Morgunblaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
3M**0unMaM<
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FRIÐUR FRAM AÐ
LOKALAUSN
NIÐURSTAÐA fundar embættismanna frá íslandi og
Danmörku, um ágreining ríkjanna varðandi mörk
lögsögu íslands og Grænlands og íslands og Færeyja, er
jákvæð. Það er raunsæ greining á gangi mála, að auknar
veiðar á hafinu milli íslands og Grænlands geti valdið
árekstrum, fyrst mörk lögsögu landanna eru á annað borð
umdeild.
Það ber því að fagna því að yfirvöld í báðum ríkjum
stefna að því að finna varanlega lausn á deilunni um lög-
sögumörkin. Slík lausn hlýtur að fela í sér endanlegt sam-
komulag um það, hvar lögsögumörkin liggi og að engin
„grá svæði“ verði þar af leiðandi lengur til.
Mikið er til vinnandi að finna lausn á þessu máli. Það
er auðvitað ófært að standa í deilum við jafnnánar vina-
og grannþjóðir og Dani, Grænlendinga og Færeyinga. ís-
lendingar mega líka tæplega við því að fjölga fiskveiðideil-
um sínum við nágrannaríki.
Undir það skal tekið með Halldóri Ásgrímssyni utanríkis-
ráðherra að æskilegast er að fara samningaleið í þessu
máli. Á það ber hins vegar að líta að ríkin hefur greint á
um afmörkun fiskveiðilögsögunnar i rúma tvo áratugi og
lausn hefur ekki fundizt. Það kann því að reynast nauðsyn-
legt að vísa málinu til úrskurðar gerðardóms eða alþjóða-
dómstóls. Slíkt þarf ekki að vera óæskilegt; tilvist slíkra
dómstóla er til þess fallin að skapa skýrar línur í samskipt-
um ríkja og afstýra árekstrum. Sú leið kann jafnframt að
hraða lausn málsins, sem er oi’ðin afar brýn, einmitt í ljósi
aukinna veiða á hafinu milli íslands og Grænlands.
Fram að því að varanleg lausn finnst, með einum eða
öðrum hætti, hljóta bæði Island og Danmörk og heima-
stjórnirnar í Færeyjum og á Grænlandi að kappkosta að
tryggja að ekki komi til átaka á lögsögumörkum.
ÞEN SLUMERKI
AUGLJÓST er að nokkurrar þenslu gætir í efnahagslif-
inu, þótt hún sé ekki á hættulegu stigi. Full ástæða
er þó til þess að vera á varðbergi, því hörmulegt væri að
mesti efnahagslegi ávinningur landsmanna undanfarin ár,
sigurinn yfir verðbólgunni, glataðist næstu misserin. Flest-
ir íslendingar mega ekki til þess hugsa, að verðbólgan
komist á skrið aftur, því afleiðingar hennar fyrir atvinnu-
líf og heimili eru mönnum enn í fersku minni.
Útreikningur á vísitölu neyzluverðs í ágústbyrjun sýndi,
að hún hefur hækkað um 0,6% miðað við júlímánuð. Það
er alltof stórt stökk á einum mánuði, eða sem svarar til
rúmlega 8% verðbólgu á ári. Hins vegar er ekkert sem
bendir til þess að svo mikil hækkun vísitölunnar haldi áfram
næstu mánuði, þvert á móti spáir Seðlabankinn því, að
úr verðbólguhraðanum dragi það sem eftir lifir ársins.
Hækkun vísitölunnar í ágústbyrjun stafar fyrst og fremst
af 52% hækkun á kartöflum, sem svarar til 0,18% hækkun-
ar vísitölunnar, sem er ótrúlega. mikið stökk vegna einnar
vörutegundar. Hækkun á öðru grænmeti og ávöxtum nem-
ur 3,8%, sem veldur 0,09% hækkun. Þessar hækkanir á
verði kartaflna og grænmetis nema alls 0,27% eða nær
helmingi af vísitöluhækkuninni. Útreikningur hennar á sér
stað einmitt þegar ný uppskera er að koma á markaðinn
og að venju er verðið þá í algjöru hámarki. Þetta leiðir
hugann að því, hvort ekki sé réttlætanlegt að jafna út
slíkar árstíðasveiflur við vísitöluútreikninginn til að koma
í veg fyrir rykki og skrykki vísitölunnar. Það kæmi í veg
fyrir óþarfa ókyrrð á fjármálamarkaði.
