Morgunblaðið - 01.08.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
889 ATLAIMTA ’96
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1996 C 3
Frakkaraldrei sigursælli á Ólympíuleikunum, en lægð hjá Bretum
Opinber stuðningur
skiptir miklu máli
Heimsmethafinn
varð fjórði
BRETIIMIM Colin Jackson er heims-
methafi í 110 metra grindahlaupi
og sigraði í greininni á Ólympíu-
leikunum í Barceiona 1992 en
varð að sætta sig við fjórða sæt-
ið í Atlanta. Hann er hér í hlaup-
inu til hægri en fremstur er
bandaríski sigurvegarinn Allen
Johnson sem setti ólympíumet
og Emilio Valle frá Kúbu tii vinstri
sem varð í fimmta sæti.
MARGT argt bendir til þess að sigurganga Frakka verði
meiri á Ólympíuleikunum í Atlanta en nokkru sinni fyrr
í 100 árá sögu nútímaleikanna. Hins vegar mega Bretar
muna sinn fífil fegurri og er mikill munur á velgengni
íþróttamanna þessara þjóða. Að loknum 10 keppnisdög-
um höfðu Frakkar fagnað 13 gullverðlaunum og 31 sinni
stigið á pall en Bretar höfðu aðeins sigrað í einni grein
og samtals unnið til níu verðlauna.
Olympíuleikarnir fóru
fram í París 1900 og þá
fengu Frakkar 27 gullverð-
laun en keppnisþjóðir voru
aðeins 14 í samanburði við
197 í Atlanta. Met Frakka
frá því í París 1924 er í hættu
en þá sigruðu þeir í 13 grein-
um og unnu samtals til 38
verðlauna.
Árangur Frakka í Atlanta
hefur komið þeim sjálfum
mest á óvart. „Ég veit ekki
hvers vegna árangur okkar
hefur verið svona góður,“
sagði Patrick Cluzaud, for-
svarsmaður frönsku hjól-
reiðamannanna eftir að þeir
höfðu unnið til verðlauna í
sex af átta greinum og þar
af sigrað í fjórum greinum.
Mikil hjólreiðahefð er í
Frakklandi og Frakkar halda
árlega helstu hjólreiðakeppni
heims, Tour de France, en
engu að síður hafa þeir ekki
verið í sviðsljósinu á Ólymp-
íuleikum. Besti árangur til
þessa var fimm sigrar 1948
og 1968. „Áður höfðum við
aðeins þrjá keppendur í fjór-
um greinum en nú eru þeir
fimm,“ sagði Cluzaud og
lagði áherslu á að breiddin
hefði mikið að segja.
Metnaðurinn að standa sig
vel- hefur líka verið ríkjandi.
„Þegar ég sá alla hina vinna
til verðlauna sagði ég við
sjálfa mig að ég yrði að gera
það líka,“ sagði Nathalie
Even-Lancien eftir óvæntan
sigur.
Frakkar hafa einkum
skarað fram úr í hliðargrein-
um í Atlanta, sigrað í þremur
greinum í júdó og þrisvar
stigið á verðlaunapall í
skylmingum, en þetta eru
vinsælar íþróttir í Frakk-
landi. ,-í hverju frönsku þorpi
er kirkja, bar og júdófélag,"
sagði Jean-Luc Rouge, fyrr-
um heimsmeistari.
Auk fyrrnefndra ástæðna
fyrir velgengni hefur verið
bent á að umtalsverður ríkis-
styrkur frá 1945 hefur gert
Frökkum mögulegt að upp-
götva og fylgja ungum og
efnilegum íþróttamönnum
eftir. Guy Drut, íþróttamála-
ráðherra Frakklands, sem
sigraði í 110 metra grinda-
hlaupi á Ólympíuleikunum í
Montreal 1976, lagði áherslu
á fyrir leikana í Atlanta að
franski keppnishópurinn yrði
tilkynntur eins snemma og
mögulegt væri til að íþrótta-
fólkið gæti undirbúið sig sem
best. Hins vegar eru blikur á
lofti því vilji er innan ríkis-
stjórnarinnar til að breyta
styrkjakerfinu með það í
huga að lækka opinber út-
gjöld. Verði það að veruleika
óttast margir að Frakkar
hafi náð hápunkti á Ólympíu-
leikum og aðra sögu verði
að segja frá leikunum í Sydn-
ey 200.
Bretum hefur ekki gengið
eins illa á Ólympíuleikum og
nú í 40 ár. Ræðarinn Steven
Redgrave, sem sigraði í para-
keppni á þriðju Ólympíu-
leikunum í röð og hefur fagn-
að sigri á fernum leikum í-
röð, sagði ljóst að alménning-
ur vildi sigurvegara. „Ef
menn ætla á Ólympíuleika
verða þeir að æfa markvisst
í fjögur ár,“ sagði Matthew
Pinsent, gullfélagi hans, fyrir
leikana í Atlanta. „Það þýðir
ekki lengur að æfa í klukku-
stund á dag til að vera í hópi
þeirra bestu,“ bætti hann við
og sagði að félagarnir hefðu
byijað að hugsa um Atlanta
áður en kom að úrslitum í
Barcelona og æft um 24
stundir vikulega í 46 vikur á
ári undanfarin fjögur ár.
„Það verður að fjárfesta,"
sagði Roger Black, sem var
ánægður með að vera í öðru
sæti á eftir Michael John-
sons, „Superman", eins og
hann kallaði hann, í 400
metra hlaupinu í Atlanta.
