Morgunblaðið - 17.08.1996, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUIM
ÍDAG
Guðspjall dagsins:
Farísei og
tollheimtumaður.
(Lúk. 18.)
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks kirkjunnar er minnt á
guðsþjónustu í Laugarneskirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. María Ágústsdótt-
ir. Organisti Marteinn H. Friðriks-
son.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Prestur sr. María Ágústsdóttir.
Organisti Marteinn H. Friðriks-
son. Bátsferð úr Sundahöfn kl.
13.30.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa
kl. 14. Prestur sr. Fjalar Sigur-
jónsson. Organisti Kjartan Ólafs-
son. Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Yip’s barnakórinn frá Hong Kong
og barnakór Grensáskirkju syngja
við messuna. Stjórnandi Margrét
Pálmadóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Orgeltónleikar kl. 20.30. Gunnar
Idenstam konsertorgelleikari frá
Svíþjóð.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Forsöngvari Soffía Guðmunds-
dóttir. Organisti Guðmundur
Ómar Ólafsson. Helga Soffía
Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Engin guðs-
þjónusta vegna sumarleyfa
starfsfólks. Minnt á þjónustu í
Bústaðakirkju.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Félagar úr Kór Laugarnes-
kirkju syngja. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Guðsþjónusta kl. 14
í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12.
Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Fermd
verður Rakel Hlín Bergsdóttir,
Skildinganesi 54, Reykjavík.
Prestur sr. Halldór Reynisson.
Orgel- og kórstjórn Sighvatur
Jónasson.
Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Prestur sr. Hildur
Sigurðardóttir. Organisti Kristín
Jónsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Ey-
jólfsson annast guðsþjónustuna.
Organleikari Sigrún Steingríms-
dóttir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Samkoma
Ungs fólks með hlutverk kl. 20.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
DtSEROENCERAMICA
zitrSín
s^3uUJ -
StórhSfða 17 v» GuUlnbrú, sfmi 5«7 4844
STLFIJRR
x-*~/ Kringlunni 8-12« Sími 568 9066
- Þar fcerÖu gjöfina -
Óskalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjónustafyrir
brúðkaupið
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Þakkar góða
grein
GUÐNÝ BERGSDÓTTIR
hringdi til að lýsa ánægju
sinni með grein sem birtist
í Morgunblaðinu nýlega eft-
ir Árna Bjömsson. Hún
sagðist ekki búast við því
að stjórnmálamenn væru
svo klárir í kollinum að þeir
skildu háðið í greininni, en
skemmtilegra og hnitmið-
aðra háð sagðist hún ekki
hafa lesið í háa herrans tið.
Gamla fólkið er ekki dug-
legt við að skrifa í blöð og
kvarta um sinn hag. Því
vill Guðný sjá í blöðum
meiri skrif ritfærra ráða-
manna og blaðamanna um
kjör þessa fólks, því verið
er að rýra kjör þess á allan
hátt. „Það væri kannski til
að vekja þessa sofandi sauði
í ríkisstjórn íslands. Líklega
er þetta þó hugsunarleysi,
fremur en hreinræktuð
mannvonska.“
Steinkudys?
ÓLÖF hringdi til að vekja
athygli á því að nú standa
yfír breytingar og breikkun
á Eiríksgötunni við Hnit-
björg þar sem er svokölluð
„Steinkudys". Hún sagðist
halda að þar hafi verið graf-
in utangarðsmanneskja og
hafi verið til siðs að henda
stein í dysina þegar fólk
gekk fram á hana. Ekki
sagðist Ólöf hafa orðið vör
við að fólk hreyfði mótmæl-
um við þessari breikkun á
götunni sem gerir það að
verkum að dysin hverfur,
en það finnst henni óhugs-
andi og spyr hvort borgar-
minjavörður hafí ekki með
þetta mál að gera. Og jafn-
framt ef einhver veit meira
um þessa dys væri gaman
að fá að heyra um það.
