Morgunblaðið - 17.08.1996, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
4-
AKUREYRI
Opinn borgarafundur um fjölskylduhátíðina Halló Akureyri
Flestir sammála um að
halda áfram með hátíðina
Morgunblaðið/Kristján
FUNDURINN á Hótel KEA var mjög vel
sóttur og tóku margir til máls.
Nemendur í Barna-
skóla Akureyrar
Halda á
sumarmót á
Grænlandi
IDAG heldur hópur nemenda
í Barnaskóla Akureyrar í heim-
sókn til Narsaq, vinabæjar Ak-
ureyrar á Grænlandi. Sveitarfé-
lagið í Narsaq bauð einni bekkj-
ardeild í bænum á sumarmót
ásamt krökkkum frá Dan-
mörku og fyrir valinu varð
bekkjardeild úr BA, alls 22
krakkar, sem eru að hefja nám
í 6. bekk nú í haust.
Með þeim í för eru foreldrar
og kennari, alls um 10 manns.
Hópurinn dvelur á Grænlandi
í tæpa viku við leik og störf.
Narsaq-bær sér um uppihald
hópsins en að öðru leyti hafa
krakkarnir safnað fyrir ferð-
inni, m.a. með því að halda
hlutaveltu og safna dósum og
flöskum. Einnig hafa fyrirtæki
og Akureyrarbær styrkt þau
til fararinnar og þar var græn-
lenski sjóðurinn SAMIK-
fremstur í flokki.
MESSUR
AKUREYRARKIRKJA:
Messað verður í Akureyrar-
kirkju sunnudaginn 18. ágúst
kl. 21.00.
HAGSMUNAAÐILAR í ferðaþjón-
ustu, er stóðu fyrir fjölskylduhátíð-
inni Halló Akureyri um verslunar-
mannahelgina, boðuðu til almenns
borgarafundar á Hótel KEA sl.
fimmtudagskvöld. Á fundinum var
framkvæmd hátíðarinnar til um-
ræðu og skiptust menn á skoðun-
um um hvernig til hafi tekist nú
um verslunarmannahelgina og um
framtíð slíkra hátíðarhalda. Flestir
þeir sem til máls tóku voru sam-
mála um að halda áfram að bjóða
gestum til Akureyrar um þessa
mestu ferðahelgi ársins. Hins veg-
ar þyrfti að kippa því í liðinn sem
afiaga fór og læra að mistökunum.
Á fundinum kom jafnframt
fram, að þeir aðilar sem að Halló
Akureyri stóðu, hafa ákveðið í
samráði við Akureyrarbæ, að halda
ráðstefnu á Akureyri á haustdög-
um, þar sem m.a. verður fjallað
um unglingadrykkju. Er það ætlun
hópsins að reyna að fá Þórarin
Tyrfingsson, yfirlækni á Vogi, til
þess að koma norður og taka þátt
í ráðstefnunni, ásamt fleirum.
Magnús Már Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, sagði
m.a. í framsögu sinni á fundinum,
að um 20.000 manns hafi verið á
Akureyri um verslunarmannahelg-
ina og þar af um 10.000 gestir.
Hann sagði að um verslunar-
mannahelgina hafi góður hluti
þjóðarinnar tilhneigingu til að fá
sér neðan í því, skemmta sér dug-
lega og vaka lengi. Þessi helgi var
engin undantekning þar á.
Ekkert af þessu hófst hér
„Fylgifiskar verslunarmanna-
helgarinnar hafa því miður verið
pústrar, áfengi, nauðganir og
fíkniefni, en ekkert af þessu hófst
hér og ég leyfi mér að efast um
að ástandið hafi versnað,“ sagði
Magnús. Hann nefndi sögu frá
Vestmannaeyjum og gerðist fyrir
um 30 árum, en þá sat inni 11 ára
strákur, ofurölvi, er hafði verið
handtekinn fyrir ólæti. „Börn und-
ir lögaldri hófu ekki drykkju sína
hér á Akureyri í ár og það nötur-
lega við þetta allt saman er að þau
munu áfram finna leið til að hella
í sig, hvað sem Halló Akureyri líð-
ur.“
Forsvarsmenn hátíðarinnar hafa
verið ásakaðir fyrir hafa brugðist
skyldum sínum og að á Akureyri
hafi allt farið úr böndum. Magnús
Már segir það ekki rétt, hins vegar
hafi ákveðnir hlutir brugðist og
þá þurfi að laga. „Því er ekki að
leyna að við vorum of fáliðuð, þrátt
fyrir aðstoð Flugbjörgunar- og
hjálparsveita, Rauða kross íslands
og aukaviðbúnað lögreglu. For-
eldravaktin stóð sína vakt í mið-
bænum og á þakkir skildar fyrir
áhuga sinn á málinu. Miðað við
þann fjölda sem hingað kom hefð-
um við þurft helmingi fleira fólk
að störfum," sagði Magnús Már.
