Morgunblaðið - 01.08.1996, Side 2
2 C FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1996
QRP ATLANTA ’96
MORGUNBLAÐIÐ
Vinnið gull
og veðsetjið
Þ AÐ er allt htegt í Ameriku
og þeir sem sigra á Ólympíu-
Ieikunum geta veðsett gullpen-
inginn á staðnum. Maður nokk-
ur sem vill að fólk veðsetji hjá
sér er með auglýsingu úti í
glugga hjá sér þar sem stendur
ritað: „Vantar þig reiðufé?
Veðsettu þá guUverðlaunin hjá
mér!“ Að sögn eigandans hefur
ekki verið mikið að gera hjá
þeim til þessa og enginn
íþróttamaður hefur komið til
að veðsetja verðlaunapening
sinn. „Það myndi líða yfir mig
ef einhver kæmi og þegar ég
rankaði við mér myndi ég
gruna manninn um græsku og
rannsaka peninginn gaumgæfi-
lega,“ sagði eigandinn.
Rúnar tryggði
Örgryte sigur
RÚNAR Kristinsson skoraði
sigurmark Örgryte í 2:1 sigri
liðsins á Umeá i sænsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu i gær.
Rúnar er um þessar mundir
markahæstur í deildinni með
sjö mörk ásamt Andreas
Andreasen hjá Gautaborg. Ör-
gryte situr nú í íjórða sæti
sænsku deildarinnar með 21
stig, sjö stigum á eftir Helsing-
borg og Gautaborg, sem gerðu
1:1 jafntefli.
2. DEILD
Þór í topp-
baráttunni
Knattspyrnan er kyndug íþrótt
og oft á tíðum óútreiknanleg.
Eigi alls fyrir löngu burstaði Fram
lið Þórs 8:0, nokkru síðar lá Fram
Hfyrir FH, 1:5. í
Stefán Þór gærkvöld tóku
Sæmundsson Þórsarar á móti FH
skrífarfrá og unnu 4:0. Þetta
Akureyri eru SVeiflur
og hleypa lífi í toppbaráttu 2. deild-
ar.
Eftir sigurinn í gær eru Þórsar-
ar komnir í þriðja sæti með 18
stig eins og Skallagrímur, einu
stigi á eftir Fram. Sigurinn var
sanngjarn, leikmenn Þórs léku á
köflum prýðilega knattspyrnu í
fyrri hálfleik og uppskáru þá þrjú
mörk. Þór fékk þrjú færi fyrsta
stundarfjórðunginn en hvörf urðu
í leikrium á 22. mínútu þegar Árni
Þór Ámason lék gegnum vörn FH
með Davíð Garðarsson sér við hlið.
Hann átti aðeins Daða markvörð
Lárusson eftir sem kastaði sér fyr-
ir hann. Ari Þórðarson dæmdi víta-
spyrnu og sýndi Daða rauða spjald-
ið. Birgir Þór Karlsson skoraði
örugglega úr vítinu, fram hjá
Andrési varamarkverði Andrés-
syni. FH-ingar léku því einum
færri til leiksloka.
Á 36. mín. vann Páll Gíslason
knöttinn á vinstri væng og sendi
umsvifalaust fyrir á Árna Þór sem
stakk sér fram og skoraði. Staðan
2:0 og á 45. mín. skoraði Árni Þór
aftur. Hann fékk boltann inn í víta-
teig eftir þunga sókn, sneri sér
snyrtilega við og skoraði. Skömmu
áður höfðu Árni Þór og Hreinn
fengið þokkaleg færi.
Þórsarar virtust sáttir við 3:0.
Kæruleysi gerði vart við sig en í
blálokin bættu Þórsarar við fjórða
markinu. Hreinn Hringsson fékk
sendingu frá Birgi Þór og gaf sér
nægan tíma til að snúa sér og
leggja boltann fyrir sig áður en
hann skoraði með þrumuskoti.
FH-ingar voru á hælunum í þessu
leik, sannarlega ekki þeirra dagur,
en Þórsarar áttu góða spretti.
