Morgunblaðið - 20.08.1996, Side 35

Morgunblaðið - 20.08.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MINIMIIMGAR ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 35 I ► > I > » I i i Q + BJARNIBIRGIR HERMUNDARSON + Bjarni Birgir Hermundars- son fæddist 11. ág- úst 1935 á heimili sínu á Norðurbraut 21 í Hafnarfirði. Hann lést á heimili sínu Sævangi 30 í Hafnarfirði 11. ág- úst síðastliðinn. Hann var sonur Hermundar Þórða- sonar, f. 12. ágúst 1903, d. 4. apríl 1992, og Sólveigar Sigurjónsdóttur, f. 2. ágúst 1912, d. 8. febrúar 1980. Bræður Bjarna: 1) Sigurdór Sævar, f. 2. febrúar 1934. 2) Hermundur Hafsteinn, f. 8. október 1938, d. 21. mars 1939. 3) Sigurður Kristinn, f. 26. maí 1944. Hinn 21. septem- ber 1963 kvæntist Bjarni eftir- lifandi eiginkonu sinni Ester Hurle, f. 18 maí 1937. Barn Bjarna og Ester: 1) Björg Ólöf Bjarnadóttir, f. 23. júlí 1964. 2) Fóstursonur þeirra og dótt- ursonur, Bjarni Birgir Fáfnis- son, f. 15. desember 1983. Björg er í sambúð með Ragnari Osk- arssyni og eiga þau tvö börn: 1) Þormar Elí, f. 7. ágúst 1989. 2) Hafsteinn Veigar, f. 26. sept- ember 1995. Bjarnj hóf sjó- mennsku 17 ára. Ári seinna lenti hann í sögulegu sjóslysi á Grundarfirði 1953 þegar ms. Edda frá Hafnarfirði fórst. Bjarni bjargaðist með 8 mönnum og átti hann þátt í björgun nokkurra þeirra. Bjarni út- skrifaðist úr Stýri- mannaskólanum 1961. Önnur skip sem hann starfaði á voru meðal ann- arra: Jón Trausti, ms. Akraborg, Þórður Jónasson og Surprise. Einnig starfaði Bjarni að hafnarmannvirkj- um, bæði í Hafnar- firði og í Straumsvík sem skip- stjóri á dráttarbátum. Hann gekk í Lionsklúbb Hafnar- fjarðar árið 1975 og gengdi þar fjölmörgum trúnaðarstörf- um, þ.á m. var hann formaður klúbbsins 1985-86. Bjarni byggði tvö hús í Hafnarfirði. Fyrra byggði hann um 1960, ásamt Hermundi föður sínum, Norðurbraut 23b þar sem hann bjó til ársins 1979. Seinna hús- ið, Sævang 30, byggði hann ásamt konu sinni og hafa þau búið þar síðan 1979. Árið 1973 keyptu þau hjónin fyrirtækið Nylonplast og starfaði hann við hlið konu sinnar við verslun og heildsölu allt til síðasta dags. Utför Bjarna fer fram frá Víðistaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hinsta kveðja frá eiginkonu Nú kveð ég þig með sárum trega, ástkær vinur minn, og þakka þér allar þær góðu og fallegu stundir sem við áttum saman og ég mun varðveita í hjarta mínu. Ég vil láta fylgja þetta fallega Ijóð sem faðir þinn orti til þín á fjörutíu ára afmæli þínu. Fæddist hér, við fagran fjörð og festi rætur, á móður jörð minnisstæð, sú gleðistund að sjá þig koma, á okkar fund Fagur er allur, ferill þinn því get ég fagnað, Bjami minn móðir þín ann þér, einnig ég jafnan þú gangir, gæfuveg Farsæl verði öll, framtíð þín famist þér vel, með auðarlín ljúfuna ykkar, á lifsins braut lausnarinn leiði, frá hverri þraut (Hermundur Þórðason) Vertu sæll að sinni, elsku vinur minn, og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín elskandi, Ester. Kveðja frá dóttur Svo leggur þú á höfin blá og breið á burt frá mér og óskalöndum þínum og stjarna hver, sem lýsir þína leið, er lítill gneisti, er hrökk