Morgunblaðið - 13.08.1996, Blaðsíða 22
22 C ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hitaveita Suðurnesja
Miklar f ramkvæmd-
ir í undirbúningi
við Svartsengi
STJÓRN Hitaveitu Suðumesja
samþykkti í maí í fyrra, þegar
umræður um álversframkvæmdir
stóðu sem hæst, að hefja skyldi
undirbúning að aukinni rafmagns-
framleiðslu. í framhaldi af þessari
samþykkt fóru af stað athuganir á
því hvort hægt væri að framleiða
að minnsta kosti 15-20 MW meira
rafmagn í Svartsengi í viðbót við
þau 16 MW sem nú eru framleidd.
í byrjun þessa árs var gerð gróf
kostnaðaráætlun fyrir orkuver sem
getur framleitt 20 MW rafmagn
og 50 MW hita og hljóðaði hún upp
á tvo milljarða króna. í henni er
gert ráð fyrir einum 20 MW gufu-
hverfli með tilheyrandi búnaði, svo
sem gufuþétti, kæliturnum og gas-
losurum.
Einnig er gert ráð fyrir röra-
varmaskiptum, sem geta hitað 220
lítra á sek. frá 60 gráðum Celsíus
í 90 gráður Celsíus. Þá er einnig
reiknað með að öll lokahitun fyrir
orkuverin, þ.e. 400 h'trar/sek. frá
90 gráðum C í 115 gráður C verði
í þessu nýja orkuveri, sem kallað
er orkuver 5.
Nú er unnið að frumhönnun slíks
orkuvers hjá Varmaverki hf. en
undirbúningur KKS kóðunar er
unnin á Verkfræðistofunni Afli og
orku, jarðhitavinnsla er hjá Orku-
stofnun, stýritækni hjá Rafagna-
tækni, háspenna hjá Tera og bygg-
ingaverkfræði hjá Verkfræðistofu
Suðumesja. Eftir er að ráða arki-
tekt.
Elsti hluti HS
19 ára gamall
Orkuverin í Svartsengi eru,
orkuver 1, sem framleiðir 2MW
rafafls og 150 lítra/sek af hita-
veituvatni.
Orkuver 2, framleiðir 225
lítra/sek. af hitaveituvatni.
Orkuver 3, framleiðir 6 MW
rafafls.
Orkuver 4, ormat raforkuverið
sem framleiðir samtals 8,4 MW
rafafls.
Nú í haust eru 19 ár, frá því
fyrsta rásin var tekin í notkun.
Nú á tímum er allt annar hugsun-
arháttur í gangi en fyrir 20 árum.
í dag er aðalatriðið nýtni og gæði,
en í upphafi var einungis hugsað
um að koma í gang nægilega mik-
illi framleiðslu með eins litlum til-
kostnaði og mögulegt var.
Á árunum 1989-1990 var byij-
að að ræða allsheijar endurbygg-
ingu á orkuveri 1. Skiljustöðin var
orðin léleg og augljóst, að auka
þyrfti vinnslu úr svokölluðum
gufupúðum til að halda þrýsti-
lækkun í jarðhitakerfinu í skefjum.
Síðsumars 1995 komu upp önnur
sjónarmið, vegna hugmynda um
álver en með nýju orkuveri má
bæta úr ýmsum göllum, sem eru
fyrir hendi í orkuverunum núna,
svo sem léleg gufunýting á vélum
í OVl og OV2, ómöguleg viðhalds-
aðstaða í OVl, plötuvarmaskiptar
í OV2 dýrir í rekstri og fleira.
Kynningar- og
mötuneytishús í hönnun
Unnið er einnig að hönnun
Kynningar- og mötuneytishúss við
orkuver HS í Svartsengi og að
henni lokinni tekur stjórnin
ákvörðun um hvort húsið verði
byggt enda liggi þá fyrir kostnað-
Morgunblaðið/Kr. Ben.
ORKUVER Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi Grindavík er hér
tilkomumikið í kvöldsólinni umlukið gufu sem stígur upp af Bláa
lóninu. Elsti hluti orkuversins er lengst til hægri á myndinni en
Kynningar- og mötuneytishúsið verður staðsett framan við orku-
verið á miðri myndinni milli OV 1 og OV2. Fyrirhugað orkuver
5 verður byggt væntanlega fyrir aftan OVl lengst til hægri.
aráætlun um bygginguna. Hönn-
uðir eru arkitektarnir Gísli Sæ-
mundsson og Ragnar Ólafsson en
Fjarðargata 17
Sími 565 2790
Fax 565 0790
netfang
Ingvarg ©centrum.is
Álfatún - Kópv. Mjög vönduð og
falleg 80 fm fbúð á efstu hæð í litlu fjðlbýli.
