Morgunblaðið - 16.08.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 16.08.1996, Síða 1
 4 BLAÐ ALLRA LANDSMANNA AfgtmMaMto 1996 FÖSTUDAGUR 16.ÁGÚST BLAÐ C íslendingur féll á lyfjaprófi BENJAMÍN Þ. Þorgeirsson fijálsíþróttamaður úr HSH hefur verið útilokaður frá þátttöku í íþrótta- mótum á vegum sérsambanda ÍSÍ í 24 mánuði frá 31. júlí að telja vegna neyslu á ólöglegum steralyfj- um. Benjamín var tekinn í lyfjapróf á Meistara- móti íslands í júlí sl. Rannsókn á sýni hans leiddi í ljós að hann hafði neytt steralyfsins Stanozolol og viðurkenndi hann brot sitt í framhaldinu. Benjamín, sem fæddur er árið 1973, tók þátt i tveimur greinum á Meistaramótinu og varð í 11. sæti af 15 keppendum í 100 metra hlaupi á 11,36 sekúndum með 4,5 m/sekúndu í meðvind. Þá hafn- aði hann í sjötta sæti af sjö í langstökki. Þess má geta að þetta lyf sem um er að ræða er það sama og kanadíski spretthlauparinn Ben Johnson var uppvís um notkun á fyrir nokkrum árum. Niðurstaða fundarforystumanna allra sérsambanda íþróttasambandsins „Skilabodin skýr, að ÍSÍ og 01 sameinist sem fyrst" EINHUGUR rfkti í gær á fundi forystumanna sérsambanda inn- an fþróttasambandsins, þar sem fyrirhuguð sameining ÍSÍ og Ólympíunefndar íslands var til umræðu, þess efnis að af sam- einingu verði og helst sem fyrst. Fulltrúar 21 af 22 sérsambönd- um voru á fundinum, formað- ur eða varaformaður og „niðurstöð- una er ekki hægt að misskilja“, sagði Helgi S. Haraldsson, formað- ur Prjálsíþróttasambandsins, við Morgunblaðið í gærkvöldi: „Skila- boðin eru skýr; að ÍSÍ og Óí samein- ist og það sem allra fyrst.“ Lengi hefur verið rætt um hugs- anlega sameiningu ÍSÍ og Óí en ýmis fjón virst í veginum, þar á meðal að ekki hafi verið teknir inn í drög að nýjum lögum sameigin- legs sambands nauðsynlegir þættir skv. Ólympíusáttmálanum. Nú virðast þessi ljón hins vegar ekki til staðar lengur. Tveir af forystumönnum hinnar alþjóðlegu ólympíuhreyfmgar, Francois Carrard, forstjóri Al- þjóðaólympíunefndarinnar, og Jacques Rogge, forseti Evrópu- sambands Ólympíunefnda, munu, skv. heimildum Morgunblaðsins, hafa lagt blessun sína yfir þau drög að lögum sem fyrir liggja á fundi með Júiíusi Hafstein, for- manni Óí, og Ara Bergmann Ein- arssyni, ritara Óí, á fundi í Atl- anta meðan á Ólympíuleikunum stóð. Þeir Carrard og Rogge gerðu reyndar smávægilegar athuga- semdir við drögin en eftir að tekið hefur veríð tillit til þeirra athuga- semda „er ljóst að Ólympíusátt- málinn verður haldinn i hvivetna", eins og Benedikt Geirsson, formað- ur Skíðasambands ísiands, sagði við Morgunblaðið. „Þessi fundur er stór sigur fyrir íþróttahreyfinguna í landinu og eitt stærsta framfaraskrefið sem menn hafa stigið,“ sagði Helgi S. Haraldsson eftir fundinn í gær. Ályktun var ekki samþykkt heldur verður málið nú rætt í stjórnum allra sérsambanda og formanna- fundur haldinn á ný eftir hálfan mánuð. KNATTSPYRNA Fjölgað í 24 lið í Meist- aradeildinni Pölgað verður um átta lið í Meistaradeild Evrópu úr 16 í 24 leiktímabilið 1997-’98. Þetta var tilkynnt eftir fund Knatt- spyrnusambands Evrópu í gær. Þar með ættu flestar betri knatt- spyrnuþjóðir álfunnar að hafa möguleika á að eiga félag í deild- inni. Einng var samþykkt að átta sterkustu þjóðir Evrópu skyldu eiga þess kost að senda tvö lið til undankeppni deildarinnar. Eins og styrkleikalistinn er í dag er þar um að ræða Italíu, Spán, England, Holland, Frakkland, Þýskaland, Portúgal og Belgíu. Einnig var kynnt hugmynd um lengingu á keppnistímabilinu í Meistaradeildinni og tæki sú breyting gildi frá og með sama tíma ef af verður. Samkvæmt þeim tillögum er gert ráð fyrir að leikið verði yfir sumarið í undankeppni þar sem meistaralið frá 32 löndum verði dregin saman og að þau leiki í undankeppninni í júlí. Þar með myndi opnast möguleiki á að ís- landsmeistararnir kæmust inn í keppnina á ný en eins nú er leika íslandsmeistarar ÍA í Evrópu- keppni félagsliða, UEFA-keppn- inni svoköiluðu. Að þeim leikjum loknum stæðu eftir 16 félög og þau færu í pott með meistaraliðum átta bestu þjóðanna í Evrópu og átta aukaliða sem bestu þjóðirnar fá að senda. Þessi lið myndu eig- ast við í ágústmánuði. Að þessum leikjum loknum stæðu eftir 16 lið sem léku í Meist- aradeildinni ásamt þeim átta þjóð- um sem þar eru fyrir - en meistar- ar átta „bestu“ Evrópulandanna komast sjálfkrafa þangað - og þar yrði leikið í fjórum sex liða riðlum. TENNIS Meistararnir í úrslit Morgunblaðið/Ami Sæberg ÍSLANDSMÓTIÐ í tennis hefur staðlð yfir síðustu daga og lýkur á sunnudag. Þessi mynd var tekin í gær áður en íslandsmeistarinn Gunnar Einarsson, til vinstri á myndinni, mætti Arnari Slgurðssynl. Melstarlnn slgraðí í undanúrslitum, 6-3, 6-2, og mætir Einari Sigurjónssyni í úrslitum. í úrslitum í kvennaflokki eigast við íslandmeistarinn Hrafnhildur Hannesdóttir, Fjölni og íris Staub, TFK. Báðir ieikirnir hefjast í Tennishölllnni í Kópavogi klukkan 15 á sunnudaginn. KAPPRÓÐUR: GÓDUR ÁRANGUR ÖNNU LÁRU OG ARMANNS Á HM / C2 If

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.