Hemmings hlaut
gull á nýju meti
Jamæska stúlkan Deon Hemm-
ings varð þjóðhetja á tæpri mín-
útu í gærkvöldi er hún varð óvænt
ólympíumeistari í 400 metra grinda-
hlaupi á nýju ólympíumeti, 52,82
sekúndum.
Heimsmeistarinn Kim Batten
Bandaríkjunum varð önnur á 53,08
sek. og landa hennar, Tonja Bu-
ford-Bailey, þriðja á 53,22. Fjórða
varð landa Hemmings, Debbie
Parris, á 53,97, fimmta Heike
Meissner Þýskalandi á 54,03, Ros-
ey Edeh, Kanada, sjötta á 54,39,
Ionela Tirlea Rúmenaíu sjöunda á
54,40 og áttunda Silvia Rieger
Þýskalandi á 54,57 sek. Stúlkurnar
í 4.-7. sæti settu allar persónuleg
met.
Hemmings hljóp hratt af stað og
tók strax forystu. Buford-Baily
vann á hana og komu þær jafnar
út úr beygjunni er 100 metrar voru
eftir. Þá skaust Hemmings fram
úr og Batten bætti við sig og komst
fram úr löndu sinni.
Tími Hemmings í gærkvöldi er
fimmti besti tími sögunnar í grein-
inni. Batten á heimsmetið frá HM
í fyrra, 52,61 sekúndur, en þá varð
Buford-Bailey önnur, einum hundr-
aðasta úr sekúndu á eftir Batten.
Hemmings hefur tekið miklum
framförum, átti best 54,12 sekúnd-
ur fyrir leikana, frá árinu 1993, en
sigraði svo í öðru undanúrslita-
hlaupinu í Atlanta á mánudag á
52,99 sekúndum sem var ólympíu-
met þar til hún bætti það í gær-
kvöldi. Hún varð sjöunda á leikun-
um í Barcelona 1992 á 55,58 sek-
úndum.
Brasilíumenn úr leik
HEIMSMEISTARAR Brasilíu-
manna í knattspyrnu töpuðu
mjög óvænt fyrir Nígeríumönn-
um í undanúrslitum knatt-
spyrnukeppni Olympíuleikanna
í Atlanta í gær. Staðan var 3:3
að loknum níutíu mínútum en á
fjórðu mínútu framlengingar
tryggðu Afríkubúarnir sér sig-
urinn með laglegu marki. Níger-
íumenn mæta Argentínumönn-
um í úrslitaleik keppninnar á
laugardag.
VEBJ0RN Rodal frá Noregi
vann stórglæsilegan sigur í
800 metra hlaupi í Atlanta
í nótt á nýju ólympíu- og
Noregsmeti, 1.42,58 mín.
Gamla metið átti Brasilíu-
maðurinn Joaquim Cruz,
1.43,00. Annar varð Suður-
Afríkumaðurinn Hezekiel
Sepeng á 1:42,74, þriðji
David Kiptoo Kenýu á
1.42,79 og fjórði Kúbumað-
urinn Norberto Tellez á
1.42,85.
Deon Hemmings fagnar sigri í 400
metra grindahlaupl á nýju ólympíumeti.
Sigur Spánveija
á elleftu stundu
Mikil spenna ríkti í viðureign
Spánverja og Egypta í hand-
knattleikskeppni Ólympíuleikanna í
Atlanta í gær því fyrir leikinn höfðu
bæði þessi lið sex stig í B-riðli og
var þar af leiðandi um hreinan úr-
slitaleik um sæti í undanúrslitum
keppninnar að ræða.
Þegar einungis tvær mínútur
voru til leiksloka var staðan jöfn,
19:19, en glæsilegt mark frá hinum
geysiöfluga Talant Dujshebaev kom
Spánverjum yfir og þurftu því
Egyptar að nota síðustu sekúndurn-
ar vel og freista þess að jafna met-
in. Egyptum gekk hins vegar illa
að finna glufu á firnasterkri vörn
Spánveijanna og það voru því þeir
síðarnefndu sem stigu trylltan sig-
urdans að leik loknum, þeir munu
leika gegn Svíum um sæti í úrslita-
leik keppninnar en Egyptar sitja
eftir með sárt ennið.