Allt fór úrskeiðis
Benedikt Sigurðarson, skóla-
stjóri Barnaskóla Akureyrar, býr í
námunda við tjaldsvæðið við Þór-
unnarstræti og hann hafði ýmis-
legt við hátíðina Halló Akureyri
að athuga og framkvæmd hennar.
Benedikt sagðist hafa komið til
þessa fundar vegna þess að hann
taldi að alvarlegt slys hafi orðið á
Akureyri. „Hér fór nánast allt úr-
skeiðis sem ekki átti að fara úr-
skeiðis, nema það að það tókst að
ná hingað 10.000 manns eða
kannski meira.“
Benedikt taldi ábyrgðina hjá
hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu
sem að hátíðinni stóðu og að ekki
þýddi fyrir þá aðila að varpa
ábyrgðinni yfir á fjölmiðla eða ein-
hveija aðra.
EIGNASALAN
<f Símar 551-9540 & 551-9191 - fax 551-8585 |f
Leirubakki 32 - 4ra herb. íbúð
Hagstætt verð - OPIÐ HÚS
Til sölu góð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í fjölbýlishúsi við
Leirubakka. íbúðin skiptist í rúmgóða stofu, 3 svefnherb., eldhús og
baðherb. Sérþvottahús í íbúðinni. Stórt herbergi auk geymslu í
kjallara. (búðin er í góðu ástandi. Parket á gólfum stofu og innri
forstofu. Hagstætt verð 6,7 til 6,8 millj. fbúðin er laus nú þegar.
(búðin verður til sýnis í dag, laugardag, kl. 14-17.
Árni sýnir íbúðina (bjalla 3 h.h.)
EIGNASALAN, Ingólfsstræti 12,
simar 551 9540 og 551 9191.
Til sýnis og sölu m.a. eigna.
Einbýlishús - úrvals staður - útsýni
Velbyggt og velmeðfarið nýlegt steinhús ein hæð. Tæpir 160 fm á
útsýnisstað við Vesturvang í Hafnarfirði. Bílskúr, 40 fm. Stór ræktuð
lóð. Skipti koma til greina. Tilboð óskast.
Skammt frá KR-heimilinu
Mjög stór 4ra herb. íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi um 120 fm. Frábaert út-
sýni. Góð lán. Skipti möguleg.
Á vinsælum stað í vesturborginni
Sólrík samþykkt kjallaribúð við Meistaravelli tæpir 50 fm. Laus strax.
Gott verð.
Allt sér - lækkað verð
Mikið endurbætt 3ja herb. efri hæð í tvíbýlishúsi tæpir 80 fm við
Hólmgarð. Vinsamleg.ast leitið nánari upplýsinga.
Neðra-Breiðholt - lækkað verð
Vistleg 3ja herb. íbúð um 84,4 fm á 1. hæð við Leirubakka.
Sérþvotta- og vinnuherb. við eldhús. í kjallara gott íbúðarherb. snyrt-
ing og geymsla. Langtlán kr. 3,7 millj. Laus strax.
Hlíðar - Safamýri - nágrenni
Leitum að 4ra til 5 herb. hæð helst með bílsk. má þarfnast endur-
bóta. Traustur kaupandi.
• • •
Opið í dag kl. 10-14.
4ra herb. íb. með bílhýsi óskast
í Seljahverfi í skiptum fyrir 4ra
herb. hæð í hlíðunum.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370
Ferðafélag Akureyrar setur upp skála ofan Suðurárbotna
Fímmtí skáli félags-
ins á þessum slóðum
FERÐAFÉLAG Akureyrar hefur sett upp skála rétt ofan Suðurárbotna
í Odáðahrauni og er þetta fimmti skáiinn sem félagið setur upp á göngu-
leiðinni frá Herðubreiðarlindum í Svartárkot í Bárðardal. Nýi skálinn er
um 26 fermetrar og í honum er gistirými fyrir 16 manns. Ferðafélagið
þurfti að sækja um leyfi hjá fjölmörgum aðilum vegna þessarar skálabygg-
ingar og tók sú undirbúningsvinna um eitt ár, að sögn Ingvars Teitsson-
ar, formanns Ferðafélags Akureyrar.