Verðbólgan undanfarna tólf mánuði er 2,6% og hefur
farið heldur vaxandi og er meiri en í helztu viðskiptalönd-
um okkar. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnun-
ar, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að við eigum
að spyrna við fótum, þegar verðbólgan er farin merkjan-
lega yfir 2%. Hann sagði ennfremur:
„Það eru ákveðin einkenni, sem benda til þess að þjóð-
arbúskapurinn sé nokkuð nálægt mörkum þess, sem sam-
rýmist stöðugleika." Þórður benti á, að þjóðarútgjöldin
aukist hraðar en þjóðartekjurnar. Út frá skynsemissjón-
armiðum mæli allt með því að afkoma ríkissjóðs verði
bætt verulega, enda sé ríkisfjármálastefnan hagkvæmasta
tækið til þess og styðji markmiðin sem sett hafa verið um
stöðugleika í verðlagsmálum og jafnvægi í viðskiptum við
útlönd.
ísland o g Danmörk leita varanlegrar lausnar í deilu um lögsögumörk
Ein leið að
vísa deilunni
til þriðja aðila
ísland o g Danmörk hyggjast nú leita varan-
legrar lausnar á ágreiningi sínum um lögsögu-
_
mörk. Olafur Þ. Stephensen segir að þrauta-
lendingin geti orðið að vísa málinu til úrskurð-
ar alþjóðlegs dómstóls eða gerðardóms.
ÍSLAND og Danmörk hyggjast nú
leita varanlegrar lausnar á ágrein-
ingi um mörk fiskveiðilögsögu ís-
lands og Grænlands og íslands og
Færeyja. í viðræðum fulltrúa ríkj-
anna í Reykjavík i gær komust
menn að þeirri niðurstöðu að líkur
hefðu aukizt á árekstrum á svæðinu
milli Islands og Grænlands vegna
aukinna loðnuveiða þar og óvíst sé
að það fyrirkomulag, sem hingað
til hefur verið við lýði í samskiptum
ríkjanna, þ.e. að gera hvort öðru
viðvart hyggist þau taka skip á hin-
um umdeildu svæðum, dugi til að
bregðast við breyttum aðstæðum.
Hætta á árekstrum
vegna aukinna veiða
í yfirlýsingu þeirri, sem gefin var
út að loknum viðræðum landanna
í gær, segir að þær hafi snúizt um
„afmörkun fiskveiðilögsögu og
landgrunns landanna“. Viðræðurn-
ar hafa því í raun gengið lengra
en rætt var um fyrir fundinn, en
þá var við það miðað að viðræðurn-
ar snerust um þann ágreining, sem
upp hefði komið varðandi veiðirétt
og framkvæmd landhelgisgæzlu á
umdeildum svæðum á lögsögu-
mörkunum, en ekki um lögsögu-
mörkin sjálf. Eins og fram hefur
komið er rót deilunnar sú, að Danir
viðurkenna ekki Kolbeinsey og
Hvalbak sem grunnlínupunkta ís-
lenzku efnahagslögsögunnar.
í viðræðunum var hins vegar
rætt um sjálf lögsögumörkin, og
skýring gefín á því í yfirlýsingunni:
„í ljósi aukinna veiða á svæðinu
milli Grænlands og íslands að und-
anförnu, sem gera má ráð fyrir að
haldi áfram, telja aðilar líkur hafa
aukizt á árekstrum sem
dönsk/grænlenzk og íslenzk stjórn-
völd gætu þurft að hafa afskipti af.
Aðilar telja óvíst hvort það fyrir-
komulag á samstarfi, sem hingað til
hefur verið við lýði í samskiptum
þeirra á þessu sviði, dugi til að bregð-
ast við hinum breyttu aðstæðum.
