Morgunblaðið - 17.08.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 11
LANDIÐ
200 ár liðin frá fæðingn Bólu-Hjálmars
Sauðárkróki -
„Upp er runnin önnur tíð,
engin þörf að bítast.
Bóluskáld og Blönduhlið,
böndum sterkum hnýtast."
sagði Hjálmar Jónsson alþingismað-
ur, er hann bauð niðja Hjálmars Jóns-
sonar frá Bólu forföður síns og al-
nafna, velkomna til hátíðar, þar sem
minnst var þess að tvö hundruð ár
eru nú liðin frá fæðingu þessa al-
kunna alþýðuskálds.
Setti Hjálmar hátíðina í minning-
arlundi um skáldið að Bólu í Blöndu-
hlíð og talaði til gesta í bundnu máli,
en viðstaddir voru fjölmargir afkom-
endur skáldsins auk margra gesta,
þar á meðal var forseti íslands, Ólaf-
ur Ragnar Grímsson ásamt eiginkonu
sinni Guðrúnu Katrínu Þorbergsdótt-
ur, sem heiðra vildu minningu hans.
Að setningu lokinni flutti dr. Ey-
steinn Sigurðsson stórfróðlegt erindi
um skáldið Bólu-Hjálmar og rakti í
stórum dráttum sögu hans, frá því
er hann fæddist að Hallandi við Eyja-
flörð og þar til er hann andaðist sadd-
ur lífdaga í beitarhúsunum við Víði-
mýri.
Margt fleira var á dagskránni í
Hjálmarslundi, meðal annars fluttu
frumsamin ljóð í minningu Hjálmars
þeir Jóhann Guðmundsson frá Stapa
og Sigurður Hansen, og lýkur Sigurð-
ur ljóði sínu svo:
Frá íslenskrar tungu óðals reit
voru orðin svo kynngi þrungin.
Og þar var kraftur vors móðurmáls
meitlaður til og sunginn,
um örlög þjóðar svo ill og grimm,
Morgunblaðið/Björn Björnsson
ÓLAFUR Ragnar Grímsson ávarpar gesti á niðjamóti Hjálmars Jónssonar frá Bólu.
sem aldimar dimmu fólu.
Ég lýt þessu afli meitlaðs máls
við minnisvarðann I Bólu.
Að skagfirskum sið
Kristján Runólfsson las úr
nýfundnu handriti Bólu-Hjálmars þar
sem í er meðal annars ríma af
hetjudáðum Grettis Ásmundarsonar.
Áð aflokinni athöfninni við
minnisvarða skáldsins í Bólu var boðið
til kaffidrykkju í félagsheimilinu
Miðgarði, og um kvöldið var kvöldvaka
að „skagfirskum sið“ í Miðgarði og
heiðruðu forsetahjónin afkomendur
Hjálmars oggesti þeirra, með nærveru
sinni, en þar voru ræður fluttar, farið
með kveðskap og karlakórinn Heimir
söng, en einnig frumflutti Sigfús
Pétursson nýtt lag eftir Eirík Áma
Sigtryggsson við ljóð forföður hans
Hjálmars frá Bólu við undirleik
Stefáns R. Gíslasonar.
Hjálmar Jónsson alþingismaður og
einn af frumkvöðlum hátíðarhaldanna
sagði það sérstaklega ánægjulegt
hversu margir hefðu verið viðstaddir
hátíðina, og þá ekki síst að
forsetahjónin hefðu séð sér fært að
koma, veðrið hefði verið sérlega gott
til útihátíðar meðan gestir hefðu
staldrað við í minningarlundinum við
Bólu, þrátt fyrir að rigning hefði verið
bæði utar og framar í Blönduhlíðinni,
þannig hafí allt lagst á eitt um það
að gera daginn eftirminnilegan.
Bóluskáld og Blönduhlíð
böndum sterkum hnýtast
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
GUNNAR Hafdal á fullri ferð
á s(n)jósleðanum.
Á sjósleðum
í höfninni
Skagaströnd - Meðal sýningar-
atriða á nýliðinni Kántrýhátíð
var akstur á snjósleða í höfn-
inni. Gunnar Hafdal, fyrrum
íslandsmeistari í torfæruakstri,
ók á sleðanum sínum um 1,5 km
leið á sjónum við mikinn fögnuð
áhorfenda.
Að sögn Gunnars er mesti
vandinn við slíkan akstur að ná
sleðanum upp á ferð án þess
að hann prjóni því þá er ekki
að sökum að spyija að sleðinni
sekkur eins og steinn. Sagði
Gunnar að hraðinn á sleðanum
hefði verið um 70 mílur eða um
115 km á klukkustund.
Á MORCUN, SUNNUDAGINN 18. ÁGÚST,
BJÓÐA BÆNDUR HEIM
Sunnudaginn 18. ágúst kl. 13-20 bjóða bændur á fimmtíu og
fimm bæjum víðs vegar um landið fólki á öllum aldri í
heimsókn. Þá munu bændur gefa gestum sínum einstakt
tækifæri til þess að kynnast lífinu í sveit.
ÍSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR
Njóttu lífsins í sveitinni á morgunn. Engir tveir bæir eru
eins en víðast geturðu klappað dýrum, notið sveitaloftsins,
kyrrðar og fegurðar.
Heimboð bænda er tilvalinn áfangastaður í skemmtilegum
sunnudagsbíltúr í sveit. Láttu sjá þig með alla fjölskylduna
- og gefðu þér góðan tíma.
Bæirnir verða auðkenndir með merki íslensks landbúnaðar
1. Þorláksstaðir, Kjós, 28 km frá Mosfellsbæ (blandað bú)
2. Hjalli, Kjós, 30 km frá Mosfellsbæ (ferðaþj., sauðfé)
3. Sogn, Kjós, 30 km frá Mosfellsbæ (sauðfé, nautgripir, hestar, hænur, trjárækt)
4. Lyngholt, Leirár og Melahr., 20 km ffá Akranesi (nautgripir)
5. Langholt, Andakýlshr., 30 km frá Borgarnesi (nautgripir, hænur)
6. Melur, Borgarbyggð, 25 km ffá Borgamesi (nautgripir, hross, sauðfé)
7. Langaholt/Garðar, Snæfellsnesi, 33 km frá Ólafsvík (ferðaþjónusta)
8. Gröf í Breiðuvík, 29 km frá Ólafsvík (blandað bú)
9. Bjarnarhöfn, Snæfellsnesi, 20 km frá Stykkishólmi (sauðfé, hákarl)
10. Hamrar, Haukadal, 22 km frá Búðardal (nautgripir, sauðfé, endur, hross)
11. Breiðabólsstaður, Fellsströnd, 35 km ffá Búðardal (sauðfé, nautgripir, hross)
12. Tindar, Geiradal, 4 km frá Króksfjarðarnesi (nautgripir)
13. Hagi, Barðaströnd, 35 km frá Patreksfirði (nautgripir, hestar, bleikja)
14. Vaðlar, Önundarfirði, 13 km frá Flateyri (blandað bú)
1 5. Húsavík, Ströndum, 10 km frá Hólmavík (sauðfé, hlunnindi)
16. Bær II, Hrútafirði, 7 km frá Borðeyri (sauðfé, hlunnindi, hross)
17. Ytri-Reykir, V-Hún, 0,2 km frá Laugabakka (sauðfé, svín, hross)
18. Ártún, Blöndudal, A-Hún, 26 km frá Blönduósi (sauðfé, kýr, hross)
19. Hátún, Seyluhr., 5 km frá Varmahlíð (blandað bú)
20. Birkihlíð, Staðarhr, 7 km frá Sauðárkróki (blandað bú)
21. Syðri Hofdalir, Viðvíkursv., 22 km frá Varmahlíð og Sauðárkróki (kýr, sauðfé, hross)
22. Garðakot, Hólahr., 23 km frá Hofsósi og Sauðárkróki (nautgripir)
23. Litla-Brekka, Hofshr. 5 km frá Hofsósi (blandað bú)
24. Bakki, Svarfaðardal, 10 km ffá Dalvík (blandað bú)
25. Möðruvellir, Hörgárdal, 12 km frá Akureyri (nautgripir, tilraunir)
26. Bakki, Öxnadal, 30 km ftá Akureyri (blandað bú)
27. Holtssel, Eyjafirði, 20 km frá Akureyri (nautgripir)
28. Rifkelsstaðir II, Eyjafj.sv., 18 km frá Akureyri (blandað bú)
29. Þórísstaðir, Svalbarðsströnd, 12 km frá Akureyri (nautgripir)
30. Hraunkot I, Aðaldal, 17 km ffá Húsavík (blandað bú)
31. Ysti Hvammur, Aðaldal, 27 km ffá Húsavík og 3 km frá Laxárvirkjun (blandað bú)
32. Fagranes, Aðaldal, 14 km ffá Laugum og 30 km ffá Húsavík (blandað bú)
33. Hóll, Kelduhverfi, 43 km ffá Kópaskeri (sauðfé, hross, ferðaþj.)
34. Tungusel, Langanesi, 14 km ffá Þórshöfh (sauðfé, hross)
35. Skjaldþingsstaðir, Vbpnafirði, 10 km frá Vopnafirði (nautgr., sauðfé, loðdýr)
36. Gilsárteigur, Eiðahreppi, 15 km ffá Egilsstöðum (nautgripir, sauðfé)
37. Klaustursel.Jökuldalshr., 75 km ftá Egilsstöðum (sauðfé og ýmsardýrategundir)
38. Skorrastaðir, Norðfirði, 5 km ffá Neskaupsstað (nautgripir, sauðfé, svín og fleira)
39. Lindarbrekka, Berufirði, 18 km frá Djúpavogi (blandað bú, garðyrkja)
40. Seljavellir í Nesjum, 6 km ftá Höfri (nautgripir, sauðfé, kartöfiur, ferðaþj.)
41. Árfoær á Mýmm, 30 km ffá Hölri (nautgripir, íerðaþj.)
42. Þverá, Skaftárhr., 15 km ffá Klaustri (blandað bú)
43. Ásólfsskáli, V-Eyjafjallahr., 35 km frá Hvolsvelli (nautgripir; ferðaþj.)
44. Teigur I, Fljótshlíð, 12 km frá Hvolsvelli (sauðfé, ýmislegt)
45. Teigur II, Fljótshlíð, 12 km frá Hvolsvelli (blandaður búskapur)
46. Þverlækur, Holta-og Landssv., 25 km ffá Hellu (nautgripir)
47. Hagi II, Gnúpveijahr., 10 km ffá Ámesi og 50 km ffá Selfossi (svín, sauðfé, hross)
48. Bryðjuholt, Hmnamannahr., 3 km ffá Flúðum (nautgripir, sauðfé, hross)
49. Silfúrtún, Flúðum, á Flúðum (garðyrkja)
50. Hlemmiskeið I, Skeiðum, 25 km ffá Selfossi (nautgripir; hross, ær)
51. Hlemmiskeið II, Skeiðum, 25 km ffá Selfossi (nautgripir; sauðfé, hross)
52. Hlemmiskeið IV, Skeiðum, 25 km ffá Selfossi (hross)
53. Miðengi, Grímsnesi, 18 km Selfoss (nautgripir, sauðfé, hross, hundar)
54. Stóru-Reykir, Hraungerðishr., 12 km ffá Selfossi (blandað bú)
55. Laugarbakkar, Ölfusi, 4 km frá Selfossi (blandað bú)