Vandaðar innréttingar, parket og flfsar.
FRÁBÆR STAÐSETNING NEÐST I
FOSSVOGSDALNUM. Verð 7,0 millj. 810
Eigum fjölda eigna
á söluskrá
sem ekki eru auglýstar.
Póst- og símsendum
söluskrár um land allt.
Opið virka daga kl. 9-18.
EINBYLI, PAR- OG RAÐH.
Fjóluhvammur-Tvær íbúðir
Glæsilegt 305 fm einbýli, ásamt 50 fm tvö-
földum bílskúr. Aukaíbúð á jarðhæð. Vand-
aðar innréttingar og gólfefni. Fallegt útsýni.
Verö 19,5 millj. 859
Hátún - Álftanes Vel staðsett 139 fm
einb. á einni hæð, ásamt 40 fm bílsk. 4 svefn-
herb. Áhvíl. byggsj. 5,2 millj. Skipti mögu-
leg. Verð 11,9 millj. 733
Miðholt - Tvær íbúðir Nýi. 281 fm
einbýli/tvíbýli. Efri hæð 144 fm og 31 fm bíl-
skúr. Rúml. tilbúin undir tréverk. Neðri hæð
106 fm fullbúin. Áhv. húsbréf 10,4 millj. Verð
16,7 millj. 854
Strandgata - 2 íbúðir. Taisvert end-
urn. 193 fm einbýli/tvíbýli. Hæðin 124 fm Bíl-
skúr 29 fm og ca. 40 fm séríbúð. Verð 11,2
millj. 818
Heiðvangur Vorum að fá fallegt einbýli á
einni hæð með bílskúr og stórum sólskála. Hús
í góðu standi. Arinn. Falleg ræktuð lóð. 848
Lækjarberg Vorum að fá ( einkasölu fal-
lega neðri sértiæð í tvíbýli ásamt bllskúr, alls
ca. 120 fm. Parket á gólfum. Rólegur og góð-
ur staður. Verð 9,5 millj. 878
Skerseyrarvegur Falleg og endurnýjuð
efri sérhæð í tvíbýli. Nýleg útihurð, gler og
gluggar, eldhúsinnrétting, parket, hiti, raf-
magn ofl. Verð 6,4 millj. 863
Hjallabraut Snyrtileg 3ja til 4ra herb.
íbúð í nýmáluðu fjölbýli. Er í dag skipulögð
með 3 svefnherb. Verð 7 millj. 880
Sóleyjarhlíð - Glæsileg Giæsiieg
fullbúin 79 fm 3ja herb. íbúð á efstu hæð í fal-
legu fjölb. Vandaðar innr., parket og flísar.
Áhv. húsbréf 2,9 millj. Verð 8,2 millj. 814
Holtsgata - Laus strax Mjög rúm-
góð og snyrtileg rishæð í þríbýli. Nýlegt gler
og gluggar. LAUS STRAX. Fallegt útsýni.
Verð 5,3 millj. 870
Lækjarberg - Með bílskúr Ný
rúmg. 3ja herb. neðri sérhæð I tvíbýlisbúsi
ásamt bilskúr. Allt sér, þ.m.t. séflóö. íbúð-
in afhendist tiibúin undir tréverk, lóð og
hús fuilbúið. Verð 8,3 millj. 499
Sléttahraun - Laus strax góö
79 fm 3Ja herb. ibúö á 1. hæð i góðu fjöl-
býli. Parket. Áhv. góð lán 3,9 millj.
Grelðslub. 24 þús á mán. Mögul. að taka
góðan bil upp I hiuta kaupverðs. Laus
strax Verö 6,5 mítlj. 210
Stekkjarhvammur Faiiegt raðhús á 2
hæðum ásamt innbyggðum bílskúr, samtals
221 fm. Góðar Innréttingar og gólfefni. Fal-
legt útsýni. Verð 13,5 millj. 864
Dofraberg Fallegt og rúmgott 228 fm
endaraðhús á tveimur hæðum með innb. bíl-
skúr. Áhv. 40 ára húsnæðislán kr. 3,7 millj.
