Morgunblaðið - 08.08.1996, Page 8
c ^nnbvifcuw. .>< a \ ^ %/
vmsiapn/iaviNNUiiF FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1996
ptorgmMðliifr -kjarni málsins! PirrgmmlíWrili - kjami málsins!
UNDANFARIN tvö ár hefur flug-
nemum fjölgað á íslandi og sífellt
fleiri hefja atvinnuflugnám við Flug-
skóla íslands.
Fyrsti áfangi flugnáms er að ljúka
sólóflugprófi, en þá getur flugmaður
flogið einn en ekki með farþega.
Prófið er hægt að taka eftir 20 flug-
tíma.
Einkaflugmannspróf er hægt að
taka að afloknum 60 flugtímum en
prófið er bæði skriflegt og verkiegt.
Eftir að nemendur hafa fengið
einkaflugmannsréttindi geta þeir
sótt um atvinnuflugmannsnám í
Flugskóla íslands. Inntökuskiiyrði í
skólann, sem Flugmálastjórn rekur,
eru auk einkaflugmannsréttinda,
skriflegt inntökupróf þar sem þekk-
ing í eðlisfræði, ensku og stærð-
fræði er könnuð. Bóklegt nám tekur
einn vetur og nemendur þurfa að
standast skrifleg próf og hafa lokið
200 flugtímum til þess að geta feng-
ið atvinnuflugmannsréttindi.
Fiugmenn sem starfa við áætlun-
arflug þurfa að hafa blindflugsrétt-
indi, en þá verður flugmaður að
hafa lokið 50 flugtímum sem flug-
stjóri í innanlandsflugi.
Atvinnuflugmannsréttindi 1.
flokks eru þau nefnd sem þarf til að
fá flugstjómarréttindi og rétt á að
fljúga stærri flugvélum. Þá þarf að
bæta við frekara námi, bæði bóklegu
og að hafa 1.500 flugtíma að baki.
Kostnaður 1,5-2 milljónir
Hjálmar D. Arnórsson, skólastjóri
Flugskóla íslands, segir að nemend-
um í atvinnuflugmannsnámi hafi-
fjölgað töluvert undanfarið ár og
þeir komi yfirleitt beint úr einkaflug-
mannsnámi. „Kostnaður við flugnám
allt frá fyrsta flugtíma í sólóprófi
til atvinnuflugmannsréttinda er um
1,5-2 milljónir króna, sem er tölu-
vert ódýrara heldur en í sambærileg-
um skóium erlendis.
Næsta inntökupróf inn í skólann
verður haldið í lok nóvember en á
síðasta ári voru um 100 nemendur
í atvinnuflugnámi og í ár stefnir í
að um 120 nemendur verði í skólan-
um, þar af eru einhverjir sem eru í
flugstjóranámi."
Ekki er lengur gerð krafa um að
nemendur sem stunda nám við Flug-
við lofthræðslu og það er gott fyrir
flughrædda að læra flug því þegar
þeir fá að stýra og fljúga sjálfir
minnkar oft hræðslan.
Eg held að ein af ástæðunum fyr-
ir því hversu margir eru að læra flug
sé ævintýraljóminn sem fylgir starf-
inu og sífellt fleiri séu tilbúnir að
láta drauminn rætast og læra að
fljúga þrátt fyrir að mörgum finnist
það dýrt, sem ekki er rétt samanbor-
ið við margt annað nám. Aftur á
móti tekur flugnámið ekki langan
tíma þannig að nemarnir eru að
greiða fyrir námið á stuttum tíma.
Fólk sem er að læra flug er meira
að hugsa um hvað það viil gera og
hefur áhuga á. Það er síðan seinni
tíma vandamál hvort það gengur
upp,“ segir Matthías.
Ekki dýrara hér
Ólafur Skúli Guðmundsson, yfir-
kennari hjá Flugmennt, segir að
síðastliðið haust hafi komið skriða
af einstaklingum sem hafi byijað
flugnám og búast megi við annarri
skriðu í haust. „Þegar Flugleiðir
ráða eitthvað af flugmönnum hefur
það alltaf áhrif á það að fólk ákveði
að drífa í náminu.
Flugnám á íslandi er ódýrara en
í Evrópu en dýrara en í Bandaríkj-
unum. En þegar allur kostnaður er
talinn saman munar mjög litlu á því
að læra á íslandi og í Bandaríkj-
unum. Prófkostnaður er töluverður
en allir þeir sem hafa lokið flug-
prófi erlendis og vilja fá réttindi til
að fljúga hér á landi þurfa að taka
bæði skriflegt og verklegt próf hjá
Flugmálastjórn og greiða fyrir ís-
lenskt skírteini.