Þakklæti til
áhafnar FÍ-453
VESTVAR Lúðvíksson
hringdi og bað Velvakanda
að koma eftirfarandi á
framfæri fyrir systur sína
Birgit Dam:
„Innilegt þakklæti til
áhafnar FÍ-453 frá London
til Keflavíkur þann 1. ágúst
sl. Nöfn í áhöfninni eru
eftirtalin: Hilmar Berg-
steinsson, flugstjóri, Þráinn
Hafsteinsson, aðstoðarflug-
maður, Margrét Bjarg-
mundsdóttir, flugfreyja,
Steinunn Hreinsdóttir,
flugfreyja, Helga S. Knuds-
en, flugfreyja, Auður Daní-
elsdóttir, flugfreyja og Guð-
laug Harpa Gunnarsdóttir,
flugfreyja.
Málavextir voru þeir að
Birgit var að jafna sig eftir
læknismeðferð og eftir að
hafa legið við yfirliði inni í
flugstöðvarbyggingunni
bað hún flugvallarstarfs-
menn um að að fá hjólastól
til að komast um borð. Ein-
hverra hluta vegna dróst
það að hjólastóllinn kom og
þ.a.l. komst hún ekki um
borð í tæka tíð fyrir áætl-
aða brottför og því beið
vélin eftir henni í u.þ.b.
hálftíma. Kann Birgit áhöfn
sinni bestu þakkir fyrir.
Við lendingu í Keflavík
var Birgit keyrð í hjólastól
frá borði og það var ein
flugfreyjan úr áhöfninni
sem aðstoðaði hana við að
nálgast farangurinn og tal-
aði einnig við rútubílstjór-
ann til að biðja hann um
að líta til með heni.
Birgit á við alvarlegan
sjúkdóm að stríða frá 28
ára aldri og hún segir að
íslendingar geti verið stoltir
af að eiga félag eins og
Flugleiðir.
Hún færir áhöfninni enn
og aftur þakkir fyrir góða
og alúðlega þjónustu.
Tapað/fundið
Myndavél tapaðist
SAMSUNG ECX-1 mynda-
vél í grænu hulstri tapaðist
í Vestmannaeyjum aðfara-
nótt 21. júlí sl. Skiivís
finnandi vinsamlega hringi
í síma 552-3736 og er fund-
arlaunum heitið.
Myndavél tapaðist
LITIL Olympus myndavél
tapaðist líklega í Daníels-
lundi í Borgarfirði, eða á
viðkomustöðum norður í
land föstudaginn 9. ágúst
sl. Skilvís finnandi vinsam-
lega hringi í síma
561-3316.
Myndavél
tapaðist
NIKON myndavél tapaðist
á Búðum, Snæfellsnesi, um
verslunarmannahelgina.
Skilvís finnandi vinsamlega
hringi í Hönnu í síma
552-1263 á kvöldin.
Gæludýr
Einar Áskell er
týndur
EINAR Áskell sem er lítill
tíu mánaða grábröndóttur,
lífsglaður köttur, hvarf frá
heimili sínu á Túngötu 36,
Reykjavík, sl. þriðjudag.
Þeir sem teija sig geta gef-
ið upplýsingar um afdrif
hans eru vinsamlega beðnir
að hafa samband í síma
562-5092 eða 552-3990.
Kettling vantar
heimili
TÆPLEGA tveggja mán-
aða gamall kettlingur sem
er grár að lit með gulum
flekkjum, þarf að eignast
gott heimili. Áhugasamir
dýravinir eru beðnir að
hringja í síma 581-3242.
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
Svartur leikur og á
að halda jafntefli
STAÐAN kom upp á nor-
ræna bikarmótinu í Gausdal
í Noregi, sem lauk á sunnu-
daginn. Stórmeistarinn Igor
Rausis (2.495) frá Lettlandi
var með hvítt, en Svíinn Ti-
ger Hillarp—Persson
(2.400) hafði svart og átti
leik.
43. - Rgh3+! 44. gxh3??
(Hvítur leikur sig beinustu
leið í mát. Nauðsynlegt var
44. Kfl - Rxf2! 45. c7 -
Dxh2 46. c8=D — Dxg2+
47. Kel - R2d3+ 48. Bxd3
— Rxd3+ 49. Kdl — Rb2+
og niðurstaðan verður jafn-
tefli með þráskák) 44. —
Dxh3 45. Dh5+ (Álger ör-
vænting) 45. — Rxh5 46.
