Morgunblaðið - 17.08.1996, Síða 44
EINARJ.
SKÚLASON HF
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(a>CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Dregur fjöl-
skylduna
í skokkið
„Þ AÐ geta allir tekið þátt og það
skiptir engu máli í hvernig formi
þátttakendur eru, heldur að vera
með,“ segir Ingibjörg Tómas-
dóttir, en hún ætlar að taka þátt
í skemmtiskokkinu í Reykjavík-
urmaraþoni á morgun með
manni sinum Þórarni Kjartans-
syni og tveimur börnum, Ólöfu
Katrínu, níu ára og Tómasi Ar-
oni, tíu mánaða.
Ingibjörg segir að þetta sé í
fyrsta skipti sem hún taki þátt i
Reykjavíkurmaraþoninu en vin-
kona hennar hafi dregið hana i
kvennahlaupið í júní og þannig
hafi áhuginn vaknað. Nú dragi
hún alla fjölskylduna í skokk.
Systkini Ingibjargar eru einn-
ig hlaupagiöð og ætlar systir
Ingibjargar, Arndís Tómasdóttir
i skemmtiskokkið með dóttur
sinni, Krístínu Lenu Þorvalds-
dóttur. Hálfbræður systranna
ætla í tiu kilómetra hlaupið.
„Það er mjög gott að geta tek-
ið þátt þó að maður sé með lítið
barn i kerru. Tómas Aron var
aðeins 8 mánaða í kvennahlaup-
inu og ég hljóp með hann í vagni.
Fyrir frammistöðuna fékk hann
einnig verðlaunapening. Eg mun
fara eins að nú.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÁHUGASÖM um skokkið: Davíð Ingi, 13 ára, Ólöf Katrín 9 ára,
Aðalsteinn Ingi, 22 ára, Guðmundur Ingi, 13 ára, Ingibjörg Tóm-
asdóttir, 35 ára, Kristín Lena, 13 ára, Þórarinn Kjartansson, 40
ára, Tómas Aron, 10 mánaða og Arndis Tómasdóttir, 33 ára.
Starfshópur um samhæfingu sjúkrahúsa
Fær 2 vikur til
að skila sparn-
aðartillögxim
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ,
fjármálaráðuneytið og borgarstjór-
inn í Reykjavík hafa skipað starfs-
hóp um samhæfingu og verkaskipt-
ingu milli Sjúkrahúss Reykjavíkur
og Ríkisspítalanna.
Starfshópinn skipa Kristján Er-
lendsson, skrifstofustjóri í heil-
brigðisráðuneytinu, Magnús Pét-
ursson, lögfræðingur í fjármála-
ráðuneyti og Hjörleifur Kvaran,
borgarlögmaður. Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðisráðherra segir að
bráðavandi Sjúkrahúss Reykjavíkur
hljóði upp á um 250 milljónir króna,
og því sé mikilvægt að starfshópur-
inn skili af sér sem fyrst, svo ekki
komi til uppsagna starfsfólks.
„Þær tillögur sem fram eru
komnar gera ráð fyrir að hægt sé
að ná fram varanlegum sparnaði
með aukinni samhæfingu sjúkra-
húsanna", segir Ingibjörg Pálma-
dóttir.
„Starfshópurinn hefur í mesta
lagi hálfan mánuð til að ljúka tillög-
um sínum um hvernig megi hrinda
þessum sparnaðaraðgerðum í fram-
kvæmd, en stefnt er að því að hag-
ræðingin bitni sem minnst á sjúkl-
ingum. Menn eru sammála um þann
vanda sem sjúkrahúsið á við að
etja, og um leið og tekist er á við
bráðavandann verður athugað
hvernig koma megi við varanlegum
sparnaði í rekstri sjúkrahússins í
framtíðinni."
Áhrif á bæði sjúkrahúsin
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, segir að
samstarfsnefndin eigi fyrst og
fremst að skoða hvort unnt sé að
auka samhæfingu og verkaskipt-
ingu milli sjúkrahúsanna nú þegar
í sparnaðarskyni.
„Samstarfshópurinn á að fara
yfir fram komnar tillögur og meta
hvort einhveijar þeirra eru raun-
hæfar og framkvæmanlegar, og
hvort þær geta skilað einhveijum
sparnaði“, sagði Ingibjörg Sólrún.
Almannavarnaæfing Friðarsamstarfs Atlantshafsbandalagsins
Fyrsta marghliða æfingin
með þátttöku Rússa
RÚSSNESK stjórnvöld hafa, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins,
tilkynnt Atlantshafsbandalaginu
(NÁTO) og íslenzkum stjórnvöldum
að Rússland muni taka þátt í al-
mannavarnaæfingu á vegum Frið-
arsamstarfs NATO, sem haldin
verður hér á landi næsta sumar.
