Morgunblaðið - 01.08.1996, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
999 ATLANTA ’96
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1996 C 5
£
CARL Lewis fagnar eftir að hafa tekið á móti sínum níunda gullpeningi.
í kistuna. Móðir hans, Evelyn, dró
hann afsíðis nokkrum andartökum
síðar eftir að hún hafði jafnað sig
og spurði hvort hann væri alveg
viss um að þetta væri það sem
hann vildi. „Hafðu ekki áhyggjur,
mamma. Ég á eftir að vinna ann-
an.“ Enda sagðist Lewis hafa lofað
föður sínum, skömmu áður en hann
lést, að vinna annað gull í þessari
grein. Hann hafði lög að mæla og
hefur reyndar unnið fleiri en einn
og fleiri en tvo síðan. Alls fímm
gull hafa bæst í safnið.'Eftir 100
m hlaupið á heimsmeistaramótinu
í Róm 1987 gerði Lewis sér reynd-
ar grein fyrir að erfitt gæti orðið
að standa við loforðið. Ben Johnson
frá Kanada stakk hann þá af og
setti heimsmet og það sama gerð-
ist í Seoul í Kóreu árið eftir. Lew-
is kom annar í mark, Kanadamað-
urinn setti heimsmet og Lewis
bandarískt met en Johnson féll á
lyfjaprófi eins og frægt varð og
Lewis hreppti eftirsóttasta verð-
launapeninginn. „Þegar ég hljóp
yfir endalínuna sagði ég: Fyrir-
gefðu pabbi,“ rifjaði Lewis upp
síðar en hann þurfti ekki að
skammast sín þegar upp var staðið.
Feman 1984
Lewis var 22 ára er leikarnir
fóru fram 1984 í Los Angeles sem
fyrr segir. Stefnan var sett á fern
gullverðlaun; að endurtaka ótrú-
legt afrek Jesse Owens frá því í
Berlín 1936. Lewis keppti í sömu
greinum og byijaði á því að vinna
gull í 100 metra hlaupinu. Síðan
kom hann fyrstur í mark í riðlinum
í fyrstu tveimur umferðum 200
metra hlaupsins. Hann gerði allt
svo auðveldlega, að því er virtist,
að sérfræðingar fóru að spá því
að hann myndi bæta hið ótrúlega
heimsmet Bobs Beamons í lang-
stökkinu frá því á ÓL í Mexíkó
(8,90 m). Hann stökk 8,54 m í
fyrstu tilraun, gerði ógilt í næstu
og sleppti síðustu fjórum. Var 30
sentímetrum á undan næsta
manni og vildi spara kraftinn fyr-
ir úrslitahlaupið í 200 metrunum
og boðhlaupið. Áhorfendur voru
ekki ánægðir og bauluðu á Lewis
fyrir að stökkva ekki meira, en
hann varð að hugsa um heildina.
í ljós kom að það hafði borgað
sig að eyða ekki of miklu púðri í
langstökkið. Lewis setti ólympíu-
met í 200 metra hlaupinu (19,80)
og geystist síðan síðasta sprettinn
í 4x100 metra boðhlaupinu.
Bandaríska sveitin hljóp á 37,83
sek. sem var eina heimsmetið í
fijálsíþróttakeppni leikanna.
Um leið og Lewis kom í mark
í boðhlaupinu þyrptust samheijar
hans í sveitinni (Sam Graddy, Ron
Brown og Calin Smith) að honum
ásamt ýmsum úr mótheijaliðunum,
hófu gullkálfinn á loft og gengu
með hann heiðurshring. Honum
hafði tekist það ótrúlega; þrátt
fyrir ungan aldur og gífurlegan
utanaðkomandi þrýsting hélt hann
sínu striki.
Goðsögn
Lewis hafði ekki gengið sérstak-
lega vel í ár fyrir Olympíuleikana.
Var þriðji og síðastur til að tryggja
sér sæti í langstökkslandsliðinu á
úrtökumótinu sem fyrr segir og
mistókst þar að komast í liðið í
100 og 200 metra hlaupi. En enn
einu sinni stóðst hann álagið þegar
á hólminn var komið og sigraði.
Þessi maður er snillingur. Goðsögn
í lifanda lífi.
Hríisarnýi
eyðimerkur-
prinsinn
kórónu
Morceli?
SILFURMAÐURINN í 1500
metrunum frá HM í Gautaborg
ífyrra, Marokkómaðurinn Hic-
ham el-Guerroudj, hefur vaxið
mjög sem hlaupari í sumar og
á raunhæfa möguleika á að
stöðva sigurgöngu Noureddine
Morceli frá Alsír er þeir mæt-
ast í 1500 metra hlaupinu í
Atlanta.
Morceli, heimsmethafi og tvö-
faldur heimsmeistari á
vegalengdinni, mistókst herfilega
í Barcelona. Brást hann í taktískri
keppni og spurning er hvort hann
hafi ekki slævt keppnisfærni sína
enn frekar á þessu ári með því að
forðast skæðustu mótheijana, el-
Guerroudj og Venuste Niyongabo
frá Búrúndí, eins og heitan eld.
Hefur hann valið sér slakari mót-
heija og í stað þess að keppa um
sigur hefur hann í staðinn kosið
að hlaupa alltaf eins, á jöfnum
hraða á eftir sömu hérunum mót
eftir mót.
El-Guerroudj er aðeins 21 árs
og þreytti frumraun á vettvangi
þeirra
fremstu í
fyrra. Honum
hefur farið
mjög fram í
ár og sýndi
með stór-
hlaupi á
Grand Prix-
móptinu í
Stokkhólmi í
síðasta mán-
uði, þar sem
hann sigraði á
3:29,59 mín.,
að hann er
þess megnug-
ur að vinna
Noureddine
Morceli.
Tíminn er sá
þriðji besti frá
upphafi, að-
eins Morceli
(3:27,37) og
Said Aouita
(3:29,46),
goðsögn frá
Marokkó,
hafa gert bet-
ur.
El-Guerro-
udj varð
heimsmeist-
ari innanhúss
í Barcelona í
fyrra og silf-
urmaður á
HM í Gauta-
borg, en þá
beið hann
lægri hlut
fyrir Morceli.
Hann hefur
verið nefndur
nýi eyðimerk-
urprinsinn en
spurningin er
hvort hann
hrifsar kon-
ungstign af
Morceli í Atl-
1500 M HLAUP KARLA
El-Guerroudj hefur
að bera allt sem
þarf að prýða úrvals-
hlaupara, gott
úthald, hraða,
vöðvastyrk og
sprengihröðun
anta. Hann þykir hafa til að bera
allt sem þarf að prýða úrvals-
hlaupara, gott úthald, hraða,
vöðvastyrk og sprengihröðun,
sambland af eiginleikum sem fáir
kapphlauparar búa yfir. Hvert
stórhlaupið af öðru á stigamótum
sumarsins sýna að keppnisfærni
hans er mikil.
■ Ólympíumetið, 3:32,53, Sebast-
ian Coe, sett í Los Angeles 1984.
NOUREDDINE Morceli frá Alsír, heimsmethafi
og tvöfaldur heimsmeistari, mlstókst herfllega
í Barcelona - brást hann i taktískri keppni í
1500 m hlaupi.
1-