Morgunblaðið - 02.08.1996, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 02.08.1996, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIMAR Breytingar á leiðakerfi S VR: Breiðholt ÞANN 15. ágúst nk. taka gildi breytingar á leiðakerfi SVR. í fyrstu grein til kynn- ingar á breytingunum var fjallað um almenn- ar áherslubreytingar og breytingar í Graf- arvogi og Árbæ. í þessari grein verður fjallað um þær breyt- ingar sem verða gerð- ar í Breiðholtshverf- um. I borgarhlutanum búa nú u.þ.b. 23 þús. manns og ef frá er talið Árbæjarhverfi, er hlutfallsleg notkun á þjónustu SVR mest í Breiðholti. Kannanir benda til þess að 15-20% íbúa noti strætisvagn til að komast til og frá vinnu eða skóla. Skiptistöðin í Mjódd Skiptistöðin í Mjódd verður ein stærsta skiptistöðin eftir breyting- arnar. Allar leiðir, sem þjóna hverf- unum, hafa viðkomu á skiptistöð- inni. Ef tekið er dæmi um einstakling sem þarf að komast á Lækjartorg úr Seljahverfi, þá hefur hann nokkra möguleika til að komast á áfangastað. Hann gæti tekið leið 111, sem fer beina leiða á Lælqar- torg og er 25 mín. á leiðinni frá endastöð við Skógarsel. Hann gæti einnig tekið leið 11 sem fer frá Skógarseli 5 mín. fyrr og skipt þá yfir í leið 112 í Mjódd. Þrátt fyrir þessa skiptingu verður hann innan við 20 mín. á leiðinni, enda í raun aðeins um það að ræða að ganga á milli vagna. Hér er gott dæmi um það þegar ferð með skipt- ingu er hagstæðari kostur en „beina“ ferðin ef tekið er tillit til ferðatíma. Ástæðan er fyrst og fremst hringakstur í hverfinu og skiptir þá máli hvar í hringnum vagninn er tekinn (sjá kort í símaskrá). Við- komandi gæti einnig valið það að sitja í leið 11 alla leið að Hlemm- torgi og tekið þaðan t.d. leið 2 og er þannig 27 mín. á leiðinni. Með þessu skipulagi er hægt að bjóða upp á aukna tíðni á fjárhags- lega hagkvæman hátt. íbúar í öðrum hverfum Breiðholts hafa samskonar mögu- leika á ferðum. Þetta dæmi sýnir þann mikla sveigjanleika sem breytt leiðakerfi býður upp á. Skiptistöðinni er einnig ætlað að tryggja innri tengsl í hverfum. Frá skiptistöðinni má fara í öll hverfi Breiðholts og því oftast fljót- legast og einfaldast að fara að skiptistöð og skipta í leið sem fer í það hverfi sem viðkomandi óskar eftir að fara í. Tengsl við Árbæ og Grafarvog stórbatna einnig. Þær leiðir sem þjóna Breiðholti eru leiðir 3, 4, 6, 8,11, 12, 111 og 112. Leið 3 Leiðin heldur áfram að þjóna Seltjamarnesi en fer Hringbraut - Suðurgötu í stað Hringbraut - Túngötu að Lækjartorgi. Með þessari breytingu batnar þjónustan við Háskóla íslands verulega og verða nú íbúar á Seltjarnarnesi, í vesturbæ og í Bústaðahverfi komn- ir með bein tengsl við Háskóla ís- lands. Leiðin mun hætta akstri niður að Borgarspítala og hefur Þórhallur Örn Guðlaugsson viðkomustað í báðum leiðum á Bústaðavegi við spítalann. Þessi breyting er forsenda fyrir því að leiðin geti þjónað Bakkahverfi en leið 3 verður hverfisbíll í því hverfi. Þetta þýðir verulega bætta þjón- ustu fyrir marga. íbúar í vesturbæ og á Seltjarnarnesi fá bætta þjón- ustu vegna tengsla við Háskóla íslands. íbúar í Bústaðahverfi fá bætta þjónustu vegna greiðfærari leiðar og tengsla við Háskóla ís- lands. íbúar í Seljahverfi fá betri þjónustu þar sem leið 11, sem er í Breiðholti, segir Þór- •• hallur Orn Guðlaugs- son, verða í allt 24 vagnar á klukkutímann þegar mest er. hverfisbíll í Seljahverfi, hættir að þjóna Bakkahverfi en í núverandi Íeiðakerfi þurfa íbúar í Seljahverfi að taka á sig krók í Bakkahverfi hvort sem um er að ræða ferð