í ljósi framangreinds telja aðilar
nauðsynlegt að leita frekari leiða
til að fínna varanlega lausn á
ágreiningsmálum þeirra.“
Hér er vísað til þess, að dönsk
skip hafa að undanförnu sýnt mjög
aukinn áhuga á loðnuveiðum í
grænlenzkri lögsögu - og á „gráa
svæðinu“ svokallaða norður af Kol-
beinsey - meðal annars vegna nið-
urskurðar síldarkvóta Dana í Norð-
ursjó. Það „fyrirkomulag á sam-
starfi“, sem vísað er til, er væntan-
lega sú regla, sem sammælzt var
um á embættismannafundi árið
1988 að gera viðvart áður en skip
hins ríkisins yrðu tekin, til þess að
reyna að afstýra árekstrum. Hingað
til hafa dönsk og færeysk skip, sem
reynt hafa að veiða á gráu svæðun-
um, ævinlega hlýtt skipunum Land-
helgisgæzlunnar um að hafa sig á
brott og þannig í raun virt túlkun
Íslands á því, hvar lögsögumörkin
liggja. Nú virðast dönsk stjórnvöld
ekki treysta sér til að tryggja slíkt
í framtíðinni.
í yfirlýsingunni, sem utanríkis-
ráðuneytið sendi frá sér, kemur
fram að á næstu dögum muni
stjórnvöld landanna athuga þá
kosti, sem séu fyrir hendi í málinu,
og verða í nánu sambandi til að
undirbúa næsta fund ríkjanna, sem
haldinn verður í Kaupmannahöfn í
byijun september. Þar kemur hins
vegar líka fram að á fundinum í
Reykjavík í gær hafi báðir aðilar
haldið fast við grundvallarréttar-
stöðu sína.
Úrskurður þriðja aðila
ekki útilokaður
Haldi menn áfram „fast við
grundvallarréttarstöðu sína“ er ekki
víst að áframhaldandi samningavið-
ræður skili þeirri varanlegu lausn,
sem sótzt er eftir, þ.e. samkomulagi
um lögsögumörkin. Þrautalendingin
getur því orðið að skjóta málinu til
alþjóðlegs dómstóls, til dæmis hins
nýja Hafréttardóms, eða til sérstaks
gerðardóms, eins og heimild er til
í hafréttarsamningi Sameinuðu
þjóðanna. Rifja má upp í þessu sam-
bandi að eftir áralangt þref var
deilu Noregs og Danmerkur um lög-
sögumörk milli Grænlands og Jan
Mayen vísað til Alþjóðadómstólsins
í Haag, þar sem hvorugur fékk
ýtrustu kröfum sínum framgengt.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segist fremur kjósa samn-
ingaleiðina. „Það liggur ljóst fyrir
að ef menn vilja komast hjá árekstr-
um til frambúðar, er tvennt að gera,
annað hvort að semja um málið eða
vísa því til þriðja aðila ef þeir koma
sér ekki saman. Að mínu mati er
skynsamlegra að reyna samninga-
leiðina en ég útiloka ekki hina leið-
ina,“ segir ráðherra í samtali við
Morgunblaðið.
„Skilningur“ um
samkomulagið frá 1988
Utanríkisráðherra segir að við-
ræðurnar við Dani í gær hafi verið
gagnlegar. „Það er alltaf gagnlegt
að ræða saman um ágreiningsmál.
Staðan hefur skýrzt mikið og það
er skilningur á milli aðila um það
hvað menn voru að gera 1988. Sá
ágreiningur, sem þar hefur komið
upp, hefur fyrst og fremst verið
framkallaður af fjölmiðlum í Dan-
mörku,“ segir Halldór.
Aðspurður hvort hann líti svo á
að Danir hafi fallizt á túlkun íslend-
inga á hinu óformlega samkomulagi
frá 1988, segir Halldór: „Ég tel að
við höfum verið með rétta túlkun á
því allan tímann og að skjalið sem
slíkt skýri það.“
Skjalið, sem um ræðir, hefur nú
verið gert opinbert og er lausleg
þýðing þess birt hér að neðan. Hall-
dór bendir á að 2. lið plaggsins
beri að skoða í ljósi þess að á þess-
um tíma hafi verið rætt um að
Grænlendingar kæmu inn í loðnu-
samning íslands og Noregs og öðl-
uðust þannig veiðirétt í íslenzkri
lögsögu. „Þá var ekki reiknað með
veiðum danskra skipa á þessu
svæði, heldur fyrst og fremst
danskra og grænlenzkra,“ segir
ráðherra.