af strengjum mínum. Þú skilur eftir minningar hjá mér um marga gleðistund frá liðnum árum og alltaf mun ég fagna og þjást með þér og þú skalt vera minn - í söng og tárum. Eitt orð, eitt Ijóð, eitt kvein frá kvaldri sál er kveðja mín, ég veit þú fyrirgefur. En seinna gef ég minningunum mál, á meðan allt á himni og jörðu sefur. Þá flýg ég yfir djúpin draumablá, I dimmum skógum sál mln spor þín rekur. Þú gafst mér alla gleði sem ég á. Þú gafst mér sorg, sem enginn frá mér tekur. Svo kveð ég þig. En er þú minnist mín, þá mundu, að ég þakka liðna daga. Við framtíð mína fléttast örlög þín. Að fótum þínum krýpur öll mín saga. Og leggðu svo á höfin blá og breið, þó blási kalt og dagar verði að árum, þá veit ég að þú villist rétta leið og verður minn - í bæn, í söng og tárum. (Davíð Stefánsson) Elsku pabbi. Hafðu bestu þakkir fyrir allt. Ég hélt að við fengjum lengri tíma, en nú er komið að skilnaðarstundu - í bili. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran) Farðu í friði, pabbi minn. Þín dóttir, Björg Ólöf. Elsku afi minn. Ég þakka þér allar góðu stundirnar sem við átt- um saman. Þegar ég fékk að sofa hjá ykkur og skreið uppí til þín á morgnana og þú hlýjaðir mér á tánum. Síðan læddumst við fram á undan ömmu og Bjarna Birgi og fengum okkur morgunmat og við töluðum saman um allt milli himins og jarðar og þú talaðir við mig eins og fullorðinn mann. Ég man þegar þú gafst mér járnbraut- arlestina og varst jafnspenntur og ég að setja hana saman og sjá hvernig hún virkaði. Ég man sög- urnar þínar sem þú sagðir mér um það þegar þú varst á sjónum og varst stór og sterkur, og þvílík upplifun fyrir mig að fara með þér á sjómannadaginn og sigla út fyrir Hafnarfjörð. Elsku afi, nú er þér batnað og ég veit að þér líður vel hjá Guði og getur passað kisurnar okkar, Trínu og Emelíu. Ég skal passa ömmu og Bjarna Birgi. Þinn Þormar Elí. Elsku besti afi minn, nú eru stundir þínar liðnar. Ég vildi að okkar tími hér hefði verið lengri. Það var svo gaman þegar við fórum í bíó og út að borða, og öll ferðalög- in sem við fórum í saman. Það var svo gott að hafa þig hjá sér og tala við þig. Það var svo sárt þeg- ar þú fórst að verða lasinn og gast ekki gert allt sem þú vildir gera. Ég sakna þín elsku afi minn. Takk fyrir allt. Þinn ávallt, Bjarni Birgir. „Þar sem jökulinn ber við loft, hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir, og þess vegna er gleðin ekki nauð- synleg, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu.“ (Úr Fegurð himinsins eftir Halldór Laxness.) Lífið er áskorun, og jafnvel hetj- urnar gráta. Vertu sæll vinur. __ Ragnar Óskarsson Guð að styrkja fjölskyldu Bjarna og aðra venslamenn á erfiðri stundu. Ég veit að allir sem kynnt- ust Bjarna taka undir þessi orð mín. Én við verðum að muna að lífið heldur áfram, en minningin um góðan dreng mun ávallt varð- veitast hjá okkur. Sigurður E. Sigurjónsson. í dag er til moldar borinn Bjarni Hermundarson langt um aldur fram, aðeins 61 árs að aldri. Hann andaðist á heimili sínu í Hafnar- firði á afmælisdaginn sinn, 11. þessa mánaðar. Mér er mjög ljúft að minnast Bjarna Hermundarsonar. Hann var