Morgunblaðið - 08.08.1996, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hraðlestrarnámskeið
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn og afköst í námi?
+ Vilt þú stórauka aflcöst þín í starfi?
Svarir þú játandi skaltu skrá þig strax á næsta námskeið j
í hraðlestri sem hefst 13. ágúst n.k. Lestrarhraði þátt-
takenda fjórfaldast að jafnaði. Við ábyrgjumst árangur!
Skráning er í síma 564-2100.
'^Sí
HRAÐUESnnRARSKÖJLJrMN
Munid langan
Laugavegi 89, s. 511 1750 - Kringlunni, s. 553 1717
laugardag
UTSALA - UTSALA
Veröhrun vou
Allar peysur 1.900 aður 5.900—4.900
Allar skyrtur 1.900 áður 3.900—4.300
Öllvesti 1.900 áður 4.900
Stakir jakkar 4.900 áður 12.900-11.900
Jakkaföt frá 6.900 áður 13.900
Stakar buxur frá 990 áður 5.900
Laugavegi 51, s. 551 8840
Munið
langan
laugardag
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Frábær þjónusta
hjá Canada 3000
flugfélaginu
AUÐUNN S. Einarsson
skrifaði eftirfarandi bréf:
„Það vakti athygli fyrir
nokkrum mánuðum að
flugfélagið Canada 3000
ákvað að taka farþega frá
íslandi á leið þeirra frá
Glasgow til vesturstrandar
Kanada og skrif og frétta-
flutningur útvarps og sjón-
varps var á þá leið að Flug-
leiðir væri að gera þeim
lífið leitt með okurgjald-
töku fyrir þjónustu.
Ég ferðaðist með þessu
flugfélagi í byijun júlí til
Kanada og kom aftur til
baka fyrir nokkrum dög-
um. Því verður ekki neitað
að stutt er milli sætaraða
í vélunum en ekki verra
en í Flugleiðavélunum. Það
er pakkað inn í þær.
Þjónusta hjá þeim er
sérlega góð, brosandi
starfsfólk og indælt í alla
staði og vonandi sjá þeir
sér fært að veita íslending-
um framvegis þennan
möguleika á flugi til
Vancouver þar sem stutt
er til kyrrahafsfylkja
Bandaríkjanna, Washing-
ton, Oregon og Kaliforníu.
Ég mun tvímælalaust ferð-
ast með þessu flugfélagi
aftur ef slíkt verður áfram
í boði.“
Gæludýr
Kettling vantar
heimili
VEGNA ofnæmis á heimili
hér í bæ, þarf tíu vikna
kettlingur að eignast gott
heimili. Kettlingurinn sem
er hvítur er kassavanur og
mjög gæfur. Áhugasamir
hringi í síma 587-1675.
Kettlinga vantar
heimili
ÞRÍR fallegir níu vikna
kettlingar þurfa að eignast
góð heimili. Uppl. í síma
587-2529.
Elenóra er týnd
ELENÓRA sem er ellefu
ára gömul svört læða með
hvítt á löppum og bringu
hvarf frá Áusturgötu 34,
Hafnarfirði sl. föstudag.
Hún er mjög gæf og var
með rauða ól. Geti einhver
gefíð upplýsingar um hana
er hann beðinn að hringja
í síma 555-0677 eða
552-2095 og er fundar-
launum heitið.
Páfagaukur
tapaðist
LÍTILL blár páfagaukur
flaug út um glugga á heim-
ili sínu við Vesturberg fyr-
ir u.þ.b. þremur vikum.
Geti einhver gefíð upplýs-
ingar um afdrif hans er
hann beðinn að hringja í
síma 567-9468 eftir kl. 18.
Ernu vantar heimili
TINNUSVÖRT og blíð
læða, þriggja og háifs
mánaða gömul og heitir
Ema, þarf að eignast
heimili hjá góðu fólki sem
allra fyrst. Uppl. veittar í
s. 551-9651.
Nintendo tölvu
saknað
NINTENDO Game Boy
leikjatölva í glæru hulstri
með leikjum hvarf úr bíl
sem stóð ólæstur á bíla-
stæði Hótel Eddu á Akur-
eyri um verslunarmanna-
helgina. Eigandinn er sjö
ára drengur og saknar
þessara hluta sárt og biður
skilvísan finnanda að hafa
samband í síma 565-6939.
Göngustafur
tapaðist
JÁRNSTAFUR frá Hjálp-
artækjabankanum tapað-
ist fyrir rúmlega viku á
planinu við Glæsibæ, Álf-
heimum 74. Skilvís
finnandi vinsamlega hafí
samband í sima 553-3472.
Myndavél
tapaðist
MILLI Loðmundarfjarðar
og Borgarfjarðar eystri
tapaðist myndavél af gerð-
inni Canon-Eos 600 föstu-
daginn 2. ágúst. Skilvís
fínnandi vinsamlega hringi
í Sigurgeir Siguijónsson í
síma 552-2690 og er fund-
arlaunum heitið.
Giftingarhringur
tapaðist
LÍTILL, nettur en efnis-
mikill giftingarhringur,
tapaðist mánudaginn 5.
ágúst í eða við Stjörnubíó.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
557-4749 eða 89-26760.
Sessa fannst
SESSA, mjög líklega úr
sófasetti, fannst á Laugar-
nesvegi sl. föstudag. Eig-
andinn má vitja hennar í
síma 557-4625.