Verð 12,9 millj. 720
Reykjavíkurvegur Gott 96 tm eidra
einbýli, kjallari, hæð og ris. Nýl. eldhús, raf-
magn, hiti o.fl. Verð 8,5 míllj. 840
%
Olduslóð Gott einbýli á 3 hæðum meö
SÉRÍBÚÐ á jarðhæð. Gott viðhald. Falleg,
skógi vaxin lóð, góð staðsetning, frábært
útsýni yfir Hafnarfjörð. Verð 16,5 millj. 874
Hraunbrún Vorum að fá í einkasölu stórt
nýlegt timburhús á steyptum kjallara með inn-
byggðum bílskúr, alls 239,3 fm. Vandað og
vel byggt hús. Sérlega góð staðsetning. Verð
16,5 millj. 879
Fábært verð Stekkjarhvammur Gott
220 fm endaraðhús ásamt 24 fm bílskúr. 6
svefnherb. Eign í góðu ástandi að utan sem
innan. Frágengin hornlóö. Ótrúlega hag-
stætt verð 11,9 millj. 228
Traðarberg Fallegt og rúmgott parhús á
tveimur hæðum með innb. bílsk., alls 205 fm
Áhv. gamia húsnstjórnarlánið 3,7 millj. Skipti
á minna mögul. Verð 13,9 millj. 783
SERHÆÐIR
Ölduslóð Rúmgóð 80 fm neðri hæð í tví-
býli ásamt 35 fm bílskúr. Góður garður með
suöurverönd. Verð 7,9 millj. 858
Arnarhraun Vorum að fá í sölu góða efri
sérhæð í þríbýli, 136,2 fm. Allt sér. Fallegt út-
sýni. Hagstætt verð 9,2 millj. 868
Skúlaskeið 3ja herb. efri hæð með auka-
herb. í kjallara, á mjög góðum og rólegum
stað. Nýlegar innréttingar, gluggar endurnýj-
aðir. Verð 6,2 millj. 867
Kelduhvammur Góð rúmlega 100 fm,
4ra herb. sérhæð í þríbýli. Sérinngangur. Gott
útsýni. Verð 8,2 millj. 447
Grænakinn Góð 106 fm efri sérhæð og
ris ásamt 32 fm bílskúr í tvíbýli. Húsið er klætt
á tvær hliðar. Verð 8,8 millj. 806
Hólabraut Sórstaklega vönduð og góö
120 fm neðri sérhæð í tvíbýli. Nýtt rafmagn,
eldhús, parket, gluggar, viðgert að utan,
o.fl. Áhv. hagstæð lán 4,5 millj. Verð 9,2
millj. 805
4RA HERB. OG STÆRRA
Álfaskeið Björt og rúmgóð 4-5 herbergja
ENDAÍBÚÐ á 2. hæð í góðu fjölbýli, ásamt 24
fm nýl. bílskúr. SKIPTI Á MINNA. Verð 8,2
millj. 412
Breiðvangur - Laus strax góö og
snyrtileg 133 fm 5 til 6 herb. íbúð á 2. hasð í fjöl-
býli. Nýtt baðherb., parket. Verð 8,7 millj. 847
Hjallabraut Falleg 4ra til 5 herb. íbúð á
l.hæð, í góðu fjölbýli. Góðar innréttingar,
parket, flísar. Suðursvalir. Verð 8,5 millj. 93
Hjallabraut Vorum að fá í einkasölu rúm-
góða og fallega 3ja til 4ra herb. íbúð í nýmál-
uðu fjölbýli. Verð 7,4 millj. 866
Breiðvangur Rúmgóð 5 til 6 herb. íbúð
ásamt 43 fm, bílskúr á efstu hæð í góðu fjöl-
býli. Frábært útsýni. Verö 9,5 millj. 34
Hringbraut - Með bílskúr góö 4ra
herb. íbúð í litlu fjölbýli, ásamt bílskúr. Rólegur
og góður staður. Húsið er nýmálað og lítur vel
út. Verð 8,6 millj. 347
Hringbraut - Laus strax Mikið end-
urnýjuð miðhæð í nýlega viðgerðu og máluöu
þríbýli. Vel staðsett við Flensborg. Áhv.
góð lán 3,6 millj. Verð 6,9 millj. 110
3JA HERBERGJA
Suðurbraut 3ja herb. íbúð í nýklæddu
húsi, ásamt bílskúr. Til afhendingar strax. Gott
verð. 5,9 millj. 877
Suðurvangur Glæsileg endumýjuð 94
fm 3ja til 4ra herb. íbúð á 2. hæð í góðu fjölb.