úr hverfi eða í hverfi. Ekið verður í Mjódd kvöld og helgar en í núver- andi kerfi er það ekki gert. Ekur með 20 mín. tíðni á dagtíma og á 30 mín. tíðni kvöld og helgar. Leið 4 Ekki er um breytingar á akst- ursleið að ræða. Ekur í Mjódd kvöld og helgar en í núverandi leiðakerfi er það ekki gert. Ekið með 20 mín. tíðni á dagtíma og 30 mín. tíðni kvöld og helgar. Leið 6 Leið 6 mun sinna hlutverki leiðar 1 í Vesturbæ en leið 1 mun leggj- ast niður í núverandi mynd. Fer um Lönguhlíð - Hamrahlíð - Lista- braut og tengir saman skólana sem þar eru. Fer Bústaðaveg og verður með endastöð í Mjódd. Með þessari breytingu er komið á beinum tengslum milli Mjóddar, Kringlu, Verslunarskóla og Hamrahliðar- skóla en þessi tengsl eru ekki fyrir hendi í núverandi leiðakerfí. Ekur með 20 mín. tíðni á dagtíma og á 30 mín. tíðni kvöld og helgar. Leið 8 Leið 8 er ætlað að skapa tengsl milli Grafarvogs, Árbæjar og Breið- holts og tekur við hlutverki núver- andi leiðar 16. Um verulegar breyt- ingar er að ræða. Gert er ráð fyrir að leiðin aki með 20 mín. tíðni en í núverandi leiðakerfi er leið 16 á 60 mín. tíðni. Leið 8 gegnir í raun margvíslegu hlutverki. í fyrsta lagi sem hverfabíll í Grafarvogi þar sem lögð er áhersla á að styrkja innri tengsl milli hverfa. í öðru lagi er leið 8 ætlað að vera tengibíll milli skiptistöðva í Mjódd og við Ártún. í þriðja lagi er leiðin hverfabíll í Breiðholti þar sem lögð er áhersla á að skapa tengsl við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. Einnig er akst- ursleið mun einfaldari en nú er, en mörgum hefur þótt núverandi leið 16 flókin. Hér er því um verulega bætta þjónustu að ræða. Leið 11 Leið 11 hættir akstri um Bakka- hverfi þar sem leið 3 mun sinna því hlutverki. Við þessar breyting- ar bætir leiðin hlutverk sitt sem hverfisbíll í Seljahverfi sem bætir þjónustuna. Ekur á 20 mín. tíðni á dagtíma og 30 mín tíðni kl. 11-17 laugardaga. Ekur ekki kvöld og helgar þar fyrir utan. Leið 12 Leið 12 fer Suðurhóla - Norður- hóla - Vesturhóla en við þá breyt- ingu batnar þjónustan við norður- hluta Efra-Breiðholts verulega. Jafnframt er lögð áhersla á að leið- in verði fyrst og fremst hverfabíll í Efra Breiðholti og því hættir leið- in akstri um Seljabraut. Leiðin gegnir betur hlutverki sínu sem hverfabíll og því um bætta þjón- ustu að ræða. Ekur á 20 mín. tíðni á dagtíma og 30 mín tíðni kvöld og helgar. Leið 111 Akstursleið nánast sú sama en þó er gert ráð fyrir að vagnar hætti að fara að Breiðholtskjöri en fari þess í stað Stekkjarbakka. Til að gefa kost á hraðleið í sunn- anverðu Bakkahverfi verður farið niður Arnarbakka í stað Miðskóga á leið að miðborg. Tíðni breytist verulega frá því sem nú er, en vagnar aka með 20 mín. tíðni á dagtíma og 30 mín. tíðni kvöld og helgar. Fyrir íbúa í Seljahverfi batnar því þjónustan verulega frá því sem nú er og jafnframt verða hraðleiðir á 20 mín. fresti frá Mjódd og því komin góð tenging fyrir íbúa í öðrum hverfum Breið- holts. Örari og jafnari tíðni hrað- leiða um Miklubraut bæta verulega tengslin milli Breiðholts og versl- unarkjarna í Kringlu og við Lækj- artorg. Leið 112 Akstursleið verður sú sama. Tíðni breytist verulega frá því sem nú er, en gert er ráð fyrir að vagn- ar aki á 20 mín. tíðni á annatíma og á 60 mín. tíðni utan hans. Ekki er gert ráð fyrir akstri kvöld og helgar. Á flestum leiðum breytast tíma- setningar eitthvað. íbúar í Breið- holti eru því hvattir til að kynna sér vel breytingarnar í símaskránni eða hafa samband í þjónustu- og upplýsingasíma SVR, 551- 