Flestir þeirra sem eru að læra flug
hjá okkur eru um tvítugt en yngsti
nemandinn er 12 ára þrátt fyrir að
geta ekki lokið sólóprófi fyrr en 17
ára. Við erum 9 flugmenn hjá fyrir-
tækinu og kennum á 8 vélum en við
sinnum einnig leiguflugi," segir Ól-
afur.
Unnið er að samræmingu flug-
náms í Evrópu en árið 2001 er stefnt
að því að allt flugnám í Evrópu verði
eins. Því má búast við einhverjum
breytingum á fyrirkomulagi flugn-
áms á Islandi næstu árin.
Flugkennsla fær byr
undir báða vængi
Morgunblaðið/Ásdfs
MATTHÍAS Arngrímsson og Sigurjón Valsson flugkennarar hjá Flugtaki
skóla íslands hafi lokið stúdents-
prófi, en Hjálmar segir að „reynslan
sýni að gæði stúdentsprófa séu mis-
jöfn eftir skólum og oft vanti á að
kunnátta í einstökum undirstöðu-
greinum fyrir flugnám sé fullnægj-
andi. Því hafi inntökuprófum verið
komið á.“
Batnandi atvinnuhorfur
Að sögn Matthíasar Amgrímsson-
ar, aðstoðarskólastjóra hjá Flugtaki,
hafa batnandi atvinnuhorfur flug-
manna haft mikil áhrif á fjölgun flug-
nema. „Síðastliðin tvö ár hefur verið
snarvitlaust að gera hjá okkur. Hér
á íslandi hafa verið ráðnir 40-50 at-
vinnuflugmenn síðan 1994 og í fyrra
sögðu bandarískir fjölmiðlar að
næstu tólf árin þyrfti að ráða 60
þúsund nýja flugmenn í Bandaríkjun-
um, eins eru góðar horfur í fiugi víða
um heim. Allt þetta kallar á fleiri
atvinnuflugmenn.“
Matthías segir að yngsti nemand-
inn hjá Flugtaki sé 16 ára en sá
elsti rúmlega fimmtugur. „í ár út-
skrifum við 8-10 nemendur í hverj-
um mánuði. Nemendur eru hjá ein-
um kennara allan tímann og hann
bókar kennslustundir fyrir þá viku
fram í tímann. Hjá Flugtaki eru 15
kennarar, á 12 vélum, en fyrirtækið
hefur bætt við fiugvélum á hveiju
ári undanfarin ár vegna vaxandi
eftirspurnar eftir flugnámi."
Lagar flug- og lofthræðslu
„Flugnám er góð leið til að losna
Torgið
Skilaskylda
ársreikninga
SKIPTAR skoðanir eru uppi um
hvort atvinnulífið á íslandi sé gegn-
særra en annars staðar. Oft heyr-
ist kvartað yfir því að upplýsinga-
streymi sé lítið í íslensku atvinnu-
lífi og fyrirtækin veiti eins litlar
upplýsingar um rekstur sinn og þau
komast af með. Forráðamenn fyrir-
tækja kvarta oft yfir því að atvinnu-
lífið sé svo lítið að vonlaust sé að
halda nokkrum upplýsingum leynd-
um. Mörg fyrirtæki hafa þó lagt
mikla áherslu á að halda upplýsing-
um um rekstur og afkomu í lág-
I marki.
Töluverðar breytingar hafa þó
orðið á upplýsingamiðlun í atvinnu-
lífinu á undanförnum árum. Mörg
fyrirtæki hafa skráð hlutabréf sín á
markaði og gengist undir skyldur
um að gera helstu lykiltölur úr
rekstri sínum opinberar tvisvar á
ári. Með nýjum hlutafélagalögum
og lögum um ársreikninga hefur
stórt skref verið stigið í þá átt að
| auka upplýsingastreymi um íslensk
| fyrirtæki og ættu lögin, ef vel tekst
i til, að auka viðskiptaöryggi veru-
j lega.
Með lögunum hefur meðal ann-
f ars verið kveðið á um skilaskyldu
r fyrirtækja á ársreikningum sínum.
Samkvæmt reglugerð um skil og
* birtingu ársreikninga eiga öll fyrir-
5 tæki sem lög nr. 144/1994 um árs-
reikninga ná til að skila ársreikning-
5 um sínum til ríkisskattstjóra eigi
síðar en einum mánuði frá því þeir
hafa verið samþykktir, þó aldrei síð-
ar en átta mánuðum eftir lok reikn-
ingsárs. Strangari ákvæði gilda um
fyrirtæki á Verðbréfaþingi jslands.
