Morgunblaðið - 20.08.1996, Page 14

Morgunblaðið - 20.08.1996, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 MGRGUNBLAÐIÐ AKUREYRI HALDIÐ var upp á þrjátíu ára afmæli Kísiliðjunnar við Mývatn um helgina. Fjölmenni við 30 ára afmæli Kísiliðjunnar við Mývatn Framleiðsla verksmiðjunnar hefur aukist um 82% á tveimur árum Mývatnssveit. Morgunbladid. Þrotabú Skóverk- smiðjunnar Striksins Ekkert upp í almennar kröfur SKIPTUM er lokið í þrotabúi skó- verksmiðjunnar Striksins, en fyrir- tækið var úrskurðað gjaldþrota í júlí árið 1992. Alls greiddust tæplega 24 millj- ónir króna upp í samþykktar veð- kröfur, en þær námu alls 51,5 millj- ónum króna. Ekkert greiddist upp í almennar kröfur sem námu alls um 64,5 milljónum auk áfallandi vaxta og kostnaðar. ----♦ ♦ ♦--- Subway opnar á Akureyri SIJBWAY hefur opnað skyndi- bitastað í nýju húsnæði að Kaup- vangsstræti 1 á Akureyri. Þetta er fjórði Subway-staðurinn hér- lendis en fyrir eru tveir staðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Staðurinn sérhæfir sig í sölu á svokölluðum brauðkafbátum, með alls kyns kjöti og grænmeti og smákökum og eru brauðin og smákökurnar bökuð á staðn- um. Anna María Malmquist, rekstrarstjóri á Akureyri, segir að viðtökurnar hafi verið hreint frábærar. Staðurinn er opinn frá kl. 10-23.30 á virkum dögum og frá kl. 11-04 um helgar. KISILIÐJAN við Mývatn tók til starfa 13. ágúst 1966. í þijátíu ár er því búið að framleiða kísilgúr úr botnleðju Mývatns. Þessara tímamóta var minnst með vegleg- um afmælisfagnaði sunnudaginn 18. ágúst. Mikil framleiðsluaukning Þann dag var opið hús frá há- degi fyrir almenning og var verk- smiðjan í gangi. Grillað var fyrir gesti og skemmtun fyrir yngstu kynslóðina. Reist var stórt tjald á lóð verksmiðjunnar og komið fyrir leiktækjum. Einnig var börnunum boðið að fara á hestbak. Hreiðar Karlsson stjórnarfor- maður flutti ávarp og Bjarni Bjarnason framkvæmdastjóri flutti ágrip af sögu Kísiliðjunnar og kom víða við. Hann kvað veru- lega erfiðleika hafa mætt félaginu í upphafi, enda um frumraun að ræða bæði í vinnslu námunnar og við nýtingu jarðgufu til iðnaðar. Tæknilegir byrjunarörðugleikar voru að mestu yfirunnir árið 1972 og þokkalegur hagnaður varð af rekstri Kísiliðjunnar næstu fjögur árin. En Adam var ekki lengi í Paradís, í desember árið 1975 hóf- ust Kröflueldar en þeir teljast mesti jarðsögulegi atburður á ís- landi á þessari öld. Frá árinu 1984 má telja að góðæri hafi ríkt í Kísil- iðjunni um sjö ára skeið. Afkoma fyrirtækisins nú er mjög góð enda hefur verið reynt að hagræða sem best í reksti þess. Framleiðslan hefur aukist úr 299 tonnum á hvert ársverk árið 1993 í 543 tonn árið 1995 eða um 82% á tveimur árum. Að loknu ágripi af sögu fyrirtæk- isins kynnti Guðrún Sigurðardóttir arkitekt lokaverkefni sem hún hef- ur unnið að um Bjarnarflag, Lónið og útilit og umhverfi Kísiliðjunnar. Síðast var boðið upp á léttar veit- ingar fyrir starfsmenn og boðs- gesti. Einar Njálsson bæjarstjóri á Húsavík flutti kveðju frá bæjar- stjórninni þar. Hann ávarpaði einn- ig Baldur Líndal sem mættur var í afmælishófið og taldi hann föður Kísiliðjunnar. Baldur þakkaði hlý- leg viðurkenningarorð í sinn garð. í tilefni afmælisins bárust Kísiliðj- unni blóm og skeyti frá félögum og einstaklingum. Umhverfið fegrað Fjöldi fólks lagði leið sína í Kísil- iðjuna síðastliðinn sunnudag og höfðu margir