2700. Ný leiðabók verður fáanleg í byijun ágústmánaðar. í Breiðholti verða í allt 24 vagn- ar á klukkutíma þegar mest er en í núverandi leiðakerfi eru þeir 18. Af þessu má sjá að verið er að bæta þjónustuna umtalsvert og gefa íbúum í Breiðholti mun fleiri möguleika á að sinna ferðaþörfum sínum en gert er með núverandi kerfi. Um leið og við hjá SVR ósk- um íbúum í Breiðholti til hamingju með þá bættu þjónustu sem breyt- ingarnar hafa í för með sér, viljum við hvetja íbúa til að nýta sér þessa íjárhagslega hagkvæmu og lipru þjónustu. Höfundur er forstöðumaður markaðs- og þróunarsviðs SVR. Reimleikar á fjöllum Ágreiningur og togstreita ríkir um yfir- ráð sveitarfélaga á öræfum landsins EINS og við mátti búast vakti sá úr- skurður umhverfisráð- herra frá 2. júlí s.l., að Svínavatnshreppur í Austur-Húnavatns- sýslu skyldi hafa stjómsýsluvöld á Hveravöllum, umtals- verða athygli og um- ræðu manna á meðal. Pjölmargir eru þeir, sem eiga örðugt með að skilja úrskurðinn eða þær stuttorðu rök- semdir, sem hann byggist á. Er úrskurð- urinn m.a. torskiljan- legur af þeirri ástæðu, að þegar þáverandi umhverfísráðherra stað- festi aðalskipulag Hveravallasvæð- isins síðla árs 1993 - þ.e. það sama skipulag og Ferðafélag íslands kærði síðan til Umhverfisráðuneyt- is í vetur sem leið - var sérstaklega tekið fram á staðfestingarskjali ráðherrans, að staðfestingin næði ekki til marka hreppsins inn til hálendisins. Samkvæmt orðanna hljóðan gaf því staðfestingin ekki ástæðu til annars skilnings en þess, að hún tæki ekki til Hveravalla, sem hlutu a.m.k. að liggja nærri þeim mörkum - jafnvel skv. ýtmstu kröfum Svínvetninga sjálfra. Annað vekur einnig sérstaka athygli og réttlætir umfjöllun í fjöl- miðlum: Þessi úrskurður ráðuneyt- isins nú er í fullkomnu ósamræmi við fyrri álitsgerð þess sama ráðuneytis, sem þáverandi umhverfis- ráðherra lagði fyrir sjálft Alþingi fyrir mjög fáum árum. Að þessari staðreynd er að sjálfsögðu ekki vik- ið í rökstuðningi fyrir úrskurðinum - enda er sá rökstuðningur fremur fátæklegur - heldur er tekin af- staða, sem vægast sagt er umdeilanleg í ljósi hinnar fyrri yfir- lýsingar og greinar- gerðar ráðuneytisins, sem á sínum tíma þótti þó nægi- lega vönduð til að hana mætti kynna löggjafarsamkundu þjóðar- innar með formlegum hætti. Hér skal vísað orðrétt til kafla úr skýrslu umhverfisráðherra „um undirbúning að löggjöf um stjóm- sýslu á miðhálendi Islands að því er tekur til skipulags- og bygging- armála", er lögð var fyrir Alþingi íslendinga á 113. löggjafarþingi 1990-1991, en formaður þeirrar nefndar, er skýrsluna samdi á veg- um umhverfisráðuneytis, var Páll Líndal, ráðuneytisstjóri þess ráðu- neytis, sem nú er látinn. Hygg ég að á engan sé hallað þótt fullyrt sé, að fáir sem engir hafi staðið honum á sporði um kunnáttu í og reynslu af íslenskri umhverfislög- gjöf, sem og annarri stjórnsýslu- Páll Sigurðsson Margt er á huldu um landfræðileg mörk sveitarfélaga, segir Páll Sigurðsson í þessari annarri grein af fjórum, einkum þegar fjær dregur byggð. löggjöf, en hann var jafnframt nafnkunnur umhverfisvemdar- maður. í skýrslunni segir m.a. (á bls. 3-4): „í 1. mgr. 1. gr. sveitarstjórnar- laga, nr. 8/1986, segir að „byggð- in í landinu skiptist í staðbundin sveitarfélög“. Og í 1. mgr. 3. gr. segir að hvert sveitarfélag hafí „ákveðin staðarmörk“. Gert er ráð fyrir í 3. mgr. að ef íbúar í til- teknu sveitarfélagi eiga upprekstr- arrétt í tiltekinn afrétt, sem „ekki hefur verið skipað innan staðar- marka neins sveitarféiags, skuli hann þá teljast innan þess sveitar- félags o.s.frv.". Meðan ekki hefur verið gengið formlega frá slíkum málum, virðist rétt að miða við mörk byggðar eins og áður hefur verið bent á og þá eðlilega að jafn- aði við mörk heimalanda, nema sérstök rök komi gegn. Menn virð- ast nokkuð sammála um, að ör- æfa- og jöklasvæði svo og almenn- ingar séu utan sveitarfélaga. Sama virðist eiga almennt við um af- rétti . . .