Morgunblaðið - 02.08.1996, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.08.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 31 FRÉTTIR Opið um helgina í Arbæjarsafni ARBÆJARSAFN verður opið um verslunarmannahelgina frá klukkan 10-18. Laugardag og sunnudag verð- ur teymt undir börnum frá kl. 14.00-15.00. Börn geta einnig heilsað upp á önnur húsdýr safnsins s.s. kú, kálf, folaid, kindur og lömb. Báða dagana verður leiðsögn um leikfanga- sýninguna og farið í leiki. í safn- húsunum verður að vanda fólk sem kynnir ýmiss konar hand- verk, til að mynda gullsmíði, tóvinnu og roðskógerð. Auk þess geta gestir hlýtt á harmón- íkuleik við Arbæinn. Safnið verður einnig opið mánudaginn 5. ágúst og verður þá heyjað á Árbæjarsafni ef veður leyfir. Það verður að sjálfsögðu gert með gamla laginu, slegið með orfi og ljá, rifjað, rakað, tekið saman og bundið í bagga og heyið flutt heim á hestum. Gest- ir mega taka þátt í heyskapnum. Handverksfólk verður einnig að störfum þennan dag og meðal annars hnýtt net við Nýlendu. Þeim sem vilja njóta góðra veit- inga er bent á kaffimeðlæti í Dillonshúsi. Papeyjar- kirkja endurvígð SUNNUDAGINN 4. ágúst endur- vígir biskup íslands, hr. Ólafur Skúlason Papeyjarkirkju. Undan- farin ár hefur verið unnið að endurbyggingu kirkjunnar, en hún var byggð árið 1807 og er talin elsta og minnsta timburkirkja landsins. Kirkjan tilheyrir Djúpa- vogsprestakalli, og er sóknarprest- ur sr. Sjöfn Jóhannesdóttir. Papey- jarkirkja er bændakirkja, og nú er orðið langt síðan kirkjuleg þjón- usta hefur farið þar fram, en í framtíðinni er ætlunin að koma á þeirri hefð, að messa þar a.m.k. einu sinni á sumri. Áætlað er að athöfnin í kirkj- unni verði kl. 17.00 nk. sunnudag og eru allir velkomnir. Ef veðurút- lit er óhagstætt, verður þó athöfn- inni og heimsókn biskups frestað, en ef veður leyfir sjá Papeyjarferð- ir um ferðir til og frá eyjunni. Sérstök ferð verður kl. 16.00 í til- efni vígslunnar, en fleiri ferðir verða fyrr um daginn. Nauðsyn- legt er að tryggja sér far fyrirfram og eru þeir sem áhuga hafa á að vera við endurvígslu kirkjunnar, beðnir að hafa samband við Pa- peyjarferðir. Veiðikort greiningu fugla og spendýra, hlunnindanýtingu, veiðisiðfræði, þekkingu manna á meðferð veiði- tækja, sem og í lögum og reglum um ofangreind atriði. Umhverfisráðuneytið gengst fyrir námskeiðunum eða felur öðr- um framkvæmd og umsjón hæfn- isprófa og námskeiða. Heimilt er að fella þessa fræðslu inn í nám- skeið fyrir umsækjendur um byssuleyfi í samvinnu við lögreglu- yfirvöld. Líði 10 ár án þess að veiðikort sé endurnýjað þarf umsækjandi að gangast undir hæfnispróf að nýju og ná þar fullnægjandi ár- angri áður en nýtt veiðikort er gefið út. Staðarskoðun á Sólheimum BOÐIÐ verður upp á skoðunarferð á Sólheimum í Grímsnesi um helg- ina. Á laugardag og sunnudag verð- ur boðið upp á staðarskoðun sem hefst kl. 15 ogtekuru.