orð á því hve vel hefði tekist að fegra og prýða umhverfi verksmiðjunnar undan- farin ár. Munu þeir lengi minnast ánægjulegrar heimsóknar í sól og blíðu veðri og óska fyrirtækinu og starfsliði allra heilla. Morgunblaðið/Kristján SARA María Stefánsdóttir og Aldís Einarsdóttir afgreiða. Starf forstöðumanns í haust tekur að nýju til starfa á Akureyri norræn upplýsingaskrifstofa. Þjónustu- svæði hennar verður allt Norðurland. Meðal verkefna skrifstofunnar verður að kynna og efla norrænt samstarf á svæðinu, styðja norrænt starf skóla, menningar- stofnana og félaga og halda tengslum við aðrar norrænar stofnanir og félög, bæði hér á landi og á hinum Norðurlöndunum. Auglýst er laust til umsóknar starf forstöðumanns þessarar skrifstofu. Um er að ræða hlutastarf, um 67% stöðu. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk. Verkefni forstöðumanns er að hafa umsjón með verkefnum sem Norræna ráðherranefndin og Norræna félagið á fslandi fást við hverju sinni. Af forstöðumanni er krafist að hantt • hafi stjómunarhæfileika og reynslu, • gott vald á dönsku, norsku eða sænsku, • hæfni í að setja fram hugmyndir í ræðu og riti og • lipurð í mannlegum samskiptum. Umsóknir um starfið skal scnda til formanns stjómar skrifstofunnar, Tryggva Gíslasonar, skólameistara, Menntaskólanum á Akurcyri, 600 Akureyri. Nánari upplýsingar um starfið fást hjá honum í síma461 1433 eða 461 1078 og á skrifstofu menningarmála hjá Akureyrarbæ í síma 460 1450. Handverk ’96 Hátt í 9 þús- und manns á sýninguna HÁTT í 9 þúsund rnanns sóttu sýninguna Handverk ’96 sem hald- in var í íþróttahúsinu við Hrafna- gil um liðna helgi. Það er heldur meiri aðsókn en var á sýninguna fyrir ári. Reynir Adolfsson hjá Ferðaþjón- ustu Akureyrar, sem sá um skipu- lagningu sýningarinnar, sagði að sýnendur hefðu yfirleitt verið ánægðir með viðtökur en vissulega væri misjafnt hvernig sala hjá hvetjum og einum hefði gengið. Að þessu sinni tók handverks- fólk frá Grænlandi, Færeyjum og Norður-Noregi þátt í handverks- sýningunni og sagði Reynir að þeir hefðu verið mjög ánægðir. ---------♦ ♦ ♦--- Sjóstanga- veiðimót SJÓSTANGAVEIÐIMÓT, sem Sjó- stangaveiðifélag Akureyrar, SJÓ- AK stendur fyrir verður sett næst- komandi fimmtudagskvöld, 22. ágúst kl. 20.30 á Hótel KEA. Farið verður með rútu frá bíla- stæðinu við Skipagötu til Dalvíkur kl. 6 að morgni föstudags og leggja bátar frá landi klukkustund síðar. Síðdegis, eftir að bátar hafa komið að landi verður grillveisla, en hald- ið af stað til Akureyrar kl. 18. Veiði verður haldið áfram á laugar- dag, 24. ágúst, slegið verður upp bryggjuballi þegar og á meðan bátar koma inn um miðjan daginn. Lokahóf verður á Hótel KEA á laugardagskvöld og þá verða veitt verðlaun og viðurkenningar. Morgunblaðið/Kristján Mósaikverk úr klaka MYNDLISTARKONAN Jónbjörg Sigurðardóttir, Jonna, lagði sitt af mörkum til að lífga upp á mið- bæjarlífið á Akureyri sl. föstudag. Ilún mætti með klakasneiðar í alls kyns litum á Ráðhústorgið og bjó þar til mósaikverk. Verkið hafði hins vegar ekki langan líf- tíma og það var orðið að vatni fáum klukkustundum siðar. Jonna frysti vatn með litarefn- um í mjólkurfernum, sem hún svo sagaði í sneiðar og raðaði upp á hellunum á Torginu. Litarefnin sem hún notaði voru m.a. kaffi og krækiberjasaft. > I I t L i í í I L I I \ l I Í í I í ( I I í t I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.