Morgunblaðið - 17.08.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 29
BJÖRG
ÁSGEIRSDÓTTIR
+ Björg Ásgeirsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 22. febrúar
1925. Hún lést í Reykjavík 7.
ágúst síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Neskirkju í
Reykjavík 15. ágúst.
Elsku amma mín, núna sit ég
í Öskjuhlíðinni og horfi á fagurt
sólarlagið. Þá leitar hugur minn
til þín og hjartað mitt fyllist sökn-
uðij kvöldið fyrir jarðarförina.
Eg mun aldrei gleyma hve hlýtt
var að koma að heimsækja ykkur
afa. Þú komst brosandi fram á
gang og tókst á móti okkur með
innilegum kossi. Áhugi þinn á því
sem við vorum að gera var alltaf
einlægur.
Ég minnist þess er við sátum
saman og töluðum um okkar sam-
eiginlega áhugamál, innanhúss-
hönnun. Og þú, amma mín, hafðir
ætíð góðar hugmyndir fram að
færa og eins og þín var venja
fylgdu oft brosleg tilsvör.
Núna er ég búin að kyssa þig
í síðasta sinn, en mun hugsa oft
til þín og um þá góðu stundir sem
við áttum saman, elsku amma mín.
Sárt þykir mér að hugsa til
þess að þegar ég eignast mín börn,
fái þau ekki að kynnast þér. En
ég mun segja þeim frá hversu fal-
leg og indæl amma þú varst mér.
Elsku amma, vegna þín er ég mjög
stolt af nafninu sem ég ber. Hvíl
þú í friði.
Þitt barnabarn og alnafna,
Björg Ásgeirsdóttir.
MINNINGAR
Ég kynntist Björgu um 1965
og alla tíð síðan hefi ég velt fyrir
mér hvað konan Björg var vel
gerð, því eftir það kom ég oft á
heimili hennar á öllum tímum
dags, ætíð var hún í góðu skapi,
hjálpleg og öllum velviljuð. Björg
hafði góða kímnigáfu og átti sér-
lega auðvelt með að setja sig í
aðstæður annarra og atburði líð-
andi stundar og sá ætíð skemmti-
legu hliðarnar á mönnum og mál-
efnum.
Hún var mjög ráðagóð og hjálp-
söm við alla og er það nánast
furðulegt, hvað hún var oft nærri
þeirri niðurstöðu sem þurfti til að
leysa málin. Því var mjög gott að
leita til hennar.
Með þessum fáu orðum kveð
ég Björgu Ásgeirsdóttur og sendi
eiginmanni hennar, börnum og
barnabörnum, vinum og ástvinum
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Konráð R. Bjarnason.
ARSÆLL JONSSON
■4- Ársæll Jónsson fæddist í
' Pétursbúð á Arnarstapa
25. september 1918. Hann lést
á heimili sínu á Höfðagrund
9, Akranesi, 12. ágúst síðast-
liðinn og fór útför hans fram
frá Akraneskirju 16. ágúst.
Snæfellingurinn Ársæll Jónsson
frá Viðvík á Hellissandi er látinn.
Hann ólst upp á Arnarstapa, hóf
sitt heimilishald með konu sinni
Önnu Jóhannsdóttur í Ólafsvík og
starfaði svo lengstan hluta ævi
sinnar fyrir utan Enni og þau
Anna komu þar upp sínum mynd-
arlega barnahópi. Lengst áttu þau
heima í Viðvík á Hellissandi og
við þann stað hafa þau verið
kennd.
Svo sem aðrir ungir menn á
fjórða áratug þessarar aldar var
leið Ársæls út frá heimahögum sú
að leita sér atvinnu um leið og
fermingu og barnaskólagöngu
lauk. Það var framhaldsskóli þeirr-
ar kynslóðar. Sjálfsagt hefur sá
skóli verið mörgum erfiður en
vinnureynsla og þekking á at-
vinnuháttum og þjóðfélaginu skil-
aði oft eins góðum undirbúningi
undir lífsstarfið og langseta á
skólabekkjum dagsins í dag.
Ársæll var sérstaklega fjölhæf-
ur maður. Hann var áhugasamur
félagshyggjumaður, rökfastur og
skemmtilegur í umræðum um
margháttuð málefni. Á sínum
langa starfsferli tók hann að sér
hin ýmsu verkefni og skilaði þeim
af sér með miklum ágætum. Hann
stundaði sjómennsku, var m.a.
vélstjóri á einum af fyrstu vélbát-
unum sem gerðir voru út frá hinni
nýju Rifshöfn, Hólmkeli SH 139.
Hann var verkstjóri í fiskverkun-
inni Hróa hf. í Ólafsvík. Bóndi
nokkur ár á Sveinsstöðum og eftir
það hafði hann alltaf nokkrar
kindur á fóðrum og hafði mikla
ánægju af. í nokkur ár átti hann
tæki til ámoksturs á bíla og var
með það í vegavinnu á sumrum
hér á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Hann stjórnaði sanddælutæki
Hafnamálastofnunar í nokkur
sumur við uppgröft í Rifshöfn og
víðar.
Þetta er orðin nokkur upptaln-
ing, samt ekki tæmandi um auka-
störf Ársæls. Aðalstörfin eru þó
enn ónefnd. Hann var hafnarstjóri
Rifshafnar í um áratug, fyrsti
fastráðni hafnarstjórinn þar, vita-
vörður á Skálasnagavita og Önd-
verðanesvita í yfir tuttugu ár.
