Morgunblaðið - 11.08.1996, Síða 1
REYNSL UAKSTUR Á VW VENTO - HASLA SÉR VÖLL VESTRA
— SCANIA HÚDDBÍLL — RADDSKYNJARI í STAÐ TAKKA -
FJALLAHJÓL MEÐ GASDEMPURUM - NÝ VÉL í G-JEPPA
MERCEDES-BENZ - ANDLITSL YFTING Á MONDEO
MEGANE
MEISTARAVERK
RENAULT
Aðeins kr. 849.000,-
T0Oi
rtAMTIOIK BYGCISTÁ HtTOINNI
Tryggðu þér nýjan
fjölskyldubfl núna.
Þýsk gæði á ótrúlega ' ’4 6'' ’ ’4
J a a Nýbýlavegur 2
lágu verði. Síml: SS4 2600
Subaru jeppi á
næsta ári
SUBARU setur á markað í fyrsta sinn jeppa í Banda-
rílgunum á næsta ári. Þótt fyrirtækið eigi að baki langa
sögu í sölu á fjórhjóladrifnum bílum hefur það aldrei
áður framleitt raunverulegan jeppa. Myndin hér að
ofan var tekin nýjum jeppa Subaru en sala á jeppum
í Bandaríkjunum undanfarin ár hefur verið mjög blóm-
leg. Billinn byggir að mörgu leyti á Subaru Impreza.
Hann verður með sítengdu aldrifi og vélin verður 2,5
lítrar að slagrými. Bíliinn er hærri og jeppalegri en
Subaru Outback bíilinn sem er í raun aðeins stóri bróð-
ir Legacy. Aður hafði Subaru einnig kynnt hugmyndir
að blendingi af jeppa og fólksbíl á bílasýningunni í
Frankfurt. Sá bíll kaliast Subaru Streega en óvíst er
með öllu hvort hann verði nokkurn tíma framleiddur.
Hvernig bifreið átt þú?
Hvaða tegund?
Hvað kostaði
* bifreiðin?
8
Hvaða árgerð?
6,1% 6,2%
mtfll
1981 1982- 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996
eðaeldri 1986
NEYSLUKÖNNUN FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR1996. Úrtak 1.200 manns, 882 svömðu.
ÞÝÐI neyzlukönnunarinnar, þ.e. sá hópur þjóðarinnar sem úrtakið var tekið úr, eru allir
(slendingar á aldrinum 14-80 ára. Þetta eru 185.173 einstaklingar, samkvæmt upplýsingum
frá Hagstofu (slands. Hvert prósentustig í könnuninni samsvarar því um 1.850 manns.
Taka verður tillit til skekkjumarka, sem eru á niðurstöðum i könnun sem þessari, þegar
þrósentustig eru umreiknuð i mannfjölda.
20% bifreiða
10-14 ára gamlar
í NEYSLUKÖNNUN sem Félagsvís-
indastofnun Háskóla íslands hefur
gert kemur fram að um 60% þeirra
sem svara eiga eina bifreið og tæp
68% þeirra eiga fjölskyldubíl. Um
fimmtungur á bíl sem er 10-14 ára
gamall. Alls bárust 882 svör og
kváðust 81,3% þeirra eða maka
þeirra eiga bifreið en 18,7% áttu
ekki bifreið.
Upplýsingarnar í neyslukönnun-
inni sem viðkoma bifreiðum eru
margvíslegar og sumar nokkuð
óvæntar. Þannig kemur í ljós að
68,2% þeirra sem eiga bifreið keyptu
hana notaða en 31,8% nýja. 34,6%
eiga fjórhjóladrifna bifreið. Flestir
aka bílum sínum 10.000-14.000 km
á ári, eða 29,7%, 25,1% aka 14.000-
18.000 km, 16,5% aka 18.000-22.000
km á ári, 15,9% innan við 10.000 km
á ári og 12,8% yfir 22.000 km á ári.
83,694 eiga bíl sem gengur fyrir
95 oktana bensíni en 11,4% nota 98
oktana bensín. Aðeins 4,9% eiga bíl
sem gengur fyrir dísilolíu. B
BMW Á HÁLFVIRDI
ÞEIR sem eru ekki vandir að virð-
ingu sinni geta gert reyfarakaup
í Búlgaríu á notuðum BMW bílum.
Sá böggull fylgir þó skammrifi að
bílarnir eru illa fengnir. Lögreglan
þar í landi segir að meira 150
þúsund notaðir bílar haft verið
fluttir inn til Búlgaríu árið 1994,
flestum þeirra hafi verið stolið.
Bílasalar sem versla með slíka
bíla ráða viðskiptavinum sínum
reyndar frá því að flytja bílana
aftur úr landi því lögregluyfirvöld
í öðrum löndum, þar sem eftirlit
með þessum hlutum er meira,
gætu hæglega komist að því að
um þýfi væri að ræða. Margir
gætu þó freistast til þess að reyna
það því hægt er að fá nýlega BMW
bíla eða Opel Vectra á hálfvirði í
landinu.
19 þúsund bílum stoliö
Á síðustu sex árum hefur Búlg-
aría verið að þróast úr kommún-
istaríki í markaðsþjóðfélag og
þessi þróun hefur opnað ný tæki-
færi fyrir einkaframtakið. Lög-
reglan í Búlgaríu segir að mikil
þörf sé á skilvirkara upplýsinga-
kerfi um stolna bíla og strangara
eftirliti með skráningum. Lög í
Búlgaríu eru með þeim hætti að
ekki er hægt að gera upptæka
bíla sem hefur verið stolið ef sá
sem hefur keypt bílinn kveðst ekki
hafa vitað um uppruna hans.
Einnig er mikið um bílþjófnaði
í landinu sjálfu. Fimmti hver glæp-
ur sem þar er framinn er bílþjófn-
aður. Árið 1994 var tæplega 19
þúsund bílum stolið í landinu.
Að sögn lögreglunnar eru stoln-
ir bílar í einhveijum mælum flutt-
ir út til fyrrverandi Sovétríkja,
einkum Moldavíu og Úkraínu. Á
verkstæðum 5 afskekktum byggð-
um Búlgaríu er stolnum bílum
breytt á ýmsa lund svo þeir þekk-
ist ekki aftur, skipt er um skrán-
ingarnúmer, þeir sprautaðir á ný
og vélamúmer eru afmáð og ný
grafin í staðinn sem stemma við
fölsuð útflutningaskjöl. ■