Rækjuvinnsla liggur
niðri hjá Strýtu hf.
Um 35
manns heim
í mánuð
ENGIN rækjuvinnsla er nú í gangi
hjá Strýtu hf. á Akureyri og mun
hún liggja niðri í um einn mánuð.
Aðalsteinn Helgason, framkvæmda-
stjóri, segir ástæður þessa vera tvær,
annars vegar sé verið að gera breyt-
ingar á vinnslusalnum og einnig er
verið að draga úr framboði á rækju
í ljósi lækkandi afurðaverðs.
Af þessum sökum hafa um 35
manns verið sendir heim á meðan
en um 25 manns eru í vinnu við
önnur störf í fyrirtækinu, síld, kav-
íar og fleira. Aðalsteinn segir að
nauðsynlegt hafi verið að gera breyt-
ingar á rækjuvinnslu fyrirtækisins
m.a. til að fullnægja kröfum kröfu-
hörðustu kaupendanna.
Aðalsteinn segir að þessar breyt-
ingar hefðu ekki þurft að taka nema
10-12 daga en ákveðið hafi verið
að stoppa í 4 vikur til þess að draga
úr framboði á rækju. Hins vegar er
rækjuvinnsla í fullum gangi hjá Sölt-
unarfélagi Dalvíkur.
Skálinn var fluttur í tvennu lagi
á áfangastað sl. laugardag, á stór-
um vörubíl með krana og kerru og
var strax hafist handa við að setja
hann saman. Að sögn Ingvars er
frágangur skálans langt kominn en
stefnt er að því að opna hann form-
lega um næstu mánaðamót.
Skálinn var forsmíðaður í sjálf-
boðavinnu af félagsmönnum ferða-
félagsins í vetur og vor og þeir sáu
einnig um að setja einingarnar sam-
an um helgina. Ferðin með eining-
arnar inn á hálendið gekk nokkuð
misjafnlega. Vörubíllinn festist í
mýrlendi á Litluflesju austur af
Suðurá og þar urðu leiðangursmenn
að skilja kerruna eftir. Ferðinni var
haldið áfram með aðra einingu skál-
ans og er henni hafði verið komið
fyrir á áfangastað, var kerran með
hinni einingunni sótt.
Unnið að skipulagningu
gönguleiðar
Ferðafélag Akureyrar hefur und-
anfarin ár unnið að skipulagningu
gönguleiðar yfir Ódáðahraun. Leið
þessa „Öskjuveginn" alls um 90 km
er talið hæfilegt að ganga á 5-6
dögum. Þorsteinsskáli er í Herðu-
breiðarlindum en hann var byggður
á árunum 1958-’60. Þar er gisti-
rými fyrir 30 manns og öll aðstaða
hin besta. Við Bræðrafell stendur
skáli sem byggður var 1976-’77 og
þar er gistirými fyrir 12 manns.
GÖNGULEIÐIN frá Herðubreið-
arlindum í Svartárkot
Skálinn Dreki er við Drekagil í
Dyngjufjöllum, hann var byggður
1968-’69 og þar er gistirými fyrir
20 manns. Fjórði skálinn á leiðinni
er Dyngjufell í Dyngjufjalladai,
norðvestan undir Dyngjufjöllum.
Skálinn var byggður 1993 og þar
er gistirými fyrir 16 manns.
Allir skálar félagsins opnir
Ingvar Teitsson segir að ailir
skálar félagsins séu opnir ferða-
mönnum. Þeim sé hins vegar gert
að greiða fyrir aðstöðuna en allur
gangur sé á því að greitt sé fyrir
notkun þeirra.
Á fimmta hundrað félagsmenn
eru í Ferðafélagi Akureyrar og er
starfsemi félagsinS öflug. í ferða-
áætlun félagsins á þessu ári eru
skipulagðar 47 ferðir. Fyrsta ferð
ársins var farin þann 20. janúar sl.
en síðasta er fyrirhuguð laugardag-
inn 19. október nk.