Morgunblaðið - 20.08.1996, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 20.08.1996, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Bróðir okkar, STEINDÓR FINNBOGASON, Öldugötu 7, andaðist í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 17. ágúst. Útförin auglýst síðar. Systkini hins látna. t Móðir mín, BRYNDÍS S. JACOBSEN (Binna), Þórufelli 12, Reykjavík, lést á heimili sínu 11. ágúst sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fríða Pálmars. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON, Jökulgrunni 14, áður Langholtsvegi 137, Reykjavík, andaðist í Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Foss- vogi, fimmtudaginn 15. ágúst sl. Jarðarförin auglýst síðar. ísgerður Kristjánsdóttir, Gunnar Ingi Þórðarson, Sigrún Þórðardóttir, Gunnar Hans Helgason, Ragnheiður G. Þórðardóttir, Björn Björnsson og barnabörn. t Elskuleg móðir mín, amma okkar og langamma, INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR frá Bústöðum, Marklandi 16, Reykavík, er andaðist á heimili sínu 16. ágúst sl., verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 23. ágúst kl. 13.30. Fjóla Sigurgeirsdóttir, börn og barnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, dr. med. STEFÁN HARALDSSON fyrrverandi yfirlaeknir, Laufásvegi 63, Reykjavík, andaðist á heimili sínu þann 18. ágúst. Sveinrún Árnadóttir, Sigrún Stefánsdóttir, Hjörtur Sigvaldason, Stefán Hjartarson, Andri Hjartarson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN BJÖRNSSON skipstjóri, Bakkavör 5, Seltjarnarnesi, andaðist 13. ágúst sl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 20. ágúst, kl. 13.30. Jenný Guðlaugsdóttir, Björn Jónsson, Erna Nielsen, Kristín Jónsdóttir, Guðlaugur Jónsson, Sigriður Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ARNI GUÐMUNDSSON + Árni Guð- mundsson fæddist á Núpi und- ir Vestur-Eyjafjöll- um 23. september 1929. Hann lést í Landspítalanum 25. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 7. ágúst. Mér datt ekki í hug að ég hefði verið að tala við Árna vin minn og nágranna í hinsta sinn þegar við sáumst síðast. Eg var nýkominn heim af sjúkrahúsi vegna krankleika sem ég hafði áunnið mér og skrapp því út í garð til að líta á gróðurinn þegar Árni heitinn kom út. Það urðu fagnaðarfundir að venju því ég hafði ekki séð Árna í allnokkurn tíma. Mér var brugðið þegar ég sá hve hinn illvígi sjúkdómur hafði herjað á hann. Kunningsskapur okkar Árna hófst fyrir um 30 árum þegar við fluttum í Breiðholtið. Við vor- um nokkurskonar frumbyggjar þarna, vorum með þeim fyrstu sem fluttu í hverfið. Mér er bæði ljúft og skylt að minnast á nokkur atriði sem urðu til þess að kunnings- skapur tókst eiginlega strax og við sáumst. Árni bjó í Skriðustekk 1 en ég bjó í Lamba- stekk 2 og lóðir okkar lágu saman. Við sáum fljótt að þessar lóðir voru ekkert annað en óstandsett leirflag með klöppum, þar var ekki sting- andi strá nema snarrót ef eitthvað Móðir okkar, t HELGA JÓNSDÓTTIR, Bjarkarstfg 7, Akureyri, er látin. Hrafn, Þórunn, Gunnhildur, Ragnhildur og Úlfar Bragabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR SIGURÐSSON skipasmiður frá Bæjum, Sólvangi 1, Hafnarfirði, lést í St. Jósepsspítala þann 18. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Sigþrúður Gunnarsdóttir, Jón Rafn Oddsson, Maria R. Gunnarsdóttir, Sigurður Gunnarsson, S. Erla Lúðvíksdóttir, Sigriður Gunnarsdóttir, Einar H. Þorsteinsson, Steinunn Gunnarsdóttir, Sveinbjörn Guðmundsson, Erla Þ. Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRA ÁGÚSTSDÓTTIR frá Stykkishólmi, skrifstofustjóri hjá Búnaðarbankanum, Ugluhólum 8, Reykjavík. lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 17. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 23. ágúst kl. 15.00. Sigríður Hanna Jóhannesdóttir, Ágúst Þórarinsson, H. Ágúst Jóhannesson, Ragnheiður Bachmann Gunnarsdóttir, Guðrún E. Jóhannesdóttir, Jóhannes Halldórsson og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNACRONIN, 4. Bthurst House, White City, W12 London, andaðist í Hammersmith Hospital í London mánudaginn 12. ágúst. Bálför hennar fer fram í London miðvikudaginn 21. ágúst. Kveðjuathöfn á (slandi verður auglýst síðar. Jakobína Cronin, Ólafur H. Ólafsson, Jóhanna Cronin, Reynir B. Skaptason, John Cronin, Josie Cronin, Benedikt Cronin, Bill Cronin, Julie Cronin, Georg Cronin, Suesan Cronin, Philip Cronin, Sandra Cronin, barnabörn og barnabarnabörn. var. Við sáum strax að við þetta yrði ekki unað. Góður vinur okkar, stórvélamaðurinn kunni ogjarðýtu- stjórinn Sigurður Ólafsson, kom okkur til hjálpar með 16 tonna jarð- ýtu og rétti flagið af og stallaði. Síðan fengum við tugi tonna af gróðurmold sem við dreifðum um svæðið. Ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tíma séð kappsamari mann taka til_ hendinni við þetta þrælaverk en Árna heitinn. Árni vann hjá BM Vallá á þessum árum og kom víða við á steypubíln- um stóra. í einni ferðinni sá hann dágott tún sem hann festi kaup á fyrir okkur báða og fleiri. Við flutt- um túnið upp í Breiðholt og tyrfðum garða okkar með því. Þá breyttist mannlífið, smáfólkið okkar gat nú leikið sér á grasi og túni. Einnig var þarna rokbæli hið mesta. Við fengum góð tré sem við gróðursett- um og nú áratugum seinna sitjum við í skjóli vel gróinna og fallegra tijáa. Rokið sem áður var sést nú aðeins sem smágola á toppi tijánna. Við vorum einmitt að riija upp þessa daga o.fl. eins og oft áður þegar við sáumst síðast. Okkur nágrönnum þótti mikill sjónarsviptir að sjá ekki Árna og eiginkonu hans Laufeyju ólafsdótt- ur úti í garði við vorannir að þessu sinni, en þau voru yfirleitt alltaf fyrst út í garð á vorin. Laufey varð fyrir bílslysi fyrir nokkrum árum og hefur ekki beðið þess bætur nema síður sé, því miður. Árni var mikill fjölskyldumaður og fjölskylda hans var honum mjög kær,_ hún var honum allt. Þau hjón- in Árni og Laufey eignuðust 5 mannvænlega syni sem allir eru uppkomnir og giftir og eiga börn sem voru þeim hjónum rnjög kær. Það var gaman að sjá Árna gant- ast við þessa litlu augasteina sína, hann var sérfræðingur í þessu, og sá kærleikur sem var þar að baki fellur aldrei úr gildi. Árni var hár og karlmannlegur á velli, hann iðkaði íslenska glímu á yngri árum, enda kom hann vel og karlmannlega fyrir. Árni hafði áhuga og ákveðnar skoðanir á þjóð- málum almennt. Hann hafði samúð með þeim sem minna máttu sín, enda maðurinn hreinn og beinn í öllum samskiptum og gerði ekki mannamun. Yfirborðsmennska var honum með öllu framandi. Árni keyrði steypubíla hjá BM Vallá um áratugaskeið og þótti með afbrigðum góður starfsmaður, vel liðinn af vinnuveitendum sínum ekki síður en vinnufélögum, enda stéttvís og kjörinn til trúnaðarstarfa stéttar sinnar í Dagsbrún. Árið 1982 stofnaði Árni ásamt Sigurði syni sínurn fyrirtækið Dælu- tækni hf. sem þeir ráku af myndar- skap. Árni var framkvæmdastjóri þess til dauðadags. Það er margs að minnast á öllum þessum árum, miklu meira en hægt er að koma að í síðbúinni kveðju. Árni hafði vonast til að geta fylgst með innsetningu hins nýkjörna for- seta vors þegar ótímabært fráfall hans bar að. Við Maddý sendum Laufeyju og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur, og ég veit að ég mæli einnig fyrir munn nágranna okkar. Þegar sólskinsdagar eru fegurst- ir, tijá- og grasilmur, angan og lita- dýrð blómanna, vatnsniðurinn með ívafi smáfuglasöngs í þessari garð- stemmningu sem gaf lífinu svo mik- ið gildi, þökkum við Árna fyrir allar samverustundir bæði í sorg og gleði. Maríus Blomsterberg og fjölskylda. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. I>að eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línuleng - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.