Morgunblaðið - 17.08.1996, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 5
Alvarlegt ástand vegna skertrar læknisþjónustu víða á landsbyggðinni og öryggisleysis gætir
FRETTIR
„Fólk bíður með
sína krankleika“
ÁSTAND í heilbrigðisþjónustunni er
víða á landinu orðið mjög alvarlegt
að sögn hjúkrunarfólks. Gætir orðið
mikils öryggisleysis meðal íbúa í
læknislausum héruðum. Nokkur
bráðatilfelli hafa komið upp á stöð-
um þar sem hefur verið læknislaust.
Að sögn Esterar Þorvaldsdóttur,
hjúkrunarfræðings á heilsugæslu-
stöðinni á Höfn, hefur reynst nauð-
synlegt að senda fólk með sjúkra-
flugi og einnig með áætlunarflugi á
sjúkrahús í Reykjavík vegna sjúk-
dóma eða slysa, sem hjúkrunarfólk
hefur ekki getað sinnt.
Slasaðist alvarlega á fæti í
sláttuvél
Síðastliðinn fimmtudag lenti kona
á Þórshöfn með fót í siáttuvél og
slasaðist alvarlega. Læknislaust var
á svæðinu en hjúkrunarfræðingur á
staðnum sendi konuna með sjúkra-
flugi til Akureyrar. Slysið átti sér
stað daginn áður en læknir kom til
Þórshafnar til að vera til taks í neyð-
artilfellum. Skömmu eftir að læknir-
inn kom á staðinn kom upp annað
neyðartilvik og þurfti að senda við-
komandi sjúkling til Reykjavíkur,
skv. upplýsingum Matthíasar Hall-
dórssonar aðstoðarlandlæknis.
Læknir er nú kominn til Hafnar
í Hornafirði en hann mun eingöngu
sinna neyðartilfellum. Þrír hjúkrun-
arfræðingar starfa á heilsugæslu-
stöðinni, auk ljósmóður, og skiptast
þær á um að sinna bakvöktum og
neyðarvöktum eftir lokun stöðvar-
innar.
„Við efumst ekki um að stór hóp-
ur fólks sem kæmi til læknis ef hann
væri á staðnum, heldur sig heima.
Þar getur verið um heimagigtar-
sjúklinga og hiartasjúklinga að ræða
og svo fólk með ýmsa kvilla sem
hefði undir venjulegum kringum-
stæðum leitað fyrir löngu til síns
heimilislæknis," sagði Ester.
Sigríður Karlsdóttir starfsmaður
við lyíjaafgreiðslu á heilsugæslu-
stöðinni á Vopnafirði segir að það
sé farið að bera mikið á því að fólk
sem er á föstum lyfjum vanti lyf.
Læknar á sjúkrahúsinu í Neskaup-
stað sinna beiðnum stöðvarinnar um
endurnýjun lyfseðla og eru undir
miklu álagi.
Komi alvarleg tilfelii upp á Vopna-
firði þarf að fara langan veg til að
fá læknisþjónustu, annað hvort á
slysadeild sjúkrahússins á Seyðisfirði
eða í Neskaupstað eða til Þórshafnar.
Ungbarnaeftirlit og
mæðraskoðun
Hvorki læknir né hjúkrunarfræð-
ingur voru til staðar á heilsugæslu-
stöðinni á Hellu þegar haft var sam-
band við stöðina eftir hádegi í gær.
Læknarnir sögðu allir upp en hjúkr-
unarfræðingur stöðvarinnar er að-
eins í 60% starfi og er því ekki allt-
af til staðar.
„Fólk er afskaplega uggandi og
krefst þess að eitthvað verði gert.
Það getur ekki sætt sig við þetta
ástand lengur. Það er líka alveg
greinilegt að fólk bíður með sína
krankleika heima,“ segir Dýrfinna
Kristjánsdóttir, læknaritari og fram-
kvæmdastjóri heilsugæslustöðvar-
innar á Hellu.
„Fólk sýnir líka ótrúlega þolin-
mæði og skilning. Apótekari og
hjúkrunarfræðingur hafa reynt að
sinna beiðnum um endurnýjun lyQa
eftir því sem mögulegt er. Hjúkrun-
arfræðingurinn hefur einnig sinnt
ungbarnaeftirliti og mæðraskoðun,"
sagði hún.
