyptu bréfin fyrir einu til einu og hálfu ári á genginu 1-1,5. Þeir bjóða nú bréfin á genginu 3,1-3,4. Samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins eru sumir þeirra ánægðir með þá ávöxtun sem bréfin hafa skilað og vilja selja bréf- in af þeim ástæðum. Óánægðir hluthafar vilja selja Hins vegar gætir einnig nokkurr- ar óánægju meðal sumra þessara aðila með gang mála hjá SÍF. Telja þeir að upplýsingar skorti um til- gang yfirstandandi hlutafjárútboðs, sem er að nafnvirði 122 milljónir. Þá hafi SÍF ekki viljað sækja um skráningu á Verðbréfaþingi og upp- fylla þannig ákveðnar skyldur um upplýsingagjöf. Loks er bent á að stjórnarformað- ur félagsins eða aðili tengdur hon- um hafi selt sín bréf á genginu 3,45 daginn áður en tilkynnt var um hlutafjárútboðið. í útboðinu eigi hins vegar að selja ný bréf á 3,1. SÍF hafi síðan keypt hlutabréf í félaginu sjálfu af Copesco Sefrisa og selt þau að nýju áður en útboðið hófst án þess að gera hluthöfum grein fyrir því. Heildarvelta fyrirtækisins nam alls um 490 milljónum fyrstu sex mánuðina og jökst um 5% frá sama tíma í fyrra,_eins og sést á meðfylgj- andi töflu. Útlit og horfur í rekstri Plastprents eru góðar og bendir allt til þess að áætlanir standist fylli- lega. Eftirspurn eftir þjónustu fyrir- tækisins hefur aukist til muna og er nú unnið á vöktum allan sólar- hringinn til að anna henni, að því er segir í frétt. Eysteinn Helgason, forstjóri Plastprents hf., sagði í samtali við Morgunblaðið að mikil gróska hafi verið í framleiðslu fyrir sjávarútveg og samkeppnisiðnað að undanförnu. Þannig hefði t.d. orðið mikil aukning á framleiðslu á umbúðum vegna fullvinnslu á sjávarafurðum. „Auk þess hefur útflutningurinn gengið betur en við höfðum gert ráð fyrir. Það eru framundan miklar annir í framleiðslu vegna útflutn- ings. Verkefnin í júlí og ágúst eru að stórum hluta litgreind prentun fyrir erlendan markað," sagði Ey- steinn. Gengi hlutabréfa hefur hækkað um 85% Fjárhagsstaða fyrirtækisins hefur styrkst til muna á síðustu misserum. Þannig var eiginfjárhlutfall 19% í lok júní 1995, um síðustu áramót var það 27%, en var komið í 35% í lok júní sl. Gengi hlutabréfa Plastprents var 3,25 10. apríl sl. þegar viðskipti með bréfin hófust á Opna tilboðsmarkaðn- um. Gengið hefur nú hækkað í 6,0 eða um tæplega 85% á þessu tíma- bili. Hluthafar eru nú 375 talsins. Til fyrirtœkja ojy rekstraraðila: | Hajýfkvœ t til n lát 25 áva 1 i • Vextir 6,75% til 8,25% • Hagkvæm endurfjármögnun styttri og óhagkvæmari lána • Lægri fjármagnskostnaður • Lægri greiðslubyrði áhvílandi lána • Auðveldari fjármögnun nýrra fjárfestinga • Betri veltufjárstaða Lán eru veitt gegn fasteignaveði á höfuðborgarsvæðinu. Veðsetningarhlutfall skal ekki fara yfir 55% af söluverði eignar. Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum i öllum útibúum Landsbanka íslands. 8 REYKJAVÍK, SÍMI 588 9200, 0 y LANDSBREF HF. —ht - ívtn Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands. ■ SUÐURLAIMDSBRAUT 24, 11 BREFASIMI 588 8598

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.