Morgunblaðið - 20.08.1996, Síða 21

Morgunblaðið - 20.08.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 21 Siguijónssafn Slóvenskt verk frumflutt á íslandi Svava Bernharðs- Kristinn Örn Kristins- dóttir víóluleikari. son píanóleikari. Lokatón- leikar Tón- vakans ÚTSENDINGAR frá lokatónleikum Tónlistarkeppni Ríkisútvarpsins fara nú fram á Rás 1 á sunnudög- um. Á annan tug tónlistarmanna skráðu sig til keppni í ár. Til úr- slita keppa eftirtaldir fimm tónlist- armenn á jafnmörgum útvarpstón- leikum; Einar Jónsson, básúnuleik- ari, Helga Rós Indriðadóttir, messó- sópran, Miklós Dalmay, píanóleik- ari, Sigurbjörn Bernharðsson, fíðlu- leikari, Stefán Örn Arnarson, selló- leikari. Að tónleikum keppendanna lokn- um verður, 22. september, tilkynnt hver þeirra hlýtur tónlistarverðlaun Tónvakans 1996. Sigurvegarinn kemur fram með Sinfóníuhljómsveit íslands á tónleikum á vegum Ríkis- útvarpsins 17. október. -----» ♦ ♦----- Edda og Kjart- an á Sóloni EDDA Borg söngkona og Kjartan Valdemarsson píanóleikari leiða saman hesta sína á Sóloni íslandusi í kvöld kl. 22. Þriðjudagskvöldin á Sóloni eru helguð djassinum og er efnisskráin uppfull af ýmsum djasslögum. Edda og Kjartan eru að koma saman á ný eftir nokkurt hlé. Á NÆSTU þriðjudagstón- leikum í Listasafni Siguijóns Ólafssonar, í kvöld þann 20. ágúst klukkan 20.30, koma fram þau Svava Bernharðs- dóttir víóluleikari og Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari. Á efnisskrá tónleikanna eru eftirtalin verk: Gömbusónata nr. 2 í D-dúr eftir J.S. Bach, Sónata fyrir einleiksvíólu opus 25 nr. 1 eftir Paul Hin- demith, Bagatella fyrir víólu eftir slóvenska tónskáldið P. Ramovs og Sónata nr. 2 í Es-dúr eftir Johannes Brahms. Svava er búsett í Slóveníu og er persónulega kunnug Ramovs. „Flutningurinn á verki hans hér er ekki aðeins frum- flutningur hér á landi heldur utan Slóveníu yfirleitt. Ramovs er 75 ára gamall. Hann hefur mikið dáiæti á fjöllum og hleypur upp á hvert fjall i Slóveníu á hveiju ári. Hann er geysilega kraftmikill og til merkis um það má einnig nefna að hann er organisti og leikur í fimm messum á hveijum sunnudegi og sækir svo eina sjálfur. Það verður gaman að flytja þetta verk eftir hann.“ Svava segir að Ramovs hafi hringt í sig í vikunni og tilkynnt sér að hann hafi samið verk fyrir sig og eiginmann sinn. „Þetta er verk fyrir viólu d’amore og obó d’amore sem eiginmaður minn leikur á. Við mun- um vonandi flytja það hér á landi innan tíðar. Um efnisskrána á þriðju- daginn kemur er annars það að segja að hún samanstendur af eftirlætis- verkum mínum. Þetta er skemmtileg efnisskrá sem verður gaman að fást við með Kristni Erni.“ Svava Bernharðsdóttir nam víólu- leik hjá Nobuko Imai, William Lincer og Karen Tuttle og lauk doktorsprófi í víóluleik frá Juill- iard skólanum í New York 1989. Næstu árin lærði hún á barokkfiðlu við Schola Cantor- um Basiliensis í Sviss. Svava er búsett í Ljubljana í Slóveníu þar sem hún er leiðari víólu- deildar slóvensku Fílharmón- íunnar auk þess sem hún er dósent í víóluleik við Tónlistar- háskóla Ljubljana. Síðastliðið ár var gefinn út geisladiskur með leik Svövu Bernharðsdótt- ur og Kristins Arnar Kristins- sonar. Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari stundaði nám við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann fór síðan í framhaldsnám til Banda- ríkjanna og lauk BM prófi frá Sout- hern Illinois University, Edwards- ville. Hann var auk þess í tvö ár við St. Louis Conservatory of Music. Frá því Kristinn kom heim frá námi hef- ur hann verið eftirsóttur meðleikari bæði af hljóðfæraleikurum og söngv- urum. Kristinn er skólastjóri Tónlist- arskóla íslenzka Suzukisambandsins og kennir við Tónlistarskólann í Reykjavík. Nýjar bækur í erli dægranna Út er komin ljóðabókin í erli dægr- anna eftir Pétur Sumarliðason kennara. Pétur var fæddur 1916 og lést 1981. Hann kenndi m.a. í Fróðár- hreppi, a Drangsnesi, undir Vestur- Eyjafjöllum ogí Reykjavík. Hann var skóla- stjóri í Fljótshlíð og á Búðum við Fáskrúðsfjörð. Lengst af kenndi hann við Austurbæjar- skólann í Reykjavík en síðast við Seljaskóla. Bókinni er skipt í þrjá hluta sem nefnast Brot, Við hvítan jökul og í erli dægranna. „Á yngri árum orti Pétur mest bundið og rímað en leysti upp formið þegar á leið,“ segir í kynningu. Bókina bjuggu þau Guðrún Gísladóttir og Gísli Ólafur Péturs- son tilprentunar eftirhandritum Péturs. Pétur Örn Pétursson að- stoðaði við uppsetningu og útlit texta. Kápu og myndsíður hannaði auglýsingastofan Næst. Útgefandi erGísli Olafur Pétursson. Rú er rétti ttminn ttl að panfa áhlaeðisefni fvrir vehirinn •flklaeði fyrir heimilið: Gobelin efni með fallegum mynslrum. Höfum einnig ensk. amerísk, frönsk og ítölsk efni: litrík. falleg og mikið úival mynstra. •flklæði fyrir skrifstofuno, ó stólono, ó skermveggino, Fjölbreytt litaúrval, eldvarin, slitsterk gæðaefni. Biðjið húsgagnaframleiðendur um efnin frá Vef. •flklæði fyrir mikla notkun: Slitsterk - eldvarin - litaúrval - má þvo. Ultra rúskinn - Vinyl - Pluss. Einnig okkar vönduðu gluggatjaldaefni, veggfóður, gluggabrautir og gjafavara. Toft-húsinu, Skólavörðustíg 25 Sími 552-29Ö0. Fax 552-2961 Norrænu Amanda verðlaununum úthlutað Karl Júlíusson hlaut sérstök verðlaun KARL Júlíusson leikmynda- og búningahönnuður hlaut sérstök verðlaun fyrir verk sín, þegar nor- rænu Amandaverðlaunin voru af- hent á laugardag, þar á meðal í verðlaunamyndinni „Breaking the Waves“. Verðlaunaafhendingin fór fram í Haugasundi í Noregi og voru það alls tólf myndir frá fimm löndum sem kepptu um verðlaunin. Tvær myndir frá Islandi, Benjamín dúfa og Cold Fever voru þeirra á meðal. Norðmenn veittu sérstök verð- laun, m.a. fyrir bestan leik í karl- og kvenhlutverki. Þau fyrrnefndu hlaut Björn Sundquist og Rut Tellefsen var valin bezta leikkon- an fyrir leik í myndinni Kristín Lavransdóttir, sem Liv Ullman leikstýrði, en það var einmitt sú myndin, sem ásamt verðlauna- myndinni aflaði Karli verðlauna hans. Siemens heimilistækin eru rómuð fyrir stílhreina hönnun og góða endingu. Það er staðreynd. Smith & Norland býður mikið úrval heimilistækja frá Siemens. Fagleg ráðgjöf og góð þjónusta. Það er staðreynd. Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru: • Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála • Snæfellsbær: Blómsturvellir • Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson • Stykkishólmur: Skipavík • Búðardalur: Ásubúð • fsafjörður: Póllinn • Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókur: Rafsjá • Siglufjörður: Torgið • Akureyri: Ljósgjafinn • Húsavík: Öryggi • Vopnafjörður: Rafmagnsv. Árna M. • Neskaupstaður: Rafalda • Reyðarfjörður: Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir: Sveinn Guðmundsson • Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson • Höfn í Hornafirði: Króm og hvítt • Vík í Mýrdal: Klakkur • Vestmannaeyjar: Tréverk • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga • Hella: Gilsá • Selfoss: Árvirkinn • Grindavík: Rafborg • Garður: Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði. SMITH & NORLAND Nóatúni 4 • Sími 5113000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.