Aðild að Friðarsamstarfinu eiga
NATO-ríkin sextán og 27 sam-
starfsríki þeirra í Evrópu. Rússland
hóf ekki þátttöku í samstarfinu fyrr
en á síðasta ári. Æfingin á íslandi
næsta sumar, þar sem æfð verða
viðbrögð við öflugum jarðskjálfta,
verður því fyrsta marghliða æfing
ríkja Friðarsamstarfsins sem Rúss-
land tekur þátt í, en rússneskir
hermenn hafa tekið þátt í nokkrum
tvíhliða æfíngum með Bandaríkjun-
um. Lögð hefur verið áherzla á það
af hálfu NATO að tryggja þátttöku
Rússa í æfingum, þar sem fleiri
ríki eiga hlut að máli.
Ólíklegt að hermenn
verði sendir
Enn er ekki frágengið hvaða
form verður á þátttöku Rússa í
æfingunni. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins telja rússneskir
embættismenn ólíklegt að hermenn
verði sendir til íslands. Rætt hefur
verið um að sent verði lið frá tveim-
ur stofnunum, sem heyra undir
Emerkom, ráðuneyti almanna-
varna, neyðaraðstoðar og náttúru-
hamfara í Rússlandi. Þá hefur sá
möguleiki verið nefndur að Rússar
leggi til flutningaflugvél.
Ríkin, sem hyggjast taka þátt í
æfingunni næsta sumar, eru nú
orðin fimmtán, auk íslands. Þar af
eru þijú NATO-ríki, Bandaríkin,
Kanada og Danmörk, og tólf sam-
starfsríki Atlantshafsbandalagsins.
Búast má við að yfir 2.000 erlendir
hermenn taki þátt í æfingunni.
Endurheimt vot-
lendis á ríkisjörðum
Fyllt upp
í skurði í
Hestmýri
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fylla upp í
skurði í Hestmýri í Borgarfírði í sum-
ar. Er framkvæmdin liður í áætlun
um endurheimt votlendis á ríkisjörð-
um. Af þessu tilefni hafa verið gerðar
ýmsar rannsóknar í Hestmýri í sumar.
Að ósk Fuglaverndarfélagsins fór
landbúnaðarráðuneytið að huga að
því í fyrravetur hvort mögulegt væri
að breyta framræstu landi á ríkis-
jörðum aftur í votlendi. Níels Árni
Lund, deildarstjóri í landbúnað-
arráðuneytinu og formaður starfs-
hópsins, segir að safnað hafi verið
upplýsingum um mýrar um allt land.
Þegar hafi verið ákveðið að loka
skurðum í Hestmýri í Borgarfirði í
haust og fleiri svæði séu í athugun.
Svæðin séu ýmist í eigu ríkisins og
einkaaðila.
Góður rannsóknargrundvöllur
Hestmýri er á mörkum jarðanna
Hests og Mávahlíðar sem báðar eru
í eigu Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins en hún rekur tilraunabú í
sauðfjárrækt á Hesti. Mýrin er um
20 hektarar. 1975 hóf stofnunin
rannsóknir á mýrinni og breytingum
sem verða í kjölfar framræslu. Gerð-
ar voru forrannsóknir áður en að
framræslu kom 1977 og síðan fylgst
með breytingum fyrstu árin á eftir.
Borgþór Magnússon, gróðurvist-
fræðingur hjá RALA, segir að vegna
þeirra rannsókna sem fram fóru sé
gott að athuga áhrif þess á vistkerfi
mýrarinnar þegar skurðum er aftur
lokað. Slíkar rannsóknir séu mikil-
vægar vegna áforma um endurheimt
votlendis víðar um land.
Óöryggið afleitt
SEXTUG kona á Þórshöfn, Guðný María
Jóhannsdóttir, slasaðist illa á fæti er hún
lenti með fótinn í garðsláttuvél sl. mið-
vikudagskvöld. Guðný María missti strax
eina tá af hægri fæti og óvíst er með
tvær aðrar tær.
Guðný María segir afleitt að búa við
það óöryggi sem hefur skapast víða á
landsbyggðinni eftir uppsagnir heilsu-
gæslulækna. Hún sagði að yfirvöld ættu
skilyrðislaust að grípa inní deiluna. „Yf-
irvöld hafa ekki verið í vandræðum með
að blanda sér í deilur sjómanna og ann-
arra stétta.“
Guðný María segir læknislaust á Rauf-
arhöfn, Kópaskeri og Vopnafirði. „Mér
skilst að nú sé kominn læknir til Þórs-
hafnar en það virðist alltaf þurfa eitthvað
til, eins og þetta slys í minu tilviki, svo
eitthvað sé gert.“
Kallað eftir sjúkraflugvél
Enginn heilsugæslulæknir var til stað-
ar á Þórshöfn er slysið varð en hjúkrun-
arfræðingur og önnur kona komu
Guðnýju Maríu til hjálpar og kölluðu eft-
ir sjúkraflugvél. Hún var nokkuð illa
haldin enda blæddi mikið úr sárinu.
Guðný María var flutt á slysadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri og var
komin þangað um tveimur klukkustund-
um eftir slysið. Hún fór beint í aðgerð
sem lauk rúmum þremur tímum síðar.
■ Sáttatilraunir/2
■ Fólk bíður/5
Morgunblaðið/Krislján
GUÐNÝ María Jóhannsdóttir í sjúkra-
rúmi á bæklunardeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri.