Morgunblaðið - 20.08.1996, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996
MGRGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
HALDIÐ var upp á þrjátíu ára afmæli Kísiliðjunnar við Mývatn um helgina.
Fjölmenni við 30 ára afmæli Kísiliðjunnar við Mývatn
Framleiðsla verksmiðjunnar hefur
aukist um 82% á tveimur árum
Mývatnssveit. Morgunbladid.
Þrotabú Skóverk-
smiðjunnar Striksins
Ekkert upp
í almennar
kröfur
SKIPTUM er lokið í þrotabúi skó-
verksmiðjunnar Striksins, en fyrir-
tækið var úrskurðað gjaldþrota í
júlí árið 1992.
Alls greiddust tæplega 24 millj-
ónir króna upp í samþykktar veð-
kröfur, en þær námu alls 51,5 millj-
ónum króna. Ekkert greiddist upp
í almennar kröfur sem námu alls
um 64,5 milljónum auk áfallandi
vaxta og kostnaðar.
----♦ ♦ ♦---
Subway
opnar á
Akureyri
SIJBWAY hefur opnað skyndi-
bitastað í nýju húsnæði að Kaup-
vangsstræti 1 á Akureyri. Þetta
er fjórði Subway-staðurinn hér-
lendis en fyrir eru tveir staðir í
Reykjavík og einn í Hafnarfirði.
Staðurinn sérhæfir sig í sölu á
svokölluðum brauðkafbátum,
með alls kyns kjöti og grænmeti
og smákökum og eru brauðin
og smákökurnar bökuð á staðn-
um.
Anna María Malmquist,
rekstrarstjóri á Akureyri, segir
að viðtökurnar hafi verið hreint
frábærar. Staðurinn er opinn frá
kl. 10-23.30 á virkum dögum og
frá kl. 11-04 um helgar.
KISILIÐJAN við Mývatn tók til
starfa 13. ágúst 1966. í þijátíu ár
er því búið að framleiða kísilgúr
úr botnleðju Mývatns. Þessara
tímamóta var minnst með vegleg-
um afmælisfagnaði sunnudaginn
18. ágúst.
Mikil framleiðsluaukning
Þann dag var opið hús frá há-
degi fyrir almenning og var verk-
smiðjan í gangi. Grillað var fyrir
gesti og skemmtun fyrir yngstu
kynslóðina. Reist var stórt tjald á
lóð verksmiðjunnar og komið fyrir
leiktækjum. Einnig var börnunum
boðið að fara á hestbak.
Hreiðar Karlsson stjórnarfor-
maður flutti ávarp og Bjarni
Bjarnason framkvæmdastjóri
flutti ágrip af sögu Kísiliðjunnar
og kom víða við. Hann kvað veru-
lega erfiðleika hafa mætt félaginu
í upphafi, enda um frumraun að
ræða bæði í vinnslu námunnar og
við nýtingu jarðgufu til iðnaðar.
Tæknilegir byrjunarörðugleikar
voru að mestu yfirunnir árið 1972
og þokkalegur hagnaður varð af
rekstri Kísiliðjunnar næstu fjögur
árin. En Adam var ekki lengi í
Paradís, í desember árið 1975 hóf-
ust Kröflueldar en þeir teljast
mesti jarðsögulegi atburður á ís-
landi á þessari öld. Frá árinu 1984
má telja að góðæri hafi ríkt í Kísil-
iðjunni um sjö ára skeið. Afkoma
fyrirtækisins nú er mjög góð enda
hefur verið reynt að hagræða sem
best í reksti þess. Framleiðslan
hefur aukist úr 299 tonnum á
hvert ársverk árið 1993 í 543 tonn
árið 1995 eða um 82% á tveimur
árum.
Að loknu ágripi af sögu fyrirtæk-
isins kynnti Guðrún Sigurðardóttir
arkitekt lokaverkefni sem hún hef-
ur unnið að um Bjarnarflag, Lónið
og útilit og umhverfi Kísiliðjunnar.
Síðast var boðið upp á léttar veit-
ingar fyrir starfsmenn og boðs-
gesti. Einar Njálsson bæjarstjóri á
Húsavík flutti kveðju frá bæjar-
stjórninni þar. Hann ávarpaði einn-
ig Baldur Líndal sem mættur var
í afmælishófið og taldi hann föður
Kísiliðjunnar. Baldur þakkaði hlý-
leg viðurkenningarorð í sinn garð.
í tilefni afmælisins bárust Kísiliðj-
unni blóm og skeyti frá félögum
og einstaklingum.