„Ekki er hægt að fá eitthvað
fyrir ekki neitt,“ bætti hann
við og lagði áherslu á að
opinber stuðningur skipti
mjög miklu máli.
Dick Palmer, fram-
kvæmdastjóri bresku ólymp-
íunefndarinnar, tók í sama
streng. „Aðrar þjóðir einblína
á afreksmenn sína en það
gerum við ekki. Ef ríkis-
stjórnin útvegar ekki meira
fjármagn svo bestu þjálfar-
arnir geti undirbúið besta
íþróttafólkið drögumst við
enn frekar aftur úr.“ Síðan
beindi hann orðum síðan
beint til forsætisráðherrans:
„Ég hef skilaboð til John
Mayors en ég held að þessir
leikar hafi sagt honum þau.
Við þurfum peninga."
Palmer sagði að breska
íþróttahreyfingin fengi um
620 milljónir punda til að
fjármagna starfið en aðstoðin
væri tilviljunarkennd. Hann
sagði ennfremur að áætlun
ríkisstjórnarinnar, sem greint
var frá á liðnu ári, um að
efla íþróttir í skólum og koma
á íþróttaakademíu væri of
seint á ferðinni en fyrirhugað
er að láta 100 milljónir punda
af hagnaði vegna lottós og
annarra ríkishappdrætta
renna í akademíuna.
Virginia Bottomley, sem
fer með málefni breskrar
arfleifðar í ríkisstjórninni,
sagðist vera tilbúin að hlusta
á nýjar hugmyndir um fjár-
mögnun íþrótta en áréttaði
að ríkisstjórnin væri treg til
að taka beinan þátt í henni.
Iain Sproat, íþróttamála-
ráðherra, sagðist ekki vilja
fara eins að og aðrar þjóðir.
„Við vitum að sumar þjóðir
leggja mjög mikla áherslu á
íþróttir til að sanna að þær
séu betri en aðrar þjóðir. Við
viljum ekki fara þá leið og
margt má læra af því sem
við höfum séð í Georgíuríki
undanfarnar tvær vikur.“
Reuter
Tugþraut
AllantalW
Tugþrautin er ein erfiðasta grein sem keppt er í. Keppnin stendur í tvo daga og er keppt í fimm
greinum hvorn dag. Keppendur fá 30 mínútna hvíld milli greina og hér á kortinu má sjá hversu
mikiö álag er á þeim. Kortið er yfirfært á aðstæður sem fólk þekkir úr daglegu lífi.
► Fynni dagur^
•f
___
m
100 metra nlaup:
■ Sprettur meðfram
blokkinni á tæpumll
sekúndum.
► Síðari dagur
Langstökk:
■ Stokkið yfir þrjú
og hálft bílastæði
Kúiuvarp:
■ Rúmlega 7 kg
rafgeymi kastað yfir
sjö bíla sem lagt er
hlið við hlið.
Hástökk:
■ Stokkið yfir
meðalháa hurð með
tilhlaupi.
400 metra hlaup:
■ Hlaupið hringinn
í kring um blokkina
á tæpum 50 sek.
X%..
110-metra grind:
■ Hlaupið meðfram
blokkinni á tæpum 14
sek og hoppað yfir ■
10 ruslatunnurá
leiðinni.
Kringlukast:
■ Hér þarf að
þeyta tveggja
kílógramma diski
um 45 metra.
r Utfærsla
■ Stig eru reiknuð útfrá
tíma og vegalengd.
Mikilvægt er að ná sem
bestum árangri í sem
flestum greinum til að fá
sem flest stig.
■ Keppendur reyna
að fá sem flest stig,
sérstaklega taka þeir
á í bestu greinum
sínum en í hinum
gera þeir sitt besta.
■ Til að sigra
samanlagt er ekki
nauðsynlegt að vinna
flestar greinar.
KRT
Stangarstökk:
■ Stokkið innum
glugga á annari
hæð með hjálp
stangar.
Tugþraut / sergrein
Spjótkast: 1,500 metra hlaup:
■ Nú þarf að þeyta ■ Hlaupið rúma fjóra
um tveggja metra hringi um blokkina á
löngu spjóti um 60 4 mín og 30 sek.
metra.
Tugþrautarmenn eru góðir í flestum greinum en fáir
tugþrautarkappar komast nærri heimsmeti í
viðkomandi grein. Hér má bera árangur
ólympíumeistarans frá því í Barcelona árið 1992,
Roberts Zmelik frá Tékkóslóvakíu, saman við
ólympíumet í viðkomandi grein. Zmelik fékk 8,847
stig í Barcelona en Jón Arnar Magnússon á best
8.247 stig. sem hefði dugað í 4. sætið í Barcelona.
Zmelik Sérgreinar
100 metrar 10,78 sek 9,84 sek
Langstökk 7,87 m 8,90 m
Kúluvarp 14,53 m 22,47 m
Hástökk 2,06 m 2,39 m
400 metrar 48,65 sek 43,49 sek
110 m grind 13,95 sek 12,95 sek
Kringlukast 45,00 m 68,82 m
Stangarstökk 5,10 m 5,90 m
Spjótkast 59,06 m 85,66 m
1,500 metrar 4.27,21 sek 3.32,53 sek.
i Sjöþraut
Konur keppa í sjöþraut og
stendur keppnin í tvo
daga. Fyrri daginn er
keppt í fjórum greinum en
seinni daginn í þremur.
k Fynri dagur
1.100 metra grind
2. Hástökk
3. Kúluvarp
4. 200 metra hlaup
► Síðari dagur
5. Langstökk
6. Spjótkast
7.800 metra hlaup