Morgunblaðið - 02.08.1996, Page 1
64 SÍÐUR B/C
174. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Starfið fyrst og fremst
þjónusta við þjóðina
Morgunblaðið/RAX
ÓLAFUR Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir á svölum Alþingishússins.
Ölafur Ragnar Grímsson tók í
gær við embætti forseta íslands
ÓLAFUR Ragnar Grímsson tók í
gær við embætti forseta íslands
þegar hann vann drengskaparheit
að stjórnarskránni og tók við kjör-
bréfi. Embættistakan hófst með
helgistund í Dómkirkjunni og var
síðan framhaldið með athöfn í Al-
þingishúsinu. Mikill fjöldi fólks
fylgdist með athöfninni, milli fimm
og sex þúsund manns, að áliti lög-
reglu.
Lúðrasveit Reykjavíkur lék ætt-
jarðarlög á Austurvelli frá kl. 15
og lögreglumenn stóðu heiðursvörð
við Alþingishúsið, þaðan sem til-
vonandi og fráfarandi forsetar
gengu til Dómkirkju ásamt biskupi
og æðstu embættismönnum kl.
15.30.
Biskupinn stýrði helgistund
Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, stýrði helgistund í Dóm-
kirkjunni og prédikaði. Séra Hjalti
Guðmundsson og séra Jakob Ágúst
Hjálmarsson þjónuðu fyrir altari.
Dómkórinn söng, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir söng einsöng og Marteinn
H. Friðriksson lék á orgel.
Athöfnin í Alþingishúsinu hófst
með einsöng Kristins Sigmunds-
sonar við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar. Haraldur Henrýs-
son, forseti Hæstaréttar, lýsti for-
setakjöri og afhenti kjörbréf. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson vann dreng-
skaparheit að stjómarskránni og
gekk að því loknu ásamt eiginkonu
sinni, frú Guðrúnu Katrínu Þor-
bergsdóttur, út á svalir Alþingis-
hússins og minntist fósturjarðar-
innar.
Herra Ólafur Ragnar Grímsson
ávarpaði að því loknu gesti í Al-
þingishúsinu. í ræðu sinni sagðist
hann m.a. vonast til að ekki yrði
sundur slitið það samband sem tek-
ist hefði milli þeirra hjóna og al-
þýðu manna til sjávar og sveita í
ferðum þeirra um landið í aðdrag-
anda forsetakjörsins. Hann minnt-
ist genginna forseta lýðveldisins
og þakkaði fráfarandi forseta, Vig-
dísi Finnbogadóttur, störf hennar
fyrir hönd þjóðarinnar og óskaði
henni heilla.
Dómgreind og lífsreynsla
vísa forseta rétta leið
í lok ræðu sinnar sagði hinn nýi
forseti: „Með einlægri virðingu fyr-
ir ákvæðum hennar [stjórnarskrár-
innar] tekst ég á hendur það trún-
aðarstarf sem framar öðrum er
tákn um sjálfstæði íslendinga. En
ekki verður allt skráð í lögbækur.
Að rækja starf forseta íslands er
fyrst og fremst þjónusta við þjóð-
ina. Einungis dómgreind, lífs-
reynsla og lifandi tengsl við fólkið
í landinu geta vísað forseta rétta
leið í starfi. Við þessi kaflaskipti í
mínu lífi minnist ég allra þeirra sem
mig hafa mótað, einkum móður
minnar og föður, ömmu minnar og
afa fyrir vestan sem veittu mér í
æsku það veganesti sem ég tel
mest um vert.
Ég bið ykkur öll að minnast áa
okkar og ættjarðar.
Megi blessun Guðs og gjöful
náttúra færa íslendingum gæfu um
alla framtíð."
Að loknu ávarpi forseta sungu
viðstaddir þjóðsöng Islendinga und-
ir forsöng Dómkórsins og síðan
tóku forsetahjónin við árnaðarósk-
um viðstaddra í kringlu Alþing-
ishússins.
Forsetahjónin fóru að embættis-
tökunni lokinni ásamt dætrum sín-
um til Bessastaða þar sem efnt var
til móttöku fyrir starfsmenn for-
setaembættisins og forsvarsmenn
í Bessastaðahreppi.
■ Mannfjöldi hyllti/6
■ Mikilvægasta skyldan/10
■ Framtíðarsýn/22
■ Nýr forseti/22-23
Dómstóll á ítalíu vísar stríðsglæpamáli Erichs Priebke frá
Mótmæli í dómhúsinu
Róm. Reuter, The Daily Telegraph.
HERRÉTTUR á Ítalíu úrskurðaði í
gær að ekki væri hægt að dæma
Erich Priebke, fyrrverandi SS-for-
ingja, fyrir stríðsglæpi þar sem
málið væri fyrnt. Stjórnmálamenn
og gyðingar á Ítalíu fordæmdu úr-
skurðinn og til átaka kom í gær-
kvöldi þegar tugir reiðra ungmenna
reyndu að ryðjast inn í réttarsalinn.
Dómstóllinn komst að þeirri nið-
urstöðu eftir þriggja mánaða réttar-
höld að Priebke hefði tekið þátt í
drápum á 335 ítölskum drengjum
og karlmönnum, þeirra á meðal 75
gyðingum, árið 1944. Ekki væri þó
hægt að dæma hann þar sem rúm
50 ár væru liðin frá því glæpurinn
var framinn.
Framseldur til Þýskalands?
Ættingjar fórnarlambanna
brugðust ókvæða við og viðstaddir
hrópuðu „fasisti" og „morðingi"
þegar dómarinn kvað upp úrskurð-
inn. Reið ungmenni sátu um réttar-
salinn og reyndu að ryðjast inn en
lögreglunni tókst að hafa hemil á
þeim.
Priebke, sem er 83 ára, brosti
þegar niðurstaðan var kunngerð og
verjandi hans sagði úrskurðinn
„sigur fyrir ítalska réttarkerfið“.
Dómarinn fyrirskipaði að Priebke
yrði sleppt úr herfangelsi í Róm þar
sem hann hefur verið í haldi frá
því hann var framseldur frá Argent-
ínu í nóvember eftir að hafa búið
þar í 40 ár.
Simon Wiesenthal-stofnunin í
Los Angeles, sem fann Priebke í
Argentínu, krafðist þess að hann
yrði framseldur til Þýskalands, þar
sem hann er eftirlýstur fyrir stríðs-
glæpi. Dómsmálaráðherra Ítalíu
sagði að stefnt væri að því að hand-
taka Priebke að nýju. Stjórnvöld í
Argentínu sögðu að honum yrði
ekki heimilað að snúa þangað aftur.
ERICH Priebke, fyrrverandi
nasistaforingi, í réttarsalnum.