þ.b. klukku- stund. Lagt verður af stað frá Listhúsi Sólheima. Saga Sólheima verður kynnt í máli og myndum, vinnustaðir verða skoðaðir, lífræn garðyrkju- og skógræktarstöð verða opnar gestum auk þess sem gengið verð- ur um höggmyndagarð. Listhús Sólheima og verslunin Vala verða opnin milli kl. 13 og 18 alla helgina. Umsóknar- frestur lengdur UMSÓKNARFRESTUR sá er skotvopnaleyfíshafar og handhaf- ar veiðirétta eða hlunninda höfðu til þess að sækja um veiðikort hefur nú verið framlengdur til 31. ágúst 1996. Eftir þann tíma þurfa allir þeir sem sækja um almennt veiðikort eða hlunnindakort að gangast undir hæfnispróf veiði- manna að undangengnu hæfnis- námskeiði sem umhverfisráðu- neytið lætur halda árlega eða oft- ar í samvinnu við veiðistjóra. Á hæfnisprófi (veiðiprófí) verð- ur m.a. könnuð þekking manna á undirstöðuatriðum í stofnvist- fræði, náttúruvernd, dýravernd, Niðurskurði mótmælt ÝMIS félagasamtök hafa mótmælt niðurskurði til heilbrigðismála sem birst hefur m.a. í tilögum stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur um niður- skurð í starfsemi sjúkrahússins. Stjórn Öryrkjabandalagsins samþykkti ályktun þar sem mót- mælt var þeim niðurskurði sem framkvæmdur hefði verið hér á landi á þessu ári. Sagði í ályktun- inni að afleiðingar þessa væru m.a. þær að Grensásdeild sé rekin með minna en hálfum afköstum, geðsjúkir einstaklingar eigi ekki í nein hús að venda og lokun deilda komi einnig niður á öldruðu fólki sem sé ósjálfbjarga í heimahúsum. Öryrkjabandalagið leggur því þunga áherslu á að sú endurhæf- ingaraðstaða sem er fyrir hendi verði nýtt og Grensásdeild þess vegna tekin í fulla notkun. Að- hlynning sjúkra og endurhæfing fatlaðra eigi að vera aðalsmerki hvers velferðarþjóðfélags og Ör- yrkjabandalagið krefjist þess að stjórnvöld tryggi að það gildi um íslenskt samfélag. Sjálfsbjörg og Félags heilablóð- fallsskaddaðra hafa harmað þær tillögur sem komið hafa frá stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur. í ályktun segir að þessar tillögur muni bitna hvað sárast á nýfötluðum og öðr- um endurhæfingarsjúklingum. Skorað er á fjármálaráðherra og aðra málsaðila að tryggja fjár- magn til að halda uppi þjónustu þeirri sem fram hafi farið á Grens- ásdeild. Þá hefur Félag eldri borgara mótmælt tillögum stjórnar Sjúkra- húss Reykjavíkur og segir augljóst að þær muni sérstaklega og harka- lega bitna á öldruðum sjúklingum þar sem sjúkrarúmum þeim ætluð fækki mikið. Nýtt fræðslu- efni frá Um- ferðarráði UMFERÐARRÁÐ hefur nýlega gefið út tvö fræðslurit. Annað ber heitið „Það er gaman að hjóla“, þar sem áhersla er lögð á þau atriði sem hjólreiðamenn þurfa sérstaklega að hafa að leiðar- ljósi í umferðinni, þ. á m um notkun hjálma. „Hugsum fram á veginn“ er smárit sem ætlað er að vekja öku- menn á vegum í stijálbýli til um- hugsunar um helstu atriði sem hættu valda í þjóðvegaakstri. M.a. er fjallað um einbreiðar brýr, blind- hæðir, hámarkshraða, framkvæmd- ir á vegum, skil bundins slitlags og malarvega, bílbelti og þá hættu sem stafar af ölvunarakstri. Bæklingunum hefur þegar verið dreift allvíða, en þeir sem óska eft- ir geta fengið þá á skrifstofu Um- ferðarráðs, Borgartúni 33, Reykja- vík. Þingborg Hleðslu- námskeið FYRIRHUGAÐ er að halda hleðslu- námskeið að Þingborg í Hraungerð- ishreppi helgarnar 17.-18. og 24.