Morgunblaðið - 20.08.1996, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.08.1996, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Reuter 12 Rússar fórust við Belgrad Belgrad. Reuter. TALIÐ er að tólf manns, allir Rúss- ar, hafi farist með rússneskri flutn- ingavél af gerðinni Iljúshín-76 er hún brotlenti skammt frá flugvellin- um Belgrad í Serbíu í gærmorgun. Tíu voru í áhöfn vélarinnar en auk þeirra voru tveir menn um borð. Að sögn flugvallarstarfsmanna varð mikil sprenging í vélinni er hún brotlenti á akri um 800 metra frá flugvellinum. Hún hafði tekið á loft um þrem- ur tímum fyrr og segja starfsmenn- irnir hana hafa sveimað yfir vellin- um í tvo og hálfan tíma í von um að geta lent. Að sögn eins starfs- mannanna hafði flugstjóri vélar- innar samband við flugvöllinn í Valajavo, um 100 km frá Belgrad, um stundarfjórðungi eftir flugtak og sagðist eiga í erfiðleikum með rafmagn. Ljós, siglingatæki og fjarskipti væru að detta út og að hann hygðist snúa aftur til Belgrad. íbúar í vesturhluta borgarinnar vöknuðu við hávaðann í vélinni er hún flaug lágt yfir og óttuðust margir að hún myndi lenda á einu háhýsanna í úthverfunum. Farmurinn var skilgreindur sem hergögn, þar á meðal skotfæri, en eigandi vélarinnar, flugfélagið Spair, neitar því, segir hana hafa verið með 14,5 tonn af bíldekkjum og björgunarblys. Clinton fimmtugur BILL CLINTON Bandaríkjafor- seti varð fimmtugur í gær. Af því tilefni var haldin veisla í New York á sunnudagskvöldið þar sem forsetinn blés á kertin á þessari miklu hnallþóru, sem á eru rituð nöfn allra sambandsríkjanna fimmtíu. Dóttir forsetans, Chelsea, og kona hans, Hillary, fylgdust með. Um 2.000 gestir gæddu sér á tertunni. Fór veislan fram í Radio City tónleikasalnum, sem er einn sá stærsti í borginni, og voru sungin lög frá öllum ára- tugunum fimm, með Tony Benn- ett, Jon Bon Jovi, Aretha Franklin og Carly Simon ásamt fleirum. Þá voru sýndar kvikmyndir frá uppvexti forsetans og leikarinn James Earl Jones sagði frá. „Fyrsti bíllinn hans var Buick ár- gerð 1960 og hann keyrði um og þóttist vera Elvis Presley," sagði Jones um forsetann. Leikkonan Whoopi Goidberg sljómaði sam- komunni af röggsemi. Samkvæmt skoðanakönnun sem fréttaritið Newsweek gerði á laugardag hefur Clinton einungis tveggja prósenta forskot á Bob Dole, forsetaframbjóðanda Repú- blikana. Samkvæmt því hefur verulega dregið saman með fram- bjóðendunum, en könnun er gerð var á fimmtudag benti til að Clint- on hefði ellefu prósenta forskot. Það varpaði skugga á afmælið að níu manns, sem vom á leið til hátíðarsamkomunnar, fómst er ein af flugvélum forsetaembættis- ins fórst i fjallendi skömmu eftir flugtak í Wyoming. Lét forsetinn i ljósi samúð sína með aðstandend- um þeirra sem fórust. Þriggja barna faðir í Belgíu grunaður um að bera ábyrgð á hvarfi sex barna Líkin fundust í húsagarði Neufchateu. Reuter. Reuter MARC Dutroux, sem talið er að kunni að bera ábyrgð á hvarfi allt að sex barna, er leiddur út úr réttarsal. BELGÍSKIR lögreglumenn leita nú að tveimur unglingsstúlkum sem talið er að hafi verið misnotaðar kynferðis- lega af manni sem grunaður er um að bera ábyrgð á hvarfí þeirra. Um helgina fundust lík tveggja átta ára gamalla stúlkna, sem sultu í hel í haldi sama manns. Hann er talinn bera ábyrgð á allt að sex barnshvörf- um en upp um manninn komst í síð- ustu viku er tvær stúlkur, sem báru greinileg merki um kynferðislega misnotkun, fundust á heimili hans. Maðurinn, eiginkona hans og sam- verkamaður hafa verið ákærð fyrir ránið á síðamefndu stúlkunum. Mikil reiði ríkir nú í Belgíu vegna málsins. Lögregla hefur grafið eftir líkum við og í nokkrum húsum í borginni Charleroi. Nú er leitað að tveimur unglingsstúlkum, An Marchai, 19 ára, og Eefje Lambrecks, 17 ára, sem Dutroux hefur viðurkennt að hafa rænt á síðasta ári. Hann segist ekk- ert vita hvar þær séu niðurkomnar en talið er að þær kunni að hafa verið seldar úr landi. Alls hafa fimmt- án börn horfið í Belgíu á síðustu sex árum. Lík sjö þeirra hafa fundist, sex er enn saknað en aðeins tvö þeirra hafa fundist á lífi. Sultu í hel Lík Julie Lejeune og Melissu Russo fundust í þriggja metra djúpri gröf í húsagarði á laugardag samkvæmt ábendingu mannsins sem grunaður er um að bera ábyrgð á dauða þeirra. Hann heitir Marc Dutroux, er 39 ára rafvirki og þriggja bama faðir. Dutroux neitar að hafa myrt stúlk- urnar, segir þær hafa soltið í hel á meðan hann afplánaði fjögurra mán- aða dóm, að öllum líkindum í mars á þessu ári. Hann hefur hins vegar viðurkennt að hafa drepið félaga sinn í ofsabræði er Dutroux uppgötvaði að stúlkurnar voru látnar. Rannsóknarmenn leituðu í tvígang í húsinu þar sem stúlkumar voru í haldi, á meðan þær voru enn á lífi en fundu þær ekki. Þá hefur það vakið mikla reiði almennings að Dutroux, sem var dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir að nauðga og misnota börn, skyldi vera látinn laus aðeins þremur árum eftir að hann hóf afplán- un mun lengri dóms. Þáverandi dóms- málaráðherra tók ákvörðuna um lausn Dutroux, þvert á vilja ríkissaksóknara. Kreíjast fjölmörg belgísk dagblöð þess að dauðarefsing verði tekin upp að nýju en hún var afnumin í júní sl. Myndbönd með barnaklámi Stúlkurnar sem fundust á lífi voru í haldi í kjallaraklefa sem Dutroux hafði grafið undir hús sitt. Annarri var rænt í maí en hinni í ágúst. “LB MONDE EBT DANOEREUX A VIVRE NON A CAU&E DE CEUX OUI FONT LE MAL MAIS A CAUSE DE CEUX QUI REgARPENT ET LAISSENT FAIRE" VEGGSPJALD með mynd- um af Melissu Russo og Julie Lejeune. A spjaldinu stend- ur: Heimurinn er hættuleg- ur verustaður, ekki vegna illvirkjanna heldur þeirra sem fylgjast með og láta þá komast upp með [illvirkin].“ Dutroux var þó ekki einn að verki, samverkamaður hans, Michel Lel- ievre, hefur verið ákærður ásamt Dutroux, svo og eiginkona hans, Michelle. Þá hefur lögregla tvo karl- menn til viðbótar í haldi. Myndbönd með barnaklámi fundust í húsinu sem stúlkunum var bjargað úr en lög- regla segir þó of snemmt að fullyrða að um klámhring hafi verið að ræða. Að sögn samverkamannanna bauð Detroux þeim 50.000 franka greiðslu, rúmar 100.000 ísl. kr., fyr- ir hvert barn. Norræn verka- skipting DÓMSMÁLARÁÐHERRAR Norð- urlanda ræddu um það í gær á fundi sínum í Naantali (Nádendal) í Finn- landi að norrænu ríkin skiptu með sér verkum í samningaviðræðum við aðildarríki Schengen-vegabréfasam- komulagsins. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hafa íslenzk stjórnvöld átt erfitt með að manna alla fundina. „Á fundinum var rætt um að Norð- urlöndin myndu reyna að skipta þessu með sér,“ sagði Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra í samtali við Morg- unblaðið að ráðherrafundinum lokn- um. „Einstök lönd tækju aðalábyrgð á tilteknum viðfangsefnum og miðluðu svo upplýsingum til hinna. Þannig þyrftu ekki allir að vera á bólakafí í öllum málum. Ég held að þetta verði mjög góð skipan fyrir okkur.