Morgunblaðið - 08.08.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1996 B 7
IFO spáir hagvexti íÞýzkalandi
Dresden. Reuter.
IFO-stofnunin segir að efnahagslíf
í Þýzkalandi vaxi og dafni á ný
eftir að hafa hægt á sér að undan-
förnu.
Stofnunin segir að iðnfram-
leiðsla og byggingarframkvæmdir
hafi aukizt á öðrum ársfjórðungi,
en atvinnurekendur og hagfræð-
ingar telja batann fallvaltan.
Þótt Ifo segi að vöxturinn muni
aukast síðari hluta árs og á næsta
ári telja hagfræðingarnir að enn
sé við alvarlega skipulagserfið-
leika að stríða í efnahagsmálum
og ný hækkun marksins kunni að
gera batann að engu.
Stofnunin segir í síðustu skýrslu
sinni að verg landsframleiðsla
(GDP) hafi sennilega aukizt um
0,5% á öðrum ársfjórðungi frá
fyrsta ársfjórðungi og síðasta árs-
fjórðungi 1995 vegna aukinnar
iðnframleiðslu og meiri útflutn-
ings.
Verg landsframleiðsla minnkaði
um 0,4% á fyrsta ársfjórðungi frá
næsta ársfjórðungi á undan og var
aðeins 0,4% meiri en á sama tíma
í fyrra.
Ifo ítrekaði fyrri spá um að
verg landsframleiðsla mundi auk-
ast um 0,75% á þessu ári og 2%
á því næsta. Nýlega spáði Ifo hins
vegar 2,5% hagvexti 1997.
Áfram atvinnuleysi
Að dómi Ifo verður atvinnuleysi
mikið sem fyrr, þótt hagvöxtur
hafi tekið kipp.
Ifo spáir því að atvinnuleysi
muni minnka nokkuð í 10,1% á
næsta ári úr 10,2% að meðaltali í
ár samkvæmt hagtölum.
Einnig spáir Ifo því að ríkis-
halli minnki í 3,1% af vergri lands-
framleiðslu á næsta ári, sem er
talið fullnægja skilyrðum um aðild
að myntbandalagi Evrópu.
Europe Online
gjaldþrota
Brtíssel. Reuter.
EUROPE ONLINE, beinlínuþjón-
ustan í Lúxemborg er komin í
greiðsluþrot og hefur verið lýst
gjaldþrota.
Fyrirtækið hefur notið lögvernd-
ar gegn lánardrottnum meðan rætt
hefur verið við nýja fjárfesta, en
samkomulag náðist ekki fyrir til-
settan tíma samkvæmt góðum
heimildum.
Meðal annars hefur verið rætt
við bandaríska beinlínufyrirtækið
CompuServe og Deutsche Telekom
í Þýzkalandi, því að stærsti hluthaf-
inn, þýzka útgáfufyrirtækið Burda
sagði í síðasta mánuði að það mundi
ekki leggja fram meira fjármagn.
Tilboð ekki viðunandi
Heimildirnar herma að Compus-
erve og bandaríska fyrirtækið ITT
hafi gert föst tilboð, en dómstóll í
Lúxemborg taldi þau ekki „alveg
viðunandi." Fast tilboð liggur ekki
fyrir frá Deutsche Telekom.
Nýjar viðræður verða hafnar
undir stjórn skiptastjóra til að
kanna hvort kaupandi fáist.
Europe Online var tiltölulega fyr-
irferðarlítið fyrirtæki á vaxandi
markaði með um 25.000 áskrifend-
um. Það hélt uppi í þjónustu í
Þýzkalandi, Bretlandi og Lúxem-
borg og rak einnig alþjóðlega þjón-
ustu á ensku.
Meðal eigenda Burda voru
bandarísku fyrirtækin AT&T og
Meigher Communications, Pearson
Plc í Bretlandi og Banque et Caisse
d’Épargne de l’État (BCEE) and
Societé Nationale de Crédit et d’In-
vestissement (SNCI) í Lúxemborg.
Tímarit ráðast á
tóbakslög í Belgíu
Brtíssel. Reuter.
ÚTGEFENDUR evrópskra tíma-
rita hafa skorið upp herör gegn
belgísku lagafrumvarpi, þar sem
kveðið er á um bann við nær öllum
tóbaksauglýsingum, og segjast
þreyttir á tilraunum til að hefta
sölu tímarita þvert yfír landamæri
í Evrópu.
Samband evrópskra tímaritaút-
gefenda FAEP, segir að samkvæmt
texta frumvarpsins verði bannað
að selja erlend rit sem birti tóbaks-
auglýsingar í Belgíu, þannig að
útgefendur muni neyðast til að að
prenta sérstakar útgáfur eða draga
sig algerlega til baka.
Skorað er á Evrópusambandið
að koma í veg fyrir að frumvarpið,
sem heilbrigðisnefnd belgíska
þingsins samþykkti í júní, verði að
lögum.
„Þetta er freklegt brot á evr-
ópskum reglum um viðskiptafrelsi
og málfrelsi," sagði varaforseti
FAEP, Louis Croonen, í yfirlýsingu.
Sigurmöguleikar sambandsins í
baráttunni virðast góðar. Talsmað-
ur belgíska heilbrigðisráðuneytisins
sagði Reuter að hann teldi ekki að
lögunum yrði beitt gegn tímaritum
frá öðrum ESB-löndum af því það
yrði brot á lögum ESB.
Mo r 2ti n ve r ða r-
Nýsköpunar- og framleiðnideild Iðntæknistofnunar efnir til morgunverðarfundar
þar sem þema fundarins verður:
Hlutverk ráðgjafans sem hvati að breytingum
- hvað þarf til að ná árangri?
Fundurinn er hluti af kynningu á fyrstu niðurstöðum verkefnis á vegum
Norræna iðnaðarsjóðsins, SMB-FORUM - Delprojekt 5, Processkonsulenter.
Fundurinn verður haldinn hjá Iðntæknistofnun, Keldnaholti,
á morgun föstudaginn 9. ágúst kl. 09:00-11:00
Dagskrá
1. Opnunarávarp, kynning á fundinum og fundarefni.
Hallgrímur Jónasson, löntæknistofnun.
2. Kynning á verkefninu, þátttakendum og núverandi niðurstöðum verkefnisins.
Geir S. Kuvás, Teknologisk Institutt i Oslo, Noregi og
Klas Ákerlund, ALMI företagspartner i Vánersborg, Svíþjóð.
3. Ráðgjafinn sem hvati að brevtingum. Hvernig er unnt að ná árangri?
Per Krogager, Lego, DanmörKu.
Kaffi
4. Kynning á ráðgjafaþjónustunni í Finlandi, PKT- kerfið.
Reinhold Enqvist, PKT, Finnlandi.
5. Umræður með þátttakendum og mögulegar tillögur um þróunaraðgerðir á íslandi.
6. Fundarslit.
Allir fyrirlesarar hafa mjög víðtæka reynslu af ráðgjöf og starfa og eða hafa starfað í
nánum tengslum við ráðgjafa í heimalandi sínu og á alþjóðlegum vettvangi.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku
fyrir kl: 15.00, í dag fimmtuaaginn 8. ágúst
til Iðntæknistofnunar í síma 587 7000
Morgunverðafundurinn eropinn öllum ráðgjöfum
og öðrum þeim sem áhuga hafa á efni ráðstefnunnar.
Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar veitir Björgvin Njáll Ingólfsson,
Nýsköpunar- og framleiðnideild.
Iðntæknistofnun
KELDN AHOLTI 112 REYKJAVÍK SÍMI 587 7000
n
Oruggir
Þegar þú sendir EMS hraðsendingar annast Hraðflutningsdeild Pósts og síma allar
sendingar, stórar sem smáar, böggla, skjalasendingar og frakt. Þú getur verið viss
um að sendingin kemst hratt og öruggiega alla leið.
Tenging Hraðflutningsdeildar
Pósts og síma við dreifikerfi
TNT í yfir 200 löndum eykur
enn á öryggið og hraðann.
hraðflutningar
um allan heim
90 afgreiðslustaðir um land allt
Móttökustaðir sendinga eru á póst- og símstöðvum um land allt
og í Hraðflutningsdeildinni, Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík.
Þar eru veittar allar nánari upplýsingar í síma 550 7300.
Opið er frá kl. 8:30-18:00 alla virka daga og á laugardögum
frá kl. 9:00-12:00
T NI Express Worldwide
HRAÐFLUTNINGSDEILD
Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík, sími 550 7300, fax 550 7309
F0RGANGSP0STUR