Morgunblaðið - 20.08.1996, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 39
I
I
I
I
I
3
(
I
i
<
(
(
i
(
<
i
(
(
i
(
(
j
(
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
LAGT af stað frá Skagaströnd.
Skagfirskir hestamenn á ferð
Skagaströnd - Þeir voru vel ríðandi
hestamennirnir úr hestamannafél-
aginu Léttfeta á Sauðárkróki sem
gistu á Skagaströnd í þriggja daga
útreiðartúr sínum. Um 60 manns
voru í ferðinni með 274 hross.
Það mun vera fastur liður í starf-
semi Léttfeta að félagarnir fari
saman ríðandi helgina eftir verslun-
armannahelgi. Þetta er að sögn
fimmtánda árið í röð sem þetta er
gert og hefur þátttakan aldrei verið
betri.
Fyrsta dag ferðarinnar var riðið
frá Sauðárkróki til Skagastrandar
þar sem hópurinn gisti í félagsheim-
ilinu eftir að hafa litið við í
Kántrýbæ. Annan daginn hélt hóp-
urinn yfir Skagaheiði til baka og
gisti í félagsheimilinu Skagaseli úti
á Skaga en þaðan var síðan haldið
til Sauðárkróks þriðja daginn.
Deild í FÍ á
Austfjörðum
STOFNUÐ var deild í Ferðafélagi
íslands á Mið-Austfjörðum 15. ág-
úst sl. og ber hún heitið Ferðafélag
Fjarðamanna á Austfjörðum.
Hópur áhugafólks frá Neskaup-
stað, Eskifirði og Reyðarfirði hefur
unnið að undirbúningi félagsstofn-
un arinnar í sumar og m.a. af því
tilefni efnt til stuttra gönguferða.
Stofnfundurinn var haldinn í Skíða-
miðstöðinni í Oddsskarði og var vel
sóttur. Ríflega 50 manns hafa þeg-
ar skráð sig sem stofnfélaga en
stofnfélagaskrá verður opin til 31.
desember 1996.
Félagið hyggst sérstaklega beita
sér fyrir ferðum á Austurlandi og
byggja upp Fjarðasvæðið þannig
að það verði aðgengilegra þeim sem
vilja þess njóta.
Stjórn félagsins skipa: ína Gísla-
dóttir, formaður, Árni Ragnarsson,
gjaldkeri, og Benný ísleifsdóttir,
ritari.
■ BRETTAFÉLAG Reykjavík-
ur (BFR) og Týndi hlekkurinn
standa fyrir stærsta hjólabretta-
móti sem haldið hefur verið á ís-
landi á Ingólfstorgi miðvikudaginn
21. ágúst kl. 19, segir í fréttatil-
kynningu. Ennfremur segir:
„Keppt verður í tveimur flokkum;
yngri en 16 ára og 16 ára og eldri.
Mikið verður um dýrðir og hljóm-
sveitirnar Stjörnukisi og Tractor
skemmta keppendum og áhorfend-
um. Plötusnúðarnir Kári, Richard
og Hólmai' spila meðan keppnin á
sér stað. Á síðasta hjólabrettamóti
sem haldið var á Ingólfstorgi voru
rúmlega 500 viðstaddir og öruggt
má telja að ekki verði færri á
næsta miðvikudag. Dagskráin
stendur frá 19-22.“
■ Á FUNDI sem Stuðnings- og
sjálfshjálparhópur hálshnykks-
sjúklinga hélt nýlega var einróma
samþykkt að skora á stjórnvöld
að leysa læknadeiluna hið bráð-
asta. Jafnframt var fyrirhugaðri
lokun Grensásdeildar harðlega
mótmælt.
FRÉTTIR
Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík
Tiltöluleg’a friðsöm
menningarnótt í miðbænum
UM HELGINA var tilkynnt um
11 innbrot, 17 þjófnaði, 15 eign-
arspjöll og minniháttar líkams-
meiðingar. Afskipti þurfti að hafa
af u.þ.b. 60 manns vegn ölvunar.
Þá voru 53 ökumenn kærðir fyrir
að aka of hratt, níu ökumenn eru
grunaðir um ölvunarkastur og 35
umferðaróhöpp voru tilkynnt til
lögreglu.
Kvartanir vegna hávaða og
ónæðis utan dyra og innan voru
36 talsins, auk 4 tilkynninga
vegna heimilisófriðar. Alls eru
418 tilvik um afskipti lögreglu
skráð um helgina. í fangageymsl-
unum voru vistaðir 50 einstakl-
ingar á tímabilinu.