Nýjar innréttingar, tæki o.fl. Áhv. góð lán
4,2 millj. Verð 7,2 millj. 808
Fagrakinn Góð rishæð í þríbýli. 2 svefn-
herb. Þvottahús á hæðinni. Áhv. 40 ára hús-
næðislán 1.550 þús. Verð 5,7 millj. 801
Miðvangur - Lækkað verð góö 66
fm 3ja herbergja endaíbúö í lyftuhúsi. Hús-
vörður. öll þjónusta og samgöngur innan seil-
ingar. Áhv. 40 ára byggsj. lán 2,3 millj.
Hagstætt verð 5,6 millj. 188
2JA HERBERGJA
Álfholt Falleg og björt 66 fm íbúð á 3 hæð í
góðu fjölbýli. Góð eldhúsinnrétting, fallegt
útsýni, stórar suðursvalir. Verð 5,9 millj. 865
Skerseyrarvegur - Laus utii og fai-
leg 48 fm neðri sérhæð ásamt hlutdeild í
þvottahúsi. Sér inngangur. Afgirtur og gró-
inn garður. Áhv. 2,2 millj. Verð 4,8 millj. 828
Dofraberg Rúmgóð 2ja herb. íbúð í ný-
legu fjölbýli. Parket á gólfum. Verð 6,2 millj.
875
Sléttahraun - Laus strax góö 50
fm 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli.
Áhv. 40 ára húsnæðislán 3,0 millj. Verö 5,2
millj. 841
Miðvangur Vönduð og rúmgóð 64 fm
íbúð á besta stað í Norðurbænum. Góðar
innréttingar og parket. Frábær staðsetning
og útsýni. Verð 6,0 millj. 796
Hjallabraut-Þjónustufbúð
Eldri borgarar. Nýl. falleg 2ja herb. íbúð á
3.hæö. Vandaðar innréttingar. Parket.
Laus strax. Verð 7,4 mlllj. 831
Hraunstígur - Laus strax góö 53
fm 2ja herb. sérhæð í þríbýli. Góð staðsetn.
í endagötu. Parket. Áhv. góð lán 2,5 millj.
Verð 5,0 millj. 716
húsið hefur tekið nokkrum breyt-
ingum frá verðlaunatillögu arki-
tektanna, en þó ekki stórvægiieg-
um, og er nú 1100 fermetrar að
grunnfleti. Mestu munar um
tæknirými í kjallara, sem var ófull-
nægjandi samkvæmt verðlaunatil-
lögunni, svo og nokkur stækkun
á eldhúskjarna.
Verkfræðistofa Suðurnesja í
Keflavík annast hönnun burðaþols
og lagna, annarra en raflagna en
hönnun þeirra annast Rafmiðstöð-
in í Keflavík. Fleiri hönnuðir munu
koma að þessu síðar.
Framtíðaruppbygging
við Bláa lónið
Tillögur að framtíðaruppbygg-
ingu við Bláa lónið á nýjum stað
í hrauninu þar sem lónið hefur
breitt úr sér á liðnum árum, voru
kynntar í stjórn Bláa lónsins í
vetur. Frumhönnun liggur fyrir og
er áætlaður kostnaður 650-700
milljónir króna við fyrstu tvo
áfangana af þremur. Þeir eru
meðferðaraðstaða fyrir sjúklinga
og vatnsgarður með veitingaað-
stöðu, þar sem hægt verður að
dvelja daglangt, auk ráðstefnu-
aðstöðu. Þriðji áfanginn er mikil
hótelbygging, sem reist verður síð-
ar. Vegagerðin hefur unnið að
lagningu nýs vegar að nýja bygg-
ingasvæðinu í hrauninu undan-
farna mánuði og er hann á loka-
stigi.
M Ingvar - Jónas - Kári á§=
J
TRYGGÐU
PENINGANA
— KAUPTU
FASTEIGN
Félag Fasteignasala