Morgunblaðið - 02.08.1996, Page 1
■UIMGLIIMGAR OG VÍMUEFIMI/2 ■ JAFNINGJAFRÆÐSLA/3 ■ TÆKI OG TÓL
TIL LÍKAMSRÆKTAR/4 ■ í FÓTSPORUM HAYDNS/6 ■ TENÓRAR í GAUTA-
BORG/6 ■ GLÖGGT ER GESTS AUGAÐ/7 ■ UÓTAR LODIR FEGRAÐAR/8B
Sól í trogi og epli
- ómissandi í ferðalagið
^ AUSTURVELLI er
Asteikjandi hiti og fólk
liggur eins og hráviði í
glampandi sólinni. Tíðin
hefur verið alveg einstök
í sumar. Það er því ekki að furða
að fólk reki upp stór augu þegar það
sér næpuhvítan blaðamann spóka
sig í miðbænum. Það eru óskráð lög
náttúrunnar að sólin skín aldrei á
frídögum og þetta er í fyrsta skipti
sem blaðamaðurinn fær tækifæri til
að baða sig í miðbæjarsólinni á
vinnudegi.
Hugmyndin er sú að stefna saman
ólíku fólki í myndatöku morgnninn
eftir og fá það til að taka eitthvað
með sér sem það telur alveg ómiss-
andi í ferðalagið um verslun-
armannahelgina sem er að renna
upp. Heldri maður á kaffihúsi varpar
fram þeirri spurningu hvort allir
mæti ekki með vínflöskur. „Vonandi
ekki sömu tegundirnar," svarar
blaðamaður og svipast um.
Fyrst verður á vegi hans kasólétt
stúlka, Ása Lind Finnbogadóttir,
sem segist aðspurð ætla að veija
einni nótt í gistihúsi á Arnarstapa
um helgina. „Ég ætla ekki að vera
í tjaldi," bætir hún við og brosir.
Alfræði og eyrnatappar
Hún er auðfús að búa til lista
yfir tíu hluti sem eru ómissandi í
ferðalagið og efst á listanum stend-
ur: „Kærastinn minn hann Maggi“.
Síðan kemur „bíllinn okkar“, matur,
góðir skór, þægileg föt, lopapeysan,
regngallinn, tannburstinn, sódavatn
og myndavél.
Guðmundur Hagalín er ekki að
brettaferð á Snæfell-
sjökul um helgina
„og það nauðsynleg-
asta [í ferðina] er
auðvitað vinkona
mín.“ Einnig tekur
hann með sér bjór,
svefnpoka, kók,
„hjólabrettið mitt“,
nóg af tónlist, „allar
tegundir“, hreinar
nærbuxur, hreina
sokka, nammi, höfuð-
fat og Extratyggjó.
Ástæða tll að
brosa
„ Morgunblaðið/Golli
ÁSA LIND vildi helst hafa Magga, kærastann sinn, með sér, Steinunn vinkonur
sínar [á ljósmynd], Arnar Steinn vinkonu sína [á hestbaki], Guðmundur klósett-
rúllu og Heiða málverk af epli eftir Curver.
kippa sér upp við það þótt sólin
troði upp á Austurvelli heldur
hreiðrar um sig inni á skuggsælu
kaffihúsi. Hann tekur málaumleitan
blaðamanns vel og segist ætla á
þjóðhátíð í Eyjum. Efst á listann
yfir mikilvægustu hlutina í ferðina
setur hann: „Þig sjálfan". Síðan
koma aukasokkar, „helst“ svefn-
poki, tóbak, áfengi, smokkar, regn-
föt, klósettpappír, magasýrutöflur
og húslyklar.
Því næst gefur blaðamaður sig á
tal við Heiðu Eiríks sem segist ætla
á kántrýhátíð á Skagaströnd. Og
hvað er mikilvægast? „Málverk eftir
Curver af epli,“ svarar hún. Vita-
skuld - þá er engin ástæða til að
smyrja sér nesti. Einnig nefnir hún
Encyclopaidiu Britannicu, málm-
gjöll, eyrnatappa, reykelsi, stíflu-
eyði, inniskó, gælugeithafurinn,
stöðumæli og geimverumóttakara.
Á Ingólfstorgi er Arnar Steinn
Þorsteinsson með vinkonu sinni El-
ínu Hansdóttur. Hann ætlar í snjó-
Loks heilsar Stein-
unn Þórhallsdóttir
blaðamanni með hjól
sér við hlið og bros á
vör. Hún hefur líka
ástæðu til að brosa.
Þetta verður fyrsta
verslunarmannahelgi
í fimm ár sem hún
ferðast með öllum
vinkonuhópnum.
Ferðinni er heitið á
Búðir á Snæfellsnesi og í farangrin-
um verður „nýja frábæra silfraða
tjaldið mitt“, kaldar kótilettur vafðar
í álpappír, sundföt og radar „sem
finnur minnstu sveitasundlaugarn-
ar“, litir og litabók, hárteygjur í
útilegutíkarspenana, norskir brjóst-
dropar fyrir röddina, „nú eða eitt-
hvað annað með svipuðu magni af
vínanda", sól í trogi, músík með
Violent Femmes, Spilverkinu og
Stone Free og síðast en ekki síst
„allar vinkonur mínar". ■