Umhverfið fegrað
Fjöldi fólks lagði leið sína í Kísil-
iðjuna síðastliðinn sunnudag og
höfðu margir orð á því hve vel
hefði tekist að fegra og prýða
umhverfi verksmiðjunnar undan-
farin ár. Munu þeir lengi minnast
ánægjulegrar heimsóknar í sól og
blíðu veðri og óska fyrirtækinu og
starfsliði allra heilla.
Morgunblaðið/Kristján
SARA María Stefánsdóttir og Aldís Einarsdóttir afgreiða.
Starf forstöðumanns
í haust tekur að nýju til starfa á Akureyri norræn upplýsingaskrifstofa. Þjónustu-
svæði hennar verður allt Norðurland. Meðal verkefna skrifstofunnar verður að
kynna og efla norrænt samstarf á svæðinu, styðja norrænt starf skóla, menningar-
stofnana og félaga og halda tengslum við aðrar norrænar stofnanir og félög, bæði
hér á landi og á hinum Norðurlöndunum.
Auglýst er laust til umsóknar starf forstöðumanns þessarar skrifstofu. Um er
að ræða hlutastarf, um 67% stöðu. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.
Verkefni forstöðumanns er að hafa umsjón með verkefnum sem Norræna
ráðherranefndin og Norræna félagið á fslandi fást við hverju sinni.
Af forstöðumanni er krafist að hantt
• hafi stjómunarhæfileika og reynslu,
• gott vald á dönsku, norsku eða sænsku,
• hæfni í að setja fram hugmyndir í ræðu og riti og
• lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsóknir um starfið skal scnda til formanns stjómar skrifstofunnar, Tryggva
Gíslasonar, skólameistara, Menntaskólanum á Akurcyri, 600 Akureyri.
Nánari upplýsingar um starfið fást hjá honum í síma461 1433 eða 461 1078
og á skrifstofu menningarmála hjá Akureyrarbæ í síma 460 1450.
Handverk ’96
Hátt í 9 þús-
und manns
á sýninguna
HÁTT í 9 þúsund rnanns sóttu
sýninguna Handverk ’96 sem hald-
in var í íþróttahúsinu við Hrafna-
gil um liðna helgi. Það er heldur
meiri aðsókn en var á sýninguna
fyrir ári.
Reynir Adolfsson hjá Ferðaþjón-
ustu Akureyrar, sem sá um skipu-
lagningu sýningarinnar, sagði að
sýnendur hefðu yfirleitt verið
ánægðir með viðtökur en vissulega
væri misjafnt hvernig sala hjá
hvetjum og einum hefði gengið.
Að þessu sinni tók handverks-
fólk frá Grænlandi, Færeyjum og
Norður-Noregi þátt í handverks-
sýningunni og sagði Reynir að
þeir hefðu verið mjög ánægðir.
---------♦ ♦ ♦---
Sjóstanga-
veiðimót
SJÓSTANGAVEIÐIMÓT, sem Sjó-
stangaveiðifélag Akureyrar, SJÓ-
AK stendur fyrir verður sett næst-
komandi fimmtudagskvöld, 22.
ágúst kl. 20.30 á Hótel KEA.
Farið verður með rútu frá bíla-
stæðinu við Skipagötu til Dalvíkur
kl. 6 að morgni föstudags og leggja
bátar frá landi klukkustund síðar.
Síðdegis, eftir að bátar hafa komið
að landi verður grillveisla, en hald-
ið af stað til Akureyrar kl. 18.
Veiði verður haldið áfram á laugar-
dag, 24. ágúst, slegið verður upp
bryggjuballi þegar og á meðan
bátar koma inn um miðjan daginn.
Lokahóf verður á Hótel KEA á
laugardagskvöld og þá verða veitt
verðlaun og viðurkenningar.
Morgunblaðið/Kristján
Mósaikverk úr klaka
MYNDLISTARKONAN Jónbjörg
Sigurðardóttir, Jonna, lagði sitt
af mörkum til að lífga upp á mið-
bæjarlífið á Akureyri sl. föstudag.
Ilún mætti með klakasneiðar í
alls kyns litum á Ráðhústorgið og
bjó þar til mósaikverk. Verkið
hafði hins vegar ekki langan líf-
tíma og það var orðið að vatni
fáum klukkustundum siðar.
Jonna frysti vatn með litarefn-
um í mjólkurfernum, sem hún svo
sagaði í sneiðar og raðaði upp á
hellunum á Torginu. Litarefnin
sem hún notaði voru m.a. kaffi
og krækiberjasaft.
>
I
I
t
L
i
í
í
I
L
I
I
\
l
I
Í
í
I
í
(
I
I
í
t
I