Heimsmeistarar Frakka tryggðu
sér hins vegar efsta sætið í B-riðli
þrátt fyrir að hafa beðið lægri hlut
fyrir Þjóðveijum í gær, 23:24, í jöfn-
um og æsispennandi leik en komu
þau úrslit mörgum handknattleiks-
áhugamanninum vafalítið mjög á
óvart því Frakkarnir hafa hingað
til sigrað nokkuð örugglega í öllum
sínum viðureignum og leikið oft og
tíðum frábæran handknattleik.
Margir eru nú þegar farnir að
spá úrslitaleik milli Frakka og Svía
en Frakkar eiga þó eftir að mæta
Króötum í undanúrslitunum og er
nokkuð víst að sá leikur verður
Frökkunum ekki auðveldur.
Króatamir biðu að vísu í gær
lægri hlut fyrir Svíum, sem náð
hafa að sýna svo um munar í Atl-
anta hvers þeir
eru megnugir
þrátt fyrir allar
hrakspár um lé-
legt gengi, í
hreinum úrslita-
leik um efsta
sætið í A-riðli,
27:18, en Króat-
amir eru engu að
síður með mjög
gott lið, sem er án efa til alls líklegt
á leikunum.
Óvænt áfall Rússa
Mikla athygli hefur hins vegar
vakið í Atlanta að tækifæri Rússa,
sem fögnuðu sigri á Ólympíu-
leikunum í Barcelona fyrir fjórum
árum, þá undir merkjum Samveld-
isins, til þess að verja ólympíu-
meistaratitil sinn gekk þeim úr
greipum strax á mánudag. Þeir
biðu þá nauman ósigur fyrir Króöt-
um í hörkuspennandi leik þar sem
markvörður Króata gerði sér lítið
fyrir og varði vítakast frá Torga-
vanov hinum rússneska á lokasek-
úndum leiksins
með þeim afleið-
ingum að Króat-
arnir geystust
fram og skoruðu
sigurmarkið
þremur sekúnd-
um fyrir leikslok.
Rússar náðu
að vísu að leggja
Svisslendinga
nokkuð örugglega að velli í gær,
30:23, en sá sigur kom allt of seint
og verða Rússar því að bíta í það
súra epli að leika um fimmta sætið
gegn Egyptum.
I undanúrslitum keppninnar
munu því mætast annars vegar
Frakkar og Króatar og hins vegar
Svíar og Spánveijar en þó flestir
hallist að því að hin sterku lið
Frakka og Svía muni beijast um
ólympíugullið skyldi aldrei afskrifa
Króata og Spánveija því þeir geta
verið harðir í horn að taka og eru
örugglega ekki búnir að segja sitt
síðasta orð á Ólympíuleikunum í
Atlanta.
Óvæntur sigur Astrala
Silfurhafarnir í körfuknattleik frá því á Ólympíuleikunum í Barcel-
ona fyrir fjórum árum, Króatar, féllu mjög óvænt úr keppni á
leikunum í Atlanta á þriðjudag þegar þeir biðu ósigur fyrir Áströlum
71:73 Ástralir komu Króötum nokkuð á óvart með mikilli baráttu á
fyrstu mínútum leiksins og virtist sem Króatarnir væru örlítið slegnir
út af laginu við þessa miklu mótspyrnu Ástrala.
í undanúrslitum keppninnar munu Ástralir svo mæta hinu geysi-
öfluga bandaríska „Draumaliði“, sem lagði Brasilíumenn að velli í
8-liða úrslitunum á þriðjudag 98:75.
HANDKNATTLEIKUR
í undanúrslitum
mætast Frakkar og
Króatar, Svíar og
Spánverjar
foém
FOLK
■ LINFORD Christie komst ekki
í undanúrslit í 200 metra hlaupi
sem fram fer í dag. Christie varð
fjórði í sínum riðli í milliriðlum í
gærkvöldi og tími hans var það
slakur að hann náði ekki uppbótar-
sæti í undanúrslitum.