einn af þessum traustu mönnum, sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Kynni okkar Bjarna voru ekki mik- il á yngri árum, enda á okkur ald- ursmunur og lágu því leiðir okkar ekki saman í skóla. En þegar við urðum báðir meðlimir í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar fyrir mörgum árum, tókust með okkur bæði góð kynni og sönn vinátta, sem aldrei bar skugga á. Bjarni var maður, sem mér þótti afskaplega gaman að vinna með. Ég var búinn að vera í Lionsklúbbnum í nokkur ár þegar Bjarni gekk í klúbbinn og í gegnum árin var ég í forsvari fyrir hinar ýmsu nefndir á vegum hans. Ég var alltaf fljótur að fá Bjama með mér í slíkar nefndir, því styrkurinn sem ég fékk frá honum var ómetanlegur. Það ár sem ég var formaður klúbbsins, var Bjarni gjaldkeri hans. Ég mun aldrei gleyma þeim krafti og dugnaði sem Bjarni hafði. Allt var í skilum og hlutirnir í röð og reglu. Á þessum tíma töluðum við oft saman í viku hverri og fann ég þá hversu gaman það getur verið að vinna í slíkum störfum þegar samhentur hópur á í hlut. Auðvitað vissi ég um veikindi Bjarna, en ég átti nú von á að hann yrði lengur á meðal okkar en raun varð á. En aldrei mun ég gleyma þeim dögum sem við áttum saman í Orlando á Flórída um síð- ustu páska. Við sátum og spjölluð- um um heima og geima, fórum í skemmtigarð og enduðum svo á því að fara út að borða saman á kvöldin. Sá kraftur og dugnaður sem þessi veiki maður hafði var aðdáunarverður. í garðinum var hann alltaf á undan okkur hinum. Ég gleymi heldur ekki þegar hann kom hlaupandi að hliðinu, þar sem ég og Margrét og strákarnir biðum eftir honum, til að leiðbeina okkur á þann stað sem hann, Ester og Bjarni litli, sem var augasteinn nafna síns, dvöldu á í fríinu. Hann var í stuttbuxum, með hatt, léttur á sér og strax kom upp húmorinn og hlýjan, sem einkenndu hann alltaf. Þetta voru yndislegir dagar. Að lokum vil ég minnast Bjarna fyrir hönd Lionsklúbbs Hafnar- fjarðar og þakka honum allt það sem hann lagði klúbbnum til í öll- um þeim nefndum sem hann starf- aði í. Ég hef alltaf sagt, að ef Bjarni hefði ekki verið þessi mikli skipstjóri er ég efins um að Lions- klúbbur Hafnarfjarðar ætti í dag eigið húsnæði. Bjarni var driffjöðr- in í að ráðast í kaupin enda var hann kosinn formaður húsnæðis- nefndar og á hún heiður skilinn fyrir að gera okkur það mögulegt að komast með eigur okkar á einn stað. Við Margrét og fjölskylda okkar öll viljum að lokum biðja góðan JIIIIIIIIII, M '1 Erfidrykkjur P E R L A N Simi 562 0200 Farinn er góður vinur og félagi. Þótt dauðinn sé eitt það fáa í lífinu sem við mennirnir göngum að sem vísu er alltaf jafn sárt að kveðja. Bjarni Birgir Hermundarson var fæddur og uppalinn í Hafnarfirði og átti þar farsæla ævidaga. Hann og eiginkona hans Ester Hurle voru mjög samhent hjón og áttu sér ýmis sameiginleg hugðarefni. Þau byijuðu snemma með sitt fyr- irtæki og dugnaður þeirra beggja alla tíð var með ólíkindum. Þau reistu sér fallegt hús við hraunjaðarinn í fallegu umhverfi. I umhverfi þar sem dóttir þeirra Björg ólst upp og síðar dóttur- sonurinn Bjarni Birgir sem var augasteinn afa síns og veitti