“ Þessi skynsamlega ályktun ráðu- neytisstjórans, sem er byggð á lær- dómi og langri reynslu, er í sam- ræmi við álit fjölmargra þeirra manna, sem mest hafa hugleitt málefni miðhálendisins. Ummæli skýrslunnar um, að óbyggðir og afréttir séu almennt utan sveitarfé- laga, eiga í fyllsta mæli við um Hveravallasvæðið, en þaðan munu vera um 70 kílómetrar til byggða norðanlands. Niðurstaða í dómi Hæstaréttar frá 28. september 1995 í máli nr. 296/1994: Fljóts- hlíðarhreppur gegn Vestur-Eyja- fjallahreppi, styður og mjög þetta álit ráðuneytisstjórans, en í dómi þessum var staðfest að Þórsmörk væri utan sveitarfélaga - og er hún þó miklum mun nær byggð en Hveravellir. Þessa skyldu menn m.a. minn- ast, þegar lesinn er hinn nýlegi úrskurður ráðuneytisins, sem ber með sér þá miklu stefnubreytingu, sem raun ber vitni um. Má sannar- lega færa fyrir því margvísleg rök, að óheppilegt sé fyrir stjómsýslu- framkvæmd ráðuneytanna - sem verður að byggjast á festu og sam- ræmi - að hvarflað sé snögglega frá fyrri stefnuyfírlýsingum, eink- um sé það gert án fullnægjandi röksemda. Sannleikurinn er sá, að margt er enn á huldu um landfræðileg mörk sveitarfélaga, einkum þegar fjær dregur byggð og við taka víð- áttur hálendisins. Þetta hafa t.d. landmælinga- og kortagerðarmenn vitað um langan aldur. Þetta hefur oft valdið togstreitu og úlfúð manna á milli, stundum með sorg- legum afleiðingum. Úrskurður umhverfisráðherra frá 2. júlí s.l. vekur að þessu leyti ffeiri spurning- ar en hann svarar. Fyrr á tíð kvörtuðu ferðamenn, sem lögðu leið sína um miðhálend- ið, oft um aðsókn og reimleika þar, m.a. í áningarstöðum og sæluhúsum. Má vænta þess, að sá óhugnaður, sem þessu gat fylgt, hafi dregið ferðahug og ferðadug úr ýmsum en á hinn bóginn aukið á þá dulúð öræf- anna, sem lengi eimdi eftir af. í hugarheimi margra manna, allt frá fyrstu tíð byggðar í landinu og fram til síðari tíma, lifðu í óbyggðum forynjur og tröll. Aft- urgöngur glímdu þar við menn, Skotta glennti sig í ljósaskiptum og skuggabaldur ýldi í gjótu. Kveldriður og myrkriður gægðust um skjái sæluhúsanna en nykur gneggjaði við heiðarvatn. Enn er ekki laust við reimleika á fjöllum þrátt fyrir alla „upplýsinguna". Enn reika andar fortíðarinnar um hraun og sanda, andar sem frá öndverðu voru nærðir af hrepparíg og nágrannakryt byggðamanna. Enn deila menn um mörk sveit- arfélaga inn til óbyggða, mörk, sem að réttu Iagi ættu einvörð- ungu að ná til byggðanna sjálfra. Enn lifir grá forneskja í hugum sumra þeirra manna, sem kallaðir hafa verið til ábyrgðar í skipulags- málum þjóðarinnar. Enn hefur sumum mönnum ekki auðnast að skilja, að markvissri stjórn í mál- efnum miðhálendisins - þ.á m. í byggingar- og skipulagsmálum þar - verður ekki framfylgt nema nýrri skipan verði komið á um þetta svæði, nýrri stjórnsýsluskip- an, sem tekur mið af nútímalegum hugmyndum um samræmda yfir- stjórn þeirrar mikilvægu auðlind- ar, sem felst í hálendi okkar og óbyggðum, í stað úreltra stjórn- sýsluhátta sem ýmislegt óhreint loðir við. Höfundur er forseti Ferðafélags íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.