Aðspurður hvort íslendingar séu
á annað borð til viðræðu um að
mörk fiskveiðilögsögunnar geti tek-
ið breytingum, segir Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra að ekki
hafi verið litið svo á að samtölin
við Dani eigi að snúast um það.
„Við verðum að sjá hvert þessar
umræður leiða. Það er ljóst að hvor
þjóð hefur sinn skilning á málinu
og afstaða okkar hefur ekkert
breytzt að því leyti. Auðvitað er
æskilegt að þjóðir, sem hafa verið
svona nánar, geti rætt út um mál
eins og þessi,“ segir Þorsteinn.
Samkomulagið frá
1988 gert opinbert
HIÐ óformlega samkomulag,
sem gert var á fundi íslenzkra
og danskra embættismanna í
Reykjavík, 24. og 25. nóvember
1988, hefur nú verið gert opin-
bert. Texti þess fer hér á eftir í
lauslegri þýðingu úr ensku.
„Fundargerð (minutes) frá
samræðum í Reykjavík 24. og 25.
nóvember 1988.
1. Aðilar áttu gagnlegar við-
ræður um mál, sem tengjast af-
mörkun fiskveiðilögsögu og land-
grunnssvæða, sem heyra undir
landsvæði hvors um sig (ísland-
Grænland og Ísland-Færeyjar).
2. Samræðurnar voru einkar
gagnlegar að því leyti að þær
skýrðu grundvallaratriði málsins
og þrátt fyrir að aðilar hafi hald-
ið fast við afstöðu sína, komust
þeir einnig að þeirri niðurstöðu
að hægt væri að hafa stjórn á
aðgerðum á umdeildu svæðunum
með samstarfi milli yfirvalda,
sem málið varðar með beinum
hætti.
3. í þessu skyni samþykktu
aðilar að gera hvor öðrum við-
vart um allar ráðagerðir um að
beita fullnustuaðgerðum hvor
gagnvart öðrum á umdeildu
svæðunum.
4. Loks samþykktu aðilar að
taka efni málsins til athugunar
með hæfilegu millibili, þar til
forsendur væru fyrir endanlegri
lausn þess.“
MIHUTES
£rom
Consultations be.ld xn Reykjavik on 24 and 25 November 1988
i. The parties held constructivc deliberations on qimstions
rolating Lo tho delimitation o£ fr.he fishing zones and con-
tinental shclf areas appertaining to their respective terri-
torias (iceiand-Greenland and Iceland-Faroe Is.lands).
2. The diöcuasions providcd a most useful cl.arification of
thc bar.ic iasues involveá and althcugh the parties main-
tained their respcctive positions they also found that acti
vities in the areas in dispute could be managed through
cooperation hetwecn the authorities directly concerned.
3. To this effect Lhe parties agreed to inform e.ach other
of any plans to exorcise enforccment roeasures vis á vis each
other in the disputed areas.
4. Finally the parties agrsed co keep the subject roatter
under rcview at appropriate intnrvals until fr.he issue was
ready for final settlement.
FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1996 29
LÆKNADEILAN
Læknar verði
til taks í neyðar-
tilfellum
STARFSHÓPUR heilbrigðisyfír-
valda óskaði eftir því við Lækna-
félag íslands og Félag íslenskra
heimilislækna að læknar verði til
taks í neyðartilfellum á stöðum
þar sem læknislaust er og ástand-
ið er talið verst, vegna uppsagna
heilsugæslulækna, þ.e.a.s. á
Kirkjubæjarklaustri og Höfn og
á norðausturhorni landsins, Þórs-
höfn, Raufarhöfn og Kópaskeri.
