Morgunblaðið - 08.08.1996, Page 1
72 SÍÐUR B/C/D
177. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Flugslysið í Færeyjum
Svörtu
kassarnir
sendirtil
Bretlands
Kaupmannahöfn. Reuter.
SVÖRTU kassarnir úr Gulf-
stream III-flugvél danska hersins,
sem fórst í Færeyjum sl. laugar-
dag, voru sendir til rannsóknar í
Bretlandi í gær. Með vélinni fór-
ust níu manns og þar á meðal
yfirmaður danska hersins.
Talsmaður danska flughersins
sagði í gær, að ekkert benti til
neins konar skemmdarverks en
nauðsynlegt væri að fá úr því
skorið með rannsókn á flug- og
hljóðritum flugvélarinnar hvers
vegna henni hefði hvolft í lofti
og hrapað í aðflugi að flugvellin-
um í Vogum.
Frásagnir sjónarvotta benda
til, að sterkir sviptivindar hafi
leikið um flugvélina þegar hún
flaug inn Sorvágsfjörð en þar er
oft mikil ókyrrð í lofti og al-
gengt, að hætt sé við lendingu á
flugvellinum í Vogum af þeim
sökum.
Það voru Bretar, sem lögðu
flugvöllinn á stríðsárunum, og er
hann sá eini í Færeyjum.
Hert á kröfum
um úrbáetur
Slysið á laugardag hefur hert
á kröfum um úrbætur á flugvellin-
um, meðal annars um lengri flug-
braut og flugleiðsögukerfi, en
danska fréttastofan Ritzau hefur
það eftir danska flugmálasér-
fræðingnum Val Eggers, að full-
kominn aðflugsbúnaður, þ.m.t.
örbylgjuaðflugsgeisli, myndi ekki
auka flugöryggi svo neinu næmi
í Vogum. Það væru staðhættirnir,
sem gerðu flugvöllinn varasaman,
og við þá yrði ekki ráðið.
Króatía og Júgóslavía
Gag’iikvæm
viðurkenning
á næsta leiti
Mótmæla
brottvísun
INNFLYTJENDUR í Frakk-
landi mótmæltu harðri stefnu
frönsku stjórnarinnar í málefn-
um innflytjenda í nágrenni
Eiffelturnsins í gær. Atvinnu-
og dvalarleyfi innflytjendanna
flestra eru útrunnin og eiga
þeir yfir höfði sér að verða
sendir til baka til þeirra landa
sem þeir koma frá. Hefur það
leitt til hungurverkfalla og
mótmælaaðgerða að undan-
förnu.
Reuter
Aþenu, Belgrad. Reuter.
LEIÐTOGAR Júgóslavíu, sam-
bandsríkis Serba og Svartfellinga,
og Króatíu náðu í gær samkomulagi
í aðalatriðum um gagnkvæma viður-
kenningu ríkjanna tveggja. Gert er
ráð fyrir að þau skiptist á sendiherr-
um síðar í þessum mánuði.
Slobodan Milosevic Serbíuforseti
og Franjo Tudjman Króatíuforseti
handsöluðu samkomulagið á lúxus-
hóteli skammt fyrir utan Aþenu fyr-
ir milligöngu Costas Simitis forsæt-
isráðherra Grikklands.
Utanríkisráðherrar Júgóslavíu og
Króatíu munu semja um útfærslu
samkomulagsins síðar í mánuðinum.
Króatískir fulltrúar í samningavið-
ræðunum í Aþenu sögðu að í sameig-
inlegri yfirlýsingu forsetanna væri
heitið vilja til að tryggja öryggi
flóttamanna sem hverfa myndu til
fyrri heimkynna og að finna fólk sem
saknað væri úr stríði ríkjanna.
Ennfremur væri því heitið að eyða
spennu á Prevlakaskaga við mynni
Boka Kotorska-flóann í Svartfjalla-
landi en deilur þar hafa m.a. lengi
hindrað að samkomulag um gagn-
kvæma viðurkenningu ríkjanna væri
möguleiki.
Erlendir stjórnarerindrekar sögðu
það hafa tekið Simitis 25 daga að
koma fundinum í kring en undirbún-
ingi hans var haldið leyndum þar til
í fyrrakvöld.
Stjórnmálaskýrendur sögðu Mi-
losevic hafa verið mjög áfram um
að koma á eðlilegum samskiptum
við Króatíu áður en hann sneri sér
að öðrum vandamálum sem á honum
hvíla.
Stjórnarandstaðan í Júgóslavíu
tók fréttinni af samkomulaginu mis-
jafnlega, alit frá því að kalla það
skref í átt til stöðugleika á Balkan-
skaga til þjóðarsvika við Serba.
Harðir bardagar
í miðborg Grosní
Niðurstöður rannsókna á loftsteinum vekja athygli
Líf á Mars í fyrndinni?
Houston, Washington. Reuter.
VÍSINDAMENN við bandarísku
geimferðastofnunina (NASA) og
fleiri vísindastofnanir greindu frá
því á fréttamannafundi í Wash-
ington í gær að þeir hefðu
uppgötvað vísbendingar um að líf
kunni að hafa þrifist á plánetunni
Mars fyrir milljónum ára.