■ ÁKVEÐIÐ verður eftir æfingar
í dag hvort Butch Reynolds hlaupi
til úrslita í bandarísku sveitinni í
4x400 metra boðhlaupi á laugar-
dag. Hann varð að hætta vna
krampa í hömlungum í úrslitum 400
metra hlaupsins sl. sunnudag.
■ IRV Hunt þjálfari sagði að
gæti Reynolds beitt sér á fullu á
æfingu fengi hann að hlaupa, ann-
ars ekki. Auk hans eru allar líkur
á að sveití Ósló a, sem hleypur
úrslita, skipi þeir Michael John-
son, Lamont Smith og Alvin
Harrison.
■ IRSKA hlaupadrottningin Son-
ia O’Sullivan fer tómhent heim
frá Atlanta þar sem hún komst
ekki áfram í milliriðla í 1500 metra
hlaupi_ í gær.
■ BÚIST hafði verið við því að
O’Sullivan ynni jafnvel tvennu,
5km og 1500 metra en hún lauk
ekki fyrri greininni vegna maga-
kveisu og hefur líklega ekki verið
búin að jafna sig í gær. Varð hún
10. í sínum riðli á 4:19,77 en hljóp
á 3:59,91 í Ósló fyrir fjórum vikum.
■ ENN er aukinn þrýstingur á
að Carl Lewis fái að hlaupa til
úrslita í 4x100 metra boðhlaupi.
Ekki er Dennis Mitchell, sem varð
fjórði í 100 metra hlaupinu, hrifinn
af þeirri hugmynd. „Þá þyrfti ein-
hver okkar hinna að víkja. Sveitin
ætlar að klára dæmið eins og hún
er nú skipuð,“ sagði hann.
■ ANNAR liðsmaður sveitarinn-
ar, John Drummond, tók í sama
streng og sagði sveitina ekki þurfa
á Lewis að halda til að vinna gull-
verðlaun.
■ ÁSTRALSKI spretthlauparinn
Dean Capobianco sem féll á lyfja-
prófi en hefur ekki verið settur í
bann vegna lagaflækju, komst
áfram í aðra umferð eftir riðla-
keppnina í 200 metra hlaupi í
gærmorgun. Hann hljóp á 20,76
sek.
■ FJÖRTÍU kappar hófu keppni
í tugþraut í gær en eftir að kúlu-
varpinu var lokið höfðu fimm
þeirra helst úr lestinni. Ástæðan
var sú að þeir fengu annað hvort
ekki gilt stökk í langstökki eða
gilt kast í kúluvarpi.
■ DEZSO Szabo er einn þeirra
sem varð að bíta í það súra epli
að draga sig í hlé, en hann í 34.
sæti heimslistans frá upphafi,
8.436. Hann gerði ógilt í lang-
stökki. Annar þekktur kappi, An-
drei Nazarov frá Eistalndi hefur
pakkað saman og hætt keppni.
■ VASILIY Bubka bróðir heims-
meistarans í stangarstökki, Sergei
Bubka, varð að sætta sig við að
fara sömu leið og bróðirinn í
undankeppni stangarstökksins í
gær. Vasiliy fór ekki yfir byijunar-
hæð.
■ HIN knáa hlaupakona frá Mós-
ambík, Maria Mutola, hefur ekki
náð sér að kvefi sem háð hefur
henni að undanförnu því hún hætti
við þátttöku í 1500 metrunum í
gær. Fer hún því heim með ein
bronsverðlaun en stefndi að því að
vinna bæði 800 og 1500.
■ FAÐIR breska hlauparans
Curtis Robb varð af möguleika á
að vinna sér inn 100.000 pund,
10 milljónir, króna er sonurinn
ákvað að keppa í 800 metra hlaupi
í Atlanta í stað 1500. Fyrir sjö
árum veðjaði Alex Robb 200 pund-
um í hlutfallinu 500-1 á að piltur
ynni gull í Atlanta, í 1500 metra
hlaupi. Það gekk ekki eftir og féll
Robb úr 800 í undanúrslitum.