Morgunblaðið - 18.08.1996, Qupperneq 1
DÁNMÖDK
Ódýrir bílaleigubílar
fyrir íslendinga.
Vikugjald, lágmarksleiga
Opel Corsa dkr. 1.795
Opel Astra dkr. 1.995
Opel Astra, st. dkr. 2.195
Opel Vectra dkr. 2.495
2ja vikna gjald
Opel Corsa dkr. 2.995
Opel Astra dkr. 3.590
Opel Astra, st. dkr. 3.990
Opel Vectra dkr. 4.390
Innif. ótakmarkaöur akstur,
tryggingar, vsk.
Fáið nánari verðtilboö
International Car Rental ApS.
Uppl. á íslandi, sími 456 3745.
Golf í Halifax
I Nova Scotia eru 55 golfvellir
og margir hveijir ótrúlega fal-
legir og spennandi fyrir kylf-
íga. Halifax tilheyrir Nova Scot-
i fylkinu og eru Flugleiðir með
beint áætlunarflug þangað.
Urval-Útsýn býður nú kylf-
ingum upp á golf- og versl-
unarferð til Halifax í
Kanada. ■ Æ
4
••
-4 ÞRIÐJA stærsta borg
Þýskalands, Miinchen í Bæjara-
landi, laðar árlega að sér millj-
ónir ferðamanna og skákar
þar með þeim stærri; Berlín
og Hamborg.
MUNCHEN
SUNNUDAGUR 18. AGUST 1996 BLAÐC
Ferðaklúbburinn FLAKK nýtur vinsælda meðal framhaldsskólanema
Feröagladir
unglingar
Ljósmynd/Haukur Hannesson
HALLDÓR, Jói, Kiddi og Haukur íhuga fallhlífarstökkið.
FLAKK ferðaklúbbur Jafninga-
fræðslu framhaldsskólanema nýtur
mikilla vinsælda. Síðustu helgi fóru
til dæmis 80 unglingar í bátsferðir
á Hvítá og voru margir á biðlista
eftir að komast að.
Ferðaklúbburinn er starfræktur í
samstarfí við Samvinnuferðir-Land-
sýn og er markmiðið að kynnast
landinu í vímulausum helgarferðum
á góðu verði. Einnig safna félags-
menn punktum til að fara í utan-
landsferðir með ferðaskrifstofunni.
Tuttugu og fimm krakkar fóru í
júlí til Benedorm á Spáni í viku, og
27. ágúst verður farið til Lundúna
fyrir 15.800 krónur með gistingu.
Utanlandsferðimar eru einnig vímu-
lausar.
Helgi Pétursson hjá Samvinnu-
ferðum-Landsýn segir að ferðskrif-
stofan hafí átt hlut í því að ýta
FLAKKI úr vör, leiðbeina og ljá
þeim starfsmann. „Við hvetjum
krakkana til að skoða landið, og nú
má segja að slegist sé um að kom-
ast í þessar ferðir."
„Krakkarnir fagna því,“ segir
Helgi, „að eiga val sem felst í því
að ferðast í stað þess að vera í
bænum, þar sem alltaf er einhver
ölvun. Það hlýtur að vera gott að
vera í hópum sem byggja á alls-
gáðri stemmningu."
Helgi segir utanlandsferðimar
vera sem verðlaun í augum krakk-
anna. Hann bætir við að ferðaskrif-
stofan verði áfram með FLAKKI í
vetur, bæði vegna innanlandsferða
og utanlandsferða.
Haukur Hannesson starfsmaður
FLAKKS segir um 500 vera í ferða-
klúbbnum núna, en hann er þessa
daganna að skipuleggja starfsemina
fyrir septembermánuð.
Á dagskrá hjá FLAKKI
„Á döfinni er kajakferð út í Eng-
ey,“ segir hann, „fallhlífarstökk,
heimsókn í herstöðina í Keflavík,
önnur Hvítárferð og ef til vill verður
Laugarvegurinn í Landmannalaug-
ar líka genginn."
Haukur segist vera að kanna
hvort til greina komi að klúbbfélag-
ar fari til Dublinar í október á hljóm-
leika með Pearl Jam og Seude. ■
OFTAR
Tll FLÓRÍDA
► VERÐ á pakkaferðum til
Flórída hefur lækkað, til dæmis
kostar 8 daga ferð í sólina í bænum
Sarasota 49.000 krónur í Iiaust, og
hefur lækkað um 10.000 krónur
frá þvi á síðasta ári. Fimmtán daga
ferð fyrir 2 fullorðna með 2 böm
til Sarasota kostar nú 34.500 en
41.715 áður.
Flugleiðir hafa bætt við sjö
aukaferðum til Flórída vegna mik-
illar eftirspuraar. Fyrsta viðbótar-
ferðin verður 11. september og
síðan vikulega á þriðjudögum til
loka október. Talið er fullvíst að
yfir 7.000 manns leggi leið sina til
sólarfylkisins í vetur.
NÝR
BÆKUNGUR
► Flugleiðir hafa gefið út sér-
stakan bækling um vetrarferðir til
Flórída vegna vaxandi vinsælda
þessa áfangastaðar meðal íslend-
inga. í honum eru meðal annars
góðar upplýsingar um hvað ferða-
mannastaðir eins og Orlando, Fort
Lauderdale, ströndin við St. Pet-
ersburg, Bradenton og Sarasota
hafa upp á að bjóða. ■
TÓFURNAR
búa í
heimagerðu
greni sem
er að öllu
leyti eins og
náttúrulegt greni.
Þær eru af tveim
litarafbrigðum,
gráu og mórauðu,
og rétt gáfu sér
tíma til að líta út
úr greninu til Ijós-
myndarans.
HJÓNIN Aðalsteinn I.
Jónsson og Ólavía Sigm-
arsdóttir í Klausturseli á
Jökuldal hafa komið sér upp
vísi að dýragarði heima hjá
sér í Klausturseli. Þar hafa
þau til sýnis fyrir ferðafólk
hreindýr og hreindýrskálfa,
tófur í greni, minka, heiða-
eæsir og álftarunga.
Olavía hafa
VISIR AÐ DYRAGARÐI
handiðnargallerí þar sem eru til sýn-
is og sölu handunnir munir úr hrein-
dýraskinni og ull. Fyrstu hugmyndir
að dýragarðinum komu upp
í tengslum við vinnsluna úr
hreindýraskinninu, að gam-
Morgunblaöið/Sigurður Aðalatcinsson
HREINDÝRSKÁLFARNIR vinsælir hjá yngstu kynslóðinni.
VETURGÖMLU hreindýrin eru
hálf sneplótt því þau eru að
losa sig við ljósu vetrarhárin.
an væri að hafa lifandi hreindýr til
sýnis á staðnum.
Það var svo á síðastliðnum vetri
að fönguð voru tvö veturgömul hrein-
dýr og í framhaldi af því þrír hrein-
dýrskálfar í vor. Síðan voru tófurn-
ar, minkamir, gæsirnar og álftar-
unginn einnig tekin í vor. Þetta fram-
tak Klausturselshjónanna kunna
ferðamenn vel að meta og nokkur
umferð ferðafólks hefur verið í
Klausturseli í sumar að skoða þessi
dýr.