hon- um meiri gleði og hamingju en orð fá lýst. Við hjónin þökkum þér fyrir all- ar þær ánægjustundir sem við átt- um með þér og ekki hvað síst nú um verslunarmannahelgina þar sem við vorum öll saman komin á Akureyri, þið með Bjarna Birgi og við með dóttur okkar og barnabarn ásamt okkar bestu vinum. Við skemmtum okkur öll svo vel, þú varst svo hress og stutt var í glettnina hjá þér þrátt fyrir veik- indi þín, við borðuðum saman, dönsuðum, töluðum mikið og hlóg- um, við vorum sem ein stór fjöl- skylda. Vináttuna og gleðina sem við áttum með þér í yfir þijátíu ár varðveitum við í hjarta okkar, kæri vinur. Elsku Ester, Bjarni Birgir, Björg og fjölskylda, Guð styrki ykkur og varðveiti. Ásgerður (Dídí) og Haukur (Bói). Látinn er vinur okkar Bjarni Hermundarson eftir hetjulega bar- áttu við erfiðan sjúkdóm. Við kynntumst Bjarna fyrst þegar við vorum öll að byggja við Sævanginn og myndaðist góður og traustur vinskapur með okkur hjónunum. Það kom fijótt í ljós að við áttum hauk í horni þar sem Bjarni var, man ég m.a. eftir því að eitt sinn þegar ég var erlendis vegna starfa Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ErjSdrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR HÓTEL LdFTLEllllR minna gekk óveðurslægð yfir land- ið. Nýbúið var að leggja pappann á þakið hjá okkur og allt var að byija að losna og fjúka. Bjarni dreif í því með góðri hjálp annarra að festa allt tryggilega niður í vit- lausu veðri. Já, það var gott að eiga Bjarna að, Lionsklúbbur Hafnarfjarðar naut starfskrafta hans um árabil og mælti hann með mér um inngöngu í klúbbinn. Hann var duglegur og skemmtilegur fé- lagi og fékk félagana oft til að hlæja á fundum enda var Bjarni oft og einatt hrókur alls fagnaðar á mannamótum. Bjarni og Ester hafa unnið hörð- um höndum í fyrirtæki sínu og ber fallegt heimili þeirra vott um það og alltaf gott að heimsækja þau hjónin. Eftir að Bjarni greindist með sjúkdóm sinn vildi hann lifa sem eðlilegustu lífi og var ætíð bjartsýnn. Þau fóru í ferðalög utan lands og innan, bæði vegna fyrir- tækisins og sér til ánægju og hvíld- ar. Síðast dvöldu þau á Akureyri um verslunarmannahelgina. Dótt- ursonur þeirra, Bjarni Birgir, sem þau hafa alið upp, hefur jafnan verið í för með þeim. Við erum þakklát fyrir að hafa átt góða stund með þeim þegar þau fyrir stuttu dvöldu um helgi hjá okkur í sumarbústaðnum. Þrátt fyrir allt þetta vissi Bjarni að hveiju stefndi og gerði sínar ráðstafanir varðandi framtíð fjölskyldunnar og var ekki annað hægt en að dást að æðru- leysi hans. Nú er komið að kveðjustund og við hjónin þökkum þér samfylgd- ina. Minningin um góðan vin mun lifa björt í hjörtum okkar. Megi góður Guð styrkja þig, elsku Est- er, og fjölskyldu þína á erfiðri skilnaðarstund. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem) Hvíl þú í friði, vinur. Geir og Jórunn. HRAUNBERGS APÓTEK Hraunbergi 4 INGÓLFS APÓTEK Kringlunni 8-12 eru opin til kl. 22 "A" Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Ingólfs Apótek Opið öli kvöld lil kl. 22 - einnig uni hclgar. Skrcytingar fyrir öll tílcfni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.