Morgunblaðið - 17.08.1996, Side 32
32 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
AV//--
Grettir
UPPJ^RArt E’R QOÐ-
KS'RNAR MpÓLKA VEL
/VlAMAtA FÉKK HR/Nff 1 NEFIÐOÖ
LEIkXHeNÚ^TKD/MAlUR i'RUOM'
éVFITIMNI „ RAFA1ASNS TAKIN -
_ ---------jife>
Tommi og Jenni
/Ni&árSo&)%J Su/Jcl -
ncuttcu-, < suLta-
gciUas' \ oj re>fu-
Uttum f>d- cl incitcuC'K-
Listanc^fni. frúnutTL
Þú hefur ekki hugmynd um hve Hvers vegna Þetta gengur ekki... ég
það ergir mig mikið að sjá þig líturðu ekki sakna þess að ergja mig!
með þetta asnalega teppi! bara undan?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Halló Akureyri
- halló Akureyringar!
Frá foreldravaktinni:
AKUREYRINGAR buðu gestum
heim um verslunarmannahelgina
og voru rausnarlegir, því hingað
komu um tíu þúsund manns. En
hvernig stóðu heimamenn að mót-
tökunni?
Aðstandendur „Hailó Akureyri"
höfðu samband við fuiltrúa foreldra-
vaktar bæjarins og fóru þess á ieit
að þeir skipuleggðu „vakt“ um þessa
helgi í miðbænum. Voru fimm til
sjö manna hópar á vaktinni aðfara-
nótt föstudags, laugardags og
sunnudags. Það er samdóma álit
þeirra sem vaktimar stóðu að
ástandið hafí verið gjörsamlega
óviðunandi þessar nætur. Að það
sé óverjandi fyrir framkvæmdaaðila
hátíðarinnar og forsvarsmenn Akur-
eyrarbæjar að ætla sér að halda
ámóta samkomu að ári.
Foreidrar bera vissulega ábyrgð
á veru ósjálfráða unglinga á svona
hátíðum og sem uppalendur á við-
horfum og hegðun þeirra sem náð
hafa 16 ára aldri. En þeir sem gefa
leyfi, auglýsa og standa fyrir sam-
komuhaldi geta aldrei fríað sig
ábyrgð á því sem gerist á „hátíðar-
svæðinu" sem í þessu tilfelli er sveit-
arfélagið á Akureyri. Það sem for-
eldravaktin varð vitni að þær þijár
nætur sem hún var á ferli í miðbæn-
um og víðar getur tæplega verið
það sama og forsvarsmenn hátíðar-
innar sáu á sínum ferðum um bæ-
inn. Þeir telja, eftir því sem fram
hefur komið í fjölmiðlum, að ástand-
ið þessa daga hafi verið þolanlegt
og engin ástæða sé til annars en
að reyna aftur að ári. Hundruð-
ölvaðra ungmenna að gera þarfir
sínar hér og þar um bæinn, nokkrar
nauðganir, fíkniefnasala, hávaði og
læti nótt eftir nótt í og við íbúð-
arhverfi, skemmdarverk a eigum
heimafólks og opinberra aðila og
margra daga fréttaflutningur af
ástandinu er sú ásýnd Akureyrar
sem þessir hagsmunaaðilar virðast
gera sig ánægða með. Það er ýmis-
legt sem má viðgangast ef hagnað-
arvonin er annars vegar. Er siðferði-
lega rétt að gera út á neyslu kóf-
drukkinna unglinga?
Kostnaður
Framkvæmdastjóri „Halló Akur-
eyri“ hefur sagt að skipuleggjendur
hátíðarinnar hafí búist við allt að
tíu þúsund manns og þeim varð að
ósk sinni. Samt sem áður er ljóst
að vibúnaði og afþreyingu var
ábótavant og engan veginn í sam-
ræmi við þarfir.
Bæjarfélagið þarf að greiða veru-
legan aukakostnað vegna löggæslu
þessa umræddu helgi og einnig hlýt-
ur hreinsunarkostnaður að vera
talsverður.
Er ekki sjálfsagt að þeir sem
stóðu að hátíðinni greiði fyrir sig?
Er þetta sú ímynd sem við kjósum
ferðamannabænum Akureyri?
Er þetta sú fyrirmynd sem við
teljum börnum og unglingum bæj-
arins samboðna?
Viljum við bæjarbúar hafa svona
uppákomu í bænum okkar þar sem
allt fer á annan endann og friðhelgi
íbúanna er virt að vettugi?
Hvað er til ráða?
Foreldrafélagið hefur beðið um
fund með bæjarstjóra og bæjarfull-
trúum til að ræða þessi mál.
FORELDRAVAKTIN,
Akureyri.
A öðrum hnöttum
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
STÓRAR fyrirsagnir í öllum fjöl-
miðlum um líf á Mars hafa naum-
ast farið framhjá neinum, né heldur
það, að Clinton Bandaríkjaforseti
hefur tekið undir þau mál. Einhveij-
ir segjast jafnvel hafa vitað þetta
áður, og hefur slíkt löngum viljað
við brenna, allt frá dögum Kólum-
busar-eggsins. - Lífsmerki frá
Mars, eins og þau sem menn telja
sig nú fundið hafa, eru meðal ann-
ars mikilsverð fyrir það, að þau
vísa hugsun vísindamanna leið.
Hafi líf náð að þróast á öðrum
hnetti, hliðstætt því sem hér hefur
gerst, á þessari jörð, gefur það
auga leið að það er í eðli alheims-
ins, að slíkt gerist.
Ástæða er til að minna á, enn
einu sinni, að hér á íslandi hefur
verið uppi heimspeki, sem sýnir
þetta mál allt, um líf í alheimi, um
þýðingu þekkingarinnar, í skýrara
ljósi en nokkursstaðar hefur verið
gert. Að slík heimspeki hefur orðið
að vera aðeins viðfangsefni nokk-
urra sérstæðra manna, flestra úr
alþýðustéttum, er, þrátt fyrir þann
vitnisburð, sem það gefur hinni
gömlu íslensku alþýðumenntun,
blettur á íslenskri menningu í heild
sinni - svartasti bletturinn, með
sanni að segja.
Afrekaskrá
Reyndar á þetta alþýðufélag, eftir
langan feril sinn, allmerkilega af-
rekaskrá, sem sjálf mun lýsa sér
þegar þar að kemur. En þó er það
eitt sem e.t.v. er ástæða til að vekja
athygli á nú þegar, þó að ekki séu
nema rúm 40 ár síðan sá þáttur
spannst. Þá var það, að kona, ein
af stofnendum félagsins nýalska,
kom fyrst manna í því félagi - og
ef til vill fyrst hér á jörð - fram
með það, sem ég hygg vera rétta
skýringu á hinum „fljúgandi disk-
um“, en þeir hafa löngum verið sett-
ir í samband við íbúa annarra hnatta.
Ingibjörg Bjömsson taldi að fl.d. fjar-
flyttust á augabragði milli hnatta,
og væru þannig framhald af líkamn-
ingum þeim („Phantoms"), sem fram
komu hjá spíritistum forðum.
Allar athuganir mínar síðan hafa
stutt það, að Ingibjörg hafí þarna
fundið kjama málsins, en hinsvegar
hafa andmælin gegn fl.d. löngum
byggst á þeirri sannfæringu, að
þeir yrðu að vera, ef til væru, bákn
úr áli og stáli, sem væru að þokast
með snigilhraða um ljósáraleiðir,
uns þeir næðu að marka brautir sín-
ar í námunda við Jarðar-krílið, sem
kallar sig „heimsbyggðina"!
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.