Morgunblaðið - 14.08.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JltogutiiiIiiMto
D
1996
MIOVIKUDAGUR 14.ÁGÚST
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Reuter
Blindur kylfingur
fór holu í höggi
KYLFINGURINN Graham Salmon frá Englandi
gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í annað
sinn á ferlinum nú fyrir skömmu. Það væri e.t.v.
ekki í frásögur færandi ef Salmon hefði ekki
þjáðst af hvítblæði á undanförnum árum og
væri auk þess algjörlega blindur á báðum augum.
Salmon missti sjónina tveggja ára að aldri og
hefur því aldrei séð golfbrautir, kylfur né kúlur
en það hefur þó ekki aftrað honum frá því að
stunda þessa skemmtilegu íþrótt af miklum
krafti síðustu ár.
Golfið er þó ekki eina iþróttin, sem Salmon
hefur reynt fyrir sér í því hann er mikill afreks-
maður á hlaupabrautinni, prýðisgóður skiðamað-
ur og þykir auk þess vel liðtækur bæði í knatt-
spyrnu og krikkett. Kappinn undirbýr sig nú af
krafti fyrir Opna breska meistaramótið fyrir
blinda, sem fram fer á írlandi á næstunni, og
mun hann svo halda á heimsmeistaramótið í
blindragolfi í Tókýó i september.
Þegar Salmon er spurður hvernig hann fari
að því að leika golf blindur á báðum augum
svarar hann: „Þetta er í rauninni mjög einfalt.
Kylfusveinn stillir upp kúlunni, lýsir fyrir mér
golfbrautinni, velur fyrir mig kylfu, beinir kylfu-
hausnum að kúlunni og svo sé ég bara um af-
ganginn."
„Draumalið IV“ á
heimsmeistaramótið
ÞRÁTT fyrir óánægju margra körfuknattleiks-
unnenda með að stjörnum bandarísku NBA-
deildarinnar skuli vera leyfð þátttaka með lands-
liðinu á stórmótum hyggst bandaríska körfu-
knattleikssambandið engu að síður halda fast
við þá ákvörðun að senda sitt sterkasta lið á
heimsmeistaramótið í Aþenu.
Margir halda þvi fram að spennan hafi algjör-
lega horfið úr íþróttinni með tilkomu „Drauma-
liða I, II og ID“ en Craig Miller, talsmaður
bandariska körfuknattleikssambandsins, segir
það einfaldlega fáránlegt að meina mönnum
þátttöku á stórmótum fyrir það eitt að vera of
góðir og muni því heimurinn bera augum
„Draumalið IV“ í Aþenu.
Sex úr 1. deild í bann
SEX leikmenn úr 1. deild karla voru úrskurðað-
ir í leikbann á fundi aganefndar KSÍ í gær og
verða í leikbanni er 13. umferð verður leikin á
föstudagskvöldið og á laugardag. Þetta er Ólaf-
ur Stígsson, Fylki, Einar Þór Daníelsson, KR,
Alexander Högnason, ÍA, Sigurður Grétarsson,
Val og Leifursmennimir Baldur Bragason og
Slobodan Milisic. Allir eru þeir úrskurðaðir í
bann vegna fjögurra gulra spjalda sem þeir
hafa fengið í undanförnum leikjum.
Newcastle
sigraði
HANDKNATTLEIKUR
Jón Kristjánsson þjálfari Valsmanna ekki hrifinn af því að fara til Úkraínu
Nafnið hljómar vel
LIÐ um gjörvalla Evrópu leggja
nú lokahönd á undirbúning fyrir
komandi keppnistímabil. Þijú af
þekktustu ensku liðunum voru í
sviðsljósinu í gærkvöldi; New-
castle, sem steinlá fyrir Man-
chester United á Wembley á
sunnudag (0:4)í leik um Góðgerð-
arskjöldinn, sigraði Anderlecht í
Belgíu, 2:1, með mörkum Faust-
ino Asprilla og David Ginola en
Man. Utd. tapaði hins vegar á
heimavelli sínum, Old Trafford,
0:1 fyrir Inter Milan þar sem
Chilebúinn Ivan Zamorano gerði
eina markið. Þá tapaði Arsenal
fyrir 3. deildarliði Northampton,
1:3 á útivelli. Arsenal rak stjór-
ann Bruce Rioch í fyrradag
vegna slakrar útkomu í æfinga-
leikjum en það virtist ekki fara
vel í fyrrum lærisveina hans. A
myndinni að ofan er dýrasti
knattspyrnumaður heims, Alan
Shearer, kominn framhjá Suvad
Katana hjá Anderlecht í gær.