Stöður lækna auglýstar
á föstudag
Læknar féllust á þetta og var
í gær unnið að því að fá lækna
til að vera til taks á þessum stöð-
um, að sögn Kristjáns Erlends-
sonar, skrifstofustjóra í heil-
brigðisráðuneytinu.
Ákveðið hefur verið að aug-
lýsa stöður þeirra heilsugæslu-
lækna sem hafa látið af störfum
á föstudag. Birt verður ein aug-
lýsing yfír lausar stöður lækna
á heilsugæslustöðvum utan
Reykjavíkur á vegum heilbrigðis-
ráðuneytisins en heilsugæslu-
stöðvar í Reykjavík standa sjálf-
ar að auglýsingu vegna lækna á
því svæði. Aðspurður sagðist
Kristján telja víst að allar stöð-
urnar yrðu auglýstar og að ekki
væri ágreiningur við einstakar
heilsugæslustöðvar um birtingu
þessara auglýsinga.
Heilbrigðisráðherra hefur
framlengt uppsagnir átta hér-
aðslækna til mánaðamóta, en
þær áttu að taka gildi í dag.
Árangurslaus sáttafundur
DEILUAÐILAR héldu árangurslausan sáttafund í gær. Katrín
Fjeldsted, formaður Félags íslenskra heilsugæslulækna, Gunnar
Ingi Gunnarsson, formaður samninganefndar Læknafélagsins og
fulltrúar í samninganefnd læknanna bera saman bækur sínar í
húsnæði ríkissáttasemjara.
Alyktað um uppsagnir heilsugæslulækna
Engin læknavakt frá
Neskaupstað til Selfoss
AHUS
Flateyri (+
og Þingeyri
Djúpivogur
Heilsugæslustö&yar:
Mi&bæjarstöb MA B læknar
Hraunberg gi 1 læknir
19 heimilislæknar
utan heilsug.stö&va
Vestmannaeyjar
§ Lceknar að störfum - sögðu ekki upp
(+] Sjúkrahús ú statinum
ATH. Lceknar sinna neybartilfellum ó öllum stöbum
þar sem heilsugœslustöbvar eru starfandi
Hvar eru læknar að störfum?
EKKI er læknislaust á öllum
heilsugæslustöðvum því víða eru
heilsugæslulæknar að störfum,
sem ekki sögðu upp 1. ágúst. Auk
þess er læknisþjónusta veitt á
sjúkrahúsum. Þá er reynt að
tryggja að læknar séu sem víðast
til staðar í neyðartilfellum. Á
yfirlitinu má sjá hvar læknar eru
að störfum, en það er byggt á
upplýsingum sem fengust í heil-
brigðisráðuneytinu.
BORIST hafa fjölmargar ályktanir
frá heilsugæslustöðvum á landinu á
undanförnum dögum þar sem skor-*
að er á samninganefnd ríkisins og
samninganefnd Læknafélags ís-
lands að leysa yfirstandandi lækna-
deilu hið fyrsta með öllum tiltækum
ráðum.
Stjórn heilsugæsluumdæmanna
Reykjavík lýsir áhyggjum sínuir
vegna þess alvarlega ástands seir
skapast hefur vegna uppsagna
heilsugæslulækna.
Neyðarástand skapast
smám saman
Heilbrigðis- og öldrunarráð Aust-
ur-Skaftafellssýslu, lýsir þungum
áhyggjum vegna þess neyðar-
ástands sem það segir að sé smám
saman að skapast í landinu.
„Næstu daga skapast það ástand
að læknisvakt verður ekki á svæð-
inu frá Neskaupstað til Selfoss.
íbúar á Suð-Austurlandi þurfa
því að leita um mörg hundruð kíló-
metra veg eftir læknishjálp í neyð-
artilvikum,“ segir í ályktun heil-
brigðis- og öldrunarráðsins.
Álag á starfsfólk
ekki viðunandi
Stjórn og starfsfólk Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Hellu hefur sent frá
sér yfirlýsingu. I henni er fullyrt
að álag á starfsfólk stöðvarinnar
sé ekki viðunandi og aðeins sé tíma-
spursmál hvenær upp komi alvarleg
atvik sem rekja megi til kjaradeil-
unnar.