Rf5 og hvítur gafst upp án
þess að bíða eftir svari and-
stæðingsins.
Því verður varla á móti
mælt að Svíinn Tiger Hillarp
Persson er með farsælli
skákmönnum. Auk þessa
sigurs vann hann tapaða
skák gegn tékkneska stór-
meistaranum Jansa vegna
ótrúlegs afleiks Tékkans.
Hann hefur ölium á óvart
tekið forystuna í norrænu
VISA bikarkeppninni, en
staða efstu mann þar er
þessi: 1. Hillarp Persson 43
stig, 2. Margeir Pétursson
42,5 3. Curt Hansen, Dan-
mörku 37,5 4. Simen Agde-
stein, Noregi 35,5 5. Jóhann
Hjartarson 34,17, 6. Tisdall,
Noregi 29 7. Jonny Hector,
Svíþjóð 24,17, 8. Djurhuus,
Noregi 24, 9. Gausel, Noregi
23,67, 10-11. Helgi, Áss
Grétarsson og Helgi Ólafs-
son 22, 12. Hannes Hlífar
Stefánsson 21,5 13 Þröstur
Þórhallsson 19, o.s.frv.
Víkveiji skrifar...
Altarisganga. Organisti Sólveig
Sigríður Einarsdóttir. Sóknar-
prestur.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Helgistund í umsjá Ragnars
Schram kl. 20.30. Organisti
Ulrich Ólafsson. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Bjarni
Þór Jónatansson. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Ath. breyttan tíma. Kór
kirkjunnar syngur. Organisti
Oddný J. Þorsteinsdóttir. Kristján
Einar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Helgistund
kl. 11 í umsjón sr. Þorbergs Krist-
jánssonar. Organisti Örn Falkner.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónustur
falla niður í ágústmánuði vegna
sumarleyfa starfsfólks kirkjunnar.
Sóknarprestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Sunnudagur 18. ágúst: (Himnaför
heilagrar Maríu meyjar). Kl. 10.30
hámessa, kl. 14 messa, kl. 20
messa á ensku. Mánudaga til
föstudaga: messur kl. 8 og kl. 18.
Laugardaga: messa kl. 8, messa
á þýsku kl. 18 og messa á ensku
kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11 á sunnudögum.
HJÁLPRÆÐISHERINN: I sam-
bandi við Menningarnótt í Reykja-
vík verður útisamkoma á Lækjar-
torgi kl. 1 og á Ingólfstorgi kl. 2.
Bæn og lofgjörð í Herkastalanum
kl. 2.30-4. Hjálpræðissamkoma
kl. 20 sunudag. Elsabet Daníels-
dóttir talar.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag
kl. 20. Altarisganga öll sunnu-
dagskvöld. Prestur sr. Guðmund-
ur Örn Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8.
Almenn samkoma kl. 11. Ræðu-
maður Ásmundur Magnússon.
Fyrirbænaþjónusta/bænaklútar.
Allir hjartanlega velkomnir.
VÍDALÍNSKIRJA: Guðsþjónusta
kl. 11 sem leikmenn annast að
öllu leyti. Hugvekja: Laufey Jó-
hannsdóttir. Einsöngur: Helga
Rós Indriðadóttir. Organisti:
Gunnsteinn Ólafsson. Bragi Frið-
riksson.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sum-
arferð til Þingvalla. Brottför með
rútu kl. 15 frá safnaðarheimilinu.
Guðsþjónusta í Þingvallakirkju kl.
17. Fólk taki með sér nesti. Þór-
hallur Heimisson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga
kl. 8. Allir velkomnir.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 10.30. Sóknarprestur.
STRANDAKIRKJA: Kvöldbænir á
þýsku í kirkjunni sunnudags kl.
17. Kristján Valur Ingólfsson.
SKÁLHOLTSPRESTAKALL:
Messa í Bræðratungukirkju
sunnudag kl. 14. Messa í Skál-
holtsdómkirkju kl. 17. Kammer-
kór Garðakirkju syngur við mess-
una. Sóknarprestur.
ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeið-
um: Guðsþjónusta sunnudag kl.
21. Sóknarprestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl.
11 í umsjá Kristínar Pálsdóttur.
Kyrrðarstund mánudag kl. 18.
Sóknarprestur.
Ferming í
Neskirkju
FERMING verður í Nes-
kirkju sunnudag kl. 11.
Prestur sr. Halldór Reynis-
son. Fermd verður:
Rakel Hlín Bergsdóttir,
Skildinganesi 54,
Reykjavík.
MENN geta ráðið því sjálfir
hvað þeir kalla sig í síma-
skránni, Póstur og sími gerir ekki
athugasemdir við það starfsheiti,
sem menn kjósa að láta setja við
nafnið sitt. Þannig eru ýmsir aldn-
ir heiðursmenn enn skreyttir ráð-
herra- og bankastjóratitlum, þótt
þeir hafi látið af störfum fyrir löngu
og Víkveija skilst að maður nokkur
úti á landi sé skráður í símaskrána
sem byltingarmaður.
XXX
RÍKI geta greinilega ráðið því
líka hvað þau kalla sig í síma-
skránni. Þannig er sendiráð Rúss-
lands í Reykjavík ennþá skráð sem
sendiráð Sovétríkjanna, „Soviet
embassy" upp á ensku. Víkveiji
hefði satt að segja haldið að núver-
andi stjórnvöldum í Rússlandi ætti
að vera það mikið í mun að segja
skilið við kommúníska fortíð lands-
ins að þau gætu haft fyrir því að
láta breyta skráningu sendiráða
sinna í símaskrám erlendis.
XXX
KANNSKI er fjárskorti um að
kenna; það kostar víst nokk-
ur hundruð krónur að láta breyta
skráningu í símaskrá. Rússar eru
duglegir að spara, það mega þeir
eiga, enda er efnahagsástandið
bágt. Fyrir rúmu ári sótti Víkveiji
um vegabréfsáritun til Rússlands
og fyllti út sama eyðublaðið og
hann fékk nokkrum árum áður,
er hann var á leið til Sovétríkjanna
þáverandi, með öllum sömu spurn-
ingunum („hefur yður verið vísað
frá Sovétríkjunum?"). Enn hafa
ekki verið prentuð ný eyðublöð,
þótt ríki sovétanna séu úr sög-
unni. Þannig lifa Sovétríkin áfram
í símaskrám og á opinberum eyðu-
blöðum.
xxx
REIÐHJÓLAEIGN virðist fær-
ast í vöxt hér á landi, ekki
sízt með tilkomu fjallahjólanna,
sem henta íslenzkum aðstæðum
prýðilega. Margir hafa líka komizt
að þeirri niðurstöðu að það sé
heilsubót að hjóla, auk þess sem
reiðhjól er ágætt samgöngutæki.
Reiðhjólin munu þó sennilega aldr-
ei eignast sama sess á íslandi og
t.d. í Danmörku eða Hollandi, bæði
vegna landslagsins og veðurfarsins.
Af þessum sökum hefur sveitar-
stjórnum yfirleitt ekki þótt taka
því að leggja fé í sérstaka hjólreiða-
stíga og þess í stað er heimilt að
hjóla bæði á götum og gangstéttum
á íslandi.
xxx
VORT sem hjólað er á götu
eða gangstétt, mætir hjól-
reiðamanninum hins vegar sama
tillitsleysið. Margir ökumenn virð-
ast hreinlega ekki reikna með hjól-
reiðamönnum í umferðinni og sjá
þá þess vegna ekki, þótt þeir horfi
í áttina til þeirra. Bremsurnar á
hjóli Víkveija hafa oftar en ekki
bjargað lífi hans þegar bílstjórar í
órétti aka í veg fyrir hann með
sauðarsvip. Víkveija hefur dottið
sama dýrategund í hug þegar hann
hjólar á gangstéttunum og mætir
pörum eða hópum fólks, sem horfa
á hann sljóum augum og dettur
ekki í hug að víkja til hliðar, held-
ur virðist einna helzt gera ráð fyr-
ir að við þessar kringumstæður
eigi hjólreiðamenn bara að demba
sér út á götuna og verða fyrir bíl,
fremur en að ónáða gangandi veg-
farendur.