Ungt fólk áberandi
Föstudagsnóttin var hefðbund-
in, en lítið var um afskipti lög-
reglu. Yngra fólk en 16 ára sást
ekki á ferli og engan ungling
þurfti því að færa í athvarfið.
Fjölmenni var í miðborginni
aðfaranótt sunnudags. Margir
virtust þar í menningarleit, en
aðrir af gömlum vana, sérstaklega
eftir 02.00. Flytja þurfti mann á
slysadeild eftir slagsmál í Austur-
stræti. Krakkar brutu rúðu í
Stjórnarráðinu.
Sparkað í höfuð
lögregluþjóns
Stúlka, sem lögreglumenn
þurftu að hafa afskipti af á Lækj-
artorgi, náði að sparka í höfuð
eins þeirra með þeim afieiðingum
að flytja varð hann á slysadeild.
16.-19. ágúst
Ölvaður kvenmaður sparkaði og
í höfuð dyravarðar veitingastað-
ar í miðborginni. Flytja þurfti tvo
menn á slysadeild eftir slagsmál
á Ingólfstorgi. Undir morgun var
tilkynnt um tvær stúlkur sem
voru að beija mann í Hafnar-
stræti. Þær hurfu síðan af vett-
vangi, en voru stöðvaðar
skömmu síðar á ferð í bifreið og
færðar á lögreglustöð.
Talsvert bar á ungu fólki und-
ir 16 ára í miðborginni aðfara-
nótt sunnudags, í fyrsta skipti í
langan tíma. Flytja þurti 9 í at-
hvarfið og hafa samband við for-
eldra þeirra.
Þrátt fyrir mikinn mannfjölda
í miðborginni aðfaranótt sunnu-
dags gengu hlutir tiltölulega
friðsamlega fyrir sig. Fjölmargir
voru þar vegna skipulagðrar
dagskrár, en aðrir voru þar
vegna hefðbundinnar þjónustu
eða af öðrum ástæðum.
Reykjavíkurmaraþonið á
sunnudag var fjölmennt að
vanda, en það fór fram án af-
skipta lögreglu. Hún veitti þó að
sjálfsögðu aðstoð við fram-
kvæmd þess samkvæmt venju.
Lagt hald á fíkniefni
Ökumaður var stöðvaður á
Geirsgötu aðfaranótt laugar-
dags. Hann var grunaður um að
vera undir áhrifum fíkniefna. Um
nóttina var ungur maður stöðv-
aður á bifreið í Breiðholti. Á
þriðja gramm af amfetamíni
fannst í bifreiðinni. í framhaldi
af því var leitað heima hjá öku-
manni. Þar fundust 20 g af am-
fetamíni til viðbótar.
Á föstudag gerðu lögreglu-
menn húsleit á vínveitingastað í
miðborginni. Fíkniefni fundust á
einum viðskiptavinanna. Þá
fylgdust lögreglumenn með
nokkrum vínveitingastöðum að-
faranótt sunnudags í sama til-
gangi.
Harður árekstur
Á föstudagskvöld varð harður
árekstur tveggja bifreiða á gat-
namótum Hverfisgötu og Snorra-
brautar. Flytja þurfti ökumenn
beggja bifreiðanna á slysadeild,
auk tveggja farþega. Á sunnudag
var almenningsvagni ekið aftan
á fólksbifreið á Hringbraut aust-
an Melatorgs. Ökumaður og
fimm börn voru flutt á slysadeild.
Á laugardag var tilkynnt um
eld í húsi við Bergstaðastræti.
Lítilsháttar tjón reyndist hafa
orðið þegar brauðbretti, sem leg-
ið hafði ofan á heitri eldavélar-
hellu, brann. Aðfaranótt sunnu-
dags var kveikt í gámi við Völu-
teig í Mosfellsbæ. Slökkviliðið
slökkti eldinn. Lítið tjón hlaust af.
Á sunnudg kviknaði í bifreið á
Miklubraut. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn, en bifreiðin var
óökufær á eftir. Þá kviknaði eld-
ur í þvottavél húss við Ásholt.
Skemmdir urðu á baðherbergi.
Aðfaranótt mánudags var kveikt
í pappírsgámi við verslun við Iðu-
fell. Lítið tjón hlaust af.
RADA UGL YSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
„Au pair“ í London
íslensk fjölskylda óskar eftir „au pair“ til að
gæta tveggja ára drengs og tveggja barna
á skólaaldri frá 1. október nk.
Upplýsingar gefa íris og Jón í síma 551 3117
Tónmenntakennari
óskast
fyrir barnakór Háteigskirkju.
