Morgunblaðið - 16.08.1996, Side 1

Morgunblaðið - 16.08.1996, Side 1
I- + ■ ÁSTARÞRÁ OG EINMAIMAKEMMD/2 ■ UÓSMYNDARI í AMERÍSKA FÓTBOLTAIMUM/2 ■ GRÍSKAR SAMDRYKKJUR/3 ■ KYIMLEGIR KVISTIR Á KAFFIHÚSUM/4 ■ BALDÝRAÐ OG KNIPLAÐ í HORNSTOFUNNI/8 ■ V arúð! Hlaupið aldrei berfætt í skónum! ÞAÐ mæðir á fótleggjum í Reykjavík um helgina: Þeir verða í maraþoni og því ekki seinna vænna að hyggja eilítið að þeim og þiggja góð ráð til að búa þá undir áreynsluna. Það er afleitt að hlaupa ber- fættur og kostar blóð, svita og tár þegar heim er komið eftir Reykjavíkurmaraþonið á sunnu- daginn. Félag fótaaðgerðafræð- inga mælir að minnsta kosti ekki með því. Margrét Jónsdóttir fótaað- gerðafræðingur segir að þeir sem hlúi að fótum sínum og geri ráð- stafanir fyrir hlaupið komi hins- vegar heilir heim með fínar tær. Reykjavíkurmaraþonið er fjölmennasta langhlaupið á íslandi og eru fótaaðgerðarfræð- ingar nú boðnir og búnir til að gefa hlaupurum góð ráð eins og fyrir ári síðan. Þeir verða á morg- un í kjallara Ráðhússins frá klukkan ellefu og einnig fyrir og eftir hlaupið á sunnudaginn í íþróttasal Miðbæjarskólans. Fótaaðgerðafræðingar gefa hér góðfúslega lesendum Morg- unblaðsins sem ætla að hlaupa á sunnudaginn nokkur góð ráð Heilræði handa hlaupurum ► Farið í gott fótabað og þerrið vel. Gætið þess að þurrka vel á milli tánna. ► Límið olástra á álags- fleti. Það kem- ur í veg fyrir hælsæri. ► Berið feit- an áburð á fæturna. Hann ver húðina fyrir núningi. RÁÐLEGT er að búa fætur vel undir langhlaup. Hér má sjá plástur sem hentar hlaupurum. Margrét Jónsdóttir ► Klæðist mjúkum blómullar- sokkum, sem falla hæfilega að fótunum og gefa tánum nægt rými. Gætið þess að saumar séu ekki grófir, þeir geta sært húð- ina. Hlaupið aldrei berfætt í skón- um. Það getur haft hörmulegar afleiðingar. ► Skór eiga að vera hæfilega stórir og þétt reimaðir. Það hindr- ar að fæturnir renni fram í skóna og kemur í veg fyrir blöðrur á hnúum og blámarðar tær. ► Að loknu hlaupi eða göngu er farið í volgt fótabað. Fætur eru þerraðir vel með grófu handklæði til að örva blóðrásina og síðan er borið mjúkt krem á fæturna. Daglegt líf biður alla hlaupara að gæta fóta sinna um helgina. Morgunblaðið/Golli Hvaðan koma hárkollur? ÞAÐ er ekki á allra vitorði að hárkollur, sem seldar eru hér- lendis, eiga sumar hverjar ræt- ur að rekja til Indlands. I Tiru- mali hofinu á Suður-Indlandi er helsta féþúfa bramínanna, sem reka hofið, að selja hár píla- gríma sem þangað koma. I Rússlandi hins vegar er hárskortur og því svífast hár- þjófar einskis við að komast yfir góða fléttu. I Moskvu er hár stundum látið í skiptum fyrir sjaldséða matvöru. 6 Mánaskin kjötbaka Laxasmurpate 2 Grísakambur fda niriian nirpiiir rndasi Eddufelli - Grensd'i\egi - Rofabæ - Þ\erbrekku MWMBMMMIMBMNBMIMMNMHMMMMMMMIflM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.