Þau eiga að senda ársreikninga
sína strax að samþykkt lokinni og
eigi síðar en sex mánuðum eftir lok
reikningsárs. Brjóti fyrirtæki ákvæði
þessarar reglugerðar getur það
varðað sektum.
Samandregnir ársreikningar
Lögin um ársreikninga kveða á
um að öll hlutafélög, einkahlutafé-
lög, samvinnufélög og samvinnu-
sambönd og stærstu félögin með
ótakmarkaða ábyrgð félagsaðila
séu skuldbundin til þess að skila
ársreikningum sínum til ríkisskatt-
stjóra. Þetta þýðir það að mörg
fyrirtæki sem hafa hingað til ekki
kært sig um að birta ársreikninga
sína eru nú skyldug til að gera það.
Hvílir skilaskyldan á herðum fram-
kvæmdastjóra og stjórnar fyrirtæk-
isins.
Þau fyrirtæki sem kæra sig ekki
um að birta ársreikninga sína ein-
hverra hluta vegna, t.d. af sam-
keppnisástæðum, geta fengið
heimild til þess að skila saman-
dregnum ársreikningi í staðinn. Þau
fyrirtæki sem velja þann kostinn
munu þó fá frest fram á haustið
því að enn hefur fjármálaráðuneytið
ekki sett reglur um samandregna
ársreikninga. Ljóst er þó að heimild
til að skila samandregnum reikning-
um mun ekki ná til þeirra fyrir-
tækja, sem fara yfir tvær af eftirfar-
andi stærðarmörkum; þ.e. 200
milljóna króna eign, 400 milljóna
króna rekstrartekjur eða 50 árs-
verk. Þá nær heimildin aldrei til
þeirra félaga, sem hafa skráð hluta-
bréf eða skuldabréf sín á Verð-
bréfaþingi eða leggja engar hömlur
á viðskipti með eignarhluta sína.
Þau fyrirtæki, sem ekki ætla að
birta samandregna ársreikninga,
eiga að skila ársreikningum til Ríkis-
skattstjóra fyrir 31. ágúst. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Ríkisskatt-
stjóra hafa einungis á annað hund-
rað ársreikninga skilað sér. Þetta
verða að teljast litiai heimtur ef
haft er í huga að talið er að um 750
hlutafélög séu á skrá og 7-9 þúsund
einkahlutafélög.
Eftirrekstur með haustinu
Forráðamenn fyrirtækja mega
búast við því að Ríkisskattstjóri fari
að ganga eftir ársreikningum þeirra
fyrirtækja, sem ekki hafa enn skil-
að, með haustinu. Guðmundur
Guðbjarnason, viðskiptafræðingur
hjá Ríkisskattstjóra, segir að emb-
ættið sjái ekki ástæðu til eftirrekstr-
ar fyrr en skýrar reglur um saman-
dregna ársreikninga liggi fyrir. Fyrir-
tækjum verði þá væntanlega gefinn
einhver skilafrestur en að honum
liðnum geti þau búist við sektum.
Skrár yfir atvinnufyrirtæki eru nú
dreifðar víðs vegar um hið opinbera
kerfi en að sögn Guðmundar má
búast við því að skráningin verði
samræmd á næsta ári. Eru uppi
hugmyndir um að þær skrár sem
Hagstofa íslands, Hlutafélagaskrá,
Samvinnufélagaskrá og firmaskrár
sýslumanna annist nú verði sam-
einaðar undir einum hatti.
Samkvæmt umræddri reglugerð
er ríkisskattstjóra jafnframt skylt
að veita aðgang að þeim gögnum,
sem skilað er til embættisins. Þessi
upplýsingaskylda embættisins
kann að vera mörgum forstjóranum
þyrnir í augum og vel má deila um
hvort hún sé réttmæt. Margir hafa
vanist því að þurfa ekki að gefa
öðrum upplýsingar um reksturfyrir-
tækja sinna en hluthöfum og skatt-
yfirvöldum og bregður nú við það
að hver sem er geti fengið afrit af
ársreikningi eða a.m.k. saman-
dregnum ársreikningi fyrirtækisins.
Skilaskylda ársreikninga og upplýs-
ingaskylda Ríkisskattstjóra eru hins
vegar hluti af skuldbindingum ís-
lendinga í tengslum við EES-samn-
inginn. Mikilvægt er að þessar
breytingar gangi fljótt og vel fyrir
sig þannig að sum fyrirtæki í rekstri
sleppi ekki við að skila ársreikning-
um langtímum saman á meðan
reikningar annarra fyrirtækja í sömu
grein liggi frammi öllum til sýnis.
Verður fróðlegt að fylgjast með því
í haust hvernig tekst að kalla inn
ársreikninga þeirra fyrirtækja, sem
hafa enn ekki gert skil.
KJN