Hann átti og rak lifrarbræðslu á
Rifi í marga vetur og stundaði
sjósókn á trillu á sumrin.
Maður sem skilaði vel af sér svo
fjölþættum störfum sem Ársæll
gerði hlaut að kunna örugg og
breytileg handtök og hafa mjög
fjölþætta þekkingu. Svo var með
Arsæl í Viðvík.
Ársæll var einn af forustumönn-
um þess að vinstrafólk stóð sam-
eiginlega að framboði til sveitar-
stjórnar og sýslunefndar í Nes-
hreppi utan Ennis í janúar 1954,
en sú samfylking var síðan endur-
tekin næstu tvennar kosningar.
Þetta framboð fékk góðan meiri-
hluta og sá sem þetta skrifar var
valinn til forustu sveitarstjórnar-
innar. Allt frá upphafi þessa sam-
starfs og jafnan síðan átti ég gott
samstarf við Ársæl og naut ráð-
legginga og hjálpar frá honum á
margan hátt. Ársæll var lengst
af stjórnarformaður í Jökli hf. og
á vettvangi þess fyrirtækis höfðum
við margháttað samstarf.
Fregnin um það að Ársæll Jóns-
son frá Viðvík á Hellissandi væri
látinn kom ekki á óvart. Heilsufar
hans hafði verið þannig síðustu
misseri að þeir sem til þekktu
gerðu sér grein fyrir því að hvert
viðtal við hann gæti orðið það síð-
asta. Ég finn þó fyrir því hvað
umhverfið hefur breyst og vænt-
ingum fækkað við það að eiga
ekki lengur von á því að hitta
Ársæl og eiga við hann spjall eða
bara að sjá hann.
Ég og ijölskylda mín þökkum
áralanga vináttu og samfylgd og
vottum Önnu og allri fjölskyldunni
okkar dýpstu samúð.
Skúli Alexandersson.
NIKULÁS
HALLDÓRSSON
HRAUNBERGS
APÓTEK
Hraunbergi 4
INGÓLFS
APÓTEK
Kringlunni 8-12
eru opin til kl. 22
“A"
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Ingólfs Apótek
+ Nikulás Halldórsson fædd-
ist á Akureyri 22. júní 1979.
Hann lést 21. júlí síðastliðinn
og fór útför hans fram frá
Sauðaneskirkju á Langanesi 27.
júlí.
Elsku Nikki.
Nú ert þú horfinn á braut yfir
móðuna miklu. Ég trúði þessu ekki
fyrst. Hver gat trúað því að þú
færir svona snemma. Ég er í raun-
inni ekki búin að átta mig á þessu
enn. Þín verður sárt saknað.
Það var mjög gaman að kynnast
þér, kæri bekkjarbróðir. Þú varst
alltaf hress og skemmtilegur strák-
ur sem áttir framtíðina fyrir þér.
Þú komst svo mörgum til að
brosa. Nú verðum við að vera án
þín, elsku Nikki. Þú varst góður
félagi og vinur. Mest á ég eftir að
sakna þess að þú hrekkir mig ekki
oftar þegar þú hjólar í vinnuna.
Það síðasta sem þú sagðir við
mig áður en þú fórst var sennilega
uppáhalds orðið þitt sem var Bibba
gella. Þess á ég eftir að sakna. Það
var í rauninni það eina sem þú sagð-
ir við mig.
Elsku Ásta, Dóri, Tinna og
Henný Lind og aðrir aðstandendur
Nikulásar. Megi góður guð styrkja
ykkur í ykkar miklu sorg.
Góði guð, líttu eftir Nikka.
Vinakveðja, þín
Vilborg Anna.
t
SVEINN BRYNJÓLFSSON
frá Þingeyri,
Dýrafirði,
er látinn.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristján Brynjólfsson,
Þórarinn Brynjólfsson,
Ármann Brynjólfsson,
Helgi Brynjólfsson,
Friðrik Brynjólfsson
og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SÓLEY SIGURJÓNSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 1,
Keflavfk,
lést í Landspítalanum 14. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Margeir Þorgeirsson, Ástríður L. Guðjónsdóttir,
Katrín Ó. Þorgeirsdóttir, Guðmundur G. Þórisson,
Ingibergur Þorgeirsson, Málfríður Baldvinsdóttir
og barnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdasonur og mágur,
HAROLDJ. WILSON,
lést á heimili sínu, 8 Cross Street, Beverly MA, Bandaríkjunum,
11. ágúst sl.
Útförin hefur farið fram.
Sigríður Erlingsdóttir Wilson,
Patric Erlingur Wilson, Kevin Björn Wilson,
Unnur Samúelsdóttir,
Brynjúlfur Erlingsson,
Samúel Örn Erlingsson.
t
Bróðir okkar,
ÓLAFUR SIGURÐSSON,
Norðurbrún 1,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
mánudaginn 19. ágúst kl. 13.30.
Ásta Þórarinsdóttir,
Dagbjörg Þórarinsdóttir,
Sigurberg Þórarinsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
ÁGÚST ÓLAFSSON,
Skipholti 55,
lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur þann
15. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Elisabet Einarsdóttir,
Sverrir Ágústsson, Lilja Þorsteinsdóttir,
Karen Ágústsdóttir,
Hanna Rún Ágústsdóttir,
Arnar Ágústsson,
Nína Ólafsdóttir,
Hafsteinn Ólafsson
og barnabörn.
- kjarni málsins!