“ London. The Daily Telegraph. NY DEILA um Evrópumál er kom- in upp í brezka íhaldsflokknum, að þessu sinni um hönnun nýrra, samevrópskra ökuskírteina, sem jafnframt á að vera hægt að nota sem almenn persónuskilríki. Forsaga málsins er sú að Mich- ael Howard, innanríkisráðherra, lýsti því yfir fyrir tveimur árum að hann vildi taka upp nafnskír- teinakerfi í Bretlandi, meðal ann- ars til þess að auðvelda löggæzlu og fækka glæpum. Skiptar skoð- anir hafa verið innan íhalds- flokksins um það hvort skylda eigi fólk til að bera slík skírteini eður ei. Howard tók afstöðu með þeim, sem telja að fólk eigi sjálft að ákveða hvort það fær sér nafn- skírteini eða ekki. Upptaka nafnskírteinis hefur nú verið tengd áformum Evrópusam- bandsins um samevrópskt ökuskír- teini, en það á að taka gildi á næsta ári. Skírteinið mun gilda sem ökuskírteini í aðildarríkjunum og einnig sem vegabréf á ferðalög- um innan Evrópusambandsins. Þessi not hins nýja skírteinis eru talin munu hvetja brezkan almenn- ing til að bera það og hafa þar af Samevrópsk skilríki bitbein í Bretlandi .★★★* EVRÓPA^ leiðandi verið litin jákvæðum aug- um í innanríkisráðuneytinu. Evrópufáninn eða sambandsfáninn ? Brezka samgönguráðuneytið hefur fallizt á að Evrópufáninn, tákn Evrópuráðsins og Evrópu- sambandsins, verði prentaður á skirteinin, sem verða úr plasti og á stærð við greiðslukort. Þetta finnst hægrimönnum í íhalds- flokknum hins vegar ótækt og segja hönnun kortsins enn einn sigurinn í herferð „Brussel“ til að þröngva Bretlandi inn í evrópskt stórriki. „Þetta er allt samgöngu- ráðuneytinu að kenna. Það seldi vegabréfið þegar það samþykkti evró-ökuskírteinið. Þegar það varð grunnur nafnskírteinisins, sátum við þar með uppi með það. Nú verður Michael [Howard] að beijast til að bjarga málinu,“ seg- ir ónefndur þingmaður á hægri væng Ihaldsflokksins. Hægri menn vilja að brezki fáninn, „Union Jack“, verði prent- aður á skírteinið, auk Evrópufán- ans. John Redwood, einn helzti leiðtogi ESB-andstæðinga í íhaldsflokknum, vill reyndar bara hafa brezka fánann á skírteininu, ekki Evrópufánann. Sir Patrick Mayhew Norður- írlandsmálaráðherra hefur svo bent á nýjan flöt á málinu; að það kynni að móðga lýðveldissinna á Norður-írlandi ef brezki fáninn væri prentaður á ökuskírteinin þeirra. Andstæðingar sambands- ins við Bretland líta á fánann sem tákn brezka sambandsríkisins, rétt eins og Bretar telja Evrópu- fánann tákn ESB. John Major forsætisráðherra hefur nú blandað sér í málið og mun reyna að höggva á fánahnút- inn síðar í vikunni. Okuskírteinið tekið upp á lslandi Tilskipun Evrópusambandsins um samevrópsk ökuskírteini gildir í öllum ríkjum Evrópska efnahags- svæðisins. Áformað er að samevr- ópska ökuskírteinið verði tekið upp hér á landi á næsta ári. Fram kom í Morgunblaðinu í síðustu viku að verið væri að hraða undirbún- ingi fyrir innleiðingu skírteinisins. Samkvæmt upplýsingum frá dóms- málaráðuneytinu liggur hönnun íslenzka skírteinisins ekki fyrir. ESB gefur út staðia um útlit skír- teinisins, en innan þeirra hafa að- ildarríkin ákveðið svigrúm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.