Vinsamlegast sendið umsóknir tii kirkjunnar,
merktar: „Tónmenntakennari.“
Frá Hvolsskóla
Við Hvolsskóla Hvolsvelli vantar umsjónar-
kennara sérdeildar næsta vetur.
Ef þú hefur áhuga á að skoða málið, hringdu
þá í Unnar Þór í síma 487 8408 eða í heima-
síma 487 8116.
Yfirvélstjóri
óskast strax á mb. Surtsey VE 123, sem fer
til togveiða.
Upplýsingar í síma 854 7203 eða 481 2702.
Prentsmiður
- grafískur hönnuður
Prentsmiður, grafískur hönnuður eða starfs-
maður vanur Macintosh-umhverfi (Freehand
og Photoshop) óskast í prentsmiðju.
Góð vinnuaðstaða - góð tæki.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „Prentsmiðja - 1077“.
Takið eftir!
Mannval er nýstofnuð ráðningarþjónusta,
sem býður fyrirtæki, stofnanir og einstakl-
inga velkomna til samstarfs.
• Okkur vantar fólk á skrá.
MANPl
ŒtarfxmmiW’' 175- r6$ntnyi!!:r$tf$nuaz*
AL5TUR5TRÆTI 17 • 3. HÆÐ • ID1 REYKJA/ÍK
5ÍMI 5B1 5B5B • FAX 5B1 5B5B
Starfsmaður
í tækjasal
með reynslu og þekkingu, vantar á eina
stærstu líkamsræktarstöð í Reykjavík.
Hlutastarf.
Svör sendist til afgreiðslu Mbl., merkt:
„Áhugasamur - 15233“, fyrir 26. ágúst.
HJÓNABANDS-
SKÓLINN
Sími: 562-9911
Píanókennsla
Kennsla á öllum
stigum [ píanóleik
og/eða tónfræði-
greinum.
Fyrra haustmisseri
hefst 26. ágúst nk.
Nánari upplýs-
ingar í síma 552 3345.
Snorri Sigfús Birgisson.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Oagsferðir
Þriðjudagur 19. ágúst kl. 19.00
Esja-Þverfeilshorn. Mæting á
bílastæðið við Mógilsá.
Munið Esjumerkin 400 kr.
Miðvikudagur 20. ágúst
kl. 08.00 Þórsmörk - Langidal-
ur. Verð 2.700 kr. Stansað 3-4
t. í Mörkinni. Tilvalið að dvelja
fram að helgi í Skagfjörðsskála.
Hekluferð kl. 08.00 og sveppa-
ferð kl. 13.00 laugardaginn
24. ágúst.
Munið helgarferðirnar 23.-25.
ágúst: Laugar - Álftavatn, yfir
Fimmvörðuháls og Þórsmörk
og Núpsstaðarskógar (sumar-
leyfisf erðir).
Farmiðar og uppl. á skrifst.
Mörkinni 6.
Feröafélag Islands.
Dagsferðir 25. ágúst
Kl. 10.30 Reykjavegurinn, 7.
áfangi; Kolviðarhóll-Nesjavellir.
Kl. 10.30 Nytjaferð, 5. áfangi;
tíndir sveppir.
Helgarferðir 23.-25. ágúst
Kl. 20.00 Básar. Síöustu sumar-
dagarnir eru ógleymanlegir í
Básum. Sveppir hafa þroskast
vel og berin eru um allar hlíðar.
Verð 4.900/5.600.
Kl. 17.30 Vestmannaeyjar,
pysjuferð. Siglt með Herjólfi til
Eyja. Gist á góðu farfuglaheim-
ili. Farið í skoðunarferð um eyj-
una í rútu og pysjum safnað um
kvöldið með aðstoð heima-
manna. Sigling um eyjarnar á
sunnudag. Fararstjóri er Vest-
mannaeyjamærin Fríða Hjálm-
arsdóttir. Verð 7.900/8.700.
Helgarferðir 24.-25. ágúst
Kl. 08.00 Fimmvörðuháls; ein
vinsælasta gönguleið landsins
og það ekki að ástæðulausu.
Gist í glæsilegum Fimmvörðu-
skála.
Kl. 10.00 Jeppaferð f Lakagíga.
Ferðin hefst á Kirkjubæjar-
klaustri og farin er einstaklega
falleg hringferð um þemasvæði
Útivistar. Góðar göngur báða
dagana og leiðarlýsing heima-
manna. Verð 2.000/2.500.
Netfang:
http://www.centrum.is/utivist