DREGIÐ var í Evrópukeppni
félagsliða í handknattleik í gær
og má segja að tvö íslensku
liðanna hafi verið tiltölulega
heppin, KA og Stjarnan, en
Valur og Haukar heldur óhepp-
in. Valur mætir Schachtjor
Donetsk frá Úkraínu, Haukar
leika við Martve Tbilisi frá Ge-
orgíu, Stjarnan við Hirschmann
frá Hollandi og KA við Amiticia
Zurich frá Sviss. Leikirnir fara
fram 12. og 19. október.
Eg veit akkúrat ekkert um þetta
lið og sá sem sagði mér frá
þessu gat ekki einu sinni borið nafn-
ið fram,“ sagði Jón Kristjánsson,
þjálfari Vals í gær. „Hvað segirðu?
Nafnið hljómar vel,“ sagði hann
síðan þegar búið var að segja hon-
um að Valur ætti að mæta Shacht
Donetsk frá Úkraínu. „í alvöru tal-
að, þá er þetta enginn draumur,
bæði dýrt ferðalag og sjálfsagt erf-
iðir andstæðingar," sagði Jón. Þess
má geta að Shacht Donetsk komst
í úrslit í EHF-keppninni í fyrra, en
tapaði fyrir Granolers frá Spáni.
KA-menn geta verið nokkuð sátt-
ir við að lenda á móti liði frá Sviss.
„Þetta er flott, en ég veit ekki al-
mennilega hvaða leikmenn eru í lið-
inu. Ég veit að þetta verður erfitt
og ég tel í fljótu bragði um helm-
ings líkur á að komast áfram. Hand-
boltinn í Sviss er á uppleið og þetta
verður erfitt, það er alveg á hreinu,"
sagði Alfreð Gíslason þjálfari KA.
Stjarnan var trúlega heppnust
þegar dregið var í gær. „Ég get
ekki verið annað en sáttur við þetta.
Kostnaðurinn verður í lágmarki því
það er varla hægt að fara rriikið
styttra í þessari keppni, en því mið-
ur hefur það oft verið höfuðverkur
í handboltanum hversu dýrt er að
koma sér í þessa leiki í Evrópu-
keppninni," sagði Valdimar Gríms-
son þjálfari Stjörnunnar í gær. „Þó
svo Hollendingar hafi ekki verið
með mjög sterkt landslið hafa þeir
oft verið með sterk félagslið því það
eru margir leikmenn frá gömlu
Júgóslavíu sem leika þar. Síðast
þegar ég lék gegn hollenska lands-
íiðinu voru margir ungir og stórir
strákar að koma inn í liðið. Ég veit
samt ekki hversu sterkt þetta lið
er, en við stefnum ótrauðir á að
komast áfram,“ sagði Valdimar.
„Er ekki allt í lagi að fara til
Georgíu?" spurði Sigurður Gunn-
arsson þjálfari Hauka og sagðist
alls ekki ósáttur. „Ég held samt að
þetta hljóti að vera frekar dýrt
ferðalag og ég veit líka að þarna
austurfrá eru sterk lið, en ég hef
ekki hugmynd um hversu sterkt lið
þetta er. Við Haukamenn tökum
þessu vel og það vakir að sjálfsögðu
fyrir okkur að komast áfram."
KIMATTSPYRNA: FIMM MÖRK í SÍÐARIHÁLFLEIK OG ÍSLAND VANN MÖLTU 6:0 / D3