Seðlaveski
tapaðist
VÍNRAUTT seðlaveski
merkt Sparisjóðnum í
Keflavík tapaðist fyrir
framan Sundlaugina í
Laugardal sl. fímmtudag.
Skilvís fínnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
421-3399.
SKAK
Umsjón Margcir
Fétursson
SVARTUR leikur
og vinnur.
STAÐAN kom upp í
skák tveggja stórmeistara
á alþjóðlegu móti í Bad
Homburg í Þýskalandi sem
er nýlokið. Þjóðveijinn
Markus Stangl (2.565) var
með hvítt, en Boris Alter-
man (2.590), ísrael, hafði
svart og átti leik. Hvítur lék
síðast 17. Kfl-gl, en nauð-
synlegt var 17. Bg2. Svart-
ur fann nú leið til að not-
færa sér klaufalega stöðu
hvíta kóngsins og hróksins
í horninu.
17. - Hxd4! 18. exd4 -
Hxb2 19. Bg2 - Bf5 20.
Bf3 - c3 21. Kg2 - c2 22.
Bc6 - Bc3 23. Hacl - Bd2
og Jivítur gafst upp.
Úrslit á mótinu: 1.-2.
Alterman og Gabriel,
Þýskalandi, 6 v. af 9 mögu-
legum, 3.-5. Soffía Polgar,
Slobodjan, Þýskalandi, og
Movsesian, Armeníu, 4 'A v.
6.-9. Bönsch, Bezold og
Stangl, Þýskalandi, og Hug,
Sviss, 4 v. 10. Unzicker,
Þýskalandi, 3 ’/z v.
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu krakkar héldu nýlega hlutaveltu við
Melabúðina v/Hagamel til styrktar Krabbameinsfélags
íslands. Þau heita frá vinstri Guðbjörg Tómasdóttir,
Þórunn Friðriksdóttir, Tryggvi Tómasson og Kristinn
Páll Teitsson. Þau eiga öll heima á Grenimel nema
Kristinn sem býr á Hagamel.
Víkveiji skrifar...
VIÐHORF til barna er breytilegt
milli ríkja, menningarheima
og einstaklinga. Sumir líta á börn
sem guðsgjöf og tilgang lífsins,
aðrir sem byrði er torveldar foreldr-
unum að uppfylla sínar ítrustu sjálf-
hverfu þarfir.
Þessi breytilegu viðhorf koma
fram á ýmsa vegu. Á fáum stöðum
er viðhorfið til barna líklega eðli-
Iegra og jákvæðara en í evrópsku
Miðjarðarhafslöndunum. Þar ráða
börnin ennþá ríkjum og taka þátt
í hinu daglega lífi fjölskyldunnar
af fullu kappi.
Þetta kemur mörgum Norður-
Evrópubúum spánskt fyrir sjónir,
enda eiga menn á okkar slóðum
ekki að venjast því að sjá smábörn
á reiki síðla kvölds, hvað þá á kaffi-
húsum eða veitingastöðum.
XXX
SUÐUR-EVRÓPSKA fjölskyldu-
mynstrið er vissulega frá-
brugðið því sem við þekkjum. Sam-
heldni fjölskyldunnar er meiri og
tengsl milli kynslóða sterkari. Sam-
eiginlegar máltíðir tengjast ekki
einvörðungu helstu hátíðis- og
helgidögum heldur eru fastur hluti
hins daglega lífs. Þrátt fyrir annríki
gefur fólk sér tíma til samveru og
samræðna.
Víkverji hefur lengi dáðst af
þessu viðhorfi til fjölskyldunnar og
barna sérstaklega. Það var hins
vegar ekki fyrr en nú í sumar, er
hann ferðaðist með ungri dóttur
sinni til Spánar, að hann átti þess
kost að upplifa þetta frá fyrstu
hendi.
Skyndilega var litia konan í aðal-
hlutverki, hvert sem komið var, og
ekkert þótti sjálfsagðara en að hún
tæki þátt í hveiju sem var. Það
er algeng sjón á Spáni, jafnt sem
Ítalíu og Grikklandi, að sjá börn
leika sér fyrir utan kaffihús eða
veitingastaði. Borðsiðir yngstu
kynslóðarinnar geta verið ansi
skrautlegir á köflum, þrátt fyrir
tilraunir foreldra til að kenna góða
siði. Það þykir hins vegar ekki til-
tökumál á Spáni og viðbrögðin eru
bros en ekki fýlusvipur hjá öðrum
gestum og starfsfólki. Sérstakar
upphækkanir á stóla eða barnastól-
ar eru til á nær öllum stöðum, jafnt
einföldum veitingastöðum sem
sælkerastöðum.
xxx
JÖLSKYLDA Víkveija lenti
hins vegar í nokkrum vandræð-
um eitt kvöldið á fínum veitingastað
við höfnina í Barcelona. Litla konan
heimtaði „kókómjólk" með matn-
um, sem ekki var fáanleg, þrátt
fyrir boð um flesta aðra óáfenga
drykki sem hægt er að ímynda sér.
Vínþjónn staðarins, er varð vitni
að þessum samningaviðræðum,
leysti hins vegar málið með því að
bjóðast til að hlaupa út og finna
kókómjólk á einhverjum öðrum veit-
ingastað í nágrenninu og birtist hún
á borðinu skömmu síðar.