-25. ágúst undir stjórn Tryggva Hansen. Áfram verður unnið við torfbæ- inn sem hafist var handa við fyrr í sumar. Svefnpokapláss er fáanlegt á staðnum en fólk þarf að sjá sér fyrir nesti. Skrá þarf þátttöku. Góðurbakpoki • 38 Iftra • Innbyggð regnhlíf • vandað bak Stgr. kr. FÁLKINN Suðurlandsbraut 8, sími 581 4670, Þarabakka 3, Mjódd, sími 567 0100. Vesturfarasetrið á Hofsósi Opnunartími lengdur OPNUNARTÍMI Vesturfaraseturs- ins á Hofsósi hefur verið lengdur og er nú opið frá 11-19 alla daga vikunnar. Samkvæmt frétt frá Snorra Þor- finssyni ehf. sem rekur setrið, er þetta gert vegna mikillar aðsóknar að sýningunni Annað land, annað líf. Sýningin lýsir lífi og kjörum íslendinga á síðustu áratugum 19. aldar og fyrstu árum þessarar ald- ar, aðdraganda fólksflutninga til Vesturheims og hvernig fólkinu vegnaði þegar til Ameríku var kom- ið. Yfir 3.000 gestir hafa heimsótt Vesturfarasetrið síðan það opnaði 7. júlí sl. Sýningin Annað land, annað líf flytur gesti 100 ár aftur í tímann. Fyrst er staldrað við á íslandi á síðustu áratugum 19. aldar. Erfiðu árferði, áróðri fyrir utanferðum og þjóðlífi í uppstokkun gerð skil. Breytingum sem smám saman urðu á atvinnulífi þjóðarinnar á árunum 1870-1914 er lýst og þar með lífs- kjörum þeirra sem eftir sátu og létu ekki freistast af gylliboðum „agentanna“ um betra líf handan Atlantshafsins, en nálægt 16.000 íslendingar fluttu vestur um haf til Norður-Ameríku. Ýmsir atburðir í lífi vesturfaranna eru sýndir með brúðum og búning- um, svo sem kveðjustundin og ferð- in með flutningaskipinu. Þá er hald- ið vestur um haf og við blasir bjálka- kofi landnemanna. Nýir nágrannar eru kynntir til sögunnar og lýst til- raunum íslendinganna til að halda í foma siði í nýjum heimkynnum. Gleði og sorgum Vesturfaranna er lýst í persónusögum fjölmargra sem héldu á vit vona um betra líf í Ameríku. Fjöldi muna, ljósmynda og korta eru á sýningunni. 1 bókasafni og upplýsingamið- stöð Vesturfarasetursins er hægt að fletta skrám um vesturfarana og grafast fyrir um ættir þeirra. Hátið í Húsavík eystri MESSAÐ verður í kirkjunni í Húsa- vík eystri á sunnudag klukkan 10.30. Þar er nú messað einu sinni á ári en byggðin er í eyði. Sr. Amaldur Bárðarson sóknar- prestur á Raufarhöfn þjónar ásamt sóknarpresti Desjamýrarprestakalls. Kór Raufarhafnarkirkju mun syngja undir stjórn Stefaníu Sigurgeirsdótt- ur. Von er á elsta Húsvíkingnum til hátíðarinnar, Magnúsi Þorsteins- syni, en hann hallar nú í nírætt. í Borgarfjarðarhreppi verður skipulögð skemmtidagskrá, Álfa- borgarséns, frá föstudegi til mánu- dagskvölds. Búist er við marg- menni en í fyrra rúmlega tvöfald- aðist íbúatalan um verslunar- mannahelgina. Ókeypis hefur verið á tjaldstæðið milli Álfaborgarinnar og kirkjunnar og tjalda má við vægu verði við bændagistinguna Stapa, þar sem er þjónustuhús með heitu vatni. Aðgangur að heilbrigðisþjónustu Áúgíýsíngvégn3, . n;i' ..nnsaena heilsugæslu ----: 1. Heilsugæslustöðvar verða opnar á dagvinnutíma en læknar verða á fæstum þeirra við dagleg störf. Fólk er beðið að taka tillit til aðstæðna en þeim erindum sem ekki geta beðið verður sinnt. 2. Upplýsingar um vaktaþjónustu er að fínna á símsvara á heilsugæslustöðvum um land allt utan dagvinnutíma. 3. í Reykjavík munu heimilislæknar utan heilsugæslu- stöðva (sjálfstætt starfandi heimilislæknar) gegna vaktaþjónustu fyrir sína skjólstæðinga og er fólki bent á að hafa samband við þá beint á stofu eða í heimasíma. 4. A höfuðborgarsvæðinu er þeim sem nauðsyn- lega þurfa á læknishjálp að halda, bent á bráða- vakt Landspítala, sími 560 1010, bráðavakt Sjúkra- húss Reykjavíkur, sími 525 1700 og Neyðarlínuna sími 112. 5. Frekari upplýsingar veita héraðslæknar í hverju héraði. Heilbrigðisráðuneytið - Landlæknir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.