Ein á sólarhringsvöktum í
hálfan mánuð
Umdæmi heilsugæslustöðvarinnar
í Óiafsvík er mjög stórt og íbúafjöid-
inn á þjónustusvæðinu um 2.000.
Ekkert sjúkrahús er í umdæminu en
næsta sjúkrahús er í Stykkishólmi í
85 km fjarlægð frá Ólafsvík og á
Akranesi í 165 km fjarlægð.
„Við höfum bara haldið áfram að
vinna og haft nóg að gera. Við reyn-
um að leysa úr þeim vanda sem við
erum í og að verða skjólstæðingum
okkar að liði eftir því sem við best
getum,“ segir Ingibjörg Árnadóttir,
en hún er eini hjúkrunarfræðingur-
inn á heilsugæslustöðinni. Ingibjörg
hefur verið á sólarhringsvöktum frá
því að heilsugæslulæknarnir létu af
störfum 1. ágúst eða í rúmar tvær
vikur.
„Ég held þetta ágætlega út ennþá
af því að ég hef verið svo lánsöm
að hér hafa ekki mörg stórfelld
bráðatilfelli komið upp og ég veit
að ég fæ aðstoð hjúkrunarfræðinga
um leið og ég óska eftir því,“ segir
hún.
„Á stöðinni er gott starfsfólk og
við stöndum saman og vinnum sam-
an. Ég hef jafnframt gott samstarf
við lækna í nálægum byggðarlögum
sem eru Grundarfjörður og Stykkis-
hólmur. Einnig hef ég leitað til Akra-
ness og höfum við þurft að aka þang-
að með veikt fólk,“ segir Ingibjörg.
„Það er ekkert annað en lán að
hér hefur ekki orðið stórslys. Ég hef
þakkað fyrir hvern dag sem hefur
liðið án stóráfalla, því það sem mað-
ur óttast helst þegar læknar eru
víðsfjarri eru bráðatilfellin, eins og
til dæmis alvarleg hjartaáföll og al-
varleg slys,“ sagði hún að lokum.
Haldinn var sameiginlegur fundur
fulltrúa starfsfólks á heilsugæslu-
stöðvum og sjúkrahúsum á Suður-
landi með nokkrum þingmönnum
kjördæmsins og aðstoðarlandlækni
í gær til að fara yfir stöðuna sem
upp er komin.
Matthías sagði að ástandið væri
mjög erfitt á Suðurlandi og þeir
læknar sem vinna á Selfossi fái litla
hvíld og séu orðnir mjög þreyttir.
Starfshópur heilbrigðisyfirvalda hef-
ur daglega samband við héraðs-
lækna um allt land til að meta
ástandið í heilbrigðisþjónustunni.
• • Superior White
• • Aleutian Blue
• • Antares Red
etta bíllinn fyrir þig:
ÍSWIFT
?
Gullverðlaunahafinn
í keppninni um:
„Spameytnasta bíl Evrópu“
Algjör draumur - í staðinn fyrir
„enn einn" notaðan bíll
(Á síðustu 12 árum hafa 1.607 íslendingar keypt sér nýjan Suzuki Sivift.)
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17,108 Reykjavtk. Stmi 568 51 00.
(KR, 940.000
Utvegum
bílalán til
allí að 5 ára.
* 1,3 GX 5 dyra handskiptur á kr. 980.000.
Til afgreiðslu strax:
Suzuki Swiít með 1,0 lítra vél
eyddi aðeins 4,34 lítrum af bensíni
að meðaltali á hverja 100 km. á 1500
km. leið frá Bonn til Monte Carlo.
Allt þetta í
1,3 lítra SWIFT GLS 3-dyra
handskiptum með 68 hestafla vél:
Oryggi: Öryggisloftpúði i stýri, styrktarbitar
í hurðum, krumpsvæði að framan og aftan,
hemlaljós í afturglugga, dagljósabúnaður,
rafstýrðir útispeglar, skolsprautur fyrir
framljós, þurrka og skolsprauta á afturrúðu,
barnalæsingar (5 dyra).
Þægindi: Upphituð framsæti, tvískipt
fellanlegt aftursætisbak, rafstýrð hæðar-
stilling framljósa, hæðarstilling öry'ggisbelta,
samlæsingar á hurðum (5 dyraj.