Rannsóknir á loftsteini, sem er
talinn hafa borist frá Mars til jarð-
ar fyrir um 16 milljónum ára, þykja
benda til þessa. Steinninn er tæp-
lega 2 kílóa þungur og á stærð
við kartöflu. Hann fannst á Suður-
skautslandinu fyrir 12 árum.
„Það er engin ein uppgötvun
sem hefur orðið til þess að við
túlkum þetta sem vísbendingu um
að líf hafi þrifist á Mars,“ sagði
David McKay, starfsmaður
NASA, í gær. „Óllu heldur er það
samspil margra þátta sem við
höfum fundið. Tengsl allra þess-
Reuter
Loftsteinn frá Mars sem
geymir lífrænar sameindir.
ara þátta með tilliti til staðsetn-
ingar er sterkasta vísbendingin.“
Á fréttamannafundinum í gær
lagði McKay áherslu á að búast
mætti við því að þessari túlkun á
uppgötvununum verði andæft
harðlega, og eru vísindamennirnir
ánægðir með að þetta verði um-
deilt. „Við erum ekki að segja að
Grosní, Moskvu. Reuter.
AÐSKILNAÐARSINNAR í Tsjetsjníju gerðu harðar árásir á byggingar
stjórnarinnar í Grosní í gær, á öðrum degi mannskæðra bardaga í
borginni. Rússneska hernum tókst síðdegis að senda liðsauka í miðborg-
ina til að veijast árásunum.
Aðskilnaðarsinnarnir réðust
inn í Grosm' á þriðjudag og náðu
stórum hluta borgarinnar á sitt
vald. Þeir reyndu að ráðast inn í
höfuðstöðvar tsjetsjensku stjórn-
arinnar, sem nýtur stuðnings
Moskvu-stjórnar, og náðu á sitt
vald aðalsímstöð borgarinnar sem
er skammt frá byggingunum.
Nokkrir óbreyttir borgarar urðu
innlyksa í byggingunum, þeirra á
meðal fréttamenn, konur og
a.m.k. eitt barn.
Rússneskar herþyrlur skutu
flugskeytum á aðskilnaðar-
sinnana í gær. Lest rússneskra
brynvagna komst að stjórnar-
byggingunum siðdegis og tvær
aðrar nálguðust miðborgina. Ekki
var ljóst hvort aðskilnaðar-
sinnarnir hefðu hörfað en árásum
þeirra „linnti skyndilega“, að
sögn fréttastofunnar Tass. Hátt-
settur rússneskur embættismað-
ur, Sergej Stepashín, sagði að
uppreisnarmennirnir yrðu brátt
hraktir úr borginni.
Fréttaritari Tass var á meðal
þeirra sem urðu inniyksa í bygg-
ingunum og sagði að aðskilnaðar-
sinnarnir hefðu beitt skotvopnum
og sprengjum í árásunum. Kvikn-
við höfum endanlega sannað
þetta. Við ætlum að birta niður-
stöður okkar opinberiega til þess
að aðrir geti rannsakað þær, stað-
fest, aukið í, andæft - afsannað
ef þeir geta,“ sagði Everett Gib-
son, prófessor við Stanford-
háskóla.
Mesta uppgötvun aldarinnar?
Lois Friedman hjá Reikistjörnu-
félaginu sagði að þetta væri mesta
uppgötvun sem gerð hefði verið á
þessari öld og myndi hafa gífurleg
áhrif á heimspeki, trú og vísindi.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í gær að þetta væri merki-
leg uppgötvun og að Bandaríkja-
menn myndu beita allri sinni vís-
indaþekkingu til þess að reyna
að staðfesta þessar uppgötvanir.
■ Vísbendingar/18
að hefði í höfuðstöðvum tsjetsj-
enska innanríkisráðuneytisins.
Tugir manna féllu
Sókn aðskilnaðarsinnanna er sú
mesta frá því þeir réðust inn í
Grosní fyrir fimm mánuðum. Áður
hafði rússneski herinn gert árásir
á þorp í Tsjetsjníju í nokkrar vikur.
Ljóst er að tugir manna hafa
beðið bana í bardögunum en
ógjörningur var að fá nákvæmar
tölur um mannfallið. Fréttastofan
Interfax hafði eftir heimildar-
mönnum í hernum að 50 rússnesk-
ir hermenn hefðu fallið og 200
særst.
Bardagarnir varpa skugga á
undirbúning embættistöku Borís
Jeltsíns Rússlandsforseta í Kreml
á morgun. Alexander Lebed,
æðsti ráðgjafi forsetans í öryggis-
málum, sagði brýnt að hefja
samningaviðræður að nýju. „Við
verðum að skoða einhvers konar
nýjar lausnir, nýjar aðferðir,"
sagði hann.
Interfax sagði að leyniskytta
hefði drepið yfirmann rússneskra
hersveita í Khankala, vígi hersins
skammt frá Grosní. Þá hefðu bar-
dagar blossað upp í bænum Arg-
un, um 15 km austan við Grosní.
Aðskilnaðarsinnar segjast hafa
eyðilagt 15 rússneska brynvagna í
bænum.