Hjúkrunarfræðmgum og starfs-
fólki sagt upp störfum í Lágmúla
HEILSUGÆSLULÆKNAR og
rekstraraðilar Heilsugæslunnar í
Lágmúla 4 sögðu fímm hjúkrunar-
fræðingum og öðru starfsfólki upp
störfum með þriggja mánaða fyrir-
vara 1. júní sl. Sigurður Öm Hekt-
orsson, einn heilsugæsluiæknanna,
segir að hópurinn hafí ekki talið sig
hafa fullvissu fyrir því að full
greiðsla vegna rekstrarins bærist frá
ríkinu þegar uppsagnir heilsugæslu-
læknanna tækju gildi 1. ágúst sl.
Rekstrarfyrirkomulag heilsu-
gæslustöðvarinnar er að því leyti
sérstakt að heilsugæslulæknarnir
hafa séð um reksturinn samkvæmt
samningi við heilbrigðisráðuneytið
um greiðslur fyrir ákveðna þjónustu
um nokkurra ára skeið. Eftir að
heilbrigðisráðuneytið sagði samn-
ingnum upp hófust viðræður um
nýjan samning fyrir um tveimur
árum. ítarleg samningsdrög lágu
svo fyrir í upphafí ársins.
Sigurður sagði að heilsugæslu-
læknarnir hefðu hins vegar ekki
viljað skrifa undir samninginn á
meðan á deilu heilsugæslulæknanna
og heiibrigðisráðuneytisins hefði
staðið enda hefðu viðræður deiluað-
ila falið í sér ýmiss konar skipulags-
breytingar. Nýi samningurinn hefur
því enn ekki tekið gildi og unnið
hefur verið eftir eldri samningi til
þessa. Heilsugæslulæknarnir
ákváðu að hætta störfum 1. ágúst
þar sem ekki hafði verið gengið frá
nýja samningnum og til að standa
með öðrum heilsugæslulæknum.
Sögðu upp hjá
sálfum sér
Ásta Möller, formaður Félags ís-
lenskra hjúkmnarfræðinga, sagðist
hafa fengið þau svör hjá læknunum
vegna hjúkrunarfræðinganna að
ákveðið hefði verið að segja upp
öðru starfsfólki heilsugæslustöðvar-
innar enda hefði ekki verið tryggt
að full greiðsla vegna rekstrarins
bærist frá ríkinu 1. ágúst. Skertar
greiðslur, þ.e. greiðslur vegna ann-
arrar starfsemi en læknisþjónustu,
bárust heilsugæslustöðinni og fengu
því hjúkrunarfræðingarnir laun sín
greidd um mánaðamótin.
Reyni sjálfir að semja
Ásta sagði að hjúkrunarfræðing-
arnir væru að leita leiða til að halda
uppi þjónustunni. Hún nefndi að sú
hugmynd hefði komið upp að hjúkr-
unarfræðingarnir reyndu sjálfír að
semja um þjónustu sína við heil-
brigðisráðuneytið. Önnur leið væri
að hjúkrunarfræðingarnir færu á
laun hjá ríkinu. Að óbreyttu leggja
hjúkrunarfræðingarnir niður störf
og heilsugæslustöðinni verður lokað
1. september nk.
Deila heilsugæslulækna og heil-
brigðisráðuneytisins hefur haft
töluverð áhrif á störf hjúkrunar-
fræðinga um allt land, að því er
Ásta segir. „Við köllum mjög stíft
eftir að deilan leysist enda er
ástandið orðið mjög erfítt. Vinnu-
álagið hefur t.a.m. verið mikið.
Sumir hafa verið að vinna sína dag-
vinnu á daginn og svo tekið bak-
vaktir á nóttunni þennan tæpa hálfa
mánuð. Skjólstæðingamir halda
áfram að sækja þjónustu á heilsu-
gæslustöðvarnar og hjúkrunarfræð-
ingarnir geta aðeins veitt hluta
hennar. Læknar væm í jafnerfíðri
aðstöðu ef við værum ekki að
vinna,“ sagði Ásta.