Morgunblaðið - 17.08.1996, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/C
185. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hart mætir
hörðu í
Seoul
Lebed krefst þess að
Kúlíkov verði vikið frá
Segir innanríkisráðherrann eiga sök
á óförum hersins í Tsjetsjníju
Seoul. Reuter.
RÓTTÆKIR námsmenn í stúd-
entagörðum við Yonsei-háskóla í
Seoul í Suður-Kóreu, 3.600 tals-
ins, veittu fjölmennu lögregluliði
harða mótspyrnu, er það gerði í
gær tilraun til að handtaka þá.
Þeir bera andlitsgrímur til að
verjast táragasi.
Námsmennirnir hafa staðið
fyrir kröfugöngum í nafni sam-
einingar Norður- og Suður-
Kóreu. Stjórnvöld þar telja náms-
mennina sýna málstað kommún-
ista í Norður-Kóreu stuðning
með aðgerðum sínum.
Þriðja tilraun
Þetta var þriðja tilraun lög-
reglunnar í röð til að binda enda
á ólæti námsmannanna. Tals-
maður lögreglunnar sagði að
ekki hefði heldur í þetta sinn
tekizt að knýja þá til uppgjafar.
Lögreglan hafði með allt að
15.000 manna liði setið um stúd-
entagarðana í meira en tvo
daga. Eftir hina árangurslitlu
innrás í gær, sem varði í nokkr-
ar klukkustundir, dró hún sig
til baka.
Moskvu. Reuter.
ALEXANDER Lebed, yfirmaður
rússneska öryggisráðsins, sakaði í
gær Anatolí Kúlíkov, innanríkisráð-
herra, um að eiga sök á óförum rúss-
neska hersins í Tsjetsjníju og krafð-
ist þess að honum yrði vikið frá.
Lebed kvaðst vera að undirbúa
áætlun um ráðstafanir til að binda
enda á stríðið í Tsjetsjníju og ætla
að leggja hana fyrir Borís Jeltsín
forseta bráðlega. „Þetta verður
mjög róttæk áætlun sem verður
ekki öllum að skapi, en ég ætla að
knýja hana fram.“
Kúlíkov svarar fullum hálsi
Kúlíkov brást ókvæða við um-
mælum Lebeds og krafðist þess að
hann tæki orð sín aftur. Hann
kvaðst ætla að gera Jeltsín grein
fyrir sjónarmiðum sínum og biðja
forsetann um að taka afstöðu til
þess hvort hann ætti að fara frá.
„Það sem gerst hefur orsakaðist
ekki af veikleika í innanríkisráðu-
neytinu heldur veikleika yfirvalda,"
sagði Kúlíkov.
Lebed sagði að öfl í Moskvu
reyndu að koma í veg fyrir að hann
gæti náð samkomulagi um frið í
Bosníu og sagði að þeim myndi ekki
takast það. „Allir sem verða í vegin-
um verða reknir," sagði Lebed á
blaðamannafundi eftir að hafa lofað
að nafngreina þá sem hann teldi eiga
sök á því að stríðið héldi áfram.
Kúlíkov tók við embætti innanrík-
isráðherra fyrir átta mánuðum og
Lebed sagði að á þessum tíma hefðu
tsjetsjenskir aðskilnaðarsinnar kom-
ist upp með að ráðast tvisvar inn í
Grosní. „Innanríkisráðherra Rúss-
lands gegndi ekki skyldum sínum.
Eg er fullviss um að hann getur
ekki haldið embætti sínu lengur."
Tugir þúsunda manna hafa beðið
bana frá því Rússar sendu hersveit-
ir til Tsjetsjníju í desember 1994 til
að kveða niður uppreisn aðskiln-
aðarsinna. Heimildarmaður í rúss-
Kúlíkov Lebed
neska hernum kvaðst telja að 265
rússneskir hermenn hefðu fallið og
rúmlega 1.000 særst í árás Tsjetsj-
ena á Grosní sem hófst fyrir tíu
dögum.
Herinn óánægður
Lebed hefur farið í tvær stuttar
ferðir til Tsjetsjníju á síðustu dögum
og hlé varð á bardögunum í Grosní
eftir að hann hóf friðarumleitanirn-
ar. Leiðtogar aðskilnaðarsinnanna
léðu því máls að semja um frið en
yfirmenn rússnesku hersveitanna
virtust taka friðarumleitunum
Lebeds fálega.
ígor Rodíonov, varnarmálaráð-
herra, sagði í blaðaviðtali á dögun-
um að hershöfðingjar ættu ekki að
hafa afskipti af stjórnmálum og
ummæli hans voru túlkuð sem gagn-
rýni á Lebed, sem er fyrrverandi
hershöfðingi.
Staníslav Kavún hershöfðingi,
næstæðsti yfirmaður hersveitanna í
Tsjetsjníju, gekk lengra í gagnrýn-
inni á friðarumleitanirnar í gær.
„Tilraunir hersveita innanríkisráðu-
neytisins og varnarmálaráðuneytis-
ins til að sigra óvininn hafa nú ver-
ið gerðar að engu,“ sagði hann.
„Uppreisnarmennirnir hafa fyrir
reglu að virða ekki samninga. Á
hveijum degi fjölgar í liði þeirra,"
sagði hershöfðinginn og bætti við
að átta hermenn innanríkisráðu-
neytisins hefðu fallið á fimmtudags-
kvöld. „Hvernig er hægt að semja
við slíka menn?“
Dole hefur kosn-
ingabaráttuna
San Diego. Reuter.
BOB DOLE tókst í fyrrakvöld
formlega á hendur forsetafram-
boð fyrir bandaríska Repúblik-
anaflokkinn og í gáer hóf hann
kosningabaráttuna fyrir alvöru.
Dole varði það heit sitt að
minnka skatta og sagðist ekki
hafa lofað slíku ef hann væri
ekki viss um að það mætti nást
án þess að það kæmi niður á
almannatryggingakerfinu og
heilsugæslunni.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem sjónvarpsstöð-
in CNN og dagblaðið USA Today
birtu í gær hefur flokksþing repú-
blikana, sem lauk í fyrrakvöld,
ekki minnkað forskot Bills Clint-
ons svo neinu muni, en það er
enn um ellefu af hundraði.
Könnunin var gerð áður en
Dole flutti lokaræðu sína í þing-
inu, en stjórnmálaskýrendur
segja það hafa verið mikilvæg-
ustu ræðu stjórnmálaferils Doles,
og geta ráðið úrslitum um hvort
honum tækist að fá kjósendur á
sitt band.
■ Boðar tengsl/16
Reuter
ÆTTINGJAR Kýpur-Grikkjans, sem skotinn var til bana á mið-
vikudaginn, votta honum hinztu virðingu.
Kýpur-
Grikkir
syrgja
Níkósía. Reuter.
MIKIL spenna var í loftinu, þegar
þúsundir syrgjandi Kýpur-Grikkja
fylgdu til grafar unga manninum,
sem tyrkneskir hermenn skutu til
bana fyrr í vikunni.
Útförin fór fram eftir að skugg-
sýnt var orðið, þó það samrýmist
ekki hefðum grísku rétttrúnaðar-
kirkjunnar. Var það liður í viðleitni
stjórnvalda til að hindra að til enn
frekari árekstra kæmi. Fjölmennt
lögreglulið var við öllu búið á með-
an á útförinni stóð og kom í veg
fyrir að hin fjölmenna líkfylgd
gæti komist inn að „grænu lín-
unni“ sem hefur skipt eynni allt
frá innrás Tyrkja árið 1974.
Reiði í Grikklandi
Hinn 26 ára gamli Solomos
Solomos var skotinn þegar hann
gerði tilraun til að draga niður fána
Kýpur-Tyrkja á hlutlausa svæðinu
milli Noi-ður- og Suður-Kýpur á
miðvikudaginn. Atvikið olli
hneykslan víða um heim, en tyrk-
neska stjórnin réttlætti viðbrögð
hermanna sinna. Mikil reiði er ríkj-
andi í Grikklandi vegna málsins;
æstur múgur réðst í gær á margar
tyrkneskar ræðismannsskrifstofur.
Forsætis- og utanríkisráðherrar
Grikklands halda í heimsókn til
Kýpur í dag til að freista þess að
draga úr spennu á eynni.
■ Engin lausn/14