Morgunblaðið - 17.08.1996, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 FJJ MORGUNBLAÐIÐ
tum ui
FAÐIR FJALLAHJÓLSINS í ELLIÐAÁRDAL
UM EL-
LIÐAÁR-
DALINN
þaut hópur hjól-
reiðamanna skrýdd-
ur öllum tilheyrandi
búnaði: litskrúðug-
um hjálmum, skræp-
óttum hjólagöllum
auk þess að vera á
nýtískulegum, en
skítugum fjallahjól-
um. Sum þeirra eru
svo voldug á að líta
að þau líkjast nettum
skellinöðrum. Það
var greinilegt að
mikið var um að vera
og í fararbroddi var
grannvaxinn rauð-
hærður maður með
hökutopp. Eftir nán-
ari grennslan komst
ég að því að hér var á
ferð e.k. „gúrú“
fjallahjólamanna.
Um hann höfðu hóp-
ast helstu hjólreiða-
fíklar landsins, sem
notuðu tækifærið til
að þjóta um hlykkj-
ótta moldarstígana í
Elliðaárdalnum.
„Gúrúinn" heitir
Gary Fisher og hjól-
reiðamenn kalla
hann gjarnan föður
fjallahjólsins, en
hann á heiðurinn af
því að hafa smíðað
fyrsta fjallahjólið.
Fisher er frá Mar-
in County í Kalifom-
íu, en þar er landslag
kjörið til fjallahjól-
reiða. Hann byrjaði
að keppa í hjólreið-
um 12 ára og hefur æ
síðan verið haldinn
ólæknandi hjólabakteríu. Hann vildi
helst hjóla utan vega, yfir stokka og
steina, en hjólin voru of viðkvæm fyr-
ir slíka meðferð og biluðu oft. Hann
segir að varla hafi verið hægt að fara
í spennandi fjallaferð án þess að eiga
á hættu að þurfa að bera hjólið heim.
Einnig leiddist honum hversu erfítt
var að hjóla upp brekkur. Hann lagði
því höfuðið í bleyti og reyndi að láta
sér hugkvæmast hvaða lagfæringar
yrði að gera til að bæta úr þessum
þáttum. Hann þurfti sterkara hjól
sem þyldi átökin í ófærunum og
hægt væri að hjóla á upp brattar
brekkur án teljandi vandræða. Út-
koman, Klunkerhjólið, leit dagsins
Gary Fisher er eins
konar átrúnaðargoð
fj allahj ólamanna,
en hann smíðaði
fyrsta fjallahjólið
fyrir tuttugu og
tveimur árum.
Hann staldraði við á
landinu í vikunni og
rakst Þórdís Hadda
Yngvadóttir á hann
í Elliðaárdal í fríð-
um hópi hjólreiða-
garpa. Hún spjall-
aði við hann um
hjólreiðarnar sem
eiga hug hans allan.
ljós árið 1974, þegar
hann var 24 ára.
Nokkru síðar fór
hann að smíða sams-
konar hjól fyrir vini
og ættingja og
smám saman jókst
framleiðslan. Síðan
hefur fyrirtæki hans
vaxið og dafnað og
enn er hann sífellt
að endurhanna og
þróa hjólið.
FjaUahjól
/ tísku
Fjallahjólið hefur
rutt sér til rúms í
heiminum á ótrú-
lega stuttum tíma
og líkir Gary Fisher
þessum vinsældum
við fatatísku ung-
linga sem er víðast
hvar svipuð. „Hjólin
henta jafnt innan
bæjar sem utan
vega eru því fjöl-
hæfari en hefðbund-
in reiðhjól. Þau eru
sterkari, stellið er
hærra þannig að
þau komast yfír
meiri torfærur en
götuhjólin og gírar
eru fleiri og ná-
kvæmari,“ segir
hann.
Gary Fisher rek-
ur fyrirtæki sitt
undir eigin nafni og
framleiðir allt sem
viðkemur hjólum.
Hann á tvær hjóla-
verksmiðjur í
Bandaríkjunum og
_____________ tvær í Tævan. Enn-
fremur er hann í
samstarfi við Trek hjólafyrirtækið,
sem er mun stærri framleiðandi en
fyrirtækið hans. Fisher segir að
hentugt sé að dreifa kröftunum á
milli svo ólíkra fyrirtækja. Ahersla
sé lögð á fjöldaframleiðslu í stærra
fyrirtækinu og þar sé mikið fjár-
streymi, en aftur á móti sé hægt að
leyfa sér djarfari hönnun í því
minna. Nú hugar hann að því að ráða
fleiri verkfræðinga og iðnhönnuði til
að þróa hjólabúnaðinn.
En hvemig er hið fullkomna reið-
hjól?
„Hið fullkomna hjól er það hjól
sem kemst yfir allt. Það bilar aldrei
og sér nánast um sig sjálft og er
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GARY Fisher í hópi nokkurra fjallahjólafíkla úr íslenska fjallahjólahópnum,
en þeir slógust í för með honum í Elliðaárdal fyrir skömmu.
FAÐIR fjallahjólsins með afkvæmið, Klunker fjallahjólið, sem hann Á FYRSTA fjallalijólinu í
smíðaði fyrir 22 árum. Græna hjólið er nýjasta hönnun hans og er það heiminum, árið 1974.
helmingi léttara.
alltaf eins og splunkunýtt. Það á að
gera lífið einfaldara og vega þannig
á móti þeim flókna heimi sem við lif-
um í,“ segir Fisher.
Bíllinn á snh á
ýmsum t/elmegun-
arsjúh dnmum
Hjólreiðamönnum er oft í nöp við
bQa af ýmsum ástæðum. Hvert er
þitt álit ábQum?
„Bflar eru þarfaþing. Okkar kyn-
slóð er alin upp við bíla og við erum
eiginlega fómarlömb þessa þægilega
lífsmáta. Bfllinn kemur í veg fyrir að
fólk hreyfi sig nægilega og á líklega
sök á mörgum velmegunarsjúkdóm-
um og jafnvel dauðsföllum. Að því
leyti er hann stórhættulegur. Svo
má ekki gleyma því hversu mikill
mengunarvaldur hann er.
Vesturlandabúar nota bflinn alltof
mikið. Mjög sterk bflamenning er í
Bandaríkjunum og það kæmi aldrei
til álita að loka fyrir bflaumferð í
stórborgum Bandaríkjanna eins og
gert er sums staðar í Evrópu. En
þetta tengist einnig stjórnmálum og
hagsmunum, t.d. bílaiðnaði og olíu-
framleiðslu sem yrði í hættu ef fólk
drægi úr bflanotkun.
Annars hefur hjólanotkun stór-
aukist í Bandaríkjunum. I nýlegri
könnun kom í ljós að um 60 milljónir
Bandaríkjamanna hjóluðu einu sinni
eða oftar á ári. Ef hjólanotkun í
Bandaríkjunum væri sambærfleg við
notkunina í sumum Evrópulöndum
væri þessi tala a.m.k. þrefalt hærri.“
Fisher staldraði aðeins við í þrjá
daga á íslandi og stefndi svo á Svi-
þjóð og Noreg. Hann fer um heiminn
og heimsækir hjólaklúbba og fylgist
með hvað er að gerast. Að eigin sögn
finnst honum spennandi að kynnast
mismunandi viðhorfum og menningu
á ferðalögum sínum, ekki síst hjóla-
menningu. Hann heimsækir einnig
þau umboð sem selja hjólin hans en
þau eru orðin fimmtíu út um allan
heim.
Honum líst vel á ísland sem fjalla-
hjólaland og segist vilja koma hingað
og dvelja í nokkrar vikur og hjóla
um hálendið. Landið eigi vissulega
framtíð fyrir sér fyrir þá íþrótt, en
það sé enn óuppgötvað og ósnortið
og því verulega spennandi. „Kapp-
arnir í Islenska fjallahjólahópnum
hafa verið óþreytandi að sýna mér
ferðamyndir og möguleika á fjalla-
ferðum. Þeir hafa sannfært mig um
að ég verði að koma hingað aftur
fljótlega og fara í langa og stranga
fjallaferð.“
VIÐ MÁLUM í NÓTT!
Gallerí Fold verður opið í nótt frá kl. 22.00 til 05.00
í baksal gallerísins er sýningin Landið og þjóðin
Hvergi meira úrval af íslenskri myndlist
ÞESSIR ÁGÆTU LISTAMENN VERÐA VIÐ STÖRF í GALLERÍINU
ART GALLERY
rauðarArstIo
SlMl': 551 0400
Soffía Sæmundsdóttir Gunnlaugur Stefán lngibjörg Styrgerður Sossa Daði Guðbjömsson Kristín Geirsdóttir Sigrún Eldjám
Myndir, sem þeir gera í